Þjóðviljinn - 06.11.1949, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.11.1949, Blaðsíða 4
4 Þ. JÖÐ VTLJINN Sunnudagur 6. nóveiuber 1949 IIIÓÐViyiNN Útgetandl: Sameiningarflokkur alþýBu — SósíalÍBtaflokkurlnn Rltatjórar: Magnús Kjartansson iáb.), SigurOur GuOmundsson Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason BlaOam.: Ari KArason, Magnúa Torfi ölafsson, Jónas Árnason ÁuglýBlngastjóri: Jónsteinn Haraldsson Rltstjórn, afgrelOsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólavörOu-. ■tíg 19 — Sími 7800 (þrjár línur) ÁskrlftarverO: kr. 12.00 & mánuOl — Lauaasöluverð 50 aur, elnt Prentamiðja Þjóðviljana h.f. Sófdailstikflokkurliui, Þórsgötu 1 — Síml 7810 (þrj&r Unor) 7. névember 32 ár eru liðin síðan alþýða Rússlands, — verkamenn, bændur og undirokaðar þjóðir hins forna keisaradæmis, — reis upp gegn auðvaldi,aðli og keisarastjórn og bylti því af stóli 6. og 7. nóv. 1917. 32 ár, hin viðburðaríkustu verald- arsögunnar, aldarþriðjungur, sem markar örlagaríkari tímamót í þróun mannfélagsins en orðið hafa síðan stétta- þjóðfélagið myndaðist fyrst á jörðiani og hin ritaða saga hófst. Einu sinni áður hafði verkalýður tekið völd í sínar hend- ur og haldið þeim í þrjá mánuði. Það var verkalýður Par- ísarborgar vorið 1871. Sú fyrsta verkalýðsbylting verald- arsögunnar var kæfð í blóði. Auðvaldið þekkti enga misk- un, þegar alþýðan átti 1 hlut. ,,Fjendur“ þeir, sem þá háðu stríð hvor gegn öðrum, auðmenn Frakka og aðall Prúss- lands tókust í hendur til að hjálpast að við að drepa nið- ur alþýðu Parísar. Bicmark sendi Thiers franska her- fanga, er hann hafði höndum tekið, til þess að nota gegn alþýðu Parísar. Sú samhjálp auðvalds allra landa gegn al- þýðunni hefur síðan endurtekið sig oft. Það átti að fara eins að með alþýðu þáverandi Péturs- borgar og Moskvu. Það átti að kæfa byltingu verkamanna og bænda í blóði. I fjögur ár réðust alls herir 14 þjóða, þar með taldir herir Bretlands og Frakklands, Bandaríkj- anna og Japans, á hið unga alþýðulýðveldi, auk rússneskra hvítliða og keisarasinna, og skemmdarvarga og morðingja, sem vinna áttu því grand innan frá. En „kraftaverkið“ gerðist, kraftaverk allra alþýðubyltinga, — fátækir, vopn- litlir, klæðlitlir hermenn hugsjónanna sigruðu vel búið málalið auðvaldsins, sem ekkert vissi fyrir hverju það barðist. Umvafin samúð öreigalýðs allra landa reis rúss- neska hyltingin sigursæl upp úr hörmungum innrásarstyrj- aldanna. Og næst þegar rauður her Sovétríkjanna hrundi innrás af höndum sér, — blóðugustu árás veraldarsögunn- ar, grimmdaræði nazismans 1941—45, — þá frelsaði hann um leið alþýðu þeirra landa, er þýzka auðvaldið hafði und- irokað, úr helgreipum fasismans, en barg heiminum frá hættu þess dýrslega valds, sem þýzka auðvaldið var orðið í höndum Hitlers og nazistaflokksins. Sú bylting, sem hófst í Rússlandi 1917, var þríþætt: bylting verkalýðs gegn auðvaldi, bylting bændaalþýðu gegn gósseigendum, bylting undirokaðra nýlenduþjóða gegn framandi drottnunarvaldi. Og þessar byltingar hafa nú á síðustu fimm árum breiðst meira út á jarðríki en á þeim 27 árum, sem áður voru liðin. 100 milljónir manna í Mið- og Suðaustur-Evrópu, hafa gert samskonar byltingar hjá sér gegn aldagömlu aðals- valdi og yfirdrottnun vestræns auðvalds og stíga nú fyrstu sporin á braut sósíalismans. En stórkostlegasta byltingin hefur orðið í Asíu, þar sem brotið hefur nú verið blað í árþúsundasögu einnar elstu menningarþjóðar heims, með því að kínverska alþýðan hefur nú í fyrsfa sinni sjálf tekið völdin í landi sínu í sínar hendur. Með myndun kínversku lýðstjómarinnar hef ur sú bylting tekið á sig hið hefðbundna löglega form og ,450 milljóna þjóð bætzt í hóp alþýðuríkja heimsins. ÍNú gnötra öll völd auðmanna í Asíu og Evrópu. Auð- vald