Þjóðviljinn - 19.02.1950, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.02.1950, Blaðsíða 1
VlLJINN Sunnudagur 19. febrúar 1950. 42. tölublað. Sverrir Kristjánsson i dag kl. 2.30 ái Þórsgötu 1 Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu hefur Sósíalistafélag Reykjavíkur ákveðið að efna til nokkurra erindaflokka fyrir sósíalista um ýmis efni og er þegar byrjað á þeim fyrsta. Annar erindaflokkur hefst í dag (sunnudag) kl. 2.30 e. hji.“i^*J>órsgötu 1. Verður hann eingöngu erindi frá út- löndum. Munu þeir Sverrir Kristjánsson, Magnús Torfi Ólafsson og Sigurður Guð- mundsson flytja þessi erindi. Sverrir Kristjánsson flytur erindi í dag og nefnir það: Úr sögu imperíalismans. Öllum sósíalistum er heim- iluð þátttaka. Árangur Marshalláætlunarinnar: 2.000.000 atvinnulausar í V-Þýzkal. Fjölgaði um hálfa millión á sex vikum Skýrsla, sem verkalýðsmálaráðuneytið í Bonn birti í gær sýnir, að atvinnuleysi eykst stöðugt í Marshalllandinu Vestur-Þýzkalandi. Um miðjan íebrúar var opinber tala atvinnuleysingja komin upp í 2.018.000. Verkalýðsleiðtogar í Vestur- Þýzkalandi fullyrða, og erlend- ir fréttaritarar styðja mál þeirra, að atvinnuleysingjar séu um hálfri milljón fleiri en hinar opinberu skýrslur sýna. Samkvæmt atvinnuleysis- skýrslunni hefur atvinnuleys- ingjunum fjölgað um 120.000 fyrstu tvær vikumar i febrúar og um hálfa milljón siðan um áramót. Hin bandaríska eftirlitsnefnd „Kastið vetnissprengjunni á Rássa“ segir Amulf Överland Atrúnaðargoð aíturhaldsins hvetur til milljónamorða Norska skáldið Arnulf Överland, sem frá stríðslokuxn hefur verið átrúnaðargoð afturhaldsins um öll Norður- lönd vegna sjúklegs sovéthatúrs hans, hefur í viðtali við danska blaðið „Berlingske Tidende“ hvatt til vetnis- sprengjustyrjaldar gegn Sovétríkjuntun. Blaðamaðurinn spyr över- land: „Hafa Rússar hæfileik- ann til mannlegra viðbragða?“. „Það cina, sem kemur Rússum til að bregða viC er blátt áfram vald“, er svar Överlands. „Vetn issprengja Bandaríkjanna... ?“ spyr blaðamaðurinn. „Ef ekki er á öðru völ, þá kastið henni“. Síðan segir í viðtalinu: „Hin unga dökkhærða frú Överland .. kemur inn. Hún heyrir síð- asta svarið og spyr skáldið: „Hvetur þú þá til fyrirbygg- ingarstyrjaldar?“ Överland virðist ekki vera í vafa um svarið: „Eg álít að okkur ógni aiger útrýming. Eg tek Rússa ítalskir kratar fordæma A- bandalagið Sá hægj'ikrataflokkanna á ítalíu, sem viðurkenndur er af Kómiskó, alþjóðasambandi sósíaldemokrata, gaf út ávarp i Róm í gær og fordæmdi þátt- töku ítalíu í Atlanzhafsbanda- laginu. Segir flokkurinn, en meðal foringja hans er rithöf- undurinn Ignazio Silone, að Framh. á 4. síðu. á orðinu, þegar þeir ógna.... Eg álít, að þau eyðingarvopn, sem Bandaríkin ráða yfir, séu nægilega öflug til að skapa glundroða i Sovét-Rússlandi svo fljótt, að það geti ekki háð styrjöld““. Fórlftaður norska rit- höfundafélagsins fordæmir Överland Hans Heiberg, formaður norska rithöfundafélagsins, sem hafði ætlað að mæla með Överlaud til næstu bókmennta- verðlauna Nóbels, sagði í Osló- blaðinu „Verdens Gang“, eftir að viðtalið við Överland birt- ist : „Eg skal játa, að hér eftir mun ég eiga erfitt með að mæla með Arnulf Överland til eins eða neins. Þégar hann légg ur til með köldu blóði, að vetn- issprengjunni sé varpað á So- vétríkin vegna þess að „það eina, sem kemur Rússum til að bregða við er vald“, hefur hann runnið skeið sitt til enda, Það er húmanismi, sem kveður að. Blessuð barnagælan hann Arnulf frændi vill hjálpa börn- unum í borgum Rússlands að taka viðbrögð. Kannske sjá nú loks þéir mörgu, sem hafa fylgt honum í góðri trú, hvaða mann hann hcfur að geyma“. hreyffingar Indo-Kína Her sjálfstæðishreyfingar Indó-Kína hrakti í gær franska nýlenduherinn úr mikilvægu fjallavígi við landamæri Kína og Indó-Kína. Frá vígi þessu er hægt að ráða yfir þýðingar- mikilli samgönguleið milli land anna. Franska herstjórnin til- kynnir, að allt kapp verði lagt á að