Þjóðviljinn - 28.12.1949, Side 6

Þjóðviljinn - 28.12.1949, Side 6
Þ JÖÐVIL JINN Miðvikudagur 28. des. 1949. 6 Alþjóðasamband klofningsmanna ~|1NN einu sinni eru verka- lýðssamtök heimsins klof- in í tvö andstæð alþjóðasam- bönd. Alþýðusambönd Bret- lands og Bandarikjanna, sem í janúar þessa árs klufu sig út úr Alþjóðasambandi verkalýðs- félaga, boðuðu i byrjun þessa mánaðar til stofnþings klofn- inssambands í London. Alþjóða samband verkalýðsfélaga var stofnað i London 1945 og í því sameinuðust öll alþýðusambönd í löndum bandamanna, hlutlaus um löndum og nýlendum að undanskildu hinu afturhalds- sama bandaríska sambandi American Federation of Labor. Alþjóðasambandið markaði sér brátt róttæka stefnu, alþýðu- sambönd Austur-Evrópu, Frakk lands, Italiu, Suður-Ameriku og nýlendnanna voru i meirihluta en hin íhaldssamari sambönd Bretlands, brezku samveldis- landanna, smáríkjanna í vest- ur-Evrópu og Congress of Industrial Organizations í Bandarikjunum voru í rninni- hluta. Þegar brezki liægrikrat- inn Deakin ,sem var forseti Alþjóðasambandsins, og félag ar hans sáu, að þeir gátu ekki ráðið stefnu samtakanna, gerðu þeir sér lítið fyrir og kröfðust, að stjórnin legði alþjóðasam- bandið niður. Meirihluti stjórn arinnar benti á, að til slíks hefði hún ekkert vald og vildi skjóta kröfu Deakins til fram- kvæmdanefndarfundar ,þar sem allir meðlimir sambandsins eiga fulltrúa ,en það vildu Deakin og menn hans ekki heyra nefnt og ruku á dyr i fússi. Útaf fyrir sig varpa þess ar aðfarir hægrikratanna skýru ljósi á lýðræðisást þeirra og virðingu fyrir vilja meirihlut- ans. Þeir gátu ekki þolað að vera í minnihluta og 'rufu ein- ingu verkalýðs heimsins heid- ur en brjóta odd af oflæti sinu og beygja sig fyrir sjálfsögð- ustu lýðræðisreglum. Hver skyldu hafa orðið örlög sam- einuðu þjóðanna, ef Sovétríkin hefðu þolað jafn illa að vera í minnihluta og hægrikratarnir í Alþjóðasambandi verkalýðs- félaga? yfi stofnþingi klofningssam- bandsins, sem hlaut hið fagra nafn „Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga" kom greinilega í ljós, að það sem fyrst og fremst vakir fyrir hvatamönnunum að stofnun þess er ekki að bæta kjör verkalýðs heimsins og treysta samtök hans. Hefði svo verið myndu þeir ekki hafa klofið Alþjóðasamband verkalýðsfé- laga. Þaö sem setti svip sinn á þingið í London var „bar- áttan gegn kommúnismanum," sambandið sem þar var stofn- að, er ekkert annað en vopn í hinu kalda stríði Bandaríkja- auðvaldsins gegn sósíalisman- um í heiminum. Bandaríkja- menn réðu öllu á þinginu. Að þeirra frumkvæði voru fest í stofnskrá klofningssambands- ins ákvæði um miskunnarlausa baráttu gegn kommúnistum. JpjANDSKAPUR bandarísku fulltrúannal við sósíalis- mann var ekki einskoraður við kommúnista, hann náði einnig til klofningsbræðranna, hægri- kratanna frá Vestur-Evrópu. Bandaríkjamenn fyrirbuðu að stofnskrá klofningssambands- bandsins gerði svo mikið sem nefna ú-m nafn jafn óamerisk . hugtök eins og stéttlaust þjóð- félag, afnám tímakaupskerfis- ins, þátttöku verkamanna í stjórn fyrirtækja og áætlunar- búskap á heimsmælikvarða. . ííjSí ^ SíSSISÍí Arthur Deakin. „Það erfiðasta fyrir þetta bandalag ,þar sem Bandaríkja- menn hafa töglin og hagldirnar verður að finna nokkurn skap- aðan