Þjóðviljinn - 21.09.1950, Blaðsíða 4
3
Þ7ÓÐVILJ1N N
Fimmtudagur 21. sept. 1950.
Otgefandl: Samelnlngarflokkur alþýCu — Sósiallstaflokkurlcn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmucdsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónstelnn Haraldsson.
Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Simi 7600 (þrjár línur).
Askriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Laúsasöluverð 80 aur, eint.
Prentsmlðja Þjóðviljans h. f.
Hlutlausir „leiðtogar"!!
AlþýðublaÖið birtir í gær viðtal við Sigurjón Á. Ólafs-
son, formann Sjómannafélags Reykjavíkur, þann mann
sem vera ætti fremsti forustumaður sjómanna í kjara-
baráttu þeirra. Umræðuefnið er að sjálfsögðu „sátta-
tillagan“ og blaðamaður Alþýðublaðsins spyr „sjómanna-
leiðtoganna“. „Hefur stjórn Sjómannafélagsins tekið
nokkra afstöðu, jákvæða eða neikvæða, til miðlunartil-
lögunnar?“ Og leiðtoginn mikli svarar: „Nei, það hefur
hún ekki gert.“
Fyrirspurnir til
Ferðaskrifstofunnar.
„Einn af þrem“ skrifar mcr
eftirfarandi bréf: — „Fyrir-
spurnir til Ferðaskrifstofunnar
og sérleyfishafa Reykjavík—
Hveragerði: — Hver ber á-
byrgð á fólksflutningum frá
Hveragerði til Reykjavíkur ?
Hversu miklar skyldur hafa
sérleyfishafar gagnvart farþeg-
um, sem eftir standa, þegar
hinir yfirfullu bílar aka burt?
Til hverra á þá að snúa sér
með kvartanir og kröfur útaf
rangsleitni, sem maður þykist
beittur á þessari leið ? — Ástæð
ur fyrir þessum fyrirspurnum
eru eftirfarandi:
gengið svo til nokkurra ára að
sá sem ekki geti troðið sér í
síðustu rútuna, verði að bíða
til næstu hentugleika í Hvera-
gerði. Væri nú ekki tími til
kominn, að kippa þessu í lag.
Gætu ekki sérleyfishafar haft
venjulega afgreiðslu og miða-
sölu þar eins og annarsstaðar,
og ber þeim þá ekki að sjá um
að koma öllum faiþegum til á-
kvörðunarstaðar, fyrst
hafa sérleyfi fyrir þessari leið.
Verði upphafsspurningum þess-
ara orða svarað fæst væntan-
lega botn í þetta mál. Við
þremenningarnir hefðiun áhuga
á að sjá þann sem ábyrgðina
ber og óska endurgreiðslu og
þakka fyrir okkur. — Reykja-
Krossgáta nr. 36
Lár. 1 ótti — 6 elska — 7 dýra-
mál — 8 borðuðum — 10 maðk —
11 lagfærir — 14 tvihl. — 15 ótta
— 17 brún.
Lausn á nr. 35
Lár. 1 uggar — 6 auk — 7 er' —
8 aflanga — 10 agn — 11 krans —
14 AÓ — úir — 17 sparar.
Lóðr. 2 gaf — 3 gulla------4 aka
— 5 brann — 7 egg — 8 arka —
9 nasir — 12 rós — 13 núa — 16
Ra.
Lóðr. 2 æði — 3 nóg — 4 sár —
5 móður — 7 sonur — 8 meiða —
9 veiða — 12 sár — 13 for — 16
þeil' óskyldir.
83 dagar eru nú liðnir síðan stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur boöaði til verkfalls á togaraflotanum á þeim
tíma sem útgerðarauðvaldinu var hagstæðastur. Sjó-
mannafélagsstjórnin þóttist þá ekki í neinum vafa um
hverjar kröfur sjómönnum bæri að gera og var meira
að segja svo kotroskin að hún hafnaði karfaveiðisamn-
ingum sem tryggðu sjómönnum betri kjör en þeir hafa
nokkurn tíma áður haft á togaraflotanum. Hún var
sannarlega ekki hlutlaus þá. Á þeim tíma sem liðinn er
síðan deilan hófst hefur sjómannafélagsstjórnin aðeins
kallað saman einn einasta félagsfund til að ráðgast við
starfandi sjómenn; hún þurfti svo sannarlega ekki á
sjónarmiðum þeirra að halda, hún vissi sjálf hverju
marki skyldi náð. Og á hinum sífelldu skrifum Sæmund-
ar kexverksmiðjuforst'jóra í Alþýðublaðinu hefur sannar
lega ekki heldur verið neinn hlutleysissvipur.
