Þjóðviljinn - 08.11.1950, Side 8
Framleiðsla Sovétríkjanna hefur auk-
ÆJl
m á einu ári
Sala neyzluvarnings lókst um þriSjung
Áætlunaraefnd Sovétríkjanna hefur tilkynnt,
að framleiðslan á þriðja ársfjórðungi yfirstandandi
árs ha.fi verið 24% meiri en á sama ársfjórðungi
í fyrra. Framleiðslumarkmiðið á fyrsíu níu mán-
uðum þessa árs hefur verið uppfyllt með 103%.
Heimsftskideilelin
minnist Jóns
Arasonar
Nýjar og hagkvæmari fram-
leiðsiuaðferSir hafa haft í för
með sér 7% sparnað í fram-
leiðslukostnaði á árinu. Upp-
skeran hefur verið eins góð
og í fyrra en þá var met upp-
skera. Baðmullaruppskeran fór
19% fram úr áætlun. Á fyrstu
níu mánuðum 1950 hefur land-
búnaður Sovétríkjanna fengið
130.000 dráttarvélar, 33,000
uppskeruvélar og 66,000 vöru-
bíia. Nautgripum hefur fjölgað
um 19%, svinum um 41% og
hestum um 17%.
Nýlega fóru þeir dr. Sigurð-
ur Pétursson, gerlafræðingur,
og dr. Þórður Þorbjarnarson,
forstöðumaður rannsóknarstofu
Fiskifélags Isiands, til Banda-
ríkjanna. Mun dr. Sigurður
dveljast vestra í 8 mánuði og
kynna sér gerlarannsóknir m.
a. í sambandi við fis'kiðnað. Dr.
Þórður mun dveljast í Banda-
ríkjunum í 3 nánuði og kymia
sér ýmiskonar rannsóknir í
þágu fiskiðnaðar.
För þeirra dr. Sigurðar of dr.
Þórðar er einn liður tæknilegr-
ar aðstoðar, sem efnahagssam-
vinnustjórnin í Washington
veitir, og greiðir hún allan er-
lendan kostnað vegna fararinn-
ar. (Frá viðskiptamálaráðun.)
Meiri
. gengíslækkim!
Kristján Friðriksson, forstjóri,
flutti fyrirlestur um íslenzk at-
vinnumál í Listamannaskálan-
um siðastliðinn sunnudag. Taldi
hann, að Islendingar ættu að
leggja stund á stóriðju (eink-
um að vinna úr ull og bómull).
Þá taldi hann nauðsynlegt að
koma á og viðhalda réttu gengi,
en rétt gengi er það, að Islend
ingar séu jafnlengi að vinna
fyrir andvirði eins sterlings-
punds og Englendingur er að
vinna sér inn eitt pund. (Verka
mannakaup í Bretlandi mun
vc-ra nálægt 5 pundum á viku,
og miðað við það ætti verka-
mannakaup hér að vera ca. 900
krónur á mánuði miðað við nú-
verandi gengi). — Annars var
erindi Kristjáns sambland af
„sjálfsögðum hlutum“ og hag-
fræði svipaðri þeirri sem þýzk-
ir spekingar, t. d. Spengler
héldu mjög á lofti um það leyti,
sem Hitler var að festa sig í
sessi í Þýzkalandi.
Vörusala í ríkisverzlunum og
samvinnuverzlunum hefur auk-
izt um 33% á einu ári. Á þriðja
ársfjórðungi vfirstandandi árs
var selt 33% meira kjöt en
á sama tíma í fyrra, 52%
meira feitmeti og 32% meira
sykur. Aukningin er enn meiri
á sölu iðnaðarvarnings, og nem
ur 36% hvað snertir ullarvör-
ur, skófatnaðarsalan hefur auk-
izt um 50%, mótorhjólum 150%
og saumavélum 27%. Alls jókst
sala matvæla um 33% en iðnað-
ar\'amings 37%.
Á einu ári hafa 220.000 ungl-
ingar lokið iðnnámi og 264.000
sérfræðingar í ýmsum grein-
um útskrifast úr menntastofn-
anum. Um 800.000 nýir nem-
endur byrjuðu nám við tækni-
skóla og aðrar æðri mennta-'
stofnanir.
Heimspekideild Háskólans
efndi í gær til samkomu i há-
tíðasal háskólans til minnii gar
um Jón biskup Arason og soiiu
Iians.
Dr. Einar Ölafur Sveinsson
próf. forstöðumaður deildarinn-
ar setti samkom.ma eg minnt-
ist Jóns Arasonar. Þá söng
Dómkirkjukórinn Davíðsdiktur
o.fl. eftir Jón Arason. Þá flutti
próf. Þor&ell Jóhannesson cr-
indi um Jón Arason. Dómkirkju
kórinn söng því næst. Lárus
Pálsson leikari las lcvæði Ólafs
Tómassonar um Jón Arason og
synii hans. Að lckum var þjóð-
söngurinn sunginn.
