Þjóðviljinn - 05.10.1950, Síða 6

Þjóðviljinn - 05.10.1950, Síða 6
6 þjóðvTljínn Fimmtudagur 5. október 1950. VETRARVE0!RH!R Framhald af 5. síðu. eru heldur ékki fáir bílar sem enda slíkt æfintýri með brotnu drifi, eða öðru sem hlýtur að láta undan við óeðlilega mikil átök og umbrot, en verður eig- andanum erfitt og kostnaðar- samt að bæta aftur, þar eð varastykki eru nú mjög tor- fengin. Það er rétt að taka það fram, að um þann tíma, sem rsnjór torveldar ferðir yfir 'Hellisheiði er lítið um lúxus- flakkara á ferð í lúxusbílum, heldur menn sem vinna Iangan og erfiðan starfsdag á þungum ílutningabílum, sem flytja alla þungavöru að og frá suður- landsundirlendinu, og er það víst öllum kimnugt að það er mikið magn og engin óþarfa vara. Það er oft tafsamt og erfitt :fyrir bílstjórana sem aka þessa leið i myrkri og vetrarbyljum, þó þetta væri lagfært, sem er líka að manni virðist, sjálfsagt frá þjóðfélagslegu sjónarmiði, til að koma í veg fyrir óþarfa brot á bílum, eyðileggingu á tijólbörðum og benzíneyðslu fram yfir það sem nauðsynlegt <er, en þetta eru allt hlutir sem verður að kaupa fyrir dýrmæt- an erlendan gjaldeyri. Það ætti að vera ráðamönn- am þjóðarinnar augljóst, að hér *er verið að spara eyrinn en kasta krónunni, eða öllu heldur •dollarnum. I sumar sýndi vegamálastjóri xiokkra tilburði í þá átt að leggja veginn beint yfir Hurð- arásinn þar sem áður lá oft illfær vetrarvegur, og taka um leið af slæmar beygjur og snjó- þyngsta kaflann austast á heið- inni. Léttist þá brúnin á mörg- um vörubílstjóranum, sem þekk- ir það af eigin raun eftir ótal margar erfiðar vetrarferðir ár eftir ár, hvað þetta var mikil vegabót. En viti menn! Þegar jarðýta er búin að róta saman cg undir byggja rétt alla leiðina, er sagt: „Stopp, hingað og ekki lengra“. Og þar með hætt við hálfnað verk, og sama sem sagt við hiistjórana: Gerið svo vel, þið skuluð aka eftir ruðningnum í vetur þegar gamli vegurinn er •ófær á þessum stað, sem er nú raunar oftast. Eins og nú er, ■er þessi ruðningur hálfu verri yfirferðar en gamli vetrarveg- urinn var, og eigum vlð bíl- stjórarnir eftir að troða þarnn marga dollara ofaní hraunið, ef ekki verður hafizt handa og þessi vegarspotti gerður sæmi- lega akfær áður en snjór leggst á heiðina. Það er þvi mjög ákveðin ósk, til vegamálastjóra frá öllum, sem verða að aka Hellisheiði í vetur, að hann sjái sér fært að láta ganga svo frá þessum vetrarvegum nú í haust á með- an tækifæri eru til þess, að bílar geti mætzt á þeim án tafa og vandræða, og án þess að eiga á hættu að brjóta þá eða eyðileggja á annan hátt. Bílstjóri. Glæpaflokkar í U S A Framh. af 1. síðu nú skipulögð í Bandaríkjunum.“ Hann upplýsti einnig, að glæpa flokkarnir væru þeir sömu, sem myrtu og rændu á bannárunum. „Costelloglæpaflokkurinn er enn við lýði í New York, Cap- oneglæpaflokkurinn í Chicago og Purpuraglæpaflokkurinn í Detroit. Nöfnin eru óbreytt og að svo miklu leyti sem eigend- umir eru á lífi eru andlitin einn ig þau sömu,“ sagði Kefauver. KÓREA Framhald af 8. síðu. rískir liðsforingjar segi hraða og hreyfanleik alþýðuhersins ganga kraftaverki næst. I fréttum frá Kóreu í