Þjóðviljinn - 14.02.1950, Síða 6

Þjóðviljinn - 14.02.1950, Síða 6
ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 14. febrúar 1950. Eins og alltaf þegar aftur- haldið í heiminum á í vök að verjast, þyrlar það upp alls kyns fclekkingum í þeim til- gangi að hrœða og rugla dóm- greind alþýðunnar. I þeim hörðu átökum sem átt hafa sér stað hér á landi síð- ustu árin milli afturhalds og alþýðu, hefur þó einni grýlunni oftast og af mestu kappi verið otað fram, en þaö er Ivomrn- únistagrýlan. Þegar nokkrir auðsveipir þjónar erlends auðvalds flugu yfir hafið til þess að innlima eöguevjuna okkar inn í tortím- ingarkerfi stóraúðvaldsins í héiminum, hófu þessii: seku menn það vopnið hæst á loft, sem þeir héldu að bezt myndi duga, kommúnista'grýluna. „Það voru bara bölvaðir kommúnistarnir“ sem voru á móti því að selja ættland sitt til afnota fyrir þau öfl sem daglega ógna heiminum með ógurlegiistu. morðtækjurn sem sögur fara af. Það er ekkert undarlegt vio það, þó kommúnistagrýlaii, sem er eitt af uppáhalds blekking- artækjum afturhalds og fas- isma, hafi sín áhrif á heilabú þcirra' sem aldrei hafa látið sig sögu verkalýoshreyfingarinnar í heiminum neinu skipta. En það er furðulegt og aumkunar- vert þegar þeir sem á einhvern hátt vilja kenna sig við alþýðu eða sósíalisma, revna af öllum mætti að sverja af sér þau heitij sem frumherjum verka- lýöshreyfingarinnar þótti heið- ur og SEemtl af að bera. Ivlargir þessara litlu karla,! sem meira segja liafa hlotið virðingarstöfur i þjóðfélagi okk ar, þykjast þess umkcmnir- að i leiðbeina og fræða okkur fá- frcðan almúgan og keppast um að rannfæra þjóðina um það, aðj Sommúnistar séu það pestar-J fóik, sem þeir hvorki geti né j vilji eiga nokkra samleið með. i „Já, miklir menn erum við hr Vfur minn.“ En litlir karlar mega vara sig j á ] að það hefur alltaf reynzt erfitt að blekkja íslenzka al- þýðu. Orðið sameignarmaður, eins og það hættulega orð ko: rnúnisti útiegst í hverri oríabók, eða sameignarsinri, eins. og skáldið Haildcr Kiljan l.-r -s venjulega nefnir það í ritum sínum, hefur engin hræðilcg álirif á heilabú ís- lenzkrar verkalýðsstéttar. I formála að Kommúnista- ávarpinu, en um það hafa fróð- :jr menn og mikilsmetnir, sagt, að ekkert hafi verið ritað um þjóðfélagsmál, sem lýsi víð- tækari og dýpri skilningi á þró- unarlögmálum þjóðfélagsins, segir Engels m. a.: „Þegar það- (Kommúnistaávarpið) kom út, hefoum við ekki mátt nefna Iþað Sósíalistaávarpið. Sósíalisti þýddi tvennt árið 1847. Ann- arsvegar áhangendur hinna ýmsu kerfa hugvitssósíalism- ans, kiasvégar aliskonar þjóð- , félagsskottulæknar — sem vildu lækna þjóðfélagsmein- semdirnar meS hinum og þess- um undralyfjum, án þess að róta við auðmagninu og gróð- anum. Hvorirtveggja stóðu ut- an verkalýðshreyfingarinnar og kusu heídur að Ieita styrks hjá ,,menntuðu‘ stéttunum. Þeir, á meðal verkamanna, sem aítur á móti voru sannfærðir um, að pólitísk bylting væri með öllu ófullnægjandi óg heimtuðu um- sköpun alls þjóðfélagsins kölluðu sig Kommúnista.“ Ennfremur segir Engels: „Sósíalisminn var 1847 borg- araleg hreyfing — Kommún- isnúnn verkalýðshreyfing. Sós- íalisminn átti aðgang að sölum yfirstéttarinnar. Um Kommún- smann gat slíkt ekki komið til mála.