Þjóðviljinn - 07.04.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.04.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILIINN — Laugardagur 7. apríl 1951 ÞJÓÐVILJINN Útg-efandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason. Áuglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur). Askriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Árás sem mistekst Fordæming sú og fyrirlitning sem Bjarni Ben. og aSrir hlutaSeigendur að fangelsunum Björns Jónssonar og Þóris Daníelssonar hafa hlotið fyrir tiltæki sitt er farin að svíða þeim allsárt, ef dæma má eftir því mikla kappi sem þeir leggja á afsakanir í öllum blöðum þrí- fiokkanna, að viðbættum skætingi í garð þeirra manna sem ofsóknirnar bitna fyrst á. í gær var meira að segja sóttur ritstjóri Alþýðuflokksins á Akureyri til að skrifa heilsíðugrein í Alþýðublaðið um málið. Það er prýðileg lýsing á innræti Braga Sigurjónssonar að hann skuli fagna því að forsvarsmenn verkalýðsins á Akureyri séu langelsaðir, enda mun hann ósjaldan hafa sviðið undan hvössum ádeilugreinum kollega síns við Verkamanninn. Stefáni Péturssyni var lika kátt þegar ritstjórn Þjóð- viljans var fangelsuð á stríðsárunum. Fyrirlitning Reyk- víkinga á slíku innræti reyndist honum þungbær — og ekki munu Akureyringar fremur kunna að meta þennan sama smáskítlega hugsunarhátt hjá Braga Sigurjónssyni. Hvernig sem blöð þríflokkanna reyna að afsaka Bjarna Ben. verður því ekki haggað að hér er um hefnd- arráðstafanir að ræða gegn forystumönnum verkfall- anna 1947 og blöðum Sósíalistaflokksins. Bæjarfógetinn á Akureyri hefur gefið Bjarna Ben. siðferðisvottorð í málinu og lýst á hendur sér allri sök af framkvæmd þessara gömlu dóma. En varla á bæjarfógetinn á Akur- eyri upptök að því að um sama leyti og farið var að lramkvæma dómana norður þar, var ritstjóra Þjóðviljans tilkynnt að til stæði að fara að framkvæma dóma, þar á meöal persónulega meiðyrðadóma, vegna skriía í Þjóð- viljanum frá undanförnum árum. Nú er það á allra vit- orði að slíkum dómum hefur ekki veriö fram fylgt ára- tugum saman, og getur engin önnur ástæða verið til þess en sú, að dómar þessir hafa enga stoð í réttarvitund þjóðarinnar. Sú breyting sem nú virðist snögglega verða á afstööu ríkisvaldsins er augljóslega fyrirskipuð af æðstu stöðum, enginn efi leikur á að hér er Bjarni Ben. að þjóna lund sinni. Þetta er skiljanlegt með Bjarna Ben. En það er ótrú- legur skepnuskapur af ritstjórum Reykjavíkurblaðanna að hælast um fangelsun ritstjóra Verkamannsins, það er einstakur kvikindisháttur af Valtý Stefánssyni eða Sig urði Bjarnasyni að birta leiðara til að fagna framkvæmd dóms gegn kollega þeirra og afsaka hana með því að hér sé réttvísin að hegna fyrir ,,sóðaleg“ skrif! Þessir menn vita vel, að hægt er að fá ábyrgðarmann Morg- unblaðsins dæmdan fyrir meiöyrði nær daglega. Og þeir hafa sjálfir átt hlut að sarpþykkt Blaöamannafélags ís- lands um fordæmingu á þeim ákvæðum hegningaiiag- anna sem blaðaritstjórar verða helzt fyrir. Blaðamenn af' öllum