Þjóðviljinn - 01.10.1950, Blaðsíða 4
1
ÞJÓÐVILJIN N
Sunnudagur 1. október 1950.
Útgefaadl: Sameiningarflokkur alþýBu — Sósialistaflokkurljm.
RitBtjórar: Magnús Kjartansson (&b.> Slgurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stig 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Xskriftarverð: kr. 14.00 & mán. — Lausasöluverð S0 aur, eint
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Samtaka um sjómannalistann
Sjómannafélag Reykjavíkur — Hásetafélag Reykja-
víkur — við þessi nöfn er tengd minning um hörð átök
drengilegra alþýðusamtaka, einmitt sjómennirnir skip-
uðu sér í forystu verkalýöshreyfingarinnar og háöu af
kappi og þrautseigju harða baráttu, þungbær verkföll
og erfið, viö blygöunarlaust aröránsauövald nýríkra tog-
araburgeisa, og unnu fræga sigra, sem lyftu ekki ein-
ungis sjómannastéttinni heldur verkalýöshrey^ingunni
allri um þrep. Viö stofnun Alþýöusambandsins var það
Hásetafélag Reykjavíkur sem ásamt Dagsbrún, Hlíf og
Prentarafélaginu varö meginstofn og styrkur hinna nýju
heildarsamtaka.
Verkalýöshreyfingu landsins hefur fleygt fram á
þeim áratugum sem liönir eru frá því reykvískir sjó-
menn unnu stórsigra sína og sýndu hrokafyllsta auð-
valdi landsins í tvo heima. En Sjómannafélag Reykja-
víkur hefur dregizt aftur úr. Forystumenn þess hafa
dregizt aftur úr, slitnað úr tengslum við sjómenn, glat-
aö sókndirfsku og haröfylgi stéttarinnar, og í
sívaxandi mæli hreiöraö um sig efst í samtökum reyk-
vískra sjómanna sem setulið pólitísks flokks — Alþýöu-
flokksins — sem á þessum tíma hefur einnig slitnað
úr tengslum við hagsmunabaráttu og sókndirfsku ai-
þýðunnar í landinu.
Reykvískir sjómenn una ekki þessu ástandi lengur.
Þeim hefur verið raun að því að sjá félag sitt dragast
aftur úr, veröa svo sljótt fyrir brýnustu hagsmuna-
málum að stjórn þess trassar að svara þingnefnd um
álit félagsins á löggjöf um 12 stunda hvíld togarahá-
seta, nýju vökulögin, og hindrar árum saman aö félagið
láti baráttuna fyrir því máli til sín taka, þar til
þrýstingurinn frá sjómönnum varö óviöráðanlegur nú á
þessu ári. Einmitt baráttan fyrir þessu máli og afstaða
Sigurjóns. Sæmundar og þeirra manna hefur opnaö augu
hundraða sjómanna fyrir niðurlægingu félags síns og
þeirri nauðsyn að sjómenn ráði félaginu sjálfir. Reynsl-
an af framkomu Sjómannafélagsstjórnarinnar viö kaup-
samninga undanfarin ár hefur einnig styrkt þá sann-
færingu sjómanna að hér yrði að breyta til.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hefur að sjálf-
sögðu fundið þessa öldu rísa. Viðbrögð Sigurjóns
Sæmundar og þeirra manna hafa meira og minna mót-
azt af logandi hræöslu viö sjómann á flotanum, hyllzt
hefur veriö til að halda fundi í félaginu þegar sem fæst-
ir sjómenn eru í landi; í sumar, í þriggja mánaða verk-
falli, hefur stjórnin ekki treyst sér til aö halda nema
einn fund, enda þótt sjómenn hafi krafizt funda.
