Þjóðviljinn - 30.09.1950, Page 8
öryggisráðið býður alþýðustjórn Kína
að taka þátt í umræðunum um Taivan
IDagai3 ÍKiieeiiiiÉangfislMrMa la|á SP tafdir
Samþykkt öryggisráðsins að bjóða íulltrúa
írá alþýðustjórn Kína að taka þátt í umræðum um
kæruna á hendur Bandaríkjunum fyrir árás á
Taivan, er örlagarík ákvörðun, sagði fréttaritari
brezka útvarpsins hjá SÞ í gær. Almennt ber mönn-
um saman um það í Lake Succcss, bætti frétta-
ritarinn við, dð þegar sendinefnd frá alþýðustjórn-
inni einu sinni er komin þangað, eru dagar Kuo-
mintangsendinefndarinnar hjá SÞ taldir.
Samþykktin um að bjóða full-
trúa frá alþýðustjórninni á
fundinn um Taivan var gerð
á öryggisráðsfundi í gær með
sjö atkvæðum gegn þrem en
einn fulltrúi sat hjá. Með boð-
inu voru fulltrúar Sovétríkj-
anna, Indlands, Noregs, Bret-
lands, Júgóslavíu, Frakklands
og Equador en á móti fulltrú-
ar Bandaríkjanna, Kúbu og
Kuomintang. Egypzki fulltrúinn
sat hjá.
Skriða flytnr 40
huslOOmetra
Skriða mikil féll i gær á þorp
á bakka Gautelfar 15 km norð-
ur af Gautaborg í Svíþjóð. —
Ruddi hún 40 húsum á und-
an sér um 100 metra vegalengd.
Að minnsta kosti einn maður
foeið bana en margir meiddust.
Stórrigning olli skriðufallinu.
ísienzk listsýning
í Oslo
Félag norskra myndlistar-
manna og norska ríkisstjórnin
hafa óskað eftir því að íslenzk
myndlistarsýning verði haldin
í Osló næsta vor. Menntamála-
ráð hefur samið við þá Jón
ÍÞorleifsson, Jón Stefánsson,
Sigurð Sigurðsson og Þorvald
Skúlason að velja málverk og
teikningar og þá Ásmund
Sveinsson, Magnús Árnason og
Sigurjón Ólafsson að velja högg
myndir. Öllum er heimilt að
senda nefndinni listaverk og
tekur hún á móti þeim í þjóð-
minjasafninu dagana 15.—20.
okt. n. k.
KÓREA
Framhald af 1. síðu.
sögð hafa skipað lepphersveit-
unum að nema staðar og bíða
þess að þær verði endurskipu-
lagðar.
Bevin utanríkisráðherra Bret
lands sagði í New York í gær,
er hann lagði af stað heimleið-
is, að hann sæi enga ástæðu til
að láta innrásarherinn stinga
við fótum við 38. breiddarbaug-
inn. Brezka stjórnin er sögð
fylgjandi því, að Bandaríkja-
her fari yfir breiddarbauginn
og hertaki Pyengyang, setiu-
alþýðustjórnarinnar, en sæki
ekki alla leið til iandamæra
Kína og Sovétríkjanna.
Strax eftir atkvæðagreiðsluna
reis Kuomintangfulltrúinn á fæt
ur og hélt því fram, að mót-
atkvæði sitt gilti sem beiting
neitunarvalds. Hann stóð þó
einn uppi með þá skoðun, ailir
aðrir fulltrúar kváðu hér um
að ræða málsmeðferð en ekki
málsúrslit. Eftir langar umræð-
ur lýsti Sir Gladwyn Jebb. for-
seti öryggisráðsins yfir að
samþykktin stæði í fullu gildi.
Var síðan ákveðið að fresta
Taivanmálinu þangað til 15.
nóvember, þegar allsherjarþing-
ið hefur fjallað um það.
Allsherjarþingið kaus í gær
nýja fulltrúa í öryggisráðið.
Holland tekur við sæti Noregs
um áramótin og Brasilía við
sæti Kúbu en ekki varð lokið
kosningu.ríkis til að koma í stað
Egyptalands. Níu sinnum var
kosið á milli Tyrklands og Líb-
anon en hvorugt fékk þau 40
atkvæði, sem þarf til að kosn-
ing sé gild.
Vegna þess hve kosningin
drógst á langinn vannst ekki
tími til að halda fund i stjórn
málanefnd þingsins, en þar ætl
aði brezka sendinefndin að
leggja fram tillögur sínar um
framtíð Kóreu.