stjórnmálaflokkum hafa einum rómi stimplað þau ákvæði sem skerðingu á prentfrelsi í landinu. Meira að segja tók annar ritstjóri Morgunblaðsins að sér fyr- ir nokkrum árum að færa þessi mótmæli Blaðamanna- félags íslands í búning ákveðinna lagabreytingatillagna, enda þótt ekki tækist að tryggja þehn framgang á Al- þingi. Árásir ritstjóra aftuvhaldsins í Reykjavík og Akur- eyri á Þóri Daníelsson, sem mótmælir því aö dómsmála- ráðherra ætlar að fara aö nota sér- óverjandi dóma til ofsóknar gegn blöðum ákveðins stjórnmálaflokks, mót- mælir því á þann áhrifamesta hátt sem hægt er, munu ckki verða þeim til sóma i sögu íslenzkrar blaöamennsku Þeir hefðu gott af því að hugleiöa, ritstjórarnir sem hæl- ast um fangelsun Þóris Daníelssonar, hvort muni holl- ara orðstír manns, drengileg og kjarkmikil framkoma Á.rna frá Múla er ritstjórn Þjóöviljans var fangelsuð á stríösárunum, eða flaörandi vesalmennskan hjá Stefáni P. og Þórarni Þórarinssyni við það tækifæri. Einkum hefðu ritstjórar Morgunblaðsins þörf fyrir slíka hug- leiðingu áður en þeir skrifa næstu skætingsgrein um jhinn norðlenzka starfsbróður sinn. Leikföng til íslendinga, leikföng til Banda- ríkjamanna. Kristín skrifar: ,,Kæri Bæj- arpóstur! — Já, enn er nú kerlingin komin með sitt rex! Að þessu sinni þarf ég eigin- lega að ávíta sjálfan þig ofur- lítið. Þú birtir bréf frá ein- hverjum lesanda þínum, þar sem bann segir frá því að lítil telpa — mig grunar, að hún sé dóttir hans — hafi fengið leik- föng (brúðu?) frá henni ömmu sinni gömlu, sem dvelur í út- löndum, verðmæt.i sendingarinn- ar hafi verið um 40 kr., en af henni hafi verið teki'ð í tolla og gjöld samtals 38,50 krónur! Þú ert sjálfsagt hneykslaður á svona smásmuguhætti yfir- valdanna, eins og fleiri, En þú minnist ekki einu orði á ákveð- ið airiði, sem í þessu sambandi skiptir miklu máli, og ég á hér við leikfangainnflutning þeirra bandarísku þarna á Keflavfk- urflugvellinum. n Einstæð yfirlýsing tnllþjóns „Ég þykist muna það rétt, að ýms málgögn, nákomin stjórnarvöldum, hafi látið það heita gott og blessáð, að Banda ríkjamenn flyttu hingað inn leikföng eins dg þeim sýnist, án þess að borga eyri í toll af þeim eða önnur gjöld; enda má kannske segja, að margs sé fyrr þörf í virðingu þeirra fyrir íslenzkum lögum, heldur en þess, að þeir flytji leikföng inn á heiðarlegan hátt. I einu blaði gekk þetta jafnvel svo langt, að sjálfur tollþjónninn, eftirlitsmaður íslenzkra laga og réttar þar suður frá, sór og sárt við lagði, áð hann hefði alls ekkert skipt sér af máiinu, hann væri alveg saklaus að því að hafa sýnt herraþjóðinni þá móðgun að ætlast til þess, að hún virti lög undirþjóðarinnar! Mun það sjálfsagt einsdæmi í öllum heiminum, að opinber embættisma.