Framkcma stjórnarinnar í verkfallinu í sumar, tíma-
valið og ,.hlutleysið“ fræga um smánartilboö ríkisstjórn-
arinnar minnir á þá staðreynd aö foringjar Alþýðu-
flokksins, og þá líka Sigurjón og Sæmundur, hafa gert
náið bandalag og opinbert við andstæöinga verkalýös-
hreyfingarinnar, bandalag sem miöar að því aö tryggja
atvinnurekendum úrslitavaldiö yfir Alþýðusambandinu.
Sú samfylking skýrir það aö Sæmuhdi og Sigurjóni
skyldi skipað aö þegja um smánartillögu sáttanefndar,
þar til sjómenn höföu kolfellt hana, og var aöeins leyft
aö þenja sig gegn henni löngu seinna, dagana fyrir
kosningarnar í Sjómannafélaginu. Þaö samkomulag
skýrir einnig þá staðreynd aö hlýtt hefur verið fyrirskip-
un atvinnurekenda um mannaval á listann sem boðinn
er fram gegn sjómannalistanum.
í dag hefst kosningin. Sæmundur, Sigurjón og þeir
félagar láta Alþýöublaðiö öskra níö um sjómannalistann,
ögra mönnum sem þeir hafa látiö standa í þriggja mán-
aöa verkíalli með ókvæöisorðinu „verkfallsbrjótur“, al-
gerlega að tilefnislausu. Hætt er þó við aö hvorugt dugi
lengur, níööskrin um þá sjómenn sem vita hve brýn
nauðsyn er að hefja Sjómannafélag Reykjavíkur til þess
vegs sem það naut, eöa bægslagangur Sigurjóns og Sæ-
jnundar, ,,hlutlausu“ leiðtoganna, þessa síðustu daga
Ráð við reimleikum.
„Galdra-Leifi skrifar. ----
„Hcill og sæll, Bæjarpóstur!
Eitt af því, sem Islendingar
telja stundum meðal þjóðarein-
kenna sinna, er að þeir séu
ekki trúhneigðir. Nýlega birt-
ist í Eimreiðinni grein, sem
heitir „Reimleikar og ráð við
þeim.“ Blessaðir uppfyndinga-
mennirnir. Þeir eru þá búnir að
finna upp öruggar varnir gegn
þessum ósköpum. Látum nú
vera, þó að þeim gangi illa
að finna lyf gegn mæðiveikinni.
Tíminn endurprentaði greinina.
Mér dettur í hug, að ef til vill,
fari einhverjir lesendur Þjóð-
vidljans á mis við að sjá Eim-
reiðina og Tímann. Ætla ég því
að segja þeim reimleikasögur
þessar í stuttu máli:
Englahersveitir gegn
afturgöngu.
„Prestur nokkur í Ameríku
hafði um skeið orðið fyrir þung
um búsif jum af völdum drauga.
Brutu þeir borðbúnað hans og
margt fleira. Fimm blaðamenn
voru sjónarvottar að þessu. Og
ekki skrökva blaðamenn. Klerk-
ur leitaði hjálpar hjá liðsfor-
ingja nokkrum, hvers nafn og
utanáskrift er birt í greininni.
Hafði sá átt í brösum við aftur-
göngur um þrjátíu ára skeið.
Komst liðsforinginn að þeirri
niðurstöðu, að illa þokkaður ná-
ungi, sem legið hafði í gröf
sinni nokkra áratugi, væri vald-
ur að óspektunum. Liðsforing-
inn kvaddi þegar í stað öflugar
englahersveitir á vettvang, og
réð, með fulltingi þeirra niður-
lögum afturgöngunnar.
Huldukona leggur
inn ull.
„Magnaðri er þó sagan af
Þjóðverjanum, sem vaknaði við
það, að hús hans var lamið
feykilega utan og irinan með ó-
sýnilegum bareflum, enda
hrundu tveir veggir til grunna.