hlut, sem hinir ósamstæðu hlutar þess geta komið sér saman um að ræða annað en fjandskap í garð kommúnista", segir brezka sósíaldemókrata- blaðið „New Statesman and Nation“ í bugleiðingum um framtiðarhorfur klofningssam- bandsins. (gtjórnendur klofningssam- baúdsins í London gáfu til kynna, að það sætu fulltrúar 50 milljóna félagsbundinna verkamanna. Eitthvað mun vera gruggugt við þá tölu og kom það ótvírætt fram á þing- inu. „Fulltrúar" frá nýlendum Breta í Vestur-Indíum reynd- ust t. d. skipaðir af brezku ný- lendustjórnunum, sem greiddu allan ferðakostnað þeirra. „Full trúinn" frá brezku Afríkuný- lendunni Gambia, Small að nafni ,er a.tvipnurekandi. „Full- trúinn" frá Ímnarri nýlendu hafði ekki umboð frá neinum nema sjálfum., .^ér, ,verkalýðs- sambandið í nýlendunni er á- fram méðlimur Alþjóðasam- bands verkalýðsfélaga. Einn af þoim Vestur-Indíufulltrúum, sem ekki var stjórnskipaður heldur raunverulegur fulltrúi verkalýðssamtaka skýrði danska blaðamanninum Otto Kiertzner, fréttaritara „Land og Folk“ í London frá reynslu sinni á klofnings- •þinginu. Er fulltrúinn tók til máls og byrjaði' að lýsa sultar- kjörum verkamanna í brezku nýlendunum og krefjast þess, að hið nýja samband tæki það sem eitt sitt brýnasta verk- efni að bæta kjör þeirra, gerði Sir Will Lawther, fyrrverandi forseti brezka alþýðusambands- . ins sér lítið fyrir og tók af honum orðið. Barátta fyrir bættum kjörum átti auðsjáan- lega ekki heima á stofnþingi „Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga“. *M. T. Ó. FRAMHALDSSAGA: «««»”««' ! BRD9ARHRINCDRINN EFTIE 3iignon JEherhart j 47. DAGUR. eða bara flón — að leggja sig í þá hættu að verða sakfelld við það að reyna að sanna sak- leysi manns, sem (sennilega, þótt henni virtist það gagnstæða) var grimmur og kaldrifjaður morðingi. Þetta var komið upp, og nú varð hun að reyna að gera gott úr því. Leynilögregluþjónninn beið eftir því að hún tæki til máls, en bak við dreymandi hjúp augna hans, var meðvitund hans í önnum við að rifja upp hið liðna. Hann sagði hægt: „Eg geri ráð fyrir, að þér hafið fundið bréf eða blað og brennt því á arninum í sumarhúsinu? Eða var það Westover sem brenndi því? Hvers vegna?“ Róní vætti varirnar. „Sjáið þér til. Það sannar að Lewis Sedley myrti hann ekki. Sá sem skrifaði bréfið vissi um mig — en það gerði hann ekki — ég veit að hann vissi ekkert um mig .... Eg sagði yður að hann vissi jafn- vel ekki að Erie væri kvæntur.“ „Jæja, jæja, frú Chatonier. Það er engin á- stæða til þess að vera æst.“ Hann gekk að dyrunum, opnaði og sagði manni sem var fyrir utan að ná í Westover, lokaði svo og gekk aftur á sama stað. „Jæja þá“, sagði hann. „Héma — viljið þér blævæng. Hann rétti henni stóra pálmaviðar- blævænginn, og horfði dálítið kvíðafullur á hana rétt eins og hann ætti von á að sjá tár eða hann byggist við að það mundi líða yfir hana. Stuart hlýtur að hafa verið á næstu grösum, því hann kom svo fljótt, leit fyrst á Róní og síðan á Picot. Hann var hár, brúnn og traustur á að líta. „Þér senduð eftir mér?“ „Já“, sagði Pieot. „Viljið þér gera svo vel að loka dyrunum. Þökk. Má ekki bjóða yður sæti? Frú Chatonier hefur játað, að þér hafið brennt bréfi á arninum sumarhúsinu. Hvað var það ?