Þjóðviljinn - 17.01.1951, Side 4
I
ÞJÓÐVILJINN
Mi'ðvikudagur 17. janúar 1951.
þlÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur .alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Hitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson - (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: 15.00 á mánuðí. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans k. f.
i Verkamenn vernda samtök sín
Alþýðusambandsþingið í haust samþykkti þessa ályktun:
,,22. þing Alþýðusambands Islands mótmœlir barSlega hvers
'kyns afskiptum atvinnurekenda af innri málefnum verkalýðs-
samtakanna, svo sem afskiptum af kosningum í verkalýðsfé-
,lógunum.
Sérstaklega fordæmir fpingið tilraunir einstakra atvinnurek-
enda til að hafa áhrif á atkvœðagreiðslur verkafólks, m. a. með
stofnun pólttískra félaga innan samtakanna í þeim tilgangi að
tryggja ákveðnum hópi sambandsmeðlima atvinnuleg sérréttindi.
Þingið skorar á óll verkalýðsfélög að vera vel á verði gegn
óllum tilraunum í þessa átt og standa saman sem einn maður
um þá meðlimi samtakanna, sem kunna að verða beittir atvinnu-
og skoðanakúgun af hálfu atvinnurekenda eða fulltrúa þeirra'.
★
Allir fulltrúar á alþýðusambandsþinginu vissu að þessi álykt-
un var ekki flutt og samþykkt að ófyrirsynju. Afskipti atvinnu-
rekenda af innri málefnum verkalýSsfélaganna urSu svo áber-
andi og ósvífin einmitt í kosningunum til AlþýSusambands-
þingsins í haust aS þess eru engin dæmi í sögu verkalýSshreyfing-
arinnar á íslandi, — og jafngróf og ósvífin íhlutun aSalíhalds-
flokks landsins væri t. d. meS öllu óhugsandi á NorSurlöndum.
SkaSsemdarviðleitni pólitískra félaga íhaldsins innan verkalýSs-
samtakanna, þar sem beinlínis var stefnt aS því að láta þá
verkamenn sem ganga til þjónustu við atvinnurekendur njóta
forréttinda um atvinnu, var líka rík í hug mörgum þingfulltrú-
um. Dæmi um tilraunir til atvinnukúgunar þekkir hver verka-
maður ekki sízt síðan fór að minnka um atvinnu fyrir alvöru.
Mikill meirihluti fulltrúa á Alþýðusambandsþingi samþykktu
því að sjálfsögðu ályktun þá sem hér er birt, en svo undarlega
brá viS aS þó nokkrir þingfulltrúar greiddu atkvæði móti henni.
Sýnir það betur en flest annað til hvers samfylking AlþýSu-
flokksins og Ihaldsins í verkalýðsmálum stefnir: Verkamanna-
fulltrúar sem ekki eru andvígir (eða þora ekki að láta annað
uppi) afskiptum atvinnurekenda af innri málum verkalýðsfé-
laga, atvinnuiegum forréttindum pólitískra klíkuhópa og at-
vinnu- og skoðanakúgun af hálfu atvinnurekenda!
★
ÞaS er aS gefnu tilefni að rifjuS er upp þessi samþykkt AlþýSu-
sambandsþingsins í haust. Enn á ný er hafin hin viðbjóðslega
verzlun Alþýðufiokksburgeisanna við verstu óvini alþýðusam-
takanna, þar sem hagsmunir verkalýðsins og samtaka þeirra eru
notaðir til gjalda fyrir bitlingasúpu Alþýðuflokksins. Enn á ný,
í undirbúningnum að stjórnarkosningum í verkalýðsfélögunum,
taka níðingarnir úr Alþýðuhúsinu að laumast niður í Sjálf-
stæðishús til að leggja á ráðin um sameiginlega ,,kosningabaráttu“
í verkalýðsfélögunum ásamt klækjamestu auðburgeisum lands-
ins. Enn á ný reynir fimmta herdeild Alþýðuflokksbroddanna
innan verkalýðsfélaganna að afhenda auðmannaklíku lyklavöld
aS verkalýðsfélögunum, meS því aS misnota þær slitrur af trúnaSi
sem ýmsir rosknir verkamenn sýna enn Alþýðuflokknum og
meS smölun skoðanalausra meðlima á kjörstaS.
