Þjóðviljinn - 14.02.1951, Qupperneq 4
4.
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 14. febrúar 1951,
Smóðviljikn
C’tgeíandi: riameiningarflokkur alþyöu — Sósíaiistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, augiýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
18. — Sími 7500 (þrjár línur).
Askriftarverð: 15.00 á mánuði — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
NR. 36.
; Eyisliistdna Framséknar
Tíminn birtir í gær gamalkunnan lsið'ara sem endur-
tekinn hefur veriö um margra ára skeiö, þótt ritstjórnin
haíi af skiljanlegTj blygðunarsemi kynokaö sér viö aö
birta hann alllengi undanfarið. LeiÖari þessi fjallar um
,.eyöslu“ nýsköpunarstjórnarinnar sem sé undirstaða
þess volæðis sem nú mótar efnahagslíf þjóöarinnar.
Eins og jafnvel sauötryggustu Framsóknarmenn eru
farnir aö gera sér ljóst er sannleikurinn hins vegar sá aö
„eyösla“ nýsköpunarstjórnarinnar er mesti sparnaöur
sem framkvæmur hefur verið aí nokkurri íslenzkri ríkis-
stjórn. Meginhlutinn af gjaldeyriseignum þjóð'arinnar var
notaöur til þess aó kaupa framleiöslutæki, þau frarn-
leiöclutæki sem nú eru undirstaöa íslenzks atvinnulífs.
Framlsiöslutæki þessi voru keypt meöan verö þeirra á
heimsmarkaönum var miklum mun lægra en nú (þótt
Framsóknarspekingarnir héldu því fram aö þaö hlyti að
lækka stórlega) en mun meiri sparnaöur er þó hitt aö
meö þessari stefnu voru þjóðinni tryggöir möguleikar til
aö hagnýta auðlindir sínar í margfalt ríkara mæli en
nokkru sinni fyrr, möguleikar til fullrar atvinnu og
góöra lífskjara.
Framsóknarflokkurinn lagöist sem kunnugt er af al-
efli gegn þessum framkvæmdmn. Einn helzti forsprakki
hans lagöi opinbérlega til að- gjaldeyriseignir þjóöarinnar
yröu lánaöar einhverju erlendu ríki með lágum vöxtum
en vextirnir einir notaöir til kaupa á í'ramleiðslutækjum.
Samsvarar þaö því aö hægt hefði veriö að kaupa hálfan
nýsköpunartogara á ári miöaö viö þágildandi verölag.
MrÖ bví móti heföu íslendingar nú átt hálfan þriöja
nýsköpunartogara cg engin önnur ný, stórvirk fram-
leiöslutæki!
Það þarí' vissulega ekki að eyða orðum að því hvern
ig atvinnuástandið og líí'skjörin væru á íslandi í dag ef
stefna Framsóknarflokksins hefði verið ráðandi og gömlu
togararnir væru helzta driffjöður atvinnulífsins!
Eflaust telur Tíminn þaö til ,,eyðslu“ aö á tímum ný-
sköpunarstjórnarinnar voru allar búöir fullar af vörum
og ahnenningur bjó við hærri kauogetu en dæmi eru til
í annan tíma hér á landi Þá gat fólk látiö eftir sér þann
muftaö aö boröa góöan mat, eignast húsmuni og birgja
sig upp af fötum. Munu flestir íclendingar búa aö því
enn þann dag í dag, eftir fjögurra ára eymdarstjórn
Framsóknarflokksins. Þetta verður ekki talin eyðslæ
þvert á móti varð þetta þjóðinni ómetanleg kennsla um
það viö hver lífskjör væri hægt að búa á íslandi ef sæmi-
Iega væri stjórnað.
Hitt skal þó fúslega viöurkennt aö margt fór í súg-
inn á þessum árurn, ekki sízt vegna þess aö auömanna-
stéttin gat rakað til sín gróða í skjóli flokks síns. En þaö
getur ekki veriö’ þessi eyðsla sem Tíminn á viö, því hún
hefur magnazt og oröiö æ andstyggilegri í valdatíð
Framcóknannanna, þótt bundinn hafi veriö endi á ný-
sköpunina og lífskjör almennings skert stórlega mánuö
frá mánuöi.