ður hlaupi þannig í blöð til áð lýsa því yfir, að hann sé sekur um vanrækslu í embæi.tisrekstri sínum; hvað þá heldur hitt, að yfirvö!d laga og réttar loki alveg augunum fyrir slíku. n Herraþjóðin átti í hlut „En hvað skal segja? Þarna átti herraþjóðin í hlut, og hvernig ættu íslenzk dómsyf- irvöld, með Bjarna Benedikts- son í toppinum, að geta leyft sér annað en að taka yfir- troðslum hennar með auðmýkt, bukki og beygingum, þrælsótta og ræfildómi ? Á meðan geta þau svo svalað framkvæmda- þrá sinni með því að þjarma að löndum sínum, eins og litlu telpunni, sem Bæjarpósturinn sagði frá. Það hefði ekki þurft að borgá mikið í toll af brúð- unni hennar, ef hún hefði ver- ið dóttir einhvers Bandaríkja- mannsins á Keflavíkurflugvelli. En hún er íslen/.k telpa, dóttir íslendings, og á auk þess senni- lega íslenzka ömmu, og þess- vegna varð að greiða í tolla og gjöld af brúðunni hennar næst- um sömu upphæð og greidd var fyrir hana í búðinni, að öðrum kosti hefði hún aldrei fengið að taka hana í fangið. — Kristín“. □ „Listamenn í áróð- ursheimsókn“ „Gráskeggur" skrifar: „Kæri Bæjarpóstur. — Þetta er í fyrsta sinni sem ég skrifa þér línu, og kannske líka í síðasta. — Eftir að ég var búinn að lesa grein á 4. bls. í Alþýðu- blaðinu þriðjudaginn 3. apríl er nefndist „Listamenn í áróð- ursheimsókn“, gat ég ekki set- ið á mér með að skrifa þér nokkrar línur til að. láta óá- nægju mína í ljós út af þeim illkvitnislegu og mjög svo ó- sanngjörnu skrifum. Ég ætla að öðru leyti ekki að eyða orð- um að þeim blaðaskrifum, enda voru það tilgangslaus og ónýt orð, sem þar voru framborin. Rússnesku listamennimir, sem hér h#fa dvalið stuttan tíma á vegum MÍR, hafa áreiðanlega flutt meiri gleði og frið í hjörtu margra þúsunda Islendinga en sumir aðrir gistivinir, sem hér hafa dvalið. Mætti í þvi sam- bandi nefna heimsókn banda- ríska hershöfðingjans Eisen- howers, sem kom hér við á dög- unum, í fullum herskrúða með þrumugný vestrænna fallbyssu- kjafta að undirspili. — Má það furðu gegna hvað þeir menn, sem kenna sig við alþýðu þessa lands, geta lagt sig lágt við allskonar áróður og blekking- ingar. Vonandi væri, að í fram- tíðinni mættu fleiri menningar- fulltrúar sem hinir rússnesku listamenn heimsækja ]and vort. Með þökk fyrir birtinguna. — Gráskeggur". EIMSKJP: Brúarfoss er á Vestfjörðum. Dettifoss fór frá Rvik í gærkvöld til ltalíu og Pálestínu. Fjallfoss fer frá Kaupmannahöfn í dag til Leith og Rvikur. Goðafoss er í Rvík. Lagarfoss fer frá N.Y. 10.4. til Reykjavíkur. Selfoss fór frá Leith 4.4. til Hamborgar, Ant verpen og Gautaborgar. Trölla- foss kom til Rvíkur í gær frá N.Y. og Baltimore. Dux fór frá Kaupmannahöfn 3.4. til Rvikur. Skagen er í Reykjavík. Hesnes fór frá Hamborg 5.4. til Reykjavíkur. Tovelil fermir i Rotterdam um 10.4. til Reykjavíkur. RlItlSSKIP: Hekla er i Reykjavik. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleið. Skjald- breið er á leið frá Breiðafirði til Reykjavík. Þyrill er í Reykjavík. Ármann átti að fara frá Reykja- vík í gær tíl Vestmannaeyja. Straumey er á Austfjörðum. Loftleiðir h.f.: 1 dag er áætlað að fljúga til: Vestmannaeyja, Isafjarðar, Akur eyrar, Patreksfjarðar og Hólma- víkur. — Á morgun er áætlað að fljúga til: Vestmannaeyja. Fastir liðir eins og venjulega. Klukk- an 18.30 Dönsku- kennsla; I. fl. — 19.00 Enskuk.; II. fl. 19.30 Tónleikar: Samsöngur. 