I gagnfræðaskólanum á Akur
eyri var Jóns Arasonar einnig
minnzt með ræðu er Þorsteinn
M. Jónsson flutti og Jóhann
Frímannsson las kvæði Matthí-
asar um Jón Arason.
MELK0RKA — tímarit sem allar
konur þurfa að lesa
Melkorka, tímarit kvenna, 3.
hefti 5. árgangs, er komið út,
vandað að efni og frágangi að
vanda.
Tvær konur skrifa þar um
baráttuna fyrir friði. Nanna Öl-
afsdóttir greinina: Hvers vegna
frið. Þar segir m. a. svo: ,,. . . .
Þegar fólkið stendur sameinað
gegn stríði verður það í fyrsta
sinn í sögunni sem hinn al-
menni maður ræður úrslitum
um það, að stríð varð ekki háð.
En áður en það skeður mun
ekkert verða tilsparað að
sundra almenningi í þessu hans
mesta máli. . . . Því hefur ver-
ið reynt að gera friðarbaráttu
mannkynsins tortryggilega.
Hún sé aðeins ákveðnum þjóð-
um í hag og því forkastanleg.
Þar með er gefið í skyn að bar-
átta fyrir friði sé einhverjum
öðrum þjóðurn í óhag. Þær
þjóðir eru svo ekki nánar skii-
greindar, enda farið með dóm-
greindarlausan tilbúning". .
Sigríkur Eiriksdóttir skrifar
greinina: Hvað gerir kirkjan?
Rekur hún þar hervæðingarkröf
ur íslenzkra blaða og flokka
og segir svo m. a.: „Mikil á-
byrgö hvílir nú á kristinni
kirkju á íslandi. Henni ber sið-
ferðileg skylda til að skerast
í málin og spoma af öilum
mætti gegn því að hér verði
komið upp innlendum her, í
hvaða mynd sem er. . . . Til
allra kvenna í landinu vil ég
segja þetta: Látið ekki blekkj-
ast af styrjaldaráróðrinum,
reynið að skilja hina ómælan-
legu fórn, sem styrjaldir hafa
krafizt af eiginkonum og mæðr-
um frá ómunatíð og til þessa
dags.... Takið höndum saman
og heitið áhrifum yðar til þess
að kveða niður þann hernaðar-
anda, sem nú er að rísa með
þjóðinni. Fáið kirkjuna í lið
með yður til að hindra að ís-
lenzkum mönnum verði hrundið
út í ihannvíg.“
Anna Sigurðardóttir skrifar
um Efnahagslegt jafnrétti;
birt er viðtal við Ólafíu Ein-
arsdóttur, fyrsta íslendinginn
sem tekur próf í fornleifafræði;
Grethe Benediktsson skrifar
um öryggisnælur og prjón. Smá
saga er í heftinu sem nefnist
Sebastiana. Birt er myndaopna
af konum er hafa getið sér
heimsfrægð fyrir frelsisbaráttu.
Ennfremur er kvæði, afmælis-
grein, mjnningargrein, spuming
ar o. fl.
Melkorka er tímarit sem all-
ar konur ættu að lesa.
'Samkvæmt 39. gr. laga nr.
80 11. júní 1938 um stéttarfé-
lög og vinnudeilur hefur nú
verið skipað í Félagsdóm til
næstu þriggja ára frá 1. okt.
s.I. að telja. Dóminn skipa þess
ir menn:
Hákon Guðmundsson, hæsta-
réttarritari, skipaður af Hæsta-
rétti, og er hann forseti dóms-
ins, Gunnlaugur Briem, skrif-
rettarritari, skipaður af Hæsta-
rétti, Isleifur Árnason, fulltrúi
borgardómara, skipaður af fé-
lagsmálaráðuneytinu, Einar B.
Guðmundsson, hæstaréttarlög-
maður, skipaður af Vinnuveit-
lUÓÐyiUINN
ÁxanguE „viðíeísnasiimar" hjá
itínaðarmönnnm:
Nerðið ntiftiséliiia, ©g
sera fyrsS!
Þegar forseti Landssambands iðnaðarmanna, Helgi
Hermann Eiríksson setti 12. iðnþingið þann 4. þ.m.
ræddi hann noldiuð í setningarræðu sinni um afkomu
iðnaðarmanna.