En í þokkabót hafa Framsóknarforkólfarnir msö
markvissu starfi komiö á þeirri glæpsamlegustu eyöslu
sem mögufeg er í nokkru þjóðfélagi. Sú eyösla er hiö
skipulagöa atvinnuleysi. Vinnuaflið er dýrmætasta eign
hvers þjóöfélags cg undirstaöa allra athafna er aö vinnu-
afliö sé hagnýtt til hlítar, að engin hönd sé iöjulaus. Á
nýsköpunarárunum var þessi grundvallarregia í fullum
heiðri, þá var barizt um vinnuafliö. Nú búa hins vegar
þúsundir manna um land allt viö kjör atvinnuleysisins
og sú eyðslá veröur aldrei bætt.
Stefna Framsóknarflokksins er stefna sóunar og
gegndarlausrar eyöslu, auölindirnar eru ekki hagnýttar,
framleiöslutækin eru stöövuö og vinnuafliö’ er látiö ónot-
að í æ ríkara mæli. í staöinn er þjóöinni svo sökkt í fen
botnlausra skulda og fé,,gjaía“.
Ferskeytlan í
útvarpinu.
Hávaxr skrifar:— „Það varð
mér ánægja, sem gömlum unn-
anda ferslceytlunnar, að hlusta
á þáttinn „Sitt af hverju tagi“
núna seinast. Ekki vil ég þó
segja, að allur kveðskapur þar
hafi verið góður, og reyndar
flestir vísubotnanrir fremur ó-
m’erkilegir. En þó fannst mér,
að þarna sæi sönnun þess, að,
ekki sé eins mikil ástæða og
sumir halda, að óttast um brag-
eyra þjóðarinnar. Því að ég
heyrði ekki betur en að allir vísu
botnarnir, undantekningarlaust,
væru rétt kveðnir. — Hinir
bölssýnu segja, að skilningurinn
á ferskeytlunni sé alveg að
deyja út hjá þjóðinni. En þessi
vísnasamkeppni bar alls ekki
vott um að svo væri. Og tókuð
þið eftir því, að það virtist helzt
vera ungt fólk sem tóx þátt í
henni, —- já, jafnvel mest ung-
ar stúlkur! — Hávarr.“
Léleg þýðing
á blaði.
M. E. skrifar: „Það er mánu-
dagur, og að morgni mánudag-
anna kemur ekki út annað blað
en Mánudagsblaðið. í dag flyt-
ur það grein um diskana fljúg-
andi. — Það er skemmst af að
segja að aðra eins þýðingu og
þessa hef ég naumast séð, og
erum við þó ýmsu vanir Re.vk-
víkingar. Að vísu virðist grein-
in ekki hafa verið neitt meist-
araverk, og hefur það orðið
þýðandanum drjúg aðstoð til að
gera úr henni það viðundur sem
hún er.
Hva-s eieriim v'ð
að “ >'>i<la ?
„Fyrir á að gizka 20 árum
kom ungt og lítt þekkt skáld
með lítið ljóð til ritstjóra eins
hér í bænum. Ritstjórinn las!
kvæðið, ávarpaði hið unga
skáld föðurlega og vinsamlega
og kvaðst unna honum alls góðs
en sagði vera takmörk fyrir
því livað hægt væri að birta,
og að kvæði þetta væri því mið
ur ekki prenthæft. — Margt
hefur skipazt á þessum 20 ár-
um, og virðast nú vera komnir
að blöðum hér í Reykjavík rit-
stjórar, sem sinna ekki þessari
sjálfsögðu skyldu, að hafna
því sem ekki er prenthæft.