Og enn á ný, og betur en áður mun alþýðan svara hinni svörtu
samfylkingu bitlingahítanna og burgeisanna. Svara með því að
fylkja sér um verkalýðsfélögin og tryggja þeim forystu sem þorir
aS hreyfa sig án þess að spyrja fyrst um leyfi í Holsteini, forystu
manna sem reyndir eru að því að bregðast aldrei málstað verka-
lýðsins. Aldrei er verkamönnum brýnni þörf á djarfri og heils-
hugar forystu cn á atvinnuleysis- og krepputímum. Skilningur
a því er almennari nú meðal verkamanna en á undanförnum ár-
öm. Þess vegna á svarta samfylkingin enga sigurför í vændum,
reykvískir verkamenn og iðnaSarmenn hafa ekki í hyggju aS
afhcnda félög sín íhaldinu og þjónum þess.
Guð og Geysisslysið.
Ég var að lesa athyglisverða
grein í tímaritinu Afturelding,
sem Filadelfía gefur út. Grein-
in fjallar um Geysisslysið. Höf.
skrifar hana af því honum
þótti áhöfn flugvélarinnar ekki
nógu þakklát Guði fyrir björg-
unina. Því það var allt Guði að
þakka hversu giftusamlega
tókst til, þrátt fyrir allt, og
ekki urðu alvarlegri meiðsl á
fólkinu. Allt Guði að þakka.
Hans verndarhendi var til stað-
ar hina köldu og dimmu sept-
embernótt á Vatnajökli, og
stillti slysum í hóf.
□
Því lét hanu það verða?
Eftir lestur þessarar grein-
ar hygg ég margur muni vilja
spyrja: Fyrst Guð hafði svona
mikil afskipti af þessu máli, til
hvers var hann þá yfirleitt að
láta flugvélina rekast á jökul-
inn? Af hverju sá hann ekki
um að hún kæmist heilu og
höldnu heim til Reykjavíkur,
og losaði þannig áhöfnina við
erfiði og margkyns þjáningar,
en aðstendendur hennar við
angist og kvfða?
□
„Sá er vimir . . .“
Hér liggja sem sé fyrir okkur
mikilvægar spurningar: Eigum
við að hrópa upp af aðdáun og
gera stórtíðindi úr þegar Guð
sýnir okkur einhverja nær-
gætni, en þegja um og láta
sem ekkert sé ef misbrestur
verður á framkomu hans? Ég
fyrir mitt leyti vil að minnsta
kosti ekki trúa þeim hégóma-
skap uppá Guð, að hann leggi
þvíaðeins eyrun við að til hans
sé talað hrósyrðum og þökkum,
en frábiðji sér gagnrýni. Og
sjálfsagt hefur hann heyrt
gamalt og gott máltæki sem
þannig hljóðar að „sá er vinur
sem til vamms segir‘f. — I
stuttu máli, okkur er það auð-
vitað fagnaðarefni þegar Guð
kemur í veg fyrir að fólk deyi
í flugslysum, en hitt hlýtur
samt ætíð að verða mest um
vert fyrir okkur, að hann láti
flugslys alls ekki eiga sér stað.
□
Maðurinn andspænis
Guði.