“ Stuart stóð upp; brúnt andlitið fölnaði, augun leiftruðu. „Við hvað eigið þér? Ef þér hafið haft brögð frammi —“ „Stuart“, hrópaði Róní. „Eg varð að segja honum það. Það sannar, að Lewis Sedley skrif- aði það ekki. Hann vissi engin deili á mér, þeg- ar hann kom í sumarhúsið. Sérðu það ekki? Hann hefði þurft að vita um mig. Ef morðinginn hefur skrifað bréfið, getur hann ekki verið Lewis Sedley.“. „Eg nota aldrei það sem þérílkallið brögð“, sagði Picoí þýðlega. „E.g er ekki- nógu slunginn til þess. En nú ættuð þið bæði að segja mér allt af létta. Leyna engu í þetta skipti.“ „Eg gerði það“, sagði hann. „Það var mín liugmynd. Það var auðséð, að morðinginn var að reyna að varpa grun á hana —“ „Nú, nú —hvað var það?“, spurði Picot með óþolinmæði. ' .; Hann hlustaði samt eins og hann væri ann- ars hugar, og dreymnu augun hvíldu á limgirð- ingunni. „Var skrift dómarans á því?“ spurði hann, þegar Stuart hafði lokið sögu sinni. „Eg veit það ekki“, sagði Stuart. „Skriftin var losaraleg og óregluleg — hún hefði getað verið eftir hvern sem verkast vildi. Hún hefði jafnvel getað verið skrifuð með vetlingum á höndunum.“ Picot anzaði þessu engu. „Þekktuð þér skrift- ina, frú Chatonier?“ „Nei. Eg hef aldrei séð skrift dómarans.“ ,Hm-m. Þetta er grábölvað,* sagði Picot. ,Það hefði verið auðvelt að ganga úr skugga um hvort hann hefði skrifað bréfið. Eða hélduð þið kannski, að hann hefði gert það? Ekki af því að það væri satt, heldur af því, að honum hafi þótt svo vænt um þær Mimi og Blanche, að hann hafi notað síðustu líftóruna til þess að reyna að koma í veg fyrir, að frú Chatonier gæti erft Eric, ef hann dæi“, bætti hann við í flýti. Róní furðaði sig á hvort það gæti verið, að þetta hefði hvarflað að Stuart. En Stuart sagði strax: „Eg held ekki að dómarinn hafi verið fær um að skrifa, deyjandi og særður eins og hann var né heldur að hann hefði getað hugsað skýrt; og hvað um hringinn? Það er ekki senni- legt að dómarinn hafi haft hann handbæran, ef svo skyldi takast til, að hann yrði myrtur. Það var greinileg tilraun til þess að benda á frú Chatonier. Var það ekki?“ „Eg veit það ekki“, sagði Picot. „Hvern teljið þið líklegan til að hafa gert það?“ Stuart kreisti aftur varirnar. „Það var gert — hver sem hefur gert það.“ Picot leit á Róní. „Hvað hafið þér til málanna að leggja.“ Hún sagði hægt: „Mér virðist að annaðhvort hafi morðinginn gert það til þess að reyna að koma grun af sér yfir á mig, eða einhver hafi komið um borð eftir að dómarinn var myrtur, en áður en ég kom þangað“ — það fór hrollur um hana — „og þá skrifað bréfið, og skilið hringinn eftir. Hafi morðinginn gert það, þá er Lewis Sedley ekki sekur.“ Báðir karlmennirnir hlýddu á með kurteisi á meðan konan ræddi svo ýtarlega um það, sem lá í augum uppi. Hún sagði: „Ef ekki, þá veit ég ekki hver getur hafa gert það. Það get ég ekki gizkað á. Það er ómögulegt að trúa því í alvöru, að einhver af þessum fáu hræðum, sem þekkja mig eða gátu vitað um fyrirætlun Erics urn að breyta erfðaskránni, mundu grípa til þess- ara ráða.“ Jafnvel Mimi, dátt henni allt í einu í hug, hefði ekki getað gert þetta. Picot stóð upp með svo ir.iklum ákafa að stóllinn hentist út í horn, og gekk út að franska giugganum aftur. Stuart greip um liönd Róní,

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.