Maðurinn sendi eftir lögregl-
unni. Lögreglan leitaði hátt og
lágt en varð einskis vísari. —
Aumt er að heyra hvernig
blessað fólkið í útlöndum á í
stríði við illkvittnar vofur. „En
maður, líttu þér nær.“ — Ekki
er það síður prenthæf saga,
sem gerðist fyrir norðan. Þau
undur áttu sér stað, að hvert
kvöld var hafin höggorusta
mikil að potti, sem hvolfdi úti á
öskuhaug og stóð hún yfir góða
stund. Enginn sá hver valdur
var að barsmíðum þessum, en
menn hugðu þetta boða ill tíð-
indi og fleygðu pottinum út á
sjó. — Reyndar er ég ekki hissa
á neinu, síðan greinargóður
maður gat þess í æviminning-
um sínum, að huldukona hefði
lagt inn ull hjá kaupmanni í
Vík í Mýrdal. — Ójá, þeir eru
að segja, að íslendingar séu
ekki trúhneigð þjóð. En mér
finnst synd og skömm að segja
það. Ekki skil ég, að neinni
þjóð séu boðnar lygilegri sögur
en okkur.
•
Anza því ekki að Islend-
ingar séu orðvarir.
„Axmað er það líka, sem ó-
maklega er fimdið að íslending-
um. Þeir þykjast vera dulir
menn, og seinir að kynnast. —
Eg var á ferð í áætlunarbíl fyr
ir nokkru. Fór þá einn farþega
að þylja Ijóðmæli um mann
nokkurn, sem hefur öðru hvoru
verið að gifta sig. Sumt var ort
undir þjóðkvæðalögum. Sálma-
lög og rímnalög voru kyrjuð.
Hvernig datt fólkinu í hug, að
fara með annað eins gaman á
almannafæri? Mig dauðlangaði
til að læra það kvæðið, sem mér
þótti bezt ort. En ég þagði.
Hver vissi nema einhverjum far
þeganna gæti fallið þetta tal
illa? — Síðan anza ég því ekki
að Islendingar séu orðvarir
menn. — Galdra-LeifL“
★
Ríkisskip
Hekla er í Reykjavík. Esja er
væntanleg til Reykjavikur i dag
að austan og norðan. Herðubreið
er væntanleg- til Reykjavíkur í
dag frá Vestfjörðum og Breiða-
firði. Skjaldbreið er væntanlegt til
Reyykjavíkur í dag frá Breiða-
firði. Þyrill er í Reykjavik. Ár-
mann fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
Skipadeild SIS
Arnarfell kom til Ibiza í fyrra-
dag. Hvassafell er í Reyykjavík.
Eimskip
Brúarfoss er í Færeyjum. Detti-
foss fór frá Hólmavik í gær til
Drangsness. Goðafoss er í Rvik.
Gullfoss fór frá Khöfn í gær til
Leith og Rvíkur. Lagarfoss er á
fyrir kosningarnar. Sjómenn ganga til þessara kosninga
með sama hugarfari og til atkvæðagreiðslu um smán-
artilboð ríkisstjórnarinnar. Þeir vita að afturhaldssigur
yrði ríkisstjórninni bending um veikleika samtakanna
svo hún yrði óprúttnari aö framkvæma hótun sína um
gerðardóm. Sjómenn vita hvað það þýðir ef Sjómanna-
félag Reykjavíkur, ’stærsta sjómannafélag landsins, skip-
ar sér á ný ásamt Dagsbrún í fylkingarbrjóst verkalýðs-
samtakanna á íslandi. Þeir vita, aö sendi félag þeirra 16
vaska sjómenn inn á Alþýðusambandsþing yrði þaö til
að auðvelda stórum hagsmunabaráttu sjómanna og gæfi
alþýðusamtökum Reykjavíkur og landsins alls nýjan svip,
nýja reisn. Ósnortnir af æsingaskrifum afturhaldsins,
æðrulausir og einbeittir, ganga reykvískir sjómenn til
þessa verks, staðráðnir að ljúka því myndarlega.
nr. 45.
Lárétt: 1 eyja — 6 und — 7
bær — 8 bill — 10 stilla — 11
þvæla — 14 saman — 15 lærði
17 smárrar.