En þá er komið að þeim þætt-
inum í nefndri grein sem fjall-
ar um manninn og kosti hans
andspænis Guði og hans kost-
um. Höfundi finnst bersýnilega
að sú aðdáun sem fram kom
á þreki og dugnaði Geysis-fólks
ins hafi verið í mikinn máta
óveiðeigandi, þarna átti, eftir
því sem bezt verður skilið, að
gera mest úr náð Guðs og misk
unn. Talar höf. á einum stað
um „að mannsdýrkunin sé kom-
in í það sæti, sem guðsdýrkun-
in á, og mannaóttinn þar sem
Guðs óttinn á að vera“. Birtist
hér sem sé enn sú gamla og
varhugaverða kenning að mað-
urinn sé í rauninni aldrei neinn
ar viðurkenningar maklegur,
hverju sem hann annars kann
að afreka, því að öll afrek séu
Guðs afrek, allir verðleikar séu
verðleikar Guðs.
Því er hún varhugaverð ?
Þessi kenning er varhuga-
verð af því að hún beinist gegn
því sem manninum er einna
mest um vert, gegn trúnni á
manninn: í samanburði við Guð
inn er maðurinn lítill og auð-
virðilegur, og ekkert á honum
byggjandi. Og ef maðurinn sýn
ir af sér eitthvað líkt því sem
Geysis-fólkið sýndi á Vatna-
jökli, afburða þrek og kjark,
þá er það fyrsta sem kemur
í hug játendum þessarar ,kenn-
ingar, þar á meðal höfund-
ur greinarinnar í Aftureldingu,
þetta: En hvað Guð er nú mik-
ill og sterkur! — Þeir sem
ekki hafa með öllu glatað virð-
ingunni fyrir manninum, að-
hyllast afturámóti þá skoðun,
að t. d. sómi Ingigerðar flug-
freyju af umræddu máli sé
fullt eins mikill og Guðs.
□
Ljótt orð.
Hér hefur nú orðið úr lengra
mál en til var ætlazt í upphafi.
En í fáum orðum er það þetta
sem ég vildi segja útaf marg-
nefndri tímaritsgrein: Guðsótti
er ljótt orð. í staðinn fyrir ótt
ann á að koma eitthvert ann-
að orð, fallegra orð, til dæmis
vinátta. Við eigum ekki að
smjaðra fyrir Guði einsog þræl
ar þegar hann hefur reynzt
okkur vel en taka með þögn og
þolinmæði misgjörðum hans.
Við eigum ekki að vera þrælar
andspænis neinum, hvorki Guði
né mönnum. Og ef við getum
ekki verið trúaðir án þess að
tigna í auðmýkt einhvern refsi-
vönd æðri máttarvalda yfir okk
ur, þá skulum við heídur vera
trúlausir.
□
Deilt við dómarann
„Bíógestur" skrifar:
„Kæri Bæjarpóstur. — Ég
verð að biðja þig að hnýta svo-
lítið í einn vina okkar, þeirra
er skrifa um bíómyndirnar, því
að mér finnst hann alls ekki
Framhald á 7. síðu.
* ★ *
Ríkisskip
Hekla fer á morgun frá Rvík
vestur um land til Akureyrar.
Esja er væntanleg til Reykjavík-
ur í dag að vestan og norðan.
Herðubreið lá í Reykjavík í gær
vegna vélabilunar, en átti að
fara þaðan í gærkvöld, ef að-
stæður leyfðu. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík í kvöld til Skaga-
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna. Þyr
ill er á leið frá Vestfjörðum til
Reykjavíkur. Ármann lá veður-
tepptur í Reykjavík í gær, en á
að fara til Vestmannaeyja strax
og ástæður leyfa. (
Eimskip
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti
foss fór frá Hamborg 15. þ. m. til
Stettin, Gdynia og Khafnar. Fjall-
foss hefur væntanlega farið frá
Leith 15. þ. m. til Rvíkur. Goða-
foss fór frá Reykjavík í gærkv.
til N. Y. Lagarfoss fór frá Khöfn
13. þ. m. til Reykjavíkur. Sel-
foss fór frá Reykjavík 15. þ. m. til
Akraness og vestur og norður, og
til Amsterdam og Hamborgar.