hinna gömlu borgararíkja hefur engin föst tök leng- ur á meginlandi Evrópu, það hjarir þar, en ræður ekki nema að vissu leyti við þróun þjóðanna. Og í Asíu rís frels Í^hreyfing þeirra milljónaþjóða, sem auðvald Evrópu hef- Eiga þau að búa í snjóhúsi? Hér er bréf, sem talar skýru máli um ástandið í húsnæðis- málunum. Það er ung móðir sem skrifar. „... Við hjónin höfum reynt að fá húsnæði í marga mánuði, en alveg árangurslaust, okkur hefur ekki tekizt að fá eitt herbergi. hvað þá meir. Og getið þið ímyndað ykkur af hverju? Það er af því, að við eigum eitt lítið barn, það vill enginn leigja fólki sem á börn. Og við sjá- um ekkert annað úrræði en að búa í snjóhúsi í vetur! - □ 900 kr. íbúð í mi<&- bænum. „Jú, við gátum náttúrlega fengið íbúð í gömlu húsi í mið- bænum. Okkur bauðst þessi íbúð fyrir nokkrum dögum, og mig langar til að lýsa henni fyrir ykkur. Það voru tvö her- bergi og eldhús. Annað her- bergið var uppi á þurrklofti, en hitt var niðri í kjallaranum, eldhúsið sömuleiðis. Eldhúsið var bara smá skonsa glugga- laus. — 1 auglýsingunni var farið fram á fyrirframgreiðslu, og við buðum aleiguna, 8 þús- und krónur með því að selja mestallar mublurnar. Mánaðar greiðslan átti að vera 900 krónur. □ Ljótur annmarki á. „Við hefðum tekið þetta, ef ekki hefði verið ljótur ann- marki á! Við áttum að gera samninginn strax og láta af hendi peningana; en við hætt- um við, af því að fólkið var ekki flutt úr íbúðinni og eng- inn vissi, hvenær það færi! Eg efast um að nokkur hafi bitið á agnið. En ég spyr: Er ekkert eftirlit haft með þessu? Þarf það fólk, sem tekur svona nokkuð á leigu, að kvarta sjálft og vera svo ekki viðvært í íbúðinni á eftir?“ □ Pésinn um áhugamál Alþýðuflokksins. „Þakklátur" skrifar í tilefni af því að hánn fékk send heim til sín ókeypis öll áhugamál Alþýðuflokksins í prentuðu formi. Um einn þátt pésans segir hann: „.... Eg hef séð eitthvað svipað tvívegis í Morg unblaðinu. Það er samanburð ur á kaupmætti launa í Reykja vík og Rússlandi. Samanburð- urinn er hagstæður fyrir Reykja vík um nálega 7 á móti 1. — Nú er það staðreynd, að Rússar eru lifandi og svo fjörugir að talin er hætta á að þeir fari í slag við allan heiminn. Sam- kvæmt þessu verður ekki annað ályktað en að Rússinn hafi nóg til að lifa af. □ Kaupið 7 siimuin of hátt! „Reykvíkingurinn sem hefur 7 sinnum meira fyrir vinnu sína, 73,92 kr. á dag, — ætti eftir framansögðu að komast af með 10 kr. (sbr. Rússana). Það er mjög ríflega áætlað 300,00 kr. á mánuði... Þarna virðist m ö. o., loksins ráðin hin torráðna gáta, kaupið er 7 sinnum of hátt! Og nú verður það fyrst skiljanlegt, af hverju Alþýðu- flokkurinn hefur lagt svona mikla áherzlu á, að nýir skatt- ar og tollar legðust sem jafn- ast á þegnana, þeir hafa allir jafnt of hátt kaup!.., Skrílr.- um hér ætti sem sé ekki að vera vandara um að lifa en hinum spræku Rússum við svipuð kjör!... Þakklátur.“ RIKISSKIP: Esja er í Reykjavík. Hekla er i Reykjavík. Herðubreið fór frá R- vík í gærkvöld til Breiðafjarðar og; Vestfjarða. Skjaldbreið er á Húnaflóa á norðurleið. Þyrill er í Reykjavík. EIXARSSON&ZOfiGA: Foldin var í Amsterdam, fer þaðan væntanlega síödegis í gær, laugardag, áleiðis til Reykjavíkur. Lingestroom er í Amsterdam. E I M S K I P : Brúarfoss fór væntanlega frá Akranesi til Reykjavíkur síðdegis í gær 5.11. Dettifoss kom til R- víkur 30.10. frá Hull. Fjallfoss er í Reykjavík. Goðafoss fór frá Leith. 4.11. væntanlegur til Reykja víkur á mánudagsmorgun 7.11. Lagarfoss fór frá London 5.11. til Hull. Selfoss er í Gautaborg, ferm ir í Kasko og Kotka í Finnlandi 7.