Þjóðviljinn - 26.03.1950, Blaðsíða 8
Lœtur ihaldiS seg]a sér fyrir verkum
Verfoalýðurinn hrefst einingar íframhvœmd
Síðastliðið fimmtudagskvöld gerðust þau tíð-
indi, að meiri liluti stjórnar Alþýðusambands íslands
íelldi með 5 atkvæðum gegn 4 tillögu frá Fulltrúa-
láði verkalýðsíélaganna um eins dags verkfall um
land allt til að fylgja eftir hinni einróma samþykkt
íverkalýðsráðstefnunnar.
Tillögunni, sem í sambandsstjórn var borin fram af
Helga Hannessyni, greiddu atkvæði: Helgi Hannesson,
Jón Sigurðsson, Sigurrós Sveinsdóttir og Borgþór Sigfús-
son.
Þessir greiddu atkvæði gegn tillögunni og felldu
liana: Sæmundur Ólafsson, Magnús Ástmarsson, Ingi-
mundur Gestsson, Sigurjón Jónsson og Guðmundur Sig-
tryggsson.
Bréf fulltrúaráðs-
stjórnarinnar.
Þegar ljóst varð, að ríkis-
stjórn og Alþingi ætlaði að
hundsa einróma yfirlýsingu
verkalýðsráðstefnunnar, sendi
stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfé
laganna í Reykjavík eftirfar-
andi bréf til sambandsstjórn
ar:
„Reykjavík, 16.mars 1950
Stjórn ASf!
Þar sem sýnilegt er, að rík-
Isstjórnin ætlar sér að fá frnm
varp til laga um gengisskrán-
ingu o. fl. samþykkt í höfuð
atriðum óbreytt á Aíþingi, skor
ar stjórn Fulltrúaráðs verka-
iýðsfélaganna í Reykjavík á
sambandsstjórnina að taka til
yfirvegunar eins dags allsherj-
ár mótmælaverkfall allra sam-
handsfélaga til þess að fylgja
á eftir hinni einróma samþykkt
nýlokinnar verkalýðsráðstefnu.
Stjórn Fulltrúaráðsins vill
tjá sambandsstjórninni, að hún
myndi af fremsta megni beita
sér fyrir því, að slíkt allsherj-
arverkfall yrði algert og bæri
árangur.
Með félags kveðju
(undirskrift)“.
. Vangaveltur og inisklíð.
: Sambandsstjórn hélt að
minnsta kosti þrjá fundi um
þetta mál. Kom strax í ljós, að
hún var sundurþykk. Fulltrúar
Ihaldsins og Framsóknar risu
<jndverðir gegn tillögunni svo
sem vænta mátti. En Sæmund-
ur hnýtti sér aftan í íhaldið á-
samt Magnúsi Ástmarssyni. I
heila viku var sambands'tjórn-
in að velta málinu fyrir sér.
'Urðu innan hennar harðar deil-
ur, hjálpuðu þeir Sæmundur og
'Magnús Ástmarsson íhaldinu
~.til að fella tillöguna.
Þurfti að gerast án tafar.
Bréf Fulltrúaráðsins var sent
tveim dögum áður en ólögin
voru samþykkt. Það segir sig
sjálft, að það þurfti að taka á-
kvörðun um allsherjarverkfall-
ið tafarlaust, til þe:s að það
gæti náð tilgangi sínum og haft
einhver áhrif á gang málanna.
Þessu tækifæri var sleppt. Það
var eyðilagt fyrir íhaldsþjón-
ustu nokkrra manna sem vilja
heldur vinna með íhaldinu en
verkalýðnum.
Yfirráð íhaldsins í sam-
bandsstjórn afhjúpuð.
Hverjum heiðarlegum verka-
lýðssinna mun blöskra aú þjón
usta við íhaldið, sem þessi at-
burður hefur afhjúpað.
Samþykkt meirihlutans í sam
bandsstjórn sannar það, sem
raunar var vitað alllengi, að í
raun og veru er það íhaldið
sem mótar stefnu og ákvarðan-
ir Alþýðusambandsstjórnar í
verulegum atriðum, enda þótt
Alþýðuflokksmenn hafi þar
sterkan meirihluta.
Á því er enginn vafi, að þrátt
fyrir allt kusu Alþýðuflokks-
mennirnir á síðasta Alþýðuram
bandsþingi ekki sambands-
stjórn til þess að húit skyldi
láta stjórnast af sjónarmiðum
íhaldsins, en einmitt sú hefur
reyndin orðið.
Verkalýaurinn krefst
einingar í framkvæmd.
Verkalýðsráðstefnan bar
gæfu 111 þess að gera einróma
saraþykkt um afstöðu verka-
lýðsins til gengisskráningarlag
anna. En það er hægt að eyði-
leggja þessa góðu samþykkt
með því að svíkja í verki, með
því að láta haldið stjórna gerð-
um sínum í framkvæmd.
Framhald af 1. síðu.
voru það þeir Ólafur Thors,
Stefán Jóhann og Eysteinn
Jónsson sem buðu fólki á Aust-
urvöll og létu svo ráðast á það.
Athyglisvert er að kveðnir
eru upp fjórir sýknunardómar,
m. a. yfir Stefáni Ó. Magnús-
syni sem haldið var í fangelsi
í fimm daga og Kristófer Sturlu
syni sem haldið var í fangelsi
í 18 daga og látlaust var hrak-
yrtur og svívirtur í Morgunblað
ihu á meðan. — Ljúgvitnaleiðsl-
an hefur ekki verið nógu vel
skipulögð.
Verjendur hinna dæmdu voru
Áki Jakobsson, Hermann Jónas
son, ráðheri'a í þeirri stjórn
sem að dómimum stendur!