gær var sagt, að sveitir úr leppher Bandaríkjamanna væru komnar 115 km norður fyrir 38. breidd- arbaug og meira en hálfa leið frá baugnum til Wonsan, þar sem alþýðuherinn er sagður bú ast til varnar. Bandaríkjaher segist hafa tekið bæinn Uijong bu norður af Seoul eftir margra daga bardaga. Á þingi SÞ í gær töluðu Vish inski utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna og Younger aðstoðar- utanríkisráðherra Bretlands fyr ir tillögum sínum um lausn Kór eumálsins. Sovéttillagan krefst vopnahlés þegar í stað en brezka tillagan gerir ráð fyrir að stríðinu verði haldið áfram. Báðir sögðu málamiðlun milli tillagnanna, sem fulltrúi Ind- lands hafði Iagt til, vera óhugs andi. Seint i -gærkvöld fréttist, að stjórnmá’.anefnd allsherjarþings ins liefði samþykkt brezku til- löguna, sem nú fer fyrir fund í þinginu sjálfu. Gertrnd Lilja: Hamingjuleitin 67. BAGUK. betur en þeim sjálfum. Að vísu áttu þeir allir „Þegar um er að ræða sölu bóka verður framgirni, en flestir ólu þeir í brjósti hrein- maður að berja sér á brjóst, rétt eins og gagn- ræktaða ást til bókmenntanna. Og hverjum vart listum, ást, striði og einræði, og spyrja góðum manni ætti að vera eðlilegt að vilja sjálfan sig, hvort það sé maður sjálfur eða dást að, gleðjast yfir velgengni annarra, ef allir sem eru að veijða vitlausir", sagði Köhler. hún er réttlát i hans augum. Endaþótt hann „Og hvað umsagnir um bækur snertir, þá geta sé tímakorn að sannfærast um að hún sé þær einar nægt til að gera mann ruglaðan í réttlát. kollinum. Einn daginn er bók hafin til skýj- Þeir komu með fullyrðingar, án þess að anna og næsta dag er sú hin sama bók talin skeyta hið minnsta um að þær voru oft eins fyrir neðan allar hellur“. og tvíeggjað sverð sem særði þá sjálfa um leið. „Það er auðvelt að útskýra það“, sagði Þór. „Sænskar nútímabókmenntir er listin að segja „Vinur skrifar annan ritdóminn, en hlutlaus ekki neitt með mörgum orðum", sagði Þór. gagnrýnandi hinn. „Þú getur gróft um talað — ljóðskáld ku „Já“, greip Hallin fram í, „og þegar gagn- alltaf vera í orðahraki", sagði Hallin skáld- rýnendurnir eiga í erjum, nota þeir rithhöfund- sagnahöfundurinn. „Það er tvennt sem ungir rithöfundar forð- ast eins og pestina", greip hinn kornungi Köhler fram í: „viðkvæmni og hversdagsleik“. „Hinn gáfaði rithöfundur getur bæði leyft sér að að vera viðkvæmur og hversdagslegur“, sagði Hallin. „1 keröldum hans verður vatnið vín. Óreynda skáldið er hrætt um að haga sér ekki á réttan hátt. Það er tilgangslaust að afneita staðreyndum. Flest í tilverunni er við- kvæmt og hversdagslegt. „Maður þarf að kúvenda inn á trúarsviðið", hélt hann áfram. „Það er hið eina sem borgar sig nú á dögum. Rithöfundurinn frelsast, les- endahópurinn stækkar — fimm, sex útgáf- ur....“ „Þið eruð kaldhæðnir", sagði Hilla full and- úðar. vingjamlegir smádrengir. Þeir litu á hana allir þrír og brostu þrír ana sem skálkaskjól“. „En sá frægðarstraumur sem gagnrýnandinn kemur af stað, varir sjaldnast í tíu ár“, hélt hann áfram, „og það er afleitt, því að á með- an tekst hinum góða rithöfundi að svelta í hel.... Mér hefur stundum dottið í hug að senda honum blómvönd... .