ná víginu aftur. „Vikuleg“ atvinni leysisskráning — en þó skráð daglega Á bæjarráðsfundinum i fyrradag var tekin fyrir til- laga Guðmundar Vigfússon- ar frá síðasta bæjarstjórnars fundi, um daglega atvinnu- leysisskráringu. Samþykkt var að taktf upp vikulega skráningu, Þ.e. þeir sem skráðir eru atvinmí lausir verða að koma og láta stimpla á kort sín viku- lega, annars er talið að þeir hafi fengið vinnu. Að sjálf- sögðu verða svo jafnframt skráðir daglega þeir menn sem koma í Ráðningarstof-* una effa vinnumiðlunarskrif- stofuna í leit að atvinnu og hafa ekki verið skráðir áður. Chtirchill og Altlee keppasi um að Ma stórveldaviðræðum Marshalláætlunarinnar í Vestur Þýzlcalandi er farin að óttast afleiðingar áætlunarinnar og hefur birt skýrslu þar sem vesturþýzka stjórnin er sökuð um dugleysi í að ráða bót á atvinnuleycinu. 309.000 atvinftUleysingjar í Vestur-Berlín. Á hernámshlutum Vestur- veldanna í Berlín er ástandið enn verra en í sjálfu Vestur- Þýzkalandi. Tala atvinnuleys- ingja í Vestur-Berlín var 309. 000 um miðjan febrúar. Gekk á njósna- skóla FBI Robert Vogler, Bandaríkja- maðurinn, sem ákærður er fyr- Friðarkraíait orðin aðalmái kosninganna í Bretlandi ir njósnir í Budapest, játaði endurnýjaði Churchill, sem áttí manna mestan þátt í að hleypa, kalda stríðinu af stað, loforð sitt um að léita samkomulagg við forystumenn hinna stórveld anna, ef sér yrði falið aðí mynda stjórn eftir kosning<» arnar. Attlee, sem er forsætis- ráðherra og á því ekki eins hægt með að lofa upp í ermi sína, sagði í gærkvöld í útvarps ræðu, að Verkamannaflokks- stjórnin væri alltaf reiðubúini til viðræðna „á réttum vett-t vangi“ um að banna vetnis- sprengjuna. Verkamannaflokkslávarðurimí Strabolgi sagði í kosningaræðu í gær, að ef Verkamannaflokk- urinn ynni kosningamar yrði straks að þeim loknum nýtt á- ákærunni í gær. Hann kvaðst hafa gengið á njósnaskóla bandarísku leynilögreglunnar FBI og að nafninu til verið settur yfir verksmiðju Ameri- can Telephone & Telegraph Go. í Ungverjalandi en raunveru- legt starf sitt hafi verið njósn- ir. Vogler sagðist aðallega hafa njósn um tæknileg leyndarmál og kjarnorkurannsóknir í Aust- ur-Everópu en hernaðarnjósn- Framhald á 4. síðu Kosningabaráttan í Bretlandi sem hófst á því að hvorugur stóru flokkanna, íhaldsmanna og Verkamannaflokksins, minnt ist á utanríkismál í kosninga- stefnuskrám símun, hefur nú gjörbreyzt og er svo komið, að mest ber á loforðum flokks- foringjanna lyn að gangast fyrir nýrri tilraun til að leysa deilumál stórveldanna og þá einkum kjarnorkumálin. I útvarpsræðu í fyrrakvöld ið enn spurt Þjóðviljinn beindi í gær þeirri fyrirspum til Morg- unbiaðsins hvort verzlunarsamningar hefðu tekizt við Sovétríkin 1947, og væntanlega hefur blaðið að geyma skýr svör i dag. En sökum þess að blaðiff' lýsir því nú dag eftir dag hversu mjög Bjarni Benediktsson hafi Iagt sig í framkróka til að ná samningum við Sovét- ríkin er bczt að spyrja betur. Islendingar hafa sendi- herra í Sovétríkjunum (bróður Bjarna), og svari nú Morgunblaðið: Hversu langt er síðan þessi sendiherra hefur komið til Sovétríkjanna ? Er það rétt að hann hafi ekki komið þangað síðan Islendingar undirrituðu marsjallsamning- inn ? Er það rétt að til þess að vega upp fjarvíst- irnar hafi hann veriff gerður að sendihcrra í fasistaríkinu Spáni? Væntanlega stendur ekki á svörum sem lýsa fram- krókum Bjarna Benediktssonar í sambáðinni við Sövét- ríkin. tak gert til að ná samkomulagi milli stórveldanna. Connally vill utan- r íidsráðher raf und Tom Connally formaður ut- anríkismálanefndar öldunga- deildar Bandaríkjaþings sagði í gær, að hann áliti að utanrík- isráðherrar Sovétríkjanna, Bandarikjanna, Bretlands og Frakklands ættu sem fyrst að halda fund um kjarnorkumál- in. Hann vildi þó ekki, að Bandarikjastjórn boðaði til slíks fundar heldur sagði, að frumkvæðið yrði að komj frá Sovétríkjunum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.