Þjóðviljinn - 26.03.1950, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.03.1950, Blaðsíða 5
Sunnudagur 26. marz 1950. ÞJÖÐVILJINN A ð vera í lífinu sjálfum sér trúr tj'tgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins á Bréfum og ritgerðum Stephans G. Step- hanssonar er lokið. íslenzkar bókmenntir eru einu stórvirki auðugri eftir. Hvar sem þetta verk er lesið stígur Stephan G. Stephansson fram úr því rökkri tímans sem kann að hafa fallið á hann, og gerist að nýju lifandi andi meðal vor. Hann sá fyrir því sjálfur forð- um að hann smækkaði ekki nú af þeim kynnum. Um bréf sín og ritgerðir öðlast hann nú í vitund okkar þá persónufyll- ingu sem aldrei næst að fullu þar sem gæta þarf listrænna sjónarmiða. Nú hefur hann sannað það, óviljandi, að öll vera hans . var einn kjarni. Hans kjarnorka var skilnings- leitin ást á réttlæti og sann- leik, iðjandi um daga eins og hendur hans, andvaka um næt- ur eins og augu hans. Um hálfsmánaðarskeið hefur undirritaður ekki sinnt öðrum bókum en þessum f jórum. Það hefur valdið kynlegum áhrif- um. Elzti þáttur verksins er frá 1873, ferðasaga Stephans vestur um haf. Síðan líður og bíður til 1884, og eru þá nokkr- ar ræður frá næstu árum. En elzta bréfið hans er frá 17. júní 1889, en þá er hann á 36. aldursári. Til þess tíma vit- um við þannig næsta fátt um hann af þessu verki. En síðan er haldið áfram í 38 ár. Sein- asta bréf sitt undirritar Step- han 23. júlí 1927, en þá er hann „einhvern vegin svo latur, að ég hlífi mér við öllum skrift- um“. Þessi „leti“ var svo á- sækin að tvö næstu, og síðustu, bréfin skrifar Rósa dóttir hans, hið síðara 8. ágúst. Nokkrum dögum síðar luktust andvöku- augu hans til svefnsins mikla. En hið kynlega er þetta, að 11. marz 1950 heilsar maður Stephani G. Stephanssyni hraustum og sterkum, innan við miðjan aldur, og gengur með honum út á akurinn til sáningar. Tíminn líður, og við brösum með honum í ijóðaút- gáfu. Síðan förum við heim til Islands, og heiman aftur, og við erum orðnir gamlir menn. Og 24. marz 1950 kveðjum við hann, að ævilokum. Á hálfum mánuði eru liðin 38 ár. Aldrei hefur mér fundizt jafnlangt frá upphafi bókar til niðurlags. 1 veröld hennar liðu nær 40 ár þessa fáu marzdaga. Þetta kæmi auðvitað engum við, ef það væri ekki fyrir einkenni á Stephani, ekki á lesanda hans. Og einkennið er þetta, að hann gengur inn í mann. Eða kann- ski það séum við sem hverf- um til hans, af því hann breið- ir faðminn svo opinn við okk- ur í einlægni sinni og hisp- ursleysi. En hvort heldur er þá gleymum við okkur sjálf- um í veröld hans, ef við á ann- að borð dokum þar við, og hlít- um lögmálum hennar. Þannig geta liðið 40 löng ár í Fljóts- dal skynjunar okkar, meðan hverful andartök 14 daga þyrl- ast framhjá á Jökuldal. Það er skrýtið. Ef til vill eiga öll minni einhvern snefil þess kon- ar kynja, en undirritaður hef- ur a. m. k. ekki veitt þeim slíka athygli fyrr. Enn víkur ræðu vorri að skrýtni lífsins. Hver maður er á nokkra lund dularfullur, miklir menn þó öðrum fremur. Við getum rakið lífsverk stór- mennis sundur í einingar og þætti, jafnvel bláþræði, sann að áhrif á hann og frá hon- um, og síðast en ekki sízt reiknað hve oft á ævinni hann hafi dregið andann. En frum- orsök þess að hann, en ekki einhver