Þjóðviljinn - 22.07.1950, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 22.07.1950, Blaðsíða 6
,s* ***« ÞJÖÐVILJINN T* !i[ .£í' 'í'ígflnírj.u&X Laugardagur 22. júli *■'-"• -• .....vt- - LAUSASÖLUSTAÐIR ÞJÖÐVILJANS i i» »iiMi Ný framhaldssaga byrjaði á sunnud. G e r t r u d L i 1 j a : Hamingjuleitin 6. DAGUR. t \ Vesturbær: Vogarskýlið við Ægisgarð Sjóbúðin við Grandagarð Veitingastofan Fjóla Vesturgötu 29 . Verzlunin Vesturgata 16 Veitingastofan -West-End Vesturgötu 45 Matstofan Vesturgötu 53 Verzlunin Drífandi Kaplaskjólsveg 1 Miðbæn Blaðasalan Austurstræti 14 Hressingarskálinn Austwrstræti Ás Laugaveg 160 Filippus í Kolasundi Veitingastofan viö Geirsgötu Bókabúð KRON Alþýðuhúsinu ísbúðin Bankastræti 14 Kaffistofan Gosi Skólavörðustíg 10 Flöskubúöin Bergstaðastræti 10 Veitingastofan Óðinsgötu 5 Austurbær: ' Verzlunin Laugevegur 45 Veitingastofan Hverfisgötu 69 Tóbak og sælgæti Laugaveg 72 Stjörnukaffi Laugaveg 86 Röðull Laugaveg 89 Ásbyrgi Laugaveg 139 Söluturninn við Vatnsþró - Matstofan Bjarg viö Laugaveg Matstofan Höfði Skúlagötu 61 Verzlunin Drífandi Samtún 12 Verzlunin Bragagata 22 Verzlunin Víðír Þórsgata 29 Veitingastofan ‘Þórsgata 14 . Smurbrauðsbarinn Björninn Njálsgötu 49 Verzlunin Þverá Bergþórugötu 23 Verzlunín Háteigsveg 52 Bakaríið Barmahlíð 8 Verzlunin Krónan Mávahlíð 25 „Komdu og seztu hjá okkur, Marta,“ kölluðu kennslukomirnar vingjamlega. Líka þær? hugs- aði Hilla. Nutu þær yfirburða sinna yfir heima- sætuna eins og frúmar sem áttu giftar dætur? >að var skipt um umræðuefni, valið efni Sem hæfði Mörtu betur, talað um bökunarupp- skriftir og mat og kennslukonurnar hæddust að sjálfum sér fyrir.ódugnað sinn. Eini skorturinn é menntun, sem konur skömmuðust sín ekki fyr- ir að viðurkenna, heldur þvert á móti, var skort- ur á kunnáttu í matartilbúningi, hugsaði Hilla. Það hlaut að stafa af niðurbældri vanmeta- kennd; það var fínt að geta ekki unnið starf, sem vistráðið hjú gat unnið. Marta hlustaði með vingjárnlegu brosi á frá- sagnir þeirra um ódugnað sinn. En var ekki eins og henni leiddist? hugsaði Hilla. Var útilokað, að hún sem hafði notið uppeldis og leiðsagnar gáfaðs föður, gæti sett sig inn í ferðaáætlanir og Englandsferðir þeirra? Hilla þekkti Mörtu lítið, hún hafði hitt hana í nokkrum samkvæm- um, en hún fylltist allt í einu samúð með henni. Hún hafði mjög falleg augu, þótt þau væru dá- lítið þungbúin og raunaleg.. Ef til vill áttu þau eftir að skjóta gneistum. Heimskri móður, grun- lausum föður og eigingjörnum bróður til mik- illar undrunar. „Hefur ungfrú Bergström komið til Eng- ;ands?“ spurði hún. „Já, en ekki nema hálft ár. Það þarf víst langan tima til að átta sig á fólki og staðhátt- um. „Þú hefur aldrei. falað um það,“ sögðu kennslukonurnar. Marta brosti. „Það var ekki umtalsvert — það gerðist ekk- crt markvert. Eg var allan tímann í London til að læra málið.“ Nú vaknaði áhugi -Hillu. Henni fór að skilj- ast, að Marta var tvær persónur. Önnur sam- svaraði umhverfinu, og hin naut sín ekki nema gagnvart þeim sem dæmdi hana af eigin raun og kynningu. Hún hafði haft þögnina að varn- armúr: já, og nei. Hún var dóttir Bergströms rektors, sem var viðurkenndur gáfumaður, syst- ir gáfnaljóss sem beið eftir að verða prófessor, og rektorsfrúin var móðir hennar, svo að van- máttarkennd hennar hlaut að þrífast vel. „Ejvað ætlar þú að vera lengi í Englandi, Dag- mar?