Kosinn ein-
róma
Á fundi í Félagi ísl. prent-
myndasmiða var Sigurbjörn
Þórðarson formaður félagsins
einróma kosinn fulltrúi á næsta
Alþýðusambandsþing. Varamað-
ur hans var kosinn Benedikt
Gíslason.
Kosningu í
Múrarafélaginu
Annáll er-
lendra tiSinda
Annáll erlendra tíðinda, júli-
ágúst-heftið, er kominn út. Að-
algrein annálsins fjallar um
styrjöldina gegn Asiu, en kafla-
fyrirsagnir hennareru: „Klaufa
skapurinn í Kóreu“, „Friðar-
hræðan“ og horfur atvinnulífs-
ins, ,,Smástríð“ — eða hvað?,
Hver ber sök á styrjöldinni?;
Kórea og Formósa, Indland og
sjálfstæðisbarátta Asiu, Barátta
Rússlands í öryggisráðinu,
Tveir styrjaldarmánuðir. I Víð-
sjá mánaðarins I eru þessar
greinar: Leopold konungur og
Belgia, Fimm ára áætlun Aust-
ur-Þýzkalands, en í Víðsjá II.:
MacArthur — hið ameríska
karlmenni, Kim Ir Sen -— þjóð-
hetja Kóreu, Formósa, 4. punkt-
ur Trumans, Iran — hættu-
svæði i lieimsstjómmálum.
Leikstjórnar-
námskeið
Bandalag ísl. leikfélaga hefur
ákveðið að halda námskeið fyr-
ir leikstjóra utan af landi þ.
15.—30. okt. n. k. Umsóknir
þurfa. að sendast Ævari Kvar-
an, Bergstaðastræti 36 Reykja-
vík, fyrir 10. okt. n. k. — Nán-
ar síðar.
t
Kosning fulltrúa á Alþýðu
sambandsþing í Múrarafélagi
Reykjavíkur hófst í gær og
kusu 70—80 af 130 á kjör
skrá.
Listi sameiningarmanna er A
listi skipaður Guðjóni. Bene-
diktssyni og til vara Þorsteini
Löve.
Listi Ihaldsins er B-listi,
skipaður Ölafi Pálssyni og til
vára Eggert Þorsteinssyni.
Atkvæðagreiðsla hefst í dag
kl. 1 og lýkur í kvöld kl. 9.
SVIUINM
IpSp Ihaldsiiis við vöfubílsijóía:
Áf þvi ekkert lefur verið gert til
ú teta ót afvinmleysi vörubil-
stjóra sér Ibaldið ekki ástæðu
til að gera neitt!!!
Engin stétt hefur undanfarið búið jafnlengi við al-
mennt atvinnuleysi og vörubílstjórar. Skipulagning at-
vinnuleysis og eymdar kom fyrst niður á vörúbílstjór-
um og heíur því bitnað tilfinnanlegast á þeim.
Á bæjarstjómarfundinum 21. þ. m. flutti Einar Ög-
mundsson svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir með sérstöku tilliti til hins
alvarlega atvinnuástands vörubílstjóranna í bænum, aö
verða við tilmælum þedm sem Vörubílstjórafélagið Þrótt-
ur samþykkti á fundi síntun 12. apríl s. 1. að beina til
bæjarstjómar ReykjavJkur, um að félagsmenn fái að
vinna af sér með bifreiðavinnu hjá bænum, þau opin-
ber gjöld er þeim er ætlað að greiða til bæjarins“.
Lögregla New
York gerspillt
Komi/.t hefur upp um víðtækt
samstarf milli lögregiunnar og
glæpamanna í New York,
stærstu borg Bandaríkjanna.
Greiddu glæpamennirnir lög-
regluþjónum og lögregluforingj
um ríflegar mútur til áð vera
látnir í friði við iðju sína, —
Skipt hefur verið um lögreglu-
stjóra í borginni og var fyrsta
verk Thomas Murpliy, sem við
tók, að senda 21 af æðstu lög-
regluforingjunum fyrir kviðdóm
inn, sem er að rannsáka þessa
fjármálaspillingu.
ðfbeldi gegn
æskulýð
Lögreglan í stærstu borgum
Vestur-Þýzkalands hefur lýst
yfir að ofbeldi verði beitt til
að hindra fjöldafundi Frjálsr-
ar þýzkrar æsku á sunnudaginn.