“ Sú reynsla, sem við hér á i landi höfum að þessum svoköll- ! uðu ,,þjóðfélagsskottulæknum“, ! sem ýmist kenna sig við al- ! þýðu, framsókn eða frjálslyndi, I hefur sýnt okkur og sannað, ' að þeir svíkjast ékki aðsms um að berjast fyrir bættum kjör- um alþýðunnar í landinu, þeir hafa nú einnig gefið okkur á- þreifanlegt dæmi um það, að þeir hika ekki við að ganga á mála hjá verstu auðvaldssinn- um heimsins, til þess að geta með þeirra aðstoð lialdið áfram að kúga og blekkja alþýðuna. Þessir skottulæknar auðvalds- ins berjast ekki fyrir hagsmun- um alþýðu — og þeir krefjast heldur ekki annars ax henni, en að hún sé innlendum og er- lendum auðvaldssinnum auð- sveip og haldi áfram að vera það. En íslenzk alþýða er vaxin upp úr barnsskónum og lætur ekki lengur hræða sig með Grýlum. Islenzk alþýða skilur og veit, að Grýlur afturhalds- ins eru aðeins tæki til þess að hindra framsókn hennar í hags- munabaráttunni sem og i bar- áttunni fyrir sjálfstæði landsins hennar — og þess vegna brynj- ar hún sig þeim vopnum, sem bezt geta varið hana gegn þessari og öðrum árásum f jand manna sinna — en það er þekking á eðli og þróun verka- Iýðshreyfingarinnar í heimin- um. Áh. ðsaí framfarir — okki hnignun Framhald af 8. síðu. þesssum tveimur löndum: hvernig allt er á hnignunar- braut í Englandi, með sívax- andi vonleysistilfinningu fólks- ins, af öllum stéttum, og hins vegar örar framfarir og traust á framtíðinni í Tékkóslóvakíu. Hún telur það ilia farið að stjórnéndur British Council skuli ekki hafa „reynt eða óskað eftir að skilja þær miklu breytingar, sem eru að gerast í Tékkóslóvakíu í því skyni að byggja upp þjóðfélag frjálsra manna og heim án skorts og styrjalda". FRAMHALDSSAGA: BRDDARHRINGURINN E F T I R Migmom G. Eberhari ^ 82. BAGUK. »NÚ, jæja. Ef þér ætlið að fara að segja mér að hann hcfi arfleitt frú Sedley að peningum, þá er það óþarfi, Mér er þegar kunnugt um það. En ég held-ekki að hún hafi myrt hann.“ „Catherine! lfrópaði Róní. „En ég sagði ekki — mér hefur alls ekki dottið hún í hug!“ Nú rann það upp fyrir henni, hve lítið hún vissi í raun og veru um Catherine. Það var einkenni- legt að fyrst í stað veittu menn Catherine eftir- tekt vegna fegurðar hennar, en hættu svo alveg að gefa henni nokkurn gaum. Hún var í hús- inu, alltaf og allstaðar nálæg, en tilheyrði helzt baksviðinu — eins og málverk eða. líkneski. Mál- verk sem Eric þótti vænt um — á móti vilja sínum. Picot horfði einkennilega á hana. „Konur hafa myrt — það vitið þér,“ sagði hann. „Vegsum- merki við morð Yarrows dómara benda ekki til þess að karlmaður hafi framið það, (þó að ef til vill hafi átt að líta svo út). Eg man eftir,“ sagði hann hugsandi, ,,að ég las um mál sem kom fyrir að Fossá í Massachusetts. Nei — það hefði getað verið kona sem myrti dómarann. Án þess að fá nokkurt blóð á föt sín. Það hefur tíkki blætt mikið fyrst. Blóðið hefur aðallega runnið síðar.“ „Það var blóð á árunum,“ sagði Róní hikandi. Picot sagði: „Þér voruð að segja mér frá sam- tali yðar við mann yðar.“ „Mann — já. Eg spurði hann um sitt af hverju. Meðal annars um bréfið sem hann sendi mig með til Yarrows dómara áður en hann var myrtur, og brunnu eldspýtuna —“ Picot stirðnaði. „Brunnu eldspýtuna?" Eric hafði beðið hana að minnast ekki á það, en það skipti engu máli héðan af. Hún sagði honum í flýti allt sem hún mundi um bréfið sem Erie hafði hripað, ferð sína með það um borð. brunnu eldspýtuna og grun sinn um að þetta hefði verið í einhverju sambandi við gömlu málaferlin gegn Lewis Sedley. „Það var ekkert bréf í káetunni þegar við leituðum þar um nóttina. Alls engin einkabréf. Jæja, haldið þér áfram. Er nokkuð fleira ?