Þjóðviljinn - 14.02.1951, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 14.02.1951, Qupperneq 3
Æiðvikudagur. 14. februar 1951. PJÖSVIL JI N N FES i Tvær yflrlplngar o i. Æskulýðsfylkingin sendi ýms um æskulýðsfélögum í Reykja- vík boð um þátttöku í hinu fyr- irhugaða Berlínarmóti Alþjóða- sambands lýðræðissinnaðrar æsku í sumar og hafa nú bor- izt svör frá flestum þeirra, og eru þau ýmist jákvæð eða neikvæð eins og við var búizt. Eitt svarið er þó skilorðsbund- ið (!), og er það frá Sambandi ungra jafnaðarmanna. Vilja ungir jafnaðarmenn ólmir taka þátt í Berlínarmótinu, ef Æsku lýðsfylkingin geri hvorttveggja að gefa um það yfirlýsingu í Þjóðviljanum og beiti sér fyrir þvi á Berlinarmótinu að „vopn- aðri árás eða styrjöld sé mót- mælt, hvort sem hún er gerð i þágu kommunismans eða kapi- talismans“ og að „innrás Norð- ur-'Kóreumanna inn í Suður- Kóreu sé mótmælt sem ofbeldi cg yfirgangi, sem stofni heims- friðnum í hættu“. Bæði þessi skilyrði bera ljós- an vott um vitsmunastig þeirra manna, er hafa forustu á hendi fyrir Samband ungra jafnaðar- manna (Vilhelm Ingimundar- ©on' skrifar undir brcfið), en það skal þó gert þeim til þægð- ar í þetta skipti að víkja með örfáum orðum að þessum skil- yrðum, þótt vita.o sé, að for- ustumenn ungra jafnaðarmanna séu rökheldir með öllu. KI. Um fyrra skilyrðið, að mót- mæla vopnaðri árás eða styrj- öld, er það að segja — ef orða- lagið er rétt skilið — að ungir sósialistar hér á landi sem ann ars staðar fordæma árásarstyrj aldir og álíta, að hægt sé og nauðsynlegt só, að leysa öll á- greiningsmál þjóða i milli án vopnaviðskipta. Ungum sósíal- istum er engin launung á þess- ari skooun sinni. Friðarmót heimsæskunnar i Berlín í sum- ar er einmitt haldið i þeim til- gangi að sýna öllum heiminum, að æska. heimsins vill frið um- fram allt og telur styrjöld ekki óumflýjanlega. Ef ungir jafn- aðarmenn á íslandi vildu sýna það, að þeim væri í sannleika umhugað um, að ágreiningsmál „Austurs" og „Vesturs" væru leyst á friðsamlegum grund- velli og mannkyninu þannig forðað frá hörmungum þriðju heimsstyrjaldarinnar, gætu þeir óhikað fylkt sér í raðir lýð- ræðissinnaðrar æsku heimsins í Berlín og tekið undir þá kröfu, að stórveldin leystu ágreinings- mál sín á friðsamlegan hátt. Sé Berlínarmótið Mjög áríöandi er, að allir, sem hafa hug á aö taka þátt í Berlínarmótinu, sendi tilkynningu um . þátttöku sína hiö allra fyrsta. Skriflegar þátttöku- tilkynningar skulu sendast til Inga R Helgasonar Hverfisgötu 100 b. Þeir, sem áöur hafa talaö um aö þeir mundu taka þátt í mótinu og orðaö þaö viö sambandsstjórnarmeölimi, veröa aö endurnýja til- kynningar sínar. Mótiö fer fram í ágúst í sumar, og lauslega áætlaö mun heildarkostnaöurinn ekki fara mikiö fram úr 3000.00 krónum íslenzkum. Efnt veröur til þýzkunámskeiös fyrir þá, sem þaö vilja, og eru menn beönir aö segja til um það atriöi um ieið' og þeir senda þátttökutilkynningar síhar. Æskulýðsfylkingin ásamt ýrnsum öðrum æsku- lýðsfélögum mun opinberlega taka þátt í mótinu, en vegna fjölda fyrirspurna skal þaö tekiö fram að sem gestir á mótið án