Þjóðviljinn - 22.07.1950, Blaðsíða 1
IflLJINN
15. árgangur.
Laugardagur 22. júlí 1950.
159. tölublað.
Einhuga verkalýðshreyfing á sigur vísan í baráttu
gegn kjaraskerðingu gengfslækkunarinnar
Stjórn Alþýðusambandsins leggur til að sambandsfélög-
in segi nú þegar upp kjarasamningum með kauphœkk-
anir fyrir augum
Stjórn Bandalags starfsmanna rikis og bœja lýsir einróma
óánœgju sinni með fölsun vlsitölunnar
:s
SJEN JI
hershöfðingi
Stjórn Alþýðusambands Islands hefur samþykkt að leggja til að verka-
lýðsfélögin „segi nú þegar upp kjarasamningum sínum með kauphækkanir
fyrir augum”, og jafnframt að æskja samstarfs við Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja og Farmanna- og fiskimannasamband íslands.
Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja samþykkti einróma á fundi
í fyrradag að lýsa yfir óánægju með ákvörðun júlívísitölunnar.
Fulltrúi Alþýðusambandsins í kauplagsnefnd, Torfi Ásgeirsson hagfræð'
ingur, hefur sagt sig úr nefndinni í mótmælaskyni við aðfarir hennar við
fölsun vísitölunnar.
Flest verkalýðsfélög eru bundin við mánaðar uppsagnarfrest samninga
og ýms þeirra þar að auki við uppsögn um mánaðamót. Síldarverksmiðju-
félögin sömdu hins vegar, samkvæmt ráðleggingu Alþýðusambandsins, fyrir
alla vertíðina, til 15. september.
Þegar í upphafi slíkra aðgerða allrar verkalýðshreyfingarinnar þarf að
leggja mikla áherzlu á nauðsyn algerrar einingar, náið samstarf stjórnar
heildarsamtakanna við fulltrúaráðin, fjórðungssamböndin og sterkustu fé-
lögin. Einhuga, samstillt verkalýðshreyfing á vísan sigur í baráttunni gegn
kjaraskerðingum gengislækkunarinnar, í baráttunni um mannsæmandi líf
fyrir íslenzka alþýðu.
Taivan verður frelsuð þrátt fyrir
bandarískan herskipavörð um S jang
segir Sjen Ji. yfirhershöfðingi iiðsins, sem á að
taka eyna
Sjen Ji, yfirhershöfðingi 3.
kínverska alþýðuhersins og yfir
maður herstjórnarsvœðis Suð-
austur-Kína hefur lýst yfir, að
kínverska þjóðin múni vissu-
lega frelsa Taivan og þurrka út
leyfarnar af kliku Sjang Kai-
séks.
Truman forseti skipaði 7.
flota Bandaríkjamanna, að
haida vörð við Taivan og
hindra að alþýðuherinn greiði
atlögu gegn liði Sjang, rnn leið
og hann fyrirskipaði bandaríska
innrás á Kóreu.
Sjen Ji kvað það hlutverk
hers síns að frelsa Taivan. Sjen
stjórnaði hernum, sem tók
Sjanghai í borgarastyrjöldixxni
í Kína í fyrra.
Ibúar S.-Kóreu gera bandaríska innrás-
arhernum allan þann óleik, er þeir mega
Styðja skæruliða með ráðum og dáð,
járnbrautarverkamenn vinna með
bandarísk byssuhlaup við hnakkann
Frásagnir fréttaritara með bandaríska árásarhern-
um í Kóreu bera það með sér, aö það er öðru nær en
fólkið þar, sem Bandaríkjamenn þykjast vera aö „bjarga
frá árás“, sé þessum „björgunarmönnum“ þakklátt.
Þvert á móti gerir það þeim allan þann óskunda, sem
það megnar.
Samþykktir
Alþýðusambands
stjórnar
„Með því að ríkisstjórnin hef
ur með bráðabirgðalögum á-
kveðið, að kaupgjald fyrir tíma
bilið 1. júlí til ársloka skuli
reiknað út með vísitöiunni 112
enda þótt vísitala, sem reiknuð
væri samkvæmt fyrirmælum 3.
gr. laga um gengisskráningu o.
fl., sé allmiklu hærri, þá ítrek-
ar miðstjórn sambandsins fyrri
samþykkt sína varðandi þetta
mál og leggur tál, að sambands
féiögin segi nú þegar upp kjara
samningum sínum með kaup-
bækkanir fyrir augum.