En svo líður aö úrslitum. Eftir tæplega þriggja
mánaða stöðvun 28 togara telja atvinnurekendur loks
að tekizt hafi svo að þreyta sjómenn að þeir muni ganga
að smánarboðum. Og þegar smánartillögurnar eru born-
ar fram opinberlega gerast allt í einu þau tíðindi að
forusta Sjómannafélags Reykjavíkur er orðin algerlega
hlutlaus, hefur enga afstöðu, hvorki jákvæða né nei-
kvæða, til lífskjara sjómanna!
Augljósari svik mun vart hægt að hugsa sér. Þau
jafnast aðeins á við tveggjakrónusvik Alþýðusambands-
stjórnar, enda standa sömu aðilar að hvorutveggja.
Fordæmið frá Akureyri
Alþýðusambandskosningarnar hófust að þessu sinni
í þrem félögum á Akureyri, verkamannafélaginu, sjó-
mannafélaginu og Iðju. Hafði afturhaldsfylkingin gert
sér mjög miklar vonir um þessar kosningar og taldi sér
m.a. tryggan sigur í verkamannafélaginu en þar stóð
mjög í járnum fyrir tveimur árum. Var Jón Hjálmarsson
■erindreki Alþýðusambandsins sendur til Akureyrar til
að skipuleggja sigurinn og lagði hann að sjálfsögðu
'.hina mestu áherzlu á fcrustu gengislækkunarflokkanna;
á lista Alþýöusambandsstjórnar í verkamannafélaginu
■voru t.d. tveir Framsóknarmenn, einn íhaldsmaður —
og einn Alþýðuflokksmaður.
En afturhaldsliðið varð fyrir sárum vonbrigðum.
IFulltrúar einingarmanna voru sjálfkjörnir í sjómanna-
félaginu, afturhaldsliðið fékk sjö atkvæði í Iðju og í
'verkamannafélaginu sigruðu einingarmenn afturhalds-
flokkana þrjá með meiri mun en í síðustu kosningum.
Sá sigur sem Alþýðusambandsstjórn hafði vonazt eftir
•varð eins og vert var í samræmi við „sigur“ hennar í
kaupgjaldsmálunum.
Verkalýður Akureyrar hefur með þessu gefið alþýðu-
samtökunum um land allt fordæmi. Agentar gengislækk-
xmarflokkanna og tveggjakrónasvikaranna hafa þar feng-
ið þau svör sem þeir verðskulda, og þau svör munu
yerða endurtekin af verkalýðssinnum um land allt.
Útskúfaðir ferðalangar.
„Laugardag einn í ágúst s.l.
tók ég mér far frá Ferðaskrif-
stofunni kl. 15.30, austur í
Hveragerði. Var ég þar til
sunnudagskvölds. Kl. 20.30
mætti ég á planinu útifyrir
Verzlun Reykjafossi, þar sem
rúturnar hafa afgreiðslu sína,
en hinn glaðklakkalegi bílstjóri
8.30 rútunnar tilkynnti án sjá-
vík í sept. 1950. — Einn af
þrem.“
Er þessi hávaði nauð-
synlegur ?
J. F. skrifar Bæjarpóstinum:
— „Ég fór í heimsókn til sjúkl-
ings sem liggur í Landakots-
spítala. Hann sagði mér að sér
og öðrum sjúklingum væru
mikil óþægindi að þeirri miklu
umferð, sem er um Túngötuna
foss er í Reykjavík. Fjallfoss kom
til Akureyrar í gærkv. 20.9. Goða-
foss hefur væntanlega farið frá
Rotterdam 19.9. til Hull, Leith og
Reykjavíkur. Gullfoss kom til R-
víkur í morgun frá Leith og Kaup
mannahöfn. Lagarfoss er í Reykja
vík. Selfoss fer frá Reykjavík í
kvöld til Sauðárkróks, Hjalteyrar
og Akureyrar. Tröllafoss er í N.Y.
fór þaðan væntanlega 26.9. til Hali
fax og Reykjavikur.
»# .
Næturlælcnir
er í Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
anlegra áhyggna: Fullt, yfir-
fullt. Þarna stóðu nokkrir ráð-
lausir strandaglópar einsog ég,
og ráðlagði bilstjórinn okkur
að bíða til 10.30 þá færi síð-
asta rútan suður. Og þetta gerð
um við. — En viti menn. Kl.
10.30 mættu þarna margir far-
þegar, konur og börn m.a. lang-
þreytt úr berjamónum, og það
sama svarið fæst og hið fyrra
sinni: Fullt — yfirfullt. Og
þessi bílstjóri gat ekkert ráð-
lagt og þar stóðum við undir
nótt, vonsvikin og úrræðalaus.
Lokaður sími, enginn bíll á
staðnum, og semsagt gott.
Tveir enskumælendur glórðu
hvor uppí annan og pötuðu.