Tröllafoss .fór frá Reykjavík 15.
þ. m. til St. Johns og N. Y. Auð-
umla fer væntanlega frá Antwerp
en í dag til Rvíkur.
Skipadeild SÍS
Arnarfell er í Rvík. Hvassa-
fell er í Keflavík.
Húnvetningafélagið heldur n. k.
föstudagskvöld skemmtisamkomu
í Oddfellow. Fjölbreytt skemmti-
skrá. — Skemmtinefndin.
Nýlega hafa opin-
berað trulofun
og Gísli Ólafsson,
sína Jóhanna Hall-
dórsdóttir, Önguls-
stöðum, Eyjafirði
Kraunastöðum, Aðaldal, S.-Þing.
— Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hulda Bjarna-
dóttir, afgreiðslumær, Reykjavík
og Karl H. Björnsson, Akureyri.
Rafmagnsskömmtunin. í dag, kl.
11—12, verður straumlaust í ná-
grenni Reykjavíkur, umhverfi
Elliðaánna, vestur að markalínu
frá Flugskálavegi við Viðeyjar-
sund, vestur að Hlíðarfæti og
þaðan til sjávar við Nauthólsvík
í Fossvogi. Laugarnesið að Sund-
laugarvegi.
venjulega. — KL
20.30 Kvöldvaka:
a) Guðmundur M.
Þorláksson kenn-
ari flytur erindi:
Frá Þingvallavatni — (fyrra er-
indi). b) Einsöngur: Guðmunda
Elíasdóttir og Þorsteinn Hannes-
son syngja (plötur). c) Kjartan
Gíslason frá Mosfelli les frumort
kvæði. d) Magnús Jónsson náms-
stjóri flytur frásöguþátt eftir Ól-
al Gunnarsson frá Vík í Lóni:
Gamlir íslendingar í Noregi. 22.10
Danslög (plötur) til 22.30.
Flugferðir Loft-
leiða h.f. — Inn-
anlandsflug: í dag
er áætlað að fljúga
til Akureyrar kl.
10; til ísafjarðar, Patreksfjarðar
og Hólmavíkur kl. 10.30 og til
Vestmannaeyja kl. 13.30. — Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar kl. 10 og til Vestmanna
eyja kl. 13.30.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband á
Möðruvöllum í
Hörgárdal ung-
frú Líney Ólöf
Sæmundsdóttir frá Veiðileysu á
Ströndum og Hermann Jónsson,
búfræðingur, frá Hálsi í Öxnadal.
Heimili þeirra er í Hafnarstræti
74, Akureyri. — Nýlega voru gef-
in saman i hjónaband á Akureyri
ungfrú Ingibjörg Bjarnadóttir og
Sumarliði Jens Sumarliðason, húsa
smíðanemi. Heimili þeirra er að
Brekkugötu 33, Akureyri.
Þorrablót heldur Eyfirðingafé-
lagið í samkomusal Mjólkur-
stöðvarinnar n. k. föstudagskvöld,
fyrsta þorradag kl. 6 síðdegis. —
Verða þar ýmsir þjóðlegir réttir
á borðum. Eyfirðingar sem enn
eiga eftir að sækja aðgöngumiða
að blótinu eru beðnir að sækja
þá í dag í Hafliðabúð, Njálsg. 1.
íliekað brot
Framhald af 8. síðu.
Guðmundssyni, hin fyrri þess
efnis, að lágmarkstími ökuleyfis
missi fyrir akstur undir áhrif-
um áfengis skyldi hækkaður úr
3 mánuðum í tvö ár, hin síðari
unj að fella burt það ákvæði
laganna sem leyfir undanþágur
frá ökuleyfissviptingu fyrir
slíkt brot. Báðar tillögurnar
voru felldar með jöfnum at-
kvæðum, hin fyrri með 11:11,
hin síðari með 10:10.
Frumvarpið fer nú fyrir efri
deild.