Þjóðviljinn - 01.10.1950, Blaðsíða 1
15. árgangur.
Sunnudagur 1. október 1950.
218. tölublað.
Hvað eir auglýsS
í SMÁMGLÝS-
INGADALKNUM
í dag
Ávarp til meðlima Sjómanna-
félags Reykjavíkur
Félagar!
í dag hefst allsherjaratkvæðagreiðsla
um 16 íulltrúa félags okkar til Alþýðusam-
bandsþings.
Við sjómenn höfum stillt upp okkar
eigin lista í þessum kosningum. Á honum
er hvert sæti skipað starfandi sjómanni.
Við álítum það mikið hagsmunamál
fyrir stéttina að fá inn á Alþýðusambands-
þing slíkan hóp starfandi sjómanna beint af
flotanum, einmitt þá menn, sem skilja bezt
okkar eigin kjör og réttlætiskröfur.
Þessvegna heitum við á ykkur að vinna
ötullega að fullum sigri sjómannalistans
okkar, sem er B- listinn.
Og við ykkur, félagar, sem eruð hættir
að stunda sjóinn en eruð í félaginu, viljum
við segja þetta sérstaklega:
Hjálpið okkur með ráðum og dáð. Veit-
ið sjómannalistanum allt það lið, sem þið
getið. Komið sjálfir og kjósið B- listann og
fáið aðra til að gera það.
Og þið, sem ekki viljið veita lista okkar
brautargengi: Leggið þá heldur ekki stein
í götu hans.
Sjómannafélagar!
Stöndum allir saman um listann okkar,
sjómannalistann, B-listann!
MeSmælendur Sjómannalistans — B-listans.
Sjómannalistinn — B-listinn — er þannig skipaður:
AðalfuHiiúar:
Einar Guðmundsson, Hvg. 74, m. b. Helgu
Hreggviður Daníelsson, Hávallag. 51, b.v. Geir
Karl Sigurbergsson, Úthl. 4. m.b. Skíða
Guðni Sigurðsson, Gren. 22, b.v. Garðari Þorsteinss.
Jón Halldórsson, Laufholti, Ásveg, b.v. Aski
Erlingur Klemensson, Hagam. 22, m.b. íslelfi
Guðmundur Pétursson, Seljaveg 3, b.v. Goðanesi
Árni J. Jóhannsson, Sogaveg 116, m.s. Straumey
Þorsteinn Þorsteinsson, Fálk. 18, b.v. Jóni forseta
Bjarni Bjarnason, Kambsveg 7, b.v. Aski
Diðrik Jónsson, Kirkjut. 11, b.v. Hvalfelli
Ketill Pétursson, Tjarn. 28, b.v. Garðari Þorsteinsa.
Einar Ólafsson. Ásvallag. 53, m.b. Helgu
Guömundur Magnússon, Gren. 36, b.v. Ingólfi Arnars.
Einar Hafberg, Hvaunt. 24, m.b. Skálafelli
Jón Gíslason. Þverveg 40, Hval I.
Varafulltiúar:
Enok Ingimundarson, Iljallaveg 50, m.b. Nönnu
Guðlaugur Þorsteinsson, Hringbr. 54, b.v. Aski
Björgvin Þórðarson, Fjólug. 25, b.v. Jóni Þoriákss.
Hólmar Magnússon, Mikl. 64, m.s. Rifsncsi
Ferdinant Söebeck. Sólvallag. 55, m.b. Helgu
Lúðvík Dagbjartsson, Hringbr. 97.
Sigurður Bárðarson, Bergþg. 2, b.v. Jóni forseta
Gústaf Einarsson, Hvg. 59, b.v. Venusi
Magnús Guðjónsson, Hoft. 44, b.v. Geir
Guðmundur Elías Símonars., Hringbr. 84, b.v. Jóni f.
Halldór Stefánsson, Laugat. 40, b.v. Búðanesi
Ólafur B. Ólafsson, Bræðr. 4, b.v. Fylki
Ólafur Sigurðsson, Hverfisg. 108, m.s. Esju
Pétur Stefánsson, Grjótag. 9 b.v. Garðari Þorsteinss.
Ásgrímur Guðjónsson, Grund. 11, b.v. Bjarna riddara
Jóhann Jónsscn, Ásvallag. 10, b.v. Egill Skallagrímss.
Agentar átgerðaraaðvaldsins
mnnn fá verðug svör
Útgerðarauðvaldið hefur nú mikinn viðbúnað í Sjálf-
stæðishúsinu til að taka þátt í sjómannafélagskosn-
ingunum. Er yfirstjórn svörtu samfylkingarinnar að
sjáifsögðu þar eins og í alþýðusambandskosningunum
yfirleitt, og útgerðarmenn eru ósparir á fé til að afla
Sæmundi kexverksmiðjuforstjóra fylgis, enda lita þeir
á það sem nijög mikilvægt atriði í kúgunaraðgerðunum
gegn sjómönnum.