opinberrar þátttöku getur allt ungt fólk á íslandi komið, sem vill vinna að varðveizlu heimsfriöarins. Aldurshámark er 35 ár. Sérstakur feröasjóður hefur veriö stofnaöur og velunnarar Æskulýðsfylkingarinnar og áluigaménn um Berlínarmótið géta lagt í sjóöinn bæði fé cg frí- merki, sem veitt veröur mótttöku í skrifstofu ÆF að Þórsgötu 1. Útvarpað er reglulega frá Praha fréttum af þátt- töku æskulýJsfélaga um allan heirn og skýrt. frá undirbúningi mótsins svo ssm liér segir (Green- wich-tími): Mánudaga (enska) . . Mánudaga (norska) .. Mánudaga (sænska) .. Þriöjudaga (enska) .. Þriöjudaga (enska) .. 31 57 metrar 31.57 metfar 49.92 metrar 31 41 metrar 25.34 metrar ,kl. 19.15 kl/20 45 kl. 20.45 kl. 24.00 kl. 00.20 SENBIÐ ÞÁTTTÖKUTILKYNNINGAR SEM FYRST hins vegar orðalag Vilhelms Ingimundarsonar „vopnuð á- rás eða styrjöld“ skilið á þann veg, að hann eigi við borgara- styrjaldir (báða aðilana þar), frelsisstríð eða vopnaðar upp- reisnir kúgaðra stétta eða þjóða, þá hefur hann farið í geitarhús að leita ullar, ef hann ætlast til, að ur.gir sósíalista fordæmi í eitt skipti fyrir öll slík átök, því að það mundi einfaldlega leiða það af sér, að við fordæmdum t.d. frönsku stjórnarbyltinguna, rússnesku öreigabyltinguna, fordæmdum hina. hugrökku spænsku alþýðu fyrir að taká upp vopn gegn Franco, Búa fyrir að taka upp vopn gegn Bretum og baráttu Indonesa gegn Hallendingum, fordæmdum, sjálft frélsisstríð ■Bandaríkjanna og. fordæmdum Abraham Lincoln sem argan of- beldissegg fyrir að grípa til vopna til að binda endi á þræla- hald í Ameríku o. s. frv. o. s. frv„ hvað við sannarlega ger- um ekki. m. Um hitt skilyrðið, að mót- mæla innrás Norður-Kóreu- manna inn í Suður-Kóreu sem ofbeldi og yfirgangi, gegnir allt öðru máli. Innrás Norður-kóreu manna í Suður-Kóreu sem upp- haf vopnaviðskiptanna í Kóreu er ekki staðreynd heldur áróð- urslygar bandaríska auðvalds- ins, sem ungir jafnaðarmenn illu heilli hafa gleypt við, en við byggjum ekki yfirlýsingar okikar á fölskum forsendum. Eitt af gjallarhornum ame- rískra stríðsæsingamanna og hérlendra. hervæðingarsinna, AI þýðublaðið, hefur að visu hald- ið því fram dag eftir dag, að Kóreustyrjöldin hafi byrjað með ,,innrás“ Norður-Kóreu- manna í Suður-Kóreu, og ungir jafnaðarmenn hafa að sjálf- sögðu lagt trúnað á það, en lyg- in hefur aðeins áhrif, meðan menn halda að hún sé sann- leikiir, og hinir ungu jafnaðar- menn á íslandi munu áður en iýkur komast að því, að „innrás Norður-Kóreumanna“ er ámóta vel undirbúin auðvaldslýgi og þýzki þinghúsbruninn, sem kommúnistum var kennt um, og á að þéna eins vcl i baráttunm gegn kommúnismíuum og þing- húsbruninn gerði. Þetta ættu ungir jafnaðarmenn að geta séð nú þegar af framferði Banda- ríkjamanna í Asíumálunum, ef Framhald á 6 síðu Æskan verður að vera samtaka um byggingu Æskulýðshallar Sýnum samlakamált okkar, með því að gera árangurmn aí kappdrætti B/£R glæsilegan Bandalag æskulýðsíélaganna í Reykjavík heíur nú staríað í rösk þrjú ár, og hefur það unnið markvist að því að koma upp Æskulýðs- höll. Eitt af því, sem stendur í vegi fyrir fram- kvæmdum, er