Þjóðviljinn - 01.10.1950, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.10.1950, Blaðsíða 6
 ÞJÖÐVILJINN .ðfi€Jt TKloi-.to Jt ii r-,"Lijxmir3 Sunnudagur 1. október 1950. tjwpL1* ík m .•■u- vujiu. i Gertrud Lilja: Hamingjuleitiri 64. DAGUR. ^J-JVWJ\JWVWWSWWJWWUWWWWWWWJWWV1 nú orðið, það var eins og hún hefði misst ein- hvem mátt við það að Hilla yfirgaf hann. Til tilbreytingar ætlaði haxm sjálfur að taka hana á dagskrá. „Mér líður ágætlega þar, hvers vegna ætti ég að flytja?“ Og áður en hún fékk tíma til að svara, spurði hann: „Heimsóttirðu Karinu Dahl í Jeyfinu ?“ „Já.“ „Hvers vegna ferðu í þessar heimsóknir? Hef- ur Karin nokkra ánægju af þeim?“ Dagmar leit undrandi upp. „Það hlýtur að vera henni til ánægju, að gamlir vinir muna eftir henni.“ „Þekkir hún þig?“ „Nei, já, það er að segja, ég veit það ekki. ..“ „Svo að þú heimsækir hana til að fullnægja éjálfri þér, ganga upp í hlutverki hinnar tryggu vinkonu?“ Dagmar þagði særð á svip. Hinrik hugsaði: ég hefði getað sagt margt svivirðilegra, ég hefði getað sagt að hún heim- sækti Karinu Dahl til að njóta þess að særa mig. „Hún er undarleg þessi sálsýki," sagði Dag- mar loksins. „Að sjá Karinu.......Að heyra grát hennar og slitrótt tal.......Stundum fær hún reiðiköst, svo að það tekur marga klukkutíma að róa hana aftur........Verst er þó að heyra hana hlæja. Hinrik hlustaði fullur andúðar. „Eitt er það sem ég get aldrei skilið,“ sagði hann, „og það er þegar heilbrigt fólk getur haft ánægju af því að róta í sálarlífi geðveiks fólks, og fylgjast með öllum afbrigðum sjúk- dómsins. Það hljóta að vera einhverjar leifar af heiðni og fjölkynngi. Þegar maður í sturlun sinni hefur misst stjóm á sjálfum sér — skiptir það þá nokkru máli í hversu ríkum mæli það er eða á hvem hátt? Aðeins læknar og varðmenn hins sjúka ættu að hafa áhuga á því. Fyrir óviðkomandi persónu er jafn tilgangslaust að horfa á umbrot hins geðveika og að horfa á drukkinn mann, til þess að sjá betur og betur nieð hverju hliðarspori hve dmkkinn hann er. . . Hið eina sem við, sem stöndum utan við þetta, ættum að hafa áhuga á, er hvort hinn sjúki þjáist í eymd sinni. Hvort hann, þegar hann hrópar og grætur, þjáist eins og í óljósum draumi eða bitram veruleika. Meðvitundin er hið djöfullegasta af öllu...“ Hvað eftir annað hafði Dagmar reynt að grípa fram í fyrir honum, nú þagði hún. „Hefurðu nokkurn tíma þjáðst af svefnleysi?“ hélt Hinrik áfram. „Og loks tekizt að sofna, en gegnum djúp meðvitundarleysis og þægilegra drauma verðurðu allt í einu vör við hugsun sem skýrist og vex og rekur loks alla þægilega drauma á flótta: ég er vakandi. Það er bölv- unin.“ Hann horfði á hana. Hún gekk þögul og virt- ist hrædd. Þrátt fyrir alvöru sína gat hann ekki varizt brosi — ef til vill var auðveldasta lausn- Sæmundarnir þakka ; Framhald af 1. siðn. Með þessum skrifum hefur stjóm Sjómannafélagsins af- hjúpað sig að fullu sem hand- bendi útgerðarauðvaldsins, enda býður hún nú fram lista í sjómannafélaginu í opinbera samstarfi við atvinnurekendur. Hgfi hún verðskuldað hirtingu áður, á hún hana margfaldlega skilið nú. 1 dag og næstu tvo daga mun hún einnig fá að sannreyna hug sjómanna og allra þeirra sem bera hag sjó- manna fyrir brjósti og vilja efla styrk sjómannasamtak- anna. WWl „Lýðræðis þenkjandi" Frámháid af 8. síðu. að vita það. Hins vegar vita fimmmenningarnir mæta vel að fáir munu verða til þess að nota sér þá heimild; það er nefnilega éinnig heimilt að setja kross við B-listann, lista sjómanna! Fermingarföt Fermingarkjólar Verzl Notað og Nýtt, Lækjargötu 6. SKRIFSTOFUSTÚLKA vön vélritun á ensku og þýzku óskast strax. — Umsóknir sendist afgreiðslu Þjóðviljans fyrir miðvikudagskvöld, merkt „vélritun“. rK. Námsílokkarnir verða settir í dag kl. 2 í samkomusal Nýju mjólk- urstöðvarinnar, Laugaveg 162. FjáröfSíiíiarclagur SÍBS fyrir Byggingasjóð Vinnuheimilisins að Reykialundi er í dag : Tíaaritið „ESYK/fllUHBHR" og MEHKI DAGSiNS vetða á boðsiólnnt allan danirai Merki dagsins eru tölusett og gilda sem happdrætíismiði. — Vinningurinn er: Ferð á „Gullíossi" frá Reykjavík til Kaupmanna- hafnar og til baka aftur. Tímaritið „Reykjalundur” er 74 blaðsíður. Það flytur margvíslegí efni til skemmtunar og fró^leiks og fjölda mynda af starfsemi SÍBS. Auk þess söng SÍBS á nótum. S.ÖLUFQLK ER BEÐIÐ AÐ MÆTA Á SKRIFSTOFU SÍBS I AUSTURSTRÆTI 9. Skemmfanir dagsins: Reykvíkingar! 1 Gömlu dansarnir í Breiðfirðingabúð kl. 9. Stjórnandi Jónas Fr. Guðmundsson. — Almennur dansleikur í Tjarnarcafé kl. 9. Látið sölufólkið ekki synjandi frá ykkur fara Minnist þess, að hver króna sem til SÍBS rennur er vopn í baráttunni gegn berklaveikinni í landinu og STYÐUR SJÚKA TIL SIÁLFSBIARGM. :

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.