Listi svörtu samfylkingarinnar er skipaður samkvæmt
jáyrði þeirra. Á honum eru aðeins sex starfandi sjó-
menn, af 32 frambjóðendum! Allir hinir tilheyra Sæ-
mundarklikunni, og á listanum er m. a. einn af fram-
bjóðendum atvinnurekenda í bæjarstjórnarkosningunum
í vetur.
Þetta framboð er móðgun við alla sjómenn, við alla
þá sem vilja gengi og styrk sjómanasamtakanna. Því
munu agentar útgerðarauðvaldsins fá verðug svör, þeg-
ar þeir heimsækja menn í dag og reyna með góðu eða
illu að fá þá til að kjósa gegn hagsmunum sínum.
Þau svör eru glæsilegur sigur sjómannalistans, B-listans.
Sjómenn! Setjið X við B
á atkvæðaseðlinum. B-listinn er
sjómannalistinn. Kosning hefst
í dag kl. 1 og stendur til 10.
Á morgun, mánudag, stendur
kosningin frá kl. 2 til kl. 10.
KOSIÐ EB Á SKRIFSTOFU
SJÓMANNAFÉLAGSINS 1 AL-
ÞÝÐUHI SINU VIÐ HVERF-
ISGÖTU.
KJÓSIÐ STRAX I DAG
ALLIR SEM ÞAÐ GETIÐ!
. .1 I. A J i .1,1 1111 '
SVARIÐ SÆMUNDARKLlK-
UNNI MEÐ ÞVl AÐ KJÓSA
B-LISTANN.
liagslns þakkar út-
• #
samnmgana m sjomenn
wVerkfallsbrot” að knýja Iram hinar
sjálfsögða kröfnr sjómanna!
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í fyrradag hafa sjó-
menn á Norðfirði og Akureyri að sjálfsögöu viljað semja
við útgerðarmenn heimafyrir, enda töldu þeir sig geta
komizt að greiðlegum samningum um 12 stunda hvíld
og þau kaupkjör sem íslenzkir sjómenn telja viðunandi.
Þessir samningar, sem hefðu bókstaflega leyst togara-
deiluna alla eftir að þeir hefðu komizt á á tveimur stöð-
um, voru hins vegar bannaðir af útgerðarauðvaldinu í
Reykjavik. Hefur það völd til að sekta hvern togara um
150.000,00 kr. sem brýtur út af boðum klíkunnar og auk
þess hefur hún að bakhjarli ríkisstjórnina og bankana
sem einnig hótuðu beinum refsiaðgerðum. — Fámenn
klíka milljónara í Reykjavík var þannig óvéfengjanlega
uppvís að allri ábyrgð á togarastöðvuninni og fjandskap
gegn öllum möguleikum til að leysa hana í samræmi við
hinar sjálfsögðu kröfur sjómanna.
Ríkisstjórnarblöðin hafa í gær vit á að þegja um
uppljóstranir Þjóðviljans, en Alþýðublaðið og sjómamia-
félagsstjórnin afhjúpa sig í staðinn á efth’minnilegri hátt
en þau hafa nokkru sinni áður gert og er þá mikið sagt.
Albýðublaðið segir i rair.ma
á forsíðu í gær að sjómenn á
Norðfirði og Akureyri hafi með
þessu „booið sig Félagi ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda
til enn frekari verkfallsbrota,
ef þeir fengju að gera sér-
samiúnga um kaup og kjör
yfirleitt fyrir sjómenn á þess-
um stöðum við útgerðarfyrir-
tækin þar. En Félag ísienzkra
botnvörpuskipaeigenda afþakk-
aði boðið.“ (!) Þarna er sjó-
mönnum á Norðfirði og Akur-
eyri lýst sem vörgum í véiun,
svikurum og níðingum en út-
gerðarauðvaldið er í liki frels-
andi engla og „afþakkar boðið“
sem betur fer.
Fíflalegri málflutningur mun
sjaldan hafa sézt. Það eru
„verkfallsbrot" að knýja fram
kröfur sjómanna. Það eru
„verkfallsbrot" að tryggja 12
stunda hvíld. Það eru „verk-
fallsbrot" að tryggja mann-
sæmandi kaupkjör. Og útgerð-
arauðvaldinu er þalckað fyrir
að hafa komið í veg fyrir þessa
ósvinnu. Hver einasti sjómaður
veit hins vegar að
ef samið hefði verið á Norð-
firði og Akureyri um 12
stunda hvíld og viðunanlegt
kaup hefði deilan verið leyst.
Utgerðarauðvaldinu í Reykja
vík og Hafnarfirði, jjessari
fámenriu klíku liialdsmanna
og Alþýðuflokksmanna, hefði
þá ekki verið stundinni leng-
ur stætt á fjandskap sínum
við réttlætiskröfur sjómanna.
Stjóru Sjóniannaféhigs;- . or
með öðrum orðum að b-'.'ika
útgerðarauðvaldinu fvrii’ þa5
að togaradeilan he" - á-
fram, þakka fyr'r x
enn er reynt að ) •' - ' •>-
menn með svipu örb'rgðasr
og atvinnuleysis.
Framhald á 6. síðu. j