Þjóðviljinn - 19.06.1949, Qupperneq 3
^'fiuBjHidagur - 19. - júni * .1949
I » I '.H'! '.'■ ■' a
ÞJÖÐVILmm
“**3
i«*H
■Mi
K'/
,,3a er eg
Þegai boðsgestir stjórn-
arflokkanna hörfuðu með
társtokkin augu af Austur-
velli 30. marz sl. sáu þeir
það seinast, hvernig minnis-
merkj Jóns Sigurðssonar
hvarf smám saman bak við
banjiaríska gasmekki, en
grímuklæddir kylfumenn
stigu óheimlegan villi-
mannadans umhverfis lík-
neskið. Eflaust hefur Jón
Sigurðsson verið að fullu
hulinn, þegar ráðherrarmr
sex óku burt í lúxusbílum
sínum, að afloknum landráð-
um, enda hefur þeim vart
verið litið til hans, þar sem
þeir hjúfruðu sig sem næst
gólfi í bilum sínum og
reyndu að kæfa^niður ill-
skeyttar raddir samvizku
sinnar: „grýtum, grýtuni,
drepum, drepum.“ Þegar
þeir voru eknir burt heilir á
húfi létti mekkinum örlítið
í bili, en síðan héldu spreng-
ingarnar áfram meðan dagur
og birgðir entust. En mynd-
in af Jóni Sigurðssyni þar
sem hún hvarf í bandarískri
pestarstybbu mun geymast í
hugum þúsundanna, sem á
Jiorfðu, táknræn mynd um
hina. geigvænlegu atburði
þess.a dags, þá atburði, sem
áttu að afmá lífsverk Jóns
Sigurðssonar á sama hátt og
gasið byrgðj mynd hans.
Hálfum þriðja mánuði síð-
ar var Reykvíkingum á ný
boðið á Austurvöll. Fyrir
boðinu stóðu sömu menn og
30. marz, en veitingarnar
voru að þessu sinni aðrar;
ekki gas, kylfur og hvítliðar,
heldur hornamúsík, fánar og
skátar. Og eins og 30. marz
opnuðust dyr Alþingishúss-
ins og út gengu ráðherrar,
ekki hræddir, • flottalegir,
ærðir af röddum; sjúkrar
samvizku, heldur bísperrtir,
upphafnir, með hátíðleika-
I :: % 1 Jru
hann er pao
bros stirðnuð í andlitsdrátt-
um. Fremstur gekk utan-
stefnuráðherrann Emil Jóns-
son, æðsti maður þjóðarinn-
ar í fjarveru forsetans, sem
dvaldist erlendis sér cil
heilsubótar og forsætisráð-
herrans, sem nýfloginn var á
lúxushótel í Sviss sér til
hressingar. Og utanstefnu-
ráðherrann gekk rakleitt að
styttu Jóns Sigurðssonar,
sem nú fékk ekki dulizt í er-
lendum gashjúp, og lagði
blóm við fótstallinn með
settleik þess manns, sem
nýtur langrar æfingar og á-
gætra fyrirrennara. „En sá
er sveik hann gaf þeim tákn
og sagði: Sá er ég kyssí,
hann er það.“
30. marz áttu ráðherrarn-
ir ekkert vantalað við þús-
undirnar, sem þeir boðuðu á
sinn fund, kylfurnar komu í
orða stað. En hálfum þriðja
máfluði síðar hafði utan-
stefnuráðherrann hresst svo
upp á hugrekki sitt, að hann
treystist til að ávarpa þjóð-
ina á þeim bletti, þar sem
gasið kom áður í hugrekkis
stað. Og orð hans voru mjög
á sömu lund og verknaður-
inn frammi fyrir mynd Jóns
Sigurðssonar. Hversu tak-
markalausar voru dyggðir
þessa manns i sjálfs hans
lýsingu; hversu taumlaus
ást hans á frelsi þjóðarinn-
ar, efnahagslegu og stjórnar
farslegu sjálfstæði: „Á
þessu landi viljum við öll
búa, af því okkur þykir
vænt um það.“ — Æ, herra
Emi) Jónsson, megum við
biðja um gas, megum við
biðja um kylfur — en ekki
þessa lágkúrulegu stælingu
á fomum kossi .
í huga fólksins, sem safnazt
hafði saman á fánaskrýddum
Austurvelli á fimm ára
minningardegi islenzkrar
lýðveldisendurreisnar, og á-
hrif hennar urðu þegar sýni-
leg 5 verki. Það gekk illa að
flæma almenning af Austur-
velli 30. marz með kylfum
og gasi og mannf jöldinn leit-
a.ðj æ aftur inn á völlinn, en
þegar utanstefnuráðherrann
hóf ástarjátningu sína má
segja að fólk flýði í ofboði i
allar áttir, en eftir stóðu
skátar og aðrir þeir, sem
áttu skyldustörfum sð
gegna, ásamt einhverju
slangrj af hinum 927 skrá-
settu liðsmönnum ríkis-
stjómarinnar.