Landkynning það. Flestir hinna
útskúfuðu dreifðust og leituðu
á náðir Hveragerðinga með
gistingu. En að síðustu urðum
við þrír eftir og ræddum hvað
gera skyldi, því allir áttu að
mæta á settum tíma til vinnu
í Reykjavík að morgni. Loks
kl. 1 e.m.n. náðum við í leigu-
bíl, sem kostaði okkur þrefalt
sætagjald.
Hver er ábyrgur?
„Daginn eftir snérum við
okkur til Ferðaskrifstofunnar
og vildum fá upplýsingar um
einhvern ábyrgan aðila í mál-
inu, höfðum einnig tal af sér-
leyfishafa110.30 bílsins. En þess
ir aðilar hafa enga ábyrgð og
enn höfum við ekki fundið
neinn endamann í hinni flóknu
keðju skipulagsins, né fengið
nokkra leiðréttingu hinna sví-
virðulegu trassamennsku þess-
ara aðila. — Nú hef ég fengið
þær upplýsingar að þetta sé
eugin ný bóla, heldur hafi það
fram eftir öllu á kvöldin. Þeg-
ar kyrrð er komin á, og sjúk-
lingar eiga og þurfa að fara að
sofa, geta þeir ekki fest svefn
vegna hávaða frá götuumferð-
inni, eða hrökkva upp jafnóðum
og þeir sofna. Á þessu gengur
stundum langt fram á nótt.
Ég vil koma þeirri ósk á fram
færi hvort ekki sé hægt að
loka Túngötunni fyrir umferð
á þessum kafla, t.d. eftir klukk
an 10 á kvöldin. Þá er sjaldan
Framhald á 7. síðu.
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla var á Akureyri í gær.
Esja fer frá Reykjavík á hádegi
á morgun austur um land til Siglu
fjarðar. Herðubreið er í Reykjavík
Skjaldbreið fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarhafna. Þyrill er norðan
lands. Ármann er í Reykjavik.
Skipadeild S.l.S.
Arnarfell er i Genoa. Hvassa-
fell er í Eyjafirði.
Nýlega hafa op-
inberað trúlofun
sína ungfrú Inga
Ottesen, frá Gjá-
bakka i Þingvalla
*- sveit og Þorkell
Kjartansson frá Austurey í Laug-
ardal. — Nýlega opinberuðu trú-
lofun síria ungfrú Kristborg Bene-
diktsdóttir, Laugateig 44 og Krist-
ján Oddsson, stud. med., Laugaveg
130.
Mlnningarspjöld Styrktarsjóðs
ekkna og munaðarlausra barna
islenzkra lækna fást á Klappar-
stíg 29, annari hæð, hjá Magnúsi
Péturssyni lækni.
Eimskip
Brúarfoss kom til Lysekil í Sví
þjóð 19.9. frá Hafnarfirði. Detti-
gefin saman í
hjónaband ung-
frú Hallfriður
Ásmundsd. og
___ Kristinn Finn-
bogason, lögregluþjónn. Heimili
þeirra er að Rauðarárstíg 40.
Haustfermingarbörn í Laugarnea-
sókn eru beðin að koma til viðtals
í Laugarneskirkju næstkomandi
þriðjudag kl. 5 e.h. — Sr. Garðar
Svavarsson.
Ungbarnavernd Líknar
Templarasundi 3, verður fram-
vegis opin þriðjudaga kl. 3.15—4
og fimmtudaga kl. 1.30—2.30, ein-
göngu fyrir börn sem fengið hafa
kíghósta eða hlotið hafa ónæmis-
aðgerð gegn honum. — Ekki verð-
ur tekið á móti kvefuðum börnum.
20.00 Fréttir. 20.30
Útvarpshljóm-
sveitin: Ensk al-
þýðulög. 20.45 Dag-
skrá Kvenréttinda-
félags Islands. —
Erindi: Frá bæjardyrum húsmóð-
urinnar (frú Katrín Pálsdóttir).
21.10 Tónleikar. 21.15 Iþróttaþáttur
(Sigurður Sigurðsson). 21.30 Sin-
fónískir tónleikar. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Sinfónískir tón
leikar. 22.40 Dagskrárlok.
DAGSBRtJNABMENN
í kvöld ez tækifæri til
að kvitta fyrir svikin.
iiMunið kosningafund-
inn í Iðnó kl. 8.30.
Leiðrétting.
Þau línubrengl urðu í grein Jóns
Rafnssonar í gær að neðsta lína í
fyrsta dálki átti réttilega að vera
fimmta lína i öðrum dálki.
Húskólafyririestur próf. H. Nlals
um lögfræðikennslu í Svíþjóð og
umbætur á henni verður fluttur
í hátíðasai háskóians í dag kl. 6
e.h. stundvíslega.
öllúm er heimill áðgangur. ;