Hvers eigum við að gjalda
Reykvíkingar, bókelskir, les-
vanir menn, að heim til okk-
ar skuli á morgnana vera bor-
ið lesmál, sem ekki er boðlegt
hundum? Þegar við dveljumst
erlendis, er það tilhlökkunar-
efni að sjá hin nýprentuðu
blöð, og þá sjáum við betur cn
áður, Jive langt er frá því að
íslenzkur blaðakostur sé boð-
legur mönnum.
þangað* aftur. En sc þcim
stjórnað af viti bornum verum,
slíkum sem vér crum, eða jafn-
vel ólíkum oss: íbúum annarra
hnatta, vildi ég leggja til að
samin yrði áskorun um að þess
ar verur vildu láta svo lítið að
lenda og tala við okkur og segja
okkur af högum sínum. Það er
bending um heldur óvinsamlegt
hugarfar ef þeir geta þetta
ekki. — M. E.“
Útvarpið og sýpingin
í Osló.
Maður nokkur hrijrígdi í gær-
morgun og ;kvað það ekki allt
rétt sem hér segði um fréttir
af listsýningunni í Osló. Til
dæmis væri ósatt, að útvarpið
hefði látið hjá líða að flytja
fróttir af sýningunni, það hefði
þvert á móti haft liálfrar
klukkustundar þátt frá opnun
hennar. Mun þetta rétt vera.
FramhaJp 4 6. síðu.
* ★ *
Ættu að lenda
og tala við okkur.
„Diskarnir fljúgandi eru
annars hin skemmtilegasta ráð-
gáta. Sumir gizka á að þeir
ikomi utan úr geimnum og hverfi
Næturlaikniv er í
stofunni, sími 5030.
Lárétt: 1 partur — 4 tveir fyrstu
5 kall — 7 aukið —- 9 tal — 10
án — 11 matarílát — 13 næöi — 15
rollur :— 16 löpp,
Lóðrétt: 1 tveir eins — 2 verkur
3 kyrrð — 4 útlimur *— 6 árar — 7
væla — 8 sama og 2 lóðrétt — 12
sorg — 14 bjó til dúk 15 óður.
Lausn á nr. 35.
Lárétt: 1 kalin — 4 úr — 5 RR
7 kná — 0 nár — 10 liS — 11 ál!
13 rá — 15 'án — 16 sátur.
Lóðrétt: 1 kr. - 2 lán 3 ru’. —4
úfnar — 6 ræðin — 7 krá —? 8
áll — 12 lét — 14 ás — 15 ár.
lsfisksalan
Tveir íslenzkir togarár seldu
afla sinn í Hull í gær. Ingólfur
Arnarson seldi 3875 kit fyrir 10730
pund og Akurey seldi 3896 kit fyr-
ir 10249 pund.
Ríkisskip
Hekla var væntanleg til Reykja-
víkur seint í gærkvöld eða nótt,
að vestan og norðan. Esja verður
væntanlega á Akureýri í dag.
Herðubreið fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Breiðafjarðar- og
Vestfjarðahaffia. Skjaldbreið er i
Reykjavik. Þyrill er væntanlegur
til Reykjavíkur í dag að vestan
og norðan. Ármann fór frá Reykja
vík í gærkvöld til Vestmannaeyja.
Oddur var á Akureyri síðdegis í
gær.
Eimskip
Brúarfoss kom til Roykjavíkui'
12. þ. m. frá Hull. Dettifoss er á
Ólafsvík; lestar á Breiðafjarðar-
og Vestfjarðahöfnum. Fjallfoss er
'i Prederikstad; fer þaðan til
Kristiansand. Goðafoss fór frá
New York 7. þ. m. til Reykjavík-
ur. Lagarfoss fór frá Hull 12.
þ. m. til Bremerhaven og Ham-
borgar.. Selfoss fór frá Hamborg
30. þ. m. til Antwerpen; fer þaðan
til Austfjarða, Norðurlandsins og
Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá
New York 11. þ. m. til Reykja-
víkur. Audumla er í Hull; fermir
vörur til Reykjavikur. Foldin
fermir vörur í Rotterdam til
Reykjavíkur.
