Þjóðviljinn - 24.01.1951, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.01.1951, Blaðsíða 1
16. árgangur. Miðvikutlagur 24. .jauúar 1951. 19. tölublað. Stríðsstefna Trumans færir Bandaríkja- stjórn fyrsta ósigurinn á þingi SÞ láíiini ekkl ðfli’agit olikar -útí flirópa Verlia- iviaimafiiiigineiiii að Omreliil sósíaiísta heldur aðalfund í kvöld, miðvikudag 24. þ.m. kl. 8.30 e.h. að Þórsgötu 1. Venjuleg aðalfundarstörf Kaffidrykkja. Mætum stundvísiega. Stjórnin Stríðsstefna Bandaríkjastjórnar er nú komin svo vel á veg með að einangra hana frá fylgiríkjum sínum, að það skeði í fyrsta skipti á þingi SÞ í fyrra kvöld, að Bandaríkjamenn urðu undir í atkvæða- greiðslu um stórmál, þótt þeir legðu sig alla fram. Á fundi stjórnmálanefiidar þings SÞ í fyrrakvöld hélt Austin aðalfulltrúi iBandaríkj- anna ræðu, sem fréttaritari tarezka útvarpsins kallaði „mjög beizkyrta" gegn þeirri tillögu Indverjans Rau að fresta í tvo sólarhringa frek- ari umræðum um tillögu Banda ríkjanna að fyrirskipa aðgerð- ir gegn Kína, meðan athugaðar væru útskýringar Kínastjórn- ar á ýmsum atriðum í tillögum hennar um frið í Kóreu og lausn annarra deilumála í Austur-Asíu. Austin fór háðu- legum 'orðum um „kynlega í- hlutun“ Indlands, sem ekki mætti tefja samþykkt banda- rísku tillögunnar „meðan her- menn SÞ deyja í Kóreu“. Þrátt fyrir þetta var t;t laga Rau samþykkt með 27 atkv. gegn 23 en 6 sátu h.iá Hingað til hafa aldrei minna en 45 til 55 ríki fylgt Banda ríkjurium á þingi Sf>, er þau hafa beitt sér. Öldungadeild Bandaríkja- þings samþykkti í gær áskorun á SÞ að samþykkja aðgerðir gegn Kína og meina alþýðu- stjórn Kína sæti meðal SÞ. Attlee viðurkennir að Eandaríkjastjórn stefni að stríði. Brezka þingið kom saman til fundar í gær og flutti Attlee Framhald á 5. síðu. Falla hraðar en fyllist í skörðin? Marshall landvarnaráðherra Bandaríkjanna sagði liermála- nefnd fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings í gær, að brýna nauð syn bæri til að lækka herskyldu aldur niður í 18 ár úr 19 og lengja her skyldutímann úr 21 mánuði 27. Sagði í Marshall máli sínu til sönn- unar, að Mac- Arthur þyrfti 15.000 manns á mánuði hverjum í stað þeirra sem falla, særast, eru teknir til 'anga eða heltast á annan hátt úr lestinni. Því fer hinsvegar fjarri að æfingaherbúðirnar í Marshall Hvernig féll atkvæði Ýmsum lék forvitni á því í gær að vita, hvernig full- trúi fslands Thor Thors greiddi atkvæði á fundi stjórnmálanefndar SÞ í fyrra kvöld, hvort hann var í hópi þeirra, sem studdu indversku tillöguna um að fresta um- ræðum um bandarísku til- löguna um aðgerðir gegn Kína meðan frekari friðárum leitanir færu fram, hvort hann var í liópi hundtrygg- ustu Bandaríkjaleppanna, sem greiddu atkvæði á móti eða hvort hann sat máske hjá. Afstöðu hans var hvergi getið í fréttum í gær, en liað er ekki til of mikils mælzt að hlutaðeigandi yfir- völd láti íslendinga vita, hvað gert er í nafni þeirra á alþjóðavettvangi. Bandaríkjunum anni því að fylla í skörðin í Kóreu, að því kemur ekki fyrren í apríllok í vor að 15,000 nýliðar komi. úr þeim á mánuði. Eisenhower: Hitíersherinn «aklaus af stríðsglæpum! ■Eisenhower, hinn bandaríski A-bandalagshershöfð- ingi, kostar nú kapps um aö afsaka striösglæpi og villi- mennsku þýzka nazistahersins. Eisenhower var sem kunn- ugt er yfirmaður herja Vestur veldanna í Evrópu í síðasta stríði, en nú er gert ráð fyrir því að hann taki við