“ „Já.“ Hún horfði á Picot og vonaði að hann myndi trúa sér. Hún sagði honum frá hinu síð- asta, dapurlega og kynlega samtali sínu við Eric. Plún sagði frá ilmvatninu sem hún hafði fært Mimi, og hvað Mimi hafði sagt. Hún skýrði einnig frá bögglinum til Buffs. Hún mundi samt í tæka tíð það sem Mimi hafði sagt um fangels- un og brottrekstur úr landi, og þar sem Picot lilaut að skýra viðkomandi yfirvöldum frá öllu sem bryti í bág við lögin, sagði hún honum ekki frá bréfinu til Blanche. En hún minntist laus- æga á Catherine, sagði að Eric hefði verið ást- fanginn af henni í mörg ár. Svo sagði hún hon- um aftur frá því sem Erie hafði hérumbil sagt en ekki alveg. Picot hlustaði. Kynlegur þreytu- og tómleika- svipur var á andliti hans, eins og hann væri alls ekki að hlusta, svo að hún hækkaði ósjálf- rátt röddina, eins og þegar talað er við heyrnar- dauft fólk. „Svo að hann komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið Lewis?“ sagði hann þegar hún þagnaði. „Þetta er einkennileg saga, frú Chatonier. Hann virðist hafa vitað eitthvað og þó ekki vera viss um það.“ „Hann kvaðst geta komizt að því sanna.“ Dökka ennið á Picot var allt í hrukkum. Hann tók hvíta, strikaða, samanbrotna pappírsörk úr brjóstvasanum á jakkanum sínum. „Þetta,“ sagði hann, „er erfðaskráin. Hún var í herbergi Erics. Eg tók hana í mínar vöirzlur. Auðvitað lief ég lesið hana, og ég sé enga ástæðu til þess að þér gerið það ekki líka. Viijið þér það?“ „Já“. Hann rétti henni blaðið, gekk út að gluggan- um og gægðist út um rifu á hleranum. Hún fietti sundur örkinni. Þetta var stórt skjal eins og Eric hafði sagt, þétt skrifað svo að örkin yrði nógu stór. Skrif- að var á bakhliðina á nótnapappír. Hann hafði óskað að ekki þyrfti að nota nema eina örk, mundi hún, svo að ekki væri hægt að hafa nein bellibrögð í frammi. Hún leit á erfðaskrána. Ilún byrjaði form- iega: .sem er hraustur á sál og líkama . . . . á þess- um drottins degi ... Erfðaskráin var löng því að allar eignir voru nákvæmlega sundurliðaðar, en skýrt og greini- lega var tekið fram að hún væri erfingi alls nema þess sem Cathérine var ánafnað. Það' var ckki mikið, aðeihs nægilegt handa henni til að iifa af, og ekki hafði hún ráðstöfunarrétt á höf- cðstóinum öllum. Hún braut blaðið saman aftur. Svörtu nótna- strikin á auðu hliðinni voru eins og sorgarrend- ur. Hún leit upp. Picot hafði snúið sér við og athugaði liana brjóta saman blaðið. „Það er bezt að ég taki við henni aftur“, sagði hann. „Eg skal sjá um að hún sé vel geymd. En þetta sannar að sá sem myrti Eric hefur ekki haft áhuga á að fá erfðaskránnni breytt. Ef svo i.efði verið. hefði hún sennilega týnzt. Eg geri ráð fyrír að maður yðar hafi ætlað að láta gera afrit af erfðaskránni og geyma annað sjálfur en láta lögfræðing sinn geyma hitt eintakið. Eg fann erfðaskrána í borðskúffu í herbergi hans, það er auðséð að sá sem myrti hann hefur ekk- ert hirt um erfðaskrána, því að ekkert liefði ver- ið auðveidara en finna hana og eyðileggja. Þetta virðist beina öllum gruni frá þeim Mimi og Blanche. Það er að vísu rétt að ungfrú Blanche erfir Yarrow dómara, en hún fullyrðir að hún geti sannað fjarveru sína og manns síns frá ÐAVlÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.