vöntun á fé til byggingarinnar. BÆR hefur nú farið af stað með happdrætti til styrktar þessu þjóðþrifamáli — að koma upp menningarheimili fyrir reykvíska æsku, heim- ili, sem er trygging fyrir heilbrigðu skemmt- analífi meðal æskunnar. — Aldrei hefur nauð- syn á Æskulýðshöll verið eins brýn og nú, þeg- ar allur fjöldi æsk.ufólks á ekki annars úrkost- ar, en að skemmta sér í hinum andstyggilegu brennivínssamkomuhúsum, þar sem það eitt er látið sitja í fyrirrúmi að græða sem mest og vinna að því beint og óbeint að gera æskuna ofurselda spillingu hinnar svokölluðu brenni- víns-,,drykkjumenningar''. — Nú ríður á, að æska Reykjavíkur sýni vilja sinn í þessu máli og taki öflugan þátt í sölu happdrættismiða BÆR. Hverjum einasta æskumanni ber skylda til að vinna að sölu happdrættismiðanna og á þann veg leggja fram krafta sína til að flýta fyrir því að hafizt verði handa um. byggingu Æskulýðshallar í Reykjavík. — Sérstaklega skorar Æskulýðssíðan á meðlimi ÆFR að vinna ötullega að sölunni — Æskulýðshallarmálið er eitt aí þeim málum, sem Æskulýðsíylkingin hefur haft efst á stefnuskrá sinni og meðlimir hennar ávallt sýnt mikinn áhuga íyrir íram- gangi málsins. — Nú eru aðeins örfáir dagar þar til dregið verður. — Vinnum öll sem eitt að því að koma upp Æskulýðshöll í Reykjavík. Verum samtaka um að gera árangurinn aí sölu happdrættismiðanna sem glæsilegastan og sýn- um með því vilja okkar í verki. Malgagn Æskulýðsfylk- ingarinnar — sambands ungra sósíalista RITSTJÖRAR: Guðlaugur E. Jónsson Halldór B. Stefánsson Sig Guðgeirsson (áb.) ALÞJÖÐfiSAMBAND LÍÐRÆÐISSINNAÐRAR ÆSKN, Stofnskrá 4. kafli — Starfsemi Tilgangi sínuna hyggst sambandið ná með eftirfarandi starfsi semi: a) Að rannsaka allar þarfir æskunnar, og að leita opinbersi stuðnings til að leysa vandaniál hennar. Ennfremur, að hag- nýta sér í þessum tilgangi, blöð, útvarp, fjöldafundi, útgáfu- starfsemi o. s. frv. b) Að annast fréttaþjónustu, til að halda eins nánu sam- bandi og mögulegt er milli æskulýðssamtakanna í hinumi ýmsu löndum. c) Að efna til alþjóðlegra æskulýðsráðstefna, til að ræða vanda mál utfgá fólksins, og að ;gera þær ráðstafanir, sem nauð- synlegar kunna að reynast til að koina- ákvcii'ðumim slíkrá r^ðstefna í framkvæmd, í samræmi við stofnskrána. d) Að halda uppi miðstöð fyrir bréfaskipti milli æskulýðs- samtaka og ungs fólks úr öllum löndum. e) Að skipuleggja skipti æskufólks milli allra landa með skemmtiferða-áætlunum, einkaheimboðum o. s. frv., og stuðla að stúdentaskiptum *g skiptum á vinnandi æskufólkil o. s. frv. f) Að halda eins nánu sambandi og mögulegt er við samtök: Sameinuðu þjóðanna — sérstaklega við Uppeldis-, Vís- inda- og Menningarstofnanir Sameinuðu þjóðanna og við Þjóðfélags- og Efnahagsráðin. . g) Að halda eins nánu sambandi og mögulegt er við Alþjóða- samband verkalýðsfólaganna, og að meta mikilvægi sam- vinnunnar við vérkalýðshreyfinguna. Sambandið mælir með því við allt ungt fólk, að það gangi í sín stéttarsamtöki og gerist þar virkir meðlimir. Framhald á næstu æskulýðssíðui.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.