S. I. laugardag
voru gefin sam-
an í hjónaband
af. sr. Bjarna
Jónssyni ungfrú
Erla Sigurðár-
dóttir, Norðurstíg 5 og Gissur
Guðmundsson vélstjóri. — Heimil
brúðhjónanna verður að Melhaga 9.
— 1 gær voru gefin saman í hjóna-
band af sr. Emil Björnssyni,
ungfrú Jórunn Erla Bjarnadóttii’
og Hörður Valdimai'sson, iögreglu-
þjónn. Heimili þeirra Verðui' að
Háaleitisveg 38.
læknavarð-
Húnvetningalélagið
heldur skemmtisamkomu í Tjarn
arcafé á morgun. Spiluð verður
framsóknai'víst, erindi flutt og
dansað. Skommtunin hefst kl. 8.30.
Næturvörður er. í iæknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Vantar vitni. I fyrradag varð all-
harður árekstur á Bókhlöðustíg
milli bifreiðanna R-5594, sem er
yfirbyggð herbifreið og' strætis-
vagnsins R-5110. Lenti herbif-
reiðin á hlið strætisvagnsins og
braut 5 rúður, en ekki er vitað
að farþegar hafi meiðzt v:ið á-
reksturinn. Rannsóknariögregian
vill biðja þá sem voru farþegar í
strætisvagninum þegar þetta slceði
svo og aðra sem voru sjónarvott-
ar að þessum atburði, að gefa sig
fram við hana hið' fyrsta.
Manntal á Isiandi
1816, 1. og 2. hefti,
er komið út á veg-
um Ættfræðingafé
lagsins. — Fyrsta
heftið . nær yfir
Múlasýslur og Skaftafellssýslur,
en 2. hefti nær yfir vestasta hluta
Vestur-Skaftafellssýslu, Rangár-
vallasýslu alla og austurhluta.
Árnessýslu. Hvort hefti er 10 ark-
ir að stærð.
fundur í dag á venjuleg-
A»1fÍ0. um staS kl 5.30,
Flugfélag Islands:
Iiinanlandsflug:
1 dag er ráðgert að
fljúga til Akureyr-
ar, Vestmannaeyja,
og Heílisands. Á mórgun eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyrar,
Vestmannaeyja og Sauðárkróks.
— Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur um
kl. 18.00 í dag frá Prestvík og
Kaupmannahöfn. — Loftleiðir h.f.
í dag er áætlað að fljúga til Vest-
mannaeyja, Isafjarðai', Akureyrar,
Patreksfjarðar og Hólmavikur. Á
morgun er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Fastir liðir eins og
venjulega. — Kl.
18.15 Framburðar-
kennsia i ensku. i-
18.30 Islehzkuk; II.
fl. 19.00 Þýzkuk.;
I. fl. 19.25 Þingfréttir. Tónleikar.
20.30 Kvöldvaka: a) Ólafur Þor-
valdsson þingvörður flytur erindi:
Frá Krýsuvik. b) Tvísöngur (plöt-
ur): 1) Pétur Jónsson og Árni
Jónsson frá Múla syngja lög eft-
ir Krussell við texta úr Friðþjófs-
sögu. 2) Þorsteinn Hannesson og'
Guðmundur Jónsson syngja iög'
eftir Jón Laxdal við lcvæðabálk-
inn „Gunnar á Hlíðarenda" eftir
Guðmund Guðmundsson. c) Vigfús
Guðmundsson flytur ferðaþátt:
Frá Suðui'-Itálíu. d) Friðjón Ste-
fánsson les frumsamda smásögu:
,,Ekki veizt þú, Ella?" 22.10 Passíu
sáimur nr. 21>22.C0 Danslög (plöt-
ur) til 22.45.
Laugarneskirkja.
Föstumessa í kvöld
kl. 8.30. Sr. Gat'ð-
ar Svavarsson. —
Frilúrkjan. Föstu-
messa í kvöld'kl.
8.15. — Sr. Þorsteinn Björnsson.