—12. nóvember. Tröllafoss kom til Reykjavikur 30.10. frá N. Y. Vatnajökull fór frá Hamborg 31.10. væntanlegur til Austurlandsins í dag 5.11. MESSUR 1 DAG: Dómkirkjan. Messa kl, 11 f. h. — Séra Jón Auð- uns (Ferming). Alt arisganga fyrir fermingarbörn og aðra. — Ekki messað kl. 5. Laugar nesprestakali. Ferming í Dóm kirkjunni kl. 2 e. h. séra Garðar ur arðrænt og myrt síðustu aldir, hærra og hærra, — það er holskefla alþýðubyltinga, sem ríða munu nýlenduveld- unum þar að fullu. 1 löndum, sem þriðjungur mannkyns byggir, fer nú al- þýðan með völd, er ýmist að afnema auðvaldsskipulagið eða búin að því og fetar nú leið sósíalismans með risa- skrefum. Héðan af megna engar vitisvélar auðhringa í veröldinni að ráða niðuriögum, sósíalismans. Svavareson. Barnaguðsþjónusta í Laugarneskirkju kl. 10 f. h. Nes- prestakali. Messað í kapellunni i Fossvogi kl. 2 Séra Jón Thoraren sen. , 11.00 Messa í Dóm kirkjunni; ferming arguðsþ j ónusta (séra Jón Auðuns) 15.15 Útvarp til ís- lendinga erlendis: Fréttir og erindi (Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður). 15.45 Miðdegistónleikar. 18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Stephensen): a) Bókarkafli: „Margt getur skemmti legt skeð“ (Stefán Jónsson kenn- ari). b) Smásaga: „Veiðiferð kisu“ (Hörn 11 ára). c) Söngur méð git- arundirleik (Ránardætur). d) Bréfaþáttur. 19.30 Tónleikar: Velsk rapsódia eftir Edvvard German. 20.20 Samleikur á celló og píanó (Þórhallur Árnason og Fritz Weiss l.appel): Sónata op. 18 eftir Rubin stein. 20.35 Erindi: Litir og tónar (Jón Þórarinsson). 21:00 Tónleikar. 21.10 Upplestur: Þorsteinn Ö. Step hensen les smásögu. 21.30 Tónleik- ar: Píanókonsert í c-moll (K491). eftir Mozart. 22.10 Danslög. 28.30 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 18.30 lslenzkukennsla; I. — 19:00 Þýzkukennsla; II. 19.25 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum. 20.30 Út- varpshljómsveitin: Lög eftir Heise og Weyse. 20.45 Um daginn og veg inn (Ólafur Björnsson prófessor). 21.05 Einsöngur: Elizabet Schwarz kopf syngur. 21.20 Útvarpsþáttur (Helgi Hjörvar). 21.45 Tónleikar: Píanólög. 22.10 Létt lög. 22.30 Dagskrárlok. Næturlæknlr er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarakólaiaism. — Sími 5030. Næturakstur í nótt og aðra nótt; annast Hreyfill. — Sími 6633. Næturvörður er í Ingólfsapóteki. — Simi 1330. 1 gær voru gef- in saman í hjónaband af séra Jóni Thor- arensen, ung- frú Guðný Sig- urðardóttir, Höfðaborg 14 og Gísli J. Ástþórsson blaðamaður við Morgunblaðið, Túngötu 7. — Heim ili ungu hjónanna verður að Snorrabraut 40. •— 1 gær voru gef in saman í hjónaband af séra Jakobi Jónssyni, ungfrú Kristín Bjarnadóttir og Jarl Sigurðsson, Freyjugötu 11. — í gær voru gef in saman í hjónaband í Dómkirkj- unni ungfrú Pálína Guðmunds- dóttir stud. phil. og Sigurður Sig urgeirsson bankaritari. Faðir brúð gumans, hr. Sigurgeir Sigurðsson biskup, framkvæmdi hjónavígsl- una. Heimili brúðhjónanna verður í Blönduhlíð 33. Leiðrétting. — 1 fæðingarfrétt- inni i gser var skakkt hermt nafn móðurinnar. Hún heitir Guðrún Hrefna Jónsdóttir en ekki Ara- dóttir eins og sagt var. Kvennadeild Slysavarnafélags- ins heldur skemmtifund í Tjarnar café annað k^öld kl. 8.30 Hlutaveltu heldur Breiðfirðinga- félagið í Listamannaskálanum í dag og hefst hún kl. 2. Ferming í Dómkirkjunni ltl. 2 e. h. Séra Garðar Svavarsson. DRENGIR: Aðalsteinn Eyjólfsson, Selja- landi. Árni Króknes, Langholtsveg 4. Baldur Bjarnason, Háteigsveg 20. Guðlaugur Þórir Nielsen, Rán argötu 10. Guðmundur Þorkelsson, Tungu við Fifuhvamm. Guðni Sig urjónsson, Sogabletti 12. Gunnar Hjaltested, Karfavog 43. Klemens Ragnar Guðmundsson, Steinum við Breiðholtsveg. Matthías Egg- ertsson, Eskihlíð 12 A. Jón Óli Ól- afsson, Skúlagötu 58. Ragnar Kristinn Helgasöíí; Mjölnisholti 6. Reynir Guðmundsspyn, .Balbocamp 6. Valsteinn.... Viðir Guðjónsson, Framhald á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.