Þjóðviljinn - 08.10.1950, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.10.1950, Blaðsíða 3
ÞJÓÐVILJISN 3 Bóndirm á heiÓinni Guðmundur Friðjónsson skildi það rétt og orðaði það vel í Aldamótakvæði sinu að „fyrir utan gömlu aldar garð / er grafinn margur, sem var bætt- ur engu“, og átti þó væntanlega .manngjöld skilin. Sá sannleikur var einn í gildi fimmtíu árum síðar, og verður hann nú ýms- um hugstæður, líklega fleirum en nokkru sinni fyrr. Guðlaug- ur Jónsson er einn í þeim flokki. Bók hans, Bóndinn á heiðinni og fleiri sagnir, ný- komin á markað, er slík mann- gjöld, reidd af hendi nokkrum þegnum þagnarinnar í Snæfells- og Hnappadalssýslu, er þar hafa um hríð legið óbættir hjá garði liðins tíma. Enginn maður fallinn verður nokkru sinni fullu bættur, ekki heldur þeir sem þessi bók er helguð. Sumar bætur eru líka verri en engar. Stærst gjald og veglegast er greitt minningu bóndans á heiðinni, Guðmund- ar Sigurðssonar á Heiðarbæ. Það var sams konar fjárauga fyrir austan, Sigurður smali, ,og rámar mig óljóst í hann. Svo skemmtilega vill til að af honum birtist þáttur í fyrra, og má vera það sé meðfram af þessum sc-kum sem ég hafði svo gaman af frásögninni af þessum vestlenzka fjárhirði. Annars virðast þeir Guðmund- ur og Sigurður næsta ólíkir um flesta hluti; auk þess sem mér eru margar eyður í mynd hins fyrrnefnda — og má fylla þær á ýmsan veg. En höfund- urinn heldur sig eingöngu að augljósum staðreyndum, slepp- ir öllum háfleygum spurning- um og djúpsæjum svöi’um. Þó er þessi þáttur ritaður varmri hendi — og hreinum huga eins og bókin öll. Hefur þessi kafli mest bókmenntagildi af þáttum safnsins. Aðrir hafa einkum fróðleiksgildi, ættfræðigildi, svo sem Tjaldbrekkubændur, Kerl- ingarskarð og fleiri. Þótt öll bókin sé rituð af hreinhug og einlægni verður því ekki neitað að sums staðar skortir liöfund þá djúpu og nærgengu skynjun sem er nauðsynleg hverjum þeim er höndum fer um þá rauðu kviku sem heitir látins minning. Kafl- inn af Heimasætunni á Rauða- mel er hvorki skrifaður nægi- lega nærfærinni hendi né af nógu skáldlegri skynjun. Eftir allt sem á undan er gengið í hugástum þeirra Margrétar og Áma, og þó einkum hennar, er fremur kuldalegt að geta þess í niðurlagi, meðal annarra orða, eins og ekkert sé, að: „Auk þess eignaðist Árni fram- hjá son . . . með vinnukonu sinni . . . Hún varð kyrr í vist- inni með son sinn eftir sem áð- ur.“ Hvaða kenndir bifðu þá brjóst Margrétar á Rauðamel? Hver var ráðgátan í ást henn- ar? Eða hafði lífið rænt þessa konu aleigunni? Stíll höfimdar er . nokkuð margorður og dálítið þyngsla- legur. Mál hans er ekki list- rænt, en hispurslaust og hrein- legt. Óvaningsblær er á sumum setningum, eins og þegar talað er um að ævilok mundu á næstu grösum. Annar hafði umtals- efni á reiðum licndum, þriðji sinnti sínum fábreytta verka- hring. En ég held dæmi sem þessi séu ekki ýkjamörg, og þótt bókin sé hvorki afreks- verk né listaverk er hún í heild bæði læsileg og fróðleg, heiðarlegt framlag í íslenzkan minningasjóð á . 20. öld — „mótvirðissjóð“ menningararfs- iii3 forna. B.B. K.R.R. K.S.Í. Í.R.R. Haustmót Reykjavíkur (Kalstaðmótið) SKAK Ritstjóri: GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON Skákdæmin. 9. Samuel Loyd. Hvítur: Kg3, Rfl, Rf4. Svartur:Khl, Pg4. Hvítur á að máta í 3. leik. 10. F. Schrufer. Hvítur :Kg3, Da2, Hg8, Bd5 Svartur :Ka8, Hb8, Bb7, Pa7. Hvítur á að máta í 2. ieik. Laesnir 7. John Tornerup. Ka5, Dd7, Bh8, Pc2; Kc5, Bf7. Mát í 2. leik. Lausn: 1. c2—c4. 8. Jan Mortensen. Kfl, Da3, Bf4, Pd5, Pg3; Kg4. Mát í 2. leik. Lausn: 1. Da3—e7. 