Sagði hann m.a. að ekki væri annað sjáan’.egt en
að iðnaðarmenn, jafnvel í stærra mæli en aðrar stéttir
þjóðfélagsins, yrðu að herða mittisólina og það sera
fyrst. Kvað hann lilutverk þingsins verða fyrst og
fremst það, að reyna að finna skynsamlegar og hald-
góðar leiðir til að bjarga iðonaðinum frá stórfelklu hruni,
og íkapa iðnaðinum trygga fótfestu á krepputímum
þeim sem fram undan væru.
Þannig lýsir formaður Landssambands iðnaðarmanna
árangrinum a| hinni alliliða „viðreisn" sem stjómar-
völdin boðuðu með gengislækkuninni.
Reykvlkingar tóku félaga-
söfnun Rauða Krossins á sunnu
daginn ágætlega. Enn eiga
nokkrir þeirra sem söfnuðu fé-
lögum eítir að gera skil, en
komnir eru 1200 nýir félagar
í deildina.
Síðar mun reynt að senda í
allmörg hverfi bæjarins, sem
ekki reyndist unnt að ná til,
en þeir sem vilja gerast félag-
ar eru beðnir að hringja í skrif
stofusíma RKI 4658 og láta
skrá sig sem félaga.
Reykjavíkurdeildin biður blað
ið að færa unga fólkinu bezta
þakklæti fyrir ágætt starf og
þakkar Reykvíkingum skilning
á starfseminni. Þessir skólar
önnuðust félagssöfnunin:
Varð fyrir bifreið
I gærmorgun varð Hlöðver
Magnússon, Ilverfisgötu 106,
fyrir bifreið á gatnamótum
Hverfisgötu og Snorrabrautar.
Hlaut Hlöðver mikil meiðsl á
höfði við áreksturinn. Var hann
fluttur í Landsspítalann og
ltom þiar í ljós að liann hafði
höfuðkúpubrotnað og fengið
heilahristing.
endasambandi Islands, og Helgi
Hannesson, bæjarstjóri, skipað-
ur af Alþýðusambandi Islands.
Varamenn eru þessir skipaðir
af sömu aðilum taldir í sömu
röð: Ragnar Jónsson, hæstarétt
arlögmaður, Sigtryggur Klem-
enzson, stjórnarráðsfulltrúi,
Benedikt Sigurjónsson, fulltrúi
borgardómara, Sigurjón Jóns-
son, fyrrverandi bankaútibústj.,
og Þorsteinn Pétursson. Þær
breytingar urðu á skipun dóms
ins að þessu sinni, að Alþýðu-
samband Islands nefndi nú
Helga Hannesson bæjarstjóra í
stað Ragnars Ólafssonar hæsta
réttarlögmanns. Þeir Hákon
Guðmundsson og Gunnlaugur
E. Briem hafa átt sæti í Félags
dómi allt frá stofnun hans ár-
ið 1938.
Hjúkrunarkvennaskóli Is-
lands, Húsmæðraskóli Reykja-
víkur, Gagnfræðaskóli Vestur-
bæjar og Ljósmæðraskólinn.
Reykvíkingar, sem ekki náð-
ist til á sunnudaginn var, til-
kynnið þátttöku yðar í síma
Rauða Krossins 4658 eða komið
í skrifstofuna í Thorvaldsens-
stræti 6.
Allsherjar
manntal
L des. n.k.
Hinn 1. desember n. k. á al-
mennt manntal að fara fram
hér á landi. Er svo fyrir mælt
í lögum, að 10. hvert ár, er
ártalið endar á 0, skuli taka
almennt manntal um land allt
hinn 1. desember og skuli því
lokið þann sama dag, nema
tálmanir, sem ekki vcrður við-
ráðið, banni.
1 kaupstöðum annast bæjar-
stjórn um framkvæmd mann-
talsins, en annarsstaðar prest-
arnir með aðstoð hreppstjóra
og lireppsnefnda. Til þess að
unnt sé að taka manntalið á
einum degi, þarf aðstoð margra
manna, hinna svokölluðu telj-
ara. Áður en manntalið á fram
að fara, skal skipta hverjum
kaupstað og prestakalli í svo
mörg umdæmi eða hverfi, að
einn maður komist á einum degi
yfir að afla þaðan þeirra upp-
lýsinga, sem krafizt er. Telj-
arastarfið er trúnaðarstarf
sem enginn getur skorazt und-
an, sem til þess er hæfur. Það
er mjög mikilsvert, að teljar-
ar.séu vel valdir, því að undir
þeim er að miklu leyti komið,
hvernig manntalið tekst. En
þess verður að gæta, • að telj-
urunum sé ekki íþyngt um of
með því að háfa telajrasvæð-
in of stór. því að þá er hætt
við, að verkið verði ekki eins
vel unnið.