20.30 Upplestur og tónleikar: Ung skáld og rithöf- undar lesa frumsamið efni: a) Böðvar Guðlaugsson: Smásaga. b) Gunnar Dal: Kvæði. c) Hafliði Jónsson: Smásaga. d) Hannes Sig fússon: Kvæði. e) Rósberg Snæ- dal: Smásaga. 22.00 Fréttir og veð urfregnir. 22.10 Danslög (plötur). 24.00 Dagskráriok. 1 dag verða gef in saman í hjónaband af séra Sig. Páls- syni, Hraun- * gerði frk. Elsa J. Theódórsdóttir og Lúðvík Hjaltason, starfsm. hjá S. 1. S. Heimili þeirra verður á Skóla- vörðustíg 3 A. Happdrætti Háskóla íslands. Dráttur í 4. flokki happdrættis- ins fer fram þriðjudag 10. apríl. Síðastí söludagur er á mánudag. Vinningar eru 40Ó, samtals 219 100 kr. Athygli skal vakin á því, að engir miðar verða af- greiddir á þriðjudagsmorgun. I j Hjónunum Helgu' jjj, / og Hilmari Bier- ing, prentara, \ Bröttukinn 5, Hafn arfirði, fæddist sonur 4. apríl s. 1. Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur afmælisfund í Tjarnarcafé annað kvöld kT. 8. Nánar í augl. í blaðinu í dag. MlR-sýningin frá neðanjarðar- járnbrautinni í Moskvu er opin kl. 1—10. Hallgrímskirkja. Klukkan 11 f. h. Messa, séra Jakob Jónss. Ræðuefni: Hjálpræðið í Kristi. Kl. 1.30 Barnaguðsþjónusta séra Jakob Jónsson. Kl. 5 é. h. Messa, séra Sigurjón Þ. Árnason. — Laugar- nesprestakall. Messað kl. 2. Ferm ing. Sr. Garðar Svavarsson. Barna guðsþjónusta fellur niður vegna fermingarinnar. — Nesprestakall. Messa í kapellu Háskólans kl. 2 e. h. Sr. Jón Thorarensen. Ferming í Laugarneskirkju kl. 2 (séra Garðar Svavarsson). DRENGIR: Einar Guðmundsson, Höfðaborg 31. Hreiðar Bragi Eggertsson, Mávahlíð 19. Ivar Svanberg Guð- mundsson, Langholtsveg 198. Jó- hann Gunnar Gíslason, Bjarnastöð um, Tunguveg. Kristján Steinar Kristjánsson, Hliðarveg 14, Soga- mýri. Ólafur Guðmundsson, Otra- teig 6. Ólafur Gunnarsson, Hrísa- teig 24. Skæringur Hauksson, Lang holtsveg 198. Svavar Sigurðsson, Nökkvavog 40. Sveinn Þorkelsson, Heiði við Kleppsv. Stefán Bjarna son, Laugarnesveg 85. Valur Waage, Stórholti 25. Þórir Hörður Jóhannsson, Fögruhlíð, Fossvogi. Örn Steinar Steingrímsson, Efsta- sund 37. STÚLKUR: Arnheiður Eggertsdóttir, Sam- túni 22. Bogga Sigfúsdóttir, Máva hlíð 40. Elísa Dagbjört Guðjóns- dóttir, Hlíðarveg 40, Kópavogi. Gréta Guðmundsdóttir, Balbocamp 8. Guðrún Ragna Pálsdóttir, Digra nesveg 26. Lilja Gísladóttir, Álf- hólsveg 67. Ragna G.G. Ragnars- dóttir, Sogamýrarbl. 46. Sigríður H.Á. Ágústsdóttir, Dverghamri, Háaleitisveg, Sigurbjörg Sigurjóns dóttir, Lagnholtsveg 104. Sólveig Jóhannsdóttir, Snælandi, Nýbýla- veg. Valgerður Guðlaitg Skaftfeld Guðmundsdóttir, Langholtsv. 188. Þóra Stefánsdóttir, Nýbýlaveg 34. Ferðlr m.s. Dronning Alexandrine í sumar: Sameinaða gufuskipafélagið hef ur nú gefið út áætlun yfir hrað- ferðir m.s. Dronning Alexandrine næsta sumar. Skipið er nú í þurr- kví til hreinsunar og málningar. Fer það því ekki frá Kaupmanna- höfn fyrr en 25. apríl og kemur til Reykjavíkur 2. maí. Á það að Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.