1 Fjörug skák milli kvcnna Skákin sem hér fer á eftir var tefld á heimsmeistaramóti kvenna í Moskvu snemma á þossu ári. Olga Rubtsova sem leikur, hvítu mönnunum var talin einna líklegust til sig- urs, en hlaut önnur verðlaun, landi hennar Ljudmila Ruden- ko varð heimsmeistari. Mary Karff er einhver bezta skák- kona Bandaríkjanna. Olga Rubtsova USSR 1. c2—«4 2. Rgl—f3 3. d2—d4 4. Rf3xd4 Mary Karff USA c7—c5 d7—d6 c5xd4 Rg8—Í6 1 dag kl. 2 keppa Fram—Víkingur Dómari: Hrólfur Benediktsson Stiax á eftir hefsf úrslitaleikurinn xnilli K. R„ og ¥ A L § Dómari: Guðjón Einarsson Hvor sigrar? Allir á völlinn! NEFNDIN Starfsemi Leskfélags Reykjavikur heldur áfram Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur hefur staðið yfir síðan 28. ág. s.l., er ákveðið var að halda starfsemi félags- ins áfram með nokkuð breyttum hætti, og voru breytingar á lögum félagsins afgreiddar á fundi 4. sept. s.l. en mánu- daginn 25. sept. var aðalfundi loks lokið með stjórnar- kosningu í félaginu. Frá heimsmeistaramóti kvenna í skák. Ingrid Larsen, Danmörku, Mary Karff, Bandaríkjunum og Maria Moro frá Kúbu ræða við heimsmeistarann Botvinik Hafði uppástungunefnd verið kosin á fundinum áður og voru kosnir í hana Þorsteinn Ö. Stephensen leikari, Brynjólfur 'Jóhannesson leikari og Lárus ; Sigurbjörnsson rithöfundur. ;Tillögur uppástungunefndar :voru allar samþykktar og var jkjörinn formaður félagsins: jEinar Pálsson, leikari; ritari: jHaukur Óskarsson, leikari og gjaldkeri og framkvæmdastjóri: Wilhelm Norðfjörð. Varafor- maður var kosinn Brynjólfur Jóhannesson, leikari og með honurn í varastjórn leikkonurn- ar Sigrún Magnúsdóttir og Anna Guðmundsdóttir. 1 leik- ritavalsnefnd ásamt stjórninni voru kosnir: Þorsteinn Ö. Stephensen og Lárus Sigur- björnsson. Endurskoðandi var 5. Rbl—c3 g7—g6 6. Bcl—e3 Bf8—g7 Það er ekki unnt að angra bisk- upinn: 6. — Rg4 7. Bb5 skálc. 7. f2—Í3 0—0 8. Ddl—1!2 Hf8—e8 Þessi leikur er til þess gerður að geta haldið biskupinum á g7, sem er aðalstólpinn í vörninni (9. Bh6, Bh8). En livítur nær sterkri sókn engu að síður. Sennilega er bezt að leika 8. — Rc6 9. 0—0—0 d5. Það er að vísu peðsfóm, en svartur fær gott spil, ef hvítur þiggur peðið. 9. g'2—g4 Rb8—c6 10. h2—h4 Rf6—d7 11. h4—h5 R<17—f8 12. h5xg6 Í7xg6 Svartur vcrður að halda li-lín- unni lokaðri (h7xg6 13. Rxc6 bxc6 14. Bh6). 13. Bfl—c4 e7—e6 14. 0—0—0 Rc6—e5 15. Bc4—e2 Bb3 kom ekki síður til greina. 15. — — a7—a6 16. f3—f4 Re5—f7 17. f4—f5 e6xf5 18. g4xf5 b7—b5 19. Hdl—gl Bc8—b7 20. f5xg6 h7xg6 Betra en Rxg6, Bh5. 21. Bfl—e2 Rf7—e5 22. BS—h6 Re5xd3f 23. Dd2xd3 Bg7xh6 24. Hhlxh6 Dd8—f6 Varnarleikur, sem jafnframt hótar Df4. 25. Kc.1—bl He8—c7 Hvítur hótaði e4—e5 og Hxg6, en He5 var líklega fullt eins góð vörn. 26. Rd4—f'5! He7—h7 27. Rc3—d5 Df6—e5 28. Hli6xh7 Kg8xh7 29. Dd3—h3f Kh7—g8 30. Rd5—e7f Kg8—f7 31. Re7xg6! Riddararnir sjást lítt fyrir. Ef nú 31. — Dxe4, þá Rxd6f, en Rxg6 svarar hvítur með Dh7f Ke8, Hxg6. 31. — — 32. Dh3—g3 33. Rg6—f4 34. Hgl—dl 35. Dg3—g~t 36. Hdlxdöt 37. Rf5xd6 38. Dg7—b7t 39. Db7xe4 40. c2—c3 41. Rf4—dðt kjörinn Jón Leós, bankagjald- keri. Fráfarandi formaður, Þor- steinn Ö. Stephensen, árnaðí hinni nýju stjórn allra heilla og kvað hina eldri félagsmenu hyggja gott eitt til að hlíta forsjá hinna yngri í því starfL sem nú væri framundan. Gat hann þess að uppástungunefnd- in hefði átt viðræðufund með Þjóðleikhúsráði, og telja mætti tryggt að gagnkvæmur velvilji og góður skilningur mundi ríkja í sambúð Leikfólagsins og Þjóð- leikhússins. Siglingin mikla eftir Jóliannes úr Kötlum. Dc5—cb Kf7—e6 Ke6—d7 Bb7xe4 Kd7—c6 Dc5xd6 Ha8—<18 Kc6xd6 Kd6—c7 Hd8—d6 Kc7—c6 42. Rd5—f6t og svartur gafst upp, Hann tapar manni eða skiptamun. Fyrsta skáldverkið um eitt örlagaríkasta tímabil Islands sögunnar — vesturfarir Is- lendinga á 19. öld. Bókabúð Máls og menniugar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.