Þjóðviljinn - 01.10.1950, Side 8

Þjóðviljinn - 01.10.1950, Side 8
Ii Berklavarnadagurinn er í dag IHerkin eru jaínfzaœi happdræSiitmiðar — ¥inningurini! ferð til Kaup- li mannahafnar og heim altur ' BERKLA.VARNADAGURINN er í dag, en það er hinn ár- legi fjársöfnunardagur sambands íslenzkra berklasjúklinga tii Starfseminnar að Reykjalundi. VINNUHEIMILIÐ að Reykjalundi er frægt orðið, ekki að- jeins um allt Island heldur hefur starfsemin vakið undrun og að- ðáun víða erlendis. NÆSTA verkefnið á Reykjalundi er bygging vinnuskála fyr- ír vistmennina í stað hinna gömlu úrsérgengnu hermannabragga gem nú verður að notast við. Vinningurinn ferð tii Hafnar. Merki berklavarnadagsins í dag eru tölusett og. er vinning- íirinn ferð til Kaupmannáhafn- ar og til baka aftur með Gull- fossi. I dag verður einnig selt á götunum tímarit S.I.B.S.: Reykjalundur, og flytur það fjölda greina um starfsemina að Reykjalundi o.fl. og þýddar og frumsamdar sögur. í þessu hefti er einnig söngur S.I.B.S., lag eftir Oddgeir Kristjánsson, Ijóð eftir Árna úr Eyjum. — 1 dag leikur lúðrasveit á Aust- urvelli, ef veður verður gott og í kvöld eru skemmtanir á veg- um S.I.B.S. í Tjarnarkaffi og Breiðfirðingabúð. Hefur útskrifað 60—70. Vistheimilið að Reykjalundi var stofnsett með það mark- Framnaid á 5. síðu Múrarar kusu íhaldið Allsherjaratkvæðagreiðslu um fulltrúa Múrarafélagsins á Alþýðusambandsþing lauk í gær kvöld. 116 greiddu atkvæði en 131 voru á kjörskrá. Kosnir voru fulltrúar Ihaldsins, þeir Ólafur Pálsson og Eggert Þor- steinsson með 70 atkvæðum, en llisti sameiningarmanna hlaut |44 atkvæði. Einn seðill var ó- gildur og annar auður. Stjórnenduf vinnufatagerðanna haía orðið: Dtlit fyrir að þeir sem vinna að gjaideyrisöfl- un verði að hætta þvi - vegna fataleysis!! Vinnuvettlingar á þrotum — Vinnufatagerðirnar etnislausar Framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda, Páll S. Pálsson, kvaddi blaðamenn á sinn fund í gærmorgun og ásamt stjórn- endum vinnufataverksmiðjanna skýrði hann frá hvernig við- horfið væri nú um framleiðslu vinnufatnaðar. Að þessu sinni er ekki unnt að skýra nema lítillega frá jþvi er þeir sqgðu, en ástandið er i stuttu máli þannig: VINNUVETTLINGAR eru GERSAMLEGA Á ÞROTUM á innanlandsmarkaðinum. Fjárhagsráð hafði veitt leyfi fýrir efni- vöru í vettlinga er svaraði þörfinni fram yfir sumarsíldver- tíðina, en eftir að vettlingaefnin komu á frílista hafa fram- leiðendur engar ráðstafanir fengið að gera til innkaupa á efnum. Ástandið er í fám orðum þannig að STÆRSTA VINNU- FATAVERKSMIÐJAN í landinu á aðeins EFNI TIL AÐ VINNA ÚR I EINN MÁNUÐ. AÐRAR VERKSMIÐJUR I F.l.L. ERU EFNIVÖRULAUSAR. Verksmiðjurnar tvær sem framleiða vinnuvettlinga eru búnar með efnin og hafa ekkert framundan. Birgðir af vörum þessum eru ekki til. Stærsta vinnufataverksmiðjan hefur fengið vilyrði bankanna fyrir gjald- eyrisyfirfærslu til greiðslu á efnivöru, er nægja myndi verk- smiðjunni 1 EINN MÁNUÐ — MEÐ HÁLFUM AFKÖSTUM. Iðnrekendum er ekki kunnugt um neitt annað er boði það að vinnuföt komi á markaðinn æstu mánuðina. Svipaða sögu er að segja um sjóklæði. Eitthvað lítið er til af olíufatnaði, en gúmmífatnaður eða efni til hans er ekki til. Þannig er ástandið, að ekki er annað sjáanlegt en að þeir menn sem nú vinna að framleiðslu og gjaldeyris- öflun verði að hætta því vegna þess að þeir fái engin föt til að vinna í. Vanþókncm- legt hveiti Alþýðublaðið birtir æsi- frcgn um það i gær að „heildsala kommúnista, Balt- ic Trading Company“ vinni að því að kaupa frá Ung- verjalandi hveiti fyrir freð- fisk og eigi hveitið að verða þriðjungi dýrara en það sem nú fæst. Öll er þessi frétt þvættingur frá rótum. Það félag sem nafngreint er hef- ur engin slík viðskipti með höndum. Hins vegar mun eftir öðr- um leiðum liggja fyrir til- boð um skipti á „óseljanleg- um“ freðfiski og ungversku hveiti og er verðið lægra en á bandaríska hveitinu miðað við hvert kíló freðfisks. — Síðan er það að sjálfsögðu stjórnarvaldanna að ákveða útsöluverðið á hveitinu hér, ef af verður, og þá þar með einnig verðið á freðfiskn- um, og ber þeim auðvitað að tryggja að verðið verði [ samræmi við hið hagstæða tilboð. Tryllingur Alþýðublaðsins