annar. varð það sem hann varð er að lokum óþekkt. Það er raunar auðvelt að koma með skýringu í anda vélrænu efnishyggjunnar sem óð uppi um eitt skeið 19. aldar, og segja þetta komi allt af ákveð-. inni khtlastarfsemi, sem því miður láðist að rannsaka með- an tóm var til. Önnur efnis- hyggja, sú díalektíska, hafnar slíkum skýringum og gerir ekki kröfu til að grafa fyrir frum- rætur einstaklingsörlaganna. Hvers vegna varð Stephan G„ en ekki Kobbi granni hans, „mesti maðurinn meðal ís- lenzkra skálda“, og kannski kl tvö og fjögur á nóttunum, las og skrifaði, því það gafst enginn annar tími til slíkra hluta. Við fjósaverkin á daginn er hann síðan að hugleiða mark mið og stefnu líberalismans í veröldinni. Þúsund mílur inn á blámóðusléttu ameríska meg- inlandsins „slægist" hann eftir að skilja dauðataflið í Evrópu 1914—1918 og öflin að baki því. Morðið í Sarajevo var reyndar ekki orsök heimsstyrj- aldarinnar! Úti í skógi vestur undir Klettafjöllum stendur hann að viðarhöggi qftir stríð- ið og skilur að „soviett“-skipu- lagið er það sem kpma skal. Svona slægðist hann til að skilja stefnur og atburði sam- tímans. En Kobbi vissi ekkert um þetta. Það var nótt, og þá á maður að sofa. Hans kirtlar* voru engir vökukirtlar. 1 einu bréfa sinna vekur Stephan athygli á þeirri stað- reynd að látnir menn eigi alla minningu sína undir trúnaði þeirra sem eftir koma. Hann kaus ekki að eftirkomendumir brygðust þeim trúnaði. Sjálfur ætti hann síztur manna slíkt trúnaðarbrot skilið. Til eru þeir menn á þessu landi sem ekki þora annað en viðurkenna Step- han og verk hans, samtímis því sem þeir umhverfast hið innra með sjálfum sér ef þeir heyra satt orð um pólitísk við- horf hans. Þeim er það ekki ofgott einu sinni enn, ef þeir vilja, enda er þeim betra að skyggnast lítt að landi hans sem ekki mega sósíalisma sjá. Það væri vitaskuld trúnaðar- brot við Stephan og minningu lians að horfa blindu auga á sjórnmálaskoðanir hans. Eins og flest í fari Stephans „Hans kjarnorka var skilningsleitin ást á réttlæti og sannleik, iðjandi um daga eins og hendur hans, andvaka um nætur eins og augu hans“. málin eru hér á baugi um 1920 leggur Stephan til í bréfi að fossarnir verði gerðir „lands- eign“. Hann kærir sig ekki um fossa-„kónga“ né „fossabrall- ara“. Honum voru ljósar síð- ustu afleiðingar einkaeignar á auðlindum og auðskapandi at- vinnutækjum. Hann sá gegnum auðvaldið. Og tengdi sósíalism- anum vonir sínar. í bréfi 1920, skrifuðu Jóni frá Sleðbrjót, sem hann ritar mörg Iengstu og merkustu bréf sín, segir Stephan: „Og nú eru þau (þ. e. blöðin) að byrja að ljúga sig með lagi út úr sinni eigin lygi um „bolshevismann" á Rúss- landi, þegar engin brögð ætla að duga lengur til að skera hann niður, því hann sigrar heim allan á endanum, af því hann er sanngiamastur, og eina hjálpin út úr þeim hreins- unareldi, sem mannheimur er mesta skáldið líka? Við getuin vekur glöggskyggni hans í þess- gefið tíu svör, fullgild svo langt um efnum ósvikna furðu. Með- sem þau ná. En á einum stað; al hins elzta í Bréfum og rit- stendur hurð með áletruninni Leyndardómur persónuleikans, og allir lyklar týndir. Ja, það hefur verið eittlivað í upplag- inu, og síðan hverfum við frá dyrunum læstu. Og það mundi hafa mjög takmarkað eða tví eggjað gildi þótt þær yrðu ein- hvern tíma opnaðar.