“ Hann leit upp, undrandi yfir þeim hlátri sein orð hans vöktu. „Stendur þá frægð rithöfundar aldrei í réttu hlutfalli við verk hans?“ spurði Hilla. Það varð dálítil þögn. „Sennilega gerir hún það ekki“, sagði Hallin loks. „Komandi kynslóðir verða að dæma. Og þær fá ekki einu sinni tækifæri til að kveða upp réttláta dóma, þær verða fyrir áhrifum af bókmenntasögum. Og frægð er í rauninni ekki annað en múgsefjun. Hún er ríkulega útilát- In ávísun, sem ekki er alltaf til innstæða fyrir. En hinn frægi þarf ekki að óttast: verk hans gleymast en frægð hans lifir. Og jafnvel þótt Nýja bíó: Óvarln borg. Eftir að maður hef- ur séð sögu verka- mannasambyggingar- innar í hersetinni borg eins og sú saga birtist í myndinni Ó- varin borg, finnst á- takanlega til þess, að maður er orðinn svo vanur, að þenja sig út af kvikmyndaruslinu, að maður stendur orð- vana, þegar þenzlan á að verða mynd til lofs. Hvað skal segja? Minnsta kosti þetta: Óvarin borg er mynd sem maður notar til viðmiðunar. Þó mað- ur hafi farið svo hundruðum skiptir í bíó, er það ekki nema 6—10 myndir, sem manni finnst maður hafa séð. Hinar voru ailar eins og að fara í strætó. Þær skilja ekkert eftir. Óvarin borg er ein af þeim, sem lendir í minninu við hliðina á þeim fáu, sem manni finnst maður hafa séð. Til þess að lýsa henni þarf skáld. Til þess að njóta hennar og muna hana lengi þarf mig og þig. Gustator. verkin gleymist ekki, er ekki hundrað í hætt- unni: lesandinn er alltof háður frægðinni til að gagnrýna hlutlaust. „En stundum getur frægðin hindrað skáldið í að ná til hjarta lesandans", hélt hann áfram. „Byrjandinn byrjar auðvitað alltaf að lesa frægustu verk hvers höfundar. Sjálfur þræl- aðist ég gegnum Friðþjófs sögu og lagði því næst Tegnér á hilluna. Fimmtán árum seinna rakst ég af hendingu á bréf hans og smáljóð: „Ýki? Ég segi afdráttarlausan sannleikan. Það eru ekki blóðdroparnir rauðu, ekki helsært hjartað sem skapar ódauðleikann, það eru heilir bálkar og hetjuljóð: trum, trum, tara, trum! Það er hreinasta hending ef maður finnur litla, rúbíninn, eðalstein skáldsins, dropann úr þyrni- kórónunni í allri þeirri orðamælgi sem hefur skapáð frægð hans“. Menn þögðu lengi og hugsuðu. Hilla brosti við. I rauninni hafði Hallin lýst hennar eigin hugsunum um skáldskap og frægð. Loks spurði hún: D a v i 3 „Hvers vegna hafa sænskir rithöfundar ekki áhuga á stjórnmálum? Þeir minnast aldrei á þjóðfélagsmál í bókum sínum...." Enginn svaraði i fyrstu. Henni fannst hún hafa vakið máls á viðkvæmu efni. „Sú verður áreiðanlega ekki raunin á eftir riokkur ár“, sagði Köhler loks. „Það er erfitt að hafa taumhald á fólki með gamansögum, þeg- ar hús þess er að brenna. Maður fyllist viðbjóði á sjálfum sér. ..." „Enn viðbjóðslegra stjórnmálum, stríði og einræði er mannlegt eðli“, sagði Hallin. „Að það skuli eklri vera til einn einasti maður sem liægt er að treysta. Ef ég vissi, að til væri sá maður sem væri ekki reiðubúinn að svíkja bezta vin sinn og helgustu tilfinningar sínar fyrir hvatir sínar, metorðagirnd og hagnað, þá mundi ég hvorki

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.