Sveinbjörn Jónsson, Ragnar Ól-
afsson, Sigurður Ólason, Ragn.
ar Jónsson, Einar B. Guðmunds
son og Sigurgeir Sigurjónsson.
Kvikm. í Flugv.hótelinu
Einn þáttur í starfi Alþjóða-
sambands opinberra ferðaskrif
stofa er að stuðla að því, að
skrifstofur innan sambandsins
sýni og láni kynningar-kvik-
myndir.
Fyrstu myndirnar, sem Ferða
skrifstofunni hafa borizt eru
frá Belgíu og belgísku nýlend-
unum í Afríku. Verða þessar
myndir sýndar í dag sunnudag
inn 26. marz á Flugvallarhótel-
inu á tímabilinu kl. 3—5.
Fyrir tveimur dögum liefur
Fulltrúaráð verkalýðsféiaganna
í Reykjavík einmitt lagt áherzlu
á þetta atriði og krafizt þess,
„ * , .' . m . að gagnkvæm og náin sam-
FræðsIuennd,MagnusarTorfav.nna hæfíst um framkvæmd
Ólafssonar í erindaflokknum: baráttunnar milli Alþýðusam-
Frelsisbarátta nýlenduþjóð- bandrstjórnar og Fulltrúaráðs-
anna, verður í dag kl. 2 e. h. inS-
Fjallar það um Malakka, Burma Reynsian mun skera úr því,
og Indónesíu. hvernig til tekst. En ákvörðun
meirihluta sambandsstjórnar
Þjóðviljasöfnuninn. Úrslit índ kefur sýnt allri alþýðu gegn
söfnuninni verða birt á þriðju-hverjum hiin þarf að vera á
■daginn. verði.
Erleodar írélfir í stuttu máli
Boðað allsherjaíverkfall í Frakklandi — Bandarísk
lánveiSing tii Francos. — Jessup vill hernaðar-
stuðning við Bao Ðai. — Flugslys við Ankara. —
Samnorræn iistsýning í Heisinki.
BOÐAÐ HEFUR verið 24 klst.
allsherjarverkfall hafnar-
verkamanna 1 frönskum hafn
arborgum og hafnarborgum
í Alsír til að mótmæla vopna
sendingum sem nú eru að ber
ast til Frakklands frá Banda
ríkjunum samkvæmt ákvæð-
um Atlantshafssáttmálans.
Verkfall þetta hefst í fyrra-
málið.
I GÆR LAUK í Róm þriggja
daga ráðstefnu bandarískra
sendiherra í Evrópulöndum.
ÞAÐ VAR TILKYNNT I gær,
að hinn voldugi bandaríski
banki, National City Bank of
New York, hefði veitt Fran-
co-Spáni lán, sem nemur 20
millj. dollara.
FJÓRTÁN ÞINGMENN „Frjáls
lynda“ flokksins gríska hafa
tilkynnt, að þeir muni ekki
styðja ríkisstjórn þá, sem
flokksforingi þeirra, Venes-
elos, hefur myndað.
BANDARlSKI farandsendi-
herrann Jessup lýsti því yf-
ir í Washington í gær, að
hann mundi fara þess á leit
við utanríkismálanefnd
Bandaríkjaþings, að hún
samþykki hernaðaraðstoð til
leppstjórnar Bao Dais í
Indó-Kína.
í GffiR HÖFST í Helsinki sam-
norræn listsýning. Ýmsir
æðstu ráðamenn Finnlands
voru viðstaddir opnun sýn-
ingarinnar, þ.á.m. Passikivi.
UNGVERSKA SJÓRNIN til-
kynnti í gær, að þann 4.
apríl yrðu náðaðir ýmsir
fangar, sem dæmdir hafa
verið fyrir minniháttar
skemmdarverk og önnur slík
afbrot. Náðunin er veitt í
tilefni af því, að 5 ár eru
liðin síðan rauði herinn frels-
aði Ungverjaland undan oki
nazismans.
I GÆR VARÐ flugslys hjá
Ankara í Tyrklandi, og fór-
ust í því 16 manns.
Hnefaleikamót
Ármanns kl. 4
í dag
Hnefaleikamót Ármanns verð
'ur háð í dag, kl. 4 e.h. í íþrótta
húsinu við Hálogaland. Kepp-
endur verða 19, þ.á.m. margir
núverandi íslandsmeistarar-
Keppt verður í átta þyngdar-
flokkum.
Keppendur eru þessir: Flugu
vigt: Birgir Sigurðsson, Hörð-
ur Þorleifsson, Sigurjón Þórar-
insson og Friðrik Welding. Ban
tamvigt: Kristján Sveinsson og
Leifur Ingólfsson. Fjaðurvigt:
Teódór Theódórsson og Rafn
Viggósson. Léttvigt: Sigurður
Jóhann'son og Guðmundur
Karlsson. Veltivigt: Gissur
Ævar og Kristjón Jóhannsson.
MiUivigt: Björn Eyþórsson og
Kjartan Guðmundsson. Létt-
þungavigt: Alfons Guðmunds-
son, Sigfús Pétursson og Björn
PálsHon. Þungavigt: Jens Þórð
arson og Jón Ólafsson.,
★
Eini
sunnu-
dagurinn
Þessi mynd, sem
er á ljósmynda-
sýningunni í
Listamannaskál-
an'um, er frá
•Jonals Co. í
Kaupmannahöfn.
— Kanr.au er úr
silfri, sem er eitt
liið erfiðasta að
taka myntlir af.
Aðsókn að sýn-
ingunni hefur
verið góð og
mikil hrifning
yfir því að fá
hana hingað.
í dag er eini
sunnudagurinn
sem Reykvíking-
ar eiga þess kost
nð sjá Ijósmynda
sýninguna.