-------- gerðum er ræða flutt í Moun- tain á þjóðhátíðardegi Banda- rikjanna árið 1887, fyrir nær tveimur þriðjungum aldar. Þar segir hann svo: „1 hinni frjálsu Ameríku, piltar mínir, eru 60 milljónir manna og tæpur helm- ingur nýtur fullra mannrétt- inda. Þjóðstjórn er þar, en alls. 1 stuttu æviágripi sem Step- varðandi lagabót um 10 ár fyr- han G. samdi árið 1922 segir| irbyggð af viðlíka mörgum hann svo í kaflanum um bók- lestur sinn: „Ég hef litið í ýms- ar bækur, en get ekki komið fyrir mig neinum höfundi, sem ég „dýrkaði yfir alla hluti fram“ .... helzt hefi ég slægzt til að skilja stefnur, einkanlega minnar tíðar“. Þetta var þá iðjan hans. Meðan honum ent- ist þrek vakti hann fram til Þörf mannkynsins að bjarga sér fljótlegar. .. . “ (leturbr. mín. B. B.). Og árið þar á undan, í stríðslok, skrifar hann enn í bréfi til Jóns frá Sleð- brjót: „En hitt er víst, rísi ekki almenningur upp í lönd- um sigurvegaranna og afstýri þvi, sem verða vill, endar þettai stríð, eins og önnur hafa gert, með tapi alþýðu á unnu frelsi sínu, í þeim ríkjum, sem ofart á urðu.... Eg á von alþýðtt afturfarar Bandamannamegint eftir stríðið, nema. hún hafi vit á að kippa völdum úr ræn- ingja höndum allra (leturbr. Steph.), þeirra, sem að stríði þessu stóðu, vægðarlaust“. Hér eru skorinyrðin ekki bitin við tungu. Hér er hvorki meira né minna en prédikuð bylting,. sams konar þeirri sem rússnesk. alþýða hafði þegar háð gegn því „illendi", þeirri „stórlaxa jámbrautarkóngum, öllum skaða nema þeim“. Mundi það vera elskhugi einokunarauð- valdsins sem svo talar? Mundi þessi heili, ef starfandi væri i dag, í vandræðum með að skilja hvers vegna nú er ekki hirt um það í Ameríku að hagnýta kjamorkuna til frið- samlegra nota? — Þegar fossa- staddurí.... Deiluef nið er ekki, stétt, auðugri og ráðríkari en nokkru sinni fyrr, samvizku— lausum sigrum glæstri“, sem- Stephan í næstu setningu ef— ast um að þjóðirnar séu nógu „menntar og skynugar að kunna og hafa kjark til að drepa af sér“. — Fjórum ár- um síðar er hann enn við sama heygarðshomið: „Sjálfur trúi. ég á ekkert minna. en gagn- gerða umsteypu í lífi mann- anna — byltingu, ef ekki fæst með betra móti“. Og 6. des. 1922 skrifar hann Jóni frá Sleðbrjót: „Soviettið hefur staðizt allar eldraunir enn. Þar eru vansmíðar, sem við var að búast, en hugsjón, sem „vex að vizku og náð“ og ein á lifsvon, trú mér til, fái lengur, hvort „soviet“-fyrir- komulagið, eigi að komast á, heldur: verður það fáanlegt með góðu eða, aðeins með illu. Nú geng ég víst alveg fram af þér í landráðunum.... “ Sósíalistum er þá kannski ekk- ert nýtt að vera „landráða- menn“. Svona gengur sagan aftur. Árið áður hafði Stephan í bréfi til sama manns á óbein- an hátt lýst fylgi sínu við ráð- stjómarskipulagið, vaxið upp úr blóði striðs og byltingar: „Hugsanir þínar og vonir, Jón, um langa og „sígandi lukku" farsælla breytinga í félagsskap mannanna, eru allt góðir, gegn- ir og gamlir vinir mínir, sem ég hefi að nokkru leyti neyðst; hún frið og framtíð“. til að kveðja nauðugur, af þvíj Ráðstjómin fékk ekki frið... mér sýnist ég sjá fram á þaul „Hervöldum helvitanna" var örlög, sem verða þeim ofurefli:' Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.