stafar af því einu að hveit- ið er ungverskt. Aldrei hef- ur það blað fundið neitt at- hugavert við það þótt vör- urnar frá marsjalllöndunum hækkuðu viku eftir viku á sama tíma og verð íslenzkra afurða hrapar niður úr öllu valdi. En það væri líka alvar- legt áfall ef Alþýðubrauð- gerðin neyddist nú til að fara að baka úr kommúnist- ísku hveiti! Fulltrúar Bjarma sjaifkjormr Verkalýðs- og sjómannafé- lagið Bjarmi á Stokkseyri kaus á fundi fulltrúa sína á næsta Alþýðusambandsþing. Aðeins einn listi kom fram, frá stjórn og trúnaðarmannaráði og var hann sjálfkjörinn. Fulltrúar Bjarma eru Björgvin Sigurðs- son og Helgi Sigurðsson. UmferÓarslys Það slys varð á gatnamótum Týsgötu og Skólavörðustígs s.l. föstudagsmorgun, að jeppabif- reið ók yfir konu, er var að ganga yfir götuna. Konan beinbrotnaði ekki, þótt bifreiðin færi yfir báða fætur hennar, en marðist mikið, og var hún flutt í spítala. Kona þessi heitir Guðrún Sveinsdóttir og á heima að Laugavegi 27. þJÓÐVILJINN Kosið í Félagi biívélavirkja a morguo og Listi stjárnar og tránaðarmanRa ráðs er Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram í Félagi bifvélavirkja um kosningu aðalfulltrúa og vara- fulltrúa félagsins á 22. þing Alþýðusambandsins. Hefst kosningin kl. 2 e.h. á morgun og stendur til kl 10 síðdegis, og á sama tíma á þriðjudaginn og er þá lokið. Kosið er í skrifstofu fulltrúaráðs- ins að Hverfisgötu 21. Listi stjórnar félagsins og trúnaðarmannaráðs er A-listi og er hann skipaður formanni félagsins Valdimar Leonhardssyni og til vara Árna Jóhann- essyni. Kauplækkunaröflin bjóða fram B-lista og skipa hann Ögmundur Jónsson og til vara Ólafur Jensson. Valdimar Leonhardsson hefur allt frá stofnun Félags bifvélavirkja verið fulltrúi þess á Alþýðu- sambandsþingum. Hann hefur jafnan reynzt félaginu öruggur og traustur forystumaður og ásamt meðstjórnendum sínum leitt hverja kjara- baráttu þess til sigurs, enda nýtur hann fyllsta trausts allra félagsmanna. Bifvélavirkjar eru staðráðnir í að verja unnin réttindi sín og standa á verði gegn hverskonar árásum á kaupgjald og kjör og munu þvi fylkja sér fast um A-listann í fulltrúakosningunum á morgun og þriðjudaginn. Sæmundur hinn Jýðræðis þenkj- andi“ Þeir Sigurjón .4. Ólafsson, Ólafur Friðriksson, Garðar Jónsson, Sæmundur E. Ölaís- son og Valdimar Gíslason hafa sent bréf til þeirra sjómanna- félaga sem þeir telja líklega til að styðja sig, en þessir „sjómenn" eru einnig efstir á lista svörtu samfylkingarinnar í sjómannafélaginu. Bréf þetta er hið spaugilegasta. M. a. gefa þeir sjálfum sér eftirfarandi vottorð: „Allir þessir menn(!) eru þrautreyndir, sem góðir fé- lagsmenn, áhugasamir í fólags- málabaráttunni og traustir lýð- ræðis þenkjandi menn“. Þeir virðast hugsa sem svo að ef þeir segi þetta ekki sjálfir muni fáir aðrir verða tii þess, enda hafa sjómenn lítt orðið varir við „Iýðræðis þanka“ Sæ- mundar kexvcrksmiðjuforstjóra og félaga hans. Nokkrum línum neðar stendur þessi ágæta setning: „Samkvæmt reglugerð sam- bandsins ura kosninguna er kjósanda heimilt að setja kross við þann lista sem hann kýs, í þessu tilfelli A-listann“. Það er sem sé heimilt að setja kross við A-listann, og er gott Framhald á 6. síttn Þrótiarhílstjórar! f dag svarið þið árás atvinnu- rekenda I gærkveldi höfðu kosið í Þrótti 112 af 224 á kjörskrá. I dag heldur kosning áfram hl. 1 og lýkur í ltvöld kl. 9. I gær bað aðalblað auð- mannastéttarinnar, Morgun- blaðið, blað gengislækkunar- stjórnarinnar, kjaraskerðing- arinnar og atvinnuleysisins ykkur um að kjósa fram- bjóðanda sinn, Friðleif hinn „úrskurðaða“. Friðleifur er frambjóðandi flokksins sem leiddi atvinnuleysið yfir vöru bílstjóra, gengislækkunina, eyindina, flokksins sem skop- ast að samþykktum Þróttar. > 1 dag svarið þið með því að fýlkja ykkur um ykkar eigin lista: B-listann. Kosningu skipa- smiða lýkur í kvöld kh 6 Kosning fulltrúa á Alþýðu- sambandsþing í Sveinaféiagi skipasmiða hófst í gær og kusu 36 af 54 á kjörskrá. I dag hefst kosning kl. 10 og lýkur kl. 6 í kvöld. Listi skipasmiða er A-listi, skipaður formanni félagsins, Sigurði Þórðarsyni. SJOMAMNALISTINN ER B-LISTI - XB

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.