“ spurði Hilla með sakleysissvip. „Eg ? Eg verð víst ekki nema í mánuð . .. . “ „Það má sjá mikið af London á einum mán- uði,“ sagði Márta vingjarnlega um leið og hún reis á fætur — augnaráð móðurinnar kallaði á hana. Leikfimiskennslukonan fór ,að líta á klukkúna; í laumi. En hópurinn kringum rektorsfrúna sýndj ekki á sér fararsnið. „Hefurðu frétt nokkuð af Karín Dahl ?“ spurði Dagmar sessunaut sinn. „Nei, en það er sjálfsagt allt við sama.“ „Eg er að hugsa um að líta inn til hennar næst þegar ég á leið framhjá. Þú þekkir víst ekki Karín Dahl?“ sagði hún og sneri sér að Hillu. I „Nei, en ég veit, að hún var félagi Hinriks við skólann," sagði Hilla stutt í spuna. Hún var gripin skyndilegri reiði. Var ekki smekklaust að fara að minnast á fyrrverandi unnustu Hinriks við eiginkonu hans? Smekklaust gagnvart unn- ustunni........ „Hún veiktist rétt eftir að hún fluttist héðan.“ „Eg veit það, Hinrik hefur sagt mér það,“ sagði Hilla. Síðan reis hún á fætur, því að nú var hópurinn kringum rektorsfrúna farinn að leysast upp. Sem betur fór. Því að Hilla fann að henni var að verða illt. Hamingjan gæfi að hún kæmist heim. Að opinbera leyndarmál henn- ar og Hinriks í þessum félagsskap lcngu áður en það var nauðsynlegt — ó, guð, láttu mig komast heim fyrst. Óttaslegið augnaráð hennar mætti augnaráði Mörtu. Þar sem hún stóð og hélt vörð eins ög lögregluþjónn. Það var eins og þjáning Hillu hyrfi inn í þessi raunamæddu og þreyttu augu. ! „Gæti ungfrú Borgström ekki litið inn til mín einhvern tíma,“ sagði Hilla um leið og hún rétti Mörtu höndina í kveðjuskyni. „Eg er svo einmana. þegar maðurinn minn er í skólanum....“ „Þökk fýrir, það vil ég gjarnan.“ „Lennart og Aina koma til okkar í sumar eins og vanalega,“ sagði rektorsfrúin við mann sinn við miðdegisverðinn. „Eg fékk bréf frá Ainu í dag. Hún var að velta því fyrir sér, hvort hún ætti að taka stúlku með til að gæta bamsins, en ég ætla að segja henni, að það sé engin þörf á því. Klas-Göran er svo hrifinn af Mörtu.......“ Rektorinn skotraði augunum sem snöggvast til dóttur sinnar, viðutan eða rannsakandi, það var ekki auðvelt að sjá hvort heldur var. ,,Og hvað segir Marta um það ?“ spurði hcym. Nú var það Marta sem leit sem snöggvast á föður sinn. „Marta? Henni finnst það ágætt, eða ekki get ég ímyndað mér annað,“ sagði rektorsfrúin höst- ■ug. Rektorinn þagði. Marta þagði líka. Þegar máltíðinni var lokið, hvarf rektorinn inn í her- bergi ’ sitt. „Eg ætla að leggja mig dálitla stund, Marta mín.“ sagði rektorsfrúin. „Þú sérð um að silfrið £ Verzlunin Fálkagata 2 Grímsstaðaholti Bókabúð Laugarness Sundlaugaveg 50 KRON Hrísateig 19 KRON Langsholtsveg 24—26 KRON Langholtsveg 140 Verzlunin Nökkvavogur 13 Verzlunin Álfabrekka við Suðurlandsbr. Verslunin Langsholtsvegur 174 Flugvallarhótelið, Reykjavíkurflugvelli Verzlunin við Borgarholtsbraut Kópavogi . Verzlun-n við Reykianesbraut Kópavogi Fossvogsbúðin Fossvogi. SÞAViIP

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.