stjórn þýzkra hersveita í A-bandalags. hernum. í gær var birt í Franxfurt yfirlýsing frá Eisenhower, en hann fór frá Vestur-Þýzkalandi í gær. Segir hershöfðinginn, að viðræðurnar þar liafi komið sér í skilning um að mikill mun ur sé á „þýzka atvinnuher- manninum og Hitler og glæpa- félögum hans. Eg álít að þýzki hermaöurinn hafi alls ekki fyr- irgert hermannsheiori sínum“, segir Eisenhower. Yfirlýsing Eisenhpwers er þannig til komin, að vestur- þýzk stjórnarvöld segjast ckki geta hafið þátttöku í A-banda lagsher fyrr en „heiður þýzka hermannsins sé hreinsaður" en það verði að gera með því að gefa upp sakir þeim stríðs- Framhald á 7. síðu. Stúdentafimdurinn um friðar- málin í gær verður eflaust eft- irminnilegur áheyrendum ekki sízt vegna hins afburðasnjaila. málflutnings Jóhannesar úr Köthun, en hin ágæta framsögu ræða lians verður birt í blað- inu á morgun. Fundinum lauk ekki fyrr en langt gengin eitt, þannig að engin tök eru á að skýra frá honum fyrr næsta blaði. cn VitZ, Eisenbowers! Hollenzka stjórnin vék Kruls hershöfðingja, forseta herráðs- ins, úr embætti í gær, og var borið við ósamkomulagi um landvarnarstefnuna milli lians og landvarnarráðherrans. Fréttaritarar segja liinsvegar, að brottrekstur Kruls sé gerð- ur til að blíðka Eisenhower, sem lét bandaríska sendiherr- ann í Haag skila því til holi- enzku stjórnarinnar eftir hcim- sókn sína þangað í fyrrí viku, að hann væri óánægður mcð á- stand hervæðingarinnar í Hol- landi. Karlmeyer hershöfðingi, staðgengiii Kruls, sagði af sér um leið og yfirboðari hans var reldnn. Sóslalisfar leggja fil á þingi Íslendingar beifi sér fyrir friði, sáft- um ©g afvopnun á alþjóðavetfvangi íslendingetr vi&irkeoni réft nýlenduþjóð- a fií Irelsis og sjáSfsfœSss —■ Alþýðu- stjórn Kína verði viðurkennd strax Tveir þingmenn sósíalista, þeir Einar Olgeirsson cg Finnbogi Rútur Valdimars- son hafa lagt fram á þingi eftirfarandi tillögu til þingsályktunar um afstööu ís- lands til friðar og sáttatilrauna á alþjóöavettvangí o. fl.: „Alþingi ályktar að íela ríkisstjórninni að láta fulltrúa sína á alþjóða- vettvanyi ætíð taka þá afstöðu í málum, er vænlegust væri til að efla frið og tryggja sættir milli helztu deiluaðilja og aðstoða eftir megni við að koma á banni á notkun kjarnorkuvopna, sýkla og annarra múgmorðstækja og að koma á allsherjarafvopnun. Ennfremur felur Alþingi ríkisstjórninni að taka þá afstöðu á alþjóða- vettvangi til frelsisbaráttu nýlenduþj óða, að viðurkenna rétt þeirra til frelsisis og sjálfstæðis. Alþingi leggur áherzlu á, að ríkisstjórnin viðurkenni alþýðasljórn Kína hið bráðasta." í greinargerð segir: „Þjóð vor á meira undir því en flestar aðrar þjóðir, að frið- ur fái haldizt í heiminum og að Allar líkur benda til þess, að minnsta kosti, að hindrað verði, ef nýtt heimsstríð yrði, þá að nýtt heimsstríð brjótist út Framhald á 7. súðu. milljónum króna í dýrmæt- um erlendum gjaldéyri hefur nú verið kastað á glæ með stöðvun bátaflotans frá ára-) mótum. Gæftir hafa sem kunnugtj cr verið með eindæmum góð- ar á þessum tíma og þeir láu bátar sem róið liafa, ailað príðisvel. Engu að síður hafa einokunarherrarn- ir sem ráða yfir gjaldeyrin- um komið í vcg fyrir rð úl- gerð hæfist með ]>ví að n úla að slaka nokkuð á forréftind um sínum. Þeir virðast held- ur kjósa að einskis gjaldeyr- is sé aflað en að þeir fái hann ekki allan.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.