Lóðrétt: 2 æði — 3 kirkjuhöfð-
ingjar — 4 stafur — 5 fiskurinn
7 skemmtistaður — S hníf — 9
á jakka — 12 garðmatur — 13
ekki gömul — 16 menntaskóli.
Lausn á nr. 44.
Lárétt. 1 brást — 6 öfl — 7 ha
8 grjótið — 10 aka — 11 raðað
13 ðð — 15 gan — 17 auanna.
Lóðrétt: 2 rör — 3 áfjáð — 4
sló — 5 baðar — 7 hik — 8 garð
9 taðan — 12 aða — 13 aga — 16
NN.
Akureyri, fer þaðan væntanlega
á morgun til Norðfjarðar. Selfoss
fór frá Siglufirði i gærmorgun til
Keflavíkur. Tröllafoss kom til
Halifax 28. þ. m. frá New York.
Fjallfoss fór frá Reykjavík í gær
til Svíþjóðar.
Fimmtugur er í dag Einar Páls-
son blikksmíðameistari, Miklu-
braut 28. —
Helgidagalæknir
Óskar Þ. Þórðarson, Flókagötu
5. — Sími 3622.
Næturvörður
er í Laugavegsapóteki. — Sími
1616. —
Næturlæknlr
í læknavarðstofunni, Austurbæj-
arskrólanum. — Simi 5030.
1 gær voru gefi-
in saman í
hjónaband ung-
frú Sigurbjörg
Jónsdóttir og
Sigurþór Jóns-
son, járnsmíðanemi. Heimili brúð-
hjónanna verður að Lauganesvegi
42. — 1 gær voru gefin saman í
hjónaband af sr. Emil Björnssyni,
ungfrú Helga Sigurðardóttir, Berg
þórugötu 4 og Valgeir Marinó Ein-
arsson, byggingameistari, Mána-
götu 25. Heimili brúðhjónanna
verður að Mánagötu 25. — 1 gær
voru gefin saman í hjónaband af
sr. Bjarna Jónssyni ungfrú Guð-
munda Jóhannsdóttir, Lönguhlið
19, Reykjavík og Stefán Bryngeir
Einarsson frá Akureyri. Heímili
þeirra verður á Akureyri.
Fastir liðir eins og
venjulega. Kl. 11.00
Messa í Hallgríms-
kirkju (séra Jakob
Jónsson). 15.15 Mið
degistónl. (plötur).
16.15 TJtvarp til Islendinga erlend-
is: Fréttir. 16.30 Tónleikar: Mark
Warnow og hljómsveit hans leika
(plötur). 78.30 Barnatími (Þor-
steinn Ö. Stephensen): a) Upplest-
ur: „Hörður og Mosa“, saga eftir
Skúla Þorsteinsson (höfundur les),
b) Þáttur af Hreiðari heimska;
niðurlag (Þ. Ö. St.). c) Tónleikar
o. fl. 19.30 Tónleikar: Valsar og
mazurkar eftir Chopin (plötur).
20.20 Tónleikar (plötur). 20.35 Er-
indi: Útilegumenn á Sikiley (Egg-
ert Stefánsson). 21.00 Tónleikar:
Píanósónata í G-dúr op. 31 nr. 1
eftir Beethoven (plötur). 21.30 Upp
lestur: Kvæði (Jón Norðfjörð leik-
ari). 21.45 Kórsöngur: Kósakka-
kórar syngja (plötur). 22.05 Dans-
lög (plötur) til kl. 2330.
Útvarpið á morgun
Fastir liðir eins og venjulega. KI.
19.30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd-
um (plötur). 20.20 Útvarpshljóm-
sveitin (Þórarinn Guðmundsson
stjórnar): Lagaflokkur eftir Dvor-
ák. 20.45 Um daginn og veginn
(Sigurður Bjarnason alþm.) 21.05
Einsöngur: Jussi Björling syngur
22.10 ..Létt lög (plötur) tll 22.30.