Þá lýsir miðstjórnin yfir því,
að hún er aigerlega samþykk
þeirri ákvörðun Torfa Ásgeirs-
sonar að víkja úr kauplagsnefnd
í mótmælaskyni við hin ein-
stæðu vinnubrögð ríkisstjórnar
Snnar og meirihluta kauplags-
nefndar í þessu máli, enda mun
sambandsstjórn ekki tilnefna
annau mann I kauplagsnefnd
I hans stað.
Jafnframt óskar miðstjórn-
in þess, að Torfi Ásgeirsson
vinni áfram að því fyrir Alþýðu
sambandið að fylgjast með
kaupgjaldi og verðlagi og
reikna út, hvað rétt framfærslu
vísitala á að vera á hverjum
tíma.“
„Miðstjórnin samþykkir að
leita samstarfs við Banda-
lag starfsmanna ríkis og
bæja og Farmanna- og fiski
mannasambands Isiands
vegna þess að vísitala fram-
færslukostnaðar fyrir júlí-
mánuð hefur með lögum ver
ið ákveðin 112 stig, þótt
hún samkvæmt réttrnn for-
sendum eigi að vera miklu
hærrL“
Samþykkt
stjórnar B.S.R.B.
Á stjórnarfundi B.S.R.B., sem
haldinn var í fyrrad., var ein-
róma samþykkt svofelld tillaga:
„Stjórn B.S.R.B. lýsir óá-
nægju sinni yfir þeirri ákvörð-
un meirihluta Kauplagsnefndar
að vísitala fyrir júlímánuð skuli
vera 109 stíg, en það myndi
þýða, að uppbót á laun vegna
gengislækkunarinnar yrði að-
eins 5% tii áramóta.
Þessi ákvörðun mun byggð
á ákvæðum laga nr. 56 1950
um hámark húsaleigu. Stjórn
Framhald á 7. síðu.
Fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar France Press í Kóreu
segir að skæruliðar, sem ráð-
ast oft að baki víglínu Banda-
ríkjamanna njóti samúðar og
stuðnings almennings. 1 bar-
daganum um Taejon gerðu
skæruliðar Bandaríkjamönnum
mjög erfitt fyrir. Fréttaritarij
brezka útvarpsins, sem er ný-
kominn til Kóreu, komst ekki
til Taejon vegna þess að skæru-
liðar höfðu náð kafla af veg-
inum þangað á sitt vald.
Charles Symons, fréttaritari
„Chicago Tribune" í Kóreu
skýrir frá því, að jámbrautar-
verkamenn vilji aðeins vinna ‘á
lestum á suðurleið, frá vígstöðv
unum. Þeir fást ekki til að
vinna á leið til vígstöðvanna
nema til að bjarga lífi sinu, er
Bandaríkjamenn hóta þeim líf-
i láti að öðrum kosti. Fréttaritar-
inn segir, að jámbrautarverka-
mennimir láti ekki undan fyrr
en bandarískir liðsforingjar
hafa skotið aðvörunarskotum
rétt hjá þeim. Hafi verkamenn-
imir verið neyddir á þennan
hátt til að fara með lest til
vígstöðvanna, eru þeir vísir til
að snúa við á miðri leið,
þegar bandarísku verðirnir ugga
ekki að sér, og fara með flutn-
ing, sem bandaríska hemum
bráðliggur á, aftur niður til
strandar.
INNIKRÓU N ARORU ST A '
AUSTUR AF TAEJON
Herstjórnartilkynning alþýðu
hersins I gær er fáorð, skýrir
aðeins stuttlega frá sókn á öll-
um vigstöðvum, og MacAarthur
gaf enga tilkynningu út. Frétta
ritarar segja, að skriðdrekar
alþýðuhersins sæki fram á slétt
unni suður og suðvestur af
Taejon. Bandaríska herstjórnin
er sögð reiða sig á flugvélar til
að hindra, að þessi her uái-
kringi liðið, sem flýr frá
Taejon.
MacArthur sagði, cr harsn
tilkynnti flótta Baadarikjahers
frá Taejon að borgin hefði
Framhald á 7. siðu.