Æskulýðsmót í Dortmund hafði
áður verið bannað og voru fund
ir í einstökum borgum þá boð-
aðir.
Sjómeim!
MUNIÐ að athuga strax í
dag hvort þið eruð á kjör-
skrá í Sjómannafélagsnu.
Einar rökstuddi málaleitan
bílstjóranna með því að lýsa
atvinnuástandi stéttarinnar og
benti á að þéss væru dæmi að
farið væri að selja vörubfla
upp í opinber gjöld, þár sem
vörúbflstjórarnir hefðú ekki
getað stáðið í skilum sckum
atvinnuleysis.
Vörubílstjórar og aðrir
skyldú ætla að íhaldið í bæjar-
stjórninni hefði litið með skiln-
ingi á málaleitun bílstjóranna
og brugðið við þeim til aðstoð-
ar, — það hefði verið rökrétt
framhald af fullyrðingum I-
haldssmalanna um að vörubíi-
stjórar ættu að kjósa FriO-
leif, því hann sé í Sjálfstæð-
isflokknura og eigi svo góðan
aðgang að valdamönmmum til
að koma fram bagsmunamálum
bílstjóranna.
Það kvað samt við annan
tón hjá Ihaldinu. Borgarstjór-
inn viðurkenndi allt sem Elinar
sagði um atvinnule.ysi bílstjóra
— en kvað ekkert hægt að gera
fyrir þá, og flutti tillögu um
að visa frá málaleitan þeirra,
er Einar Ögmundsscn hafði
tekið upp í tillöguformi.
Þegar Einar krafði3t þess1 á
bæjarstjórnarfundi s. 1. vetur
að bæjarstjóm gerði ráðstafan-
ir til að bæta úr atvinnuleysi
vömbflstjóra hélt borgarstjóri
því fram að Sogsvirkjunin
myndi bæta úr atvinnuleysi
þeirra og jafnframt flutti hann
áskorun á Alþingi um að hefja
lagningu Austurvegar — og
kvað nú vörubílstjórum myndi
vel borgið-!!
Það var ekki byrjað á Aust-
urvegi — og engum dettur í
hug að við þann veg fái vöru-
bílstjórar nokkra vinn'u í ná-
inni framtíð. Og íhaldinu tókst
með seinagangi sínum og slóoa-
skap að koma því þannig fyr-
ir að Sogsvirkjúnin bætti ekk-
ert úr atvinnuleysi vörubii-
stjóra á s. 1. stunri.
En hvað skeður á síöasta
bæj arstj ómarfundi! Borgar-
stjórinn leggur til að vísa
frá málaleitan bílstjóranna
um að fá að vinna af sér
bæjargjöld og rökstyður það
með því að bæjarstjórn
„hafi lagt áherzlu á að haf-
izt yrði handa um tvær stór-
framkvæmdir, Sogsvirkjun-
ina og Austurveg sem hvpr
um sig MYNDI veita mikla
vinnu fyrir vörubílstjóra“!!
Með öðrum orðum: af
þvi ekkert hefur verið gert
til að bæta úr atvinnu-
leysi vörubílstjóra sér í-
haldið enga ástæðu til að
gera neitt til að bæta úr
því!!
Á kuldalegri og lúalegri
hátt gat íhaldið ekki skop-
azt að atvinnuleysi reyk-
vískra vörúbílstjóra.
Vörubílstjórar þurfa að
hafa þetta í huga þegar
sendlar íhaldsins nú koma
og biðja þá að kjósa Friðleif
hinn úrskurðaða, þetta vilja
lausa verkfæri atvinnurek-
endanna 1 íhaldsflokknum.
'Sý skáldsaga
efÉir nýjan
höfund
Út er komin ný skáldsaga
eftir nýjan íslenzkan höfund.
Nefnist hún „Leiðin lá til vest-
urheims“ cg höfundurinn kallar
sig Svein Auðunn Sveinsson, en
talið er að það muni vera dul-
nefni. — Gerist sagan í Banda-
ríkjunum og lýsir lífi ungs
fólks við háskólanám þar
vestra.
Bókin er um 350 síður að
stærð í allstóru broti, gefin út
af Keilisútgáfunni.
Indónesk 60. ríki SÞ
Þing SÞ tók í fyrrad einróma
Indónesíu upp í bandalagið. -—
Er hún 60. meðlimaríkið.