Og eftir stóð mynd Jóns
Sigurðssonar og við fætur
hennar blómsveigurinn, sem
utanstefnuráðherrann hafði
lagt þar. Ráðherrann hélt
sig njóta þess að látnum
manni séu allar bjargir
bannaðar, hann sé varnar-
laus gegn ólánsverkum
þeirra, sem eftir lifa. Þeir
héldu sig urða Jónas Hall-
grímsson á Þingvöllum eftir
5. október 1946, og nú halda
þeir sig geta rænt Jóni Sig-
urðssyni frá þjóð sinni. En
Jón Sigurðsson er ekki dá-
inn, heldur lifir hann. Hann
lifir í öllum þjóðhollum
Islendingum og aldrei
hefur hann verið þjóð sinni
jafn nákominn og eftir 30.
marz, þegar likan hans hvarf
í bandarískum gasmekki
andspænis því alþingi, sem
hann hafði endurreist. Því fá
engin helgispjöll breytt, né
vald þeirra herra, sem heyrt
hafa vísbendingu þjóns síns:
„Sá er ég kyssi, hann er
það.“
Þessi þögula bæn vaknaði
vf r'
H'rn
'TT^Uð,
« 1
'jlfc- • - ■■■■ ~ - •• •• - í ••■ ■ • ■ ■ .„, 7* c-r *.
'minnismerki Jóns Sigurssonar hvarf smáni saman bak við bandaríska gasmekki,
■ en gríímnklæddir kylfumenn stigu óbeimlegan villimannadans umbverfis ...
..mmm.
■,*--:• -’íT
- tiJ'ts
Framh. af .Sy BÍðuj
vorú þeir Sigurður Sigurjóns-
son og Ármann J. Lárussonl
Sveit Sigurðar vann.
, - - • • ' : * ...l
Að lokinni bændaglímunni
hófst keppni i frjálsum íþrótti
um. Keppt var í 100 m. hlaupi,
kúluvarpi, spjótkasti, 800 m.
hlaupi, 5000 m. hlaupi, 1000 m.
boðhlaupi og 100 m. hlaupi
kvenna, en stangarstökkinu var
frestað.
tJrslit urðu þessi: 100 m.
hlaup: 1. Finnbjöm Þorvalds-
son IR, 10,8 sek. 2 Haukur
Clausen ÍR, 10,9 sek. 3. Guðm.
Lárusson Á 11,0 sek. Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby KR, 15,59 m.
2. Friðrik Guðmundsson KR,
14.26 m. 3. Sigfús Sigurðsson
UMF Self. 14,13 m. 800 m.
hlaup: 1. Óskar Jónsson IR,
2:00,9 sek. 2. Pétur Einarsson
IR, 2:01,9 sek. 3. Sggfáp Gunm
arsson Á, 2:03,i sek. Spjót-
kast: 1. Jóel Sigurðsson IR,
56,69 m. 2. Halldór- Sigurgeirs
son Á, 51,58 m. 3. Magnús Guð
jónsson Á, 48.13 m. 5000 m.
hlaup: 1. Njáll Þóroddsson Á,
17:24,6 sek. 2. V. E. Múnich
Á, 18:07,8 sek. 1000 m.
boðhlaup: 1. Sveit KR 2:05,9
sek. 2. A-sveit Ármanns, 2:08.2
sek. 3. Sveit ÍR 2:13,2 sek. 100
m. hlaup kvenna: 1. Hafdís
Ragnarsdóttir KR, 13,6 sek. 2.
Sesselja Þorsteinsdóttir KR,
14,2 sek. 3. Elin Helgadóttir
KR, 14,6 sek.
Fjölmenni mikið var á í-
þróttavellinum þrátt fyrir kalsa
veður, etorm og regn, er fór
versnandi. Meðal áhorfendv
yoru forsetafrúin, Georgífc
Bjömsson, handhafar forseta-
ýalds, biskup-íslands og fríj. .
Sdmkoman á AixMurhóli
Kl. hálf níu um kvöldíð var
samkoma á Amarbcli. Hófst
hún með leik Lúðrasveitar
Reykjavíkur, undir stjóm AI-
berts Klahn, en síðan setti for
maður þjóðhátíðarnefndar saœ
komuna með ræðu. Tjl skemmt
unar var kórsöngur, Karlakór
Reykjavíkur og Tónlistarfélagr
kórinn sungu, forseti bæjar-
stjómar, Guðmundur Ásbjörní.
son, flutti ávarp. Guðmundur
Jónsson. söng nokkur lög, Einar
Pálsson, leikari, las ættjarðar-
Ijóð, en að lokum söng „þjóð-
k,órinn“ undir stjóm Þórarinr
G uðmun dssona r.
DansdS á Lækjartorgi
Að lokinni samkomunni í
Arnarhóli fhitti mannfjöldini
sig niður á Lækjartorg, en i
miðju torginu hafði verið konc
ið fyrir hljómsveitarpalli. Innan.
lítillar stundar hófst dans
á torginu, undir stjórn ErleJift
ar Ó. Péturssonar. Var dansað
þar af miklu fjöri til kl. 2 e.
m.
Víðsvegar- um bæinn vort:
fánar dregnir að hún um dag-
inn, og hátíðarsvæðin fánum
skrýdd.
Móðir okkar
SIGElÐUR GRÍMSItOTTIR
.. , . , - *.
andaðist aðfaranótt 18. þ. m. að beimlli sínu, Sel-
vogsgötu 1, Hafnarfirði.
Böm hinnar látno.
Vantar nokkra lagtæka
verkamenn
austur í Hveragerði. Upplýsingar í Vinnumiðl-
unarskskrifstofunni kl. 4—5 á mánudag.
iiiiiiimimitiiimiiiiiiHiiiiiiiKmmctmsiiiiitEgEiiiiemiEiiímtiiiiiiiHiiiiiHiiir
mimdíki m
K. R. R.
1. s. t.
K. S. I.
Islandsmótið
Annað kvöld kl. 8,30 keppa
K.R. og FRAM
Er þetta ársJitaleikurinn ?
Nú má enginn sitja heima. Sama lága vei-ðið.
AUirútávoll! " NefmAui.
ílHmiHimililHIHIIIilimmHHHHIHIHIIIIIIHIHIHUHHHUmmlllHHIinHHW
;