Þjóðviljinn - 26.04.1951, Qupperneq 3
Fimmtudagur 26. apríl 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3
[Ritstjóri: ÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR
Meinisékn i Isrstgga
Braggahverfin, sem prýða
enn þá úthverfi höfuðborgar
landsins í misjöfnu ástandi
hvað útlit og hýbýlishætti
snertir allt eftir efnurn og á-
stæðum iþeirra, sem neyðzt
hafa til að flytja inn í þessa
afdönkucu hermannaskála, eru
talandi vottur um ástand það
isem ríkir í húsnæðismálunum
0g um það hvað almenningur
má sætta sig við árum saman.
Nýlega heimsótti ég verka-
mannafjölskyldu, sem hefur bú
ið fimm ár í sama braggan-
um. Konan er aðeins 28 ára og
börnin fjögur. tbúðin eitt særni
lega stórt herbergi, sem er
svefnherbergi, setustofa og
um leið leikherbergi barnanna.
Lítið eldhús og smá herbergi.
Vatn og rafmagn er í bragg-
anum og einn kolaofn i svefn-
herberginu sem hitar upp íbúð-
ina.
Hafið þið ekki reynt að
verða ykkur úti um betra hús-
næði? spyr ég ungu konuna.
Nei, obkur er hætt að
dreyma um slíkan lúxus og
hver vill lika leigja fátæku
barnafólki. En ég get sagt þér
í hreinskilni að síðan dýrtíðin
óx svona gífurlega erum við
hætt að minnast á að flytja
héðan. Vikulaun mannsins
míns eru rúmar 500 kr. Og
hvernig sem maður sparar
hrekkur ekkert til, t.d. kemst
ég alls ekki af með minna til
upphitunar en 3 kolapoka á
viku en pokinn kostar nú orð-
ið 25 kr. og þegar yngsta
barnið okkar fékk lungnabólgu
seinni partinn í vetur fóru oft
4 pokar á viku því til þess að
hafa hlýju allan sólarhringinn
varð ég að kynda á nóttunni
Svart kaffi, te- og ávaxta-
blettir nást úr efnunr; sem
þola þvott, með því að strengja
efnið, þar sem bletturinn er,
yfir skál og festa það með
teygjubandi. Því næst hellið
þér sjóðandi vatni yfir blettinn
úr dálítilli hæð. Að því loknu
ætti að þvo állt stýkkið. Ör
efnum eem ekki þola þvott, cr
■bezt að ná blettunum með því
að nudda þá með klút bleytt-
um í volgu vatni. Sé efnið mis-
litt og haldi lit, er eftirfarandi
aðferð ágæt: Setjið blettinn
yfir skál með rjúkandi vatni,
er í hefur verið sett ein teskei'ð
af ammoníaki. Hellið brintover-
ilte á blettinn í dropatali. Skol-
ist í héitu vatni.
Það er ágætt að nota silki-
tvinna með ullargarninu þegar
við stoppum sokka. Stoppið
helzt þá miklu lengur.
líka. Eg veit. bara það að cf
ætti að vera líft í surnum þess-
um braggaskriflum, í vetri eins
cg nú hefur verið þyrfti blátt
áfram að kynda nótt og dag.
Það er rafmagn í öllum
bröggunum ?
Já, við höfum bæði rafmagn
og vatn. En í frostunum í vet-
ur sprungu vatnspípurnar og
hef ég orðið að sækja vatn í
tvo mánuði dáiítinn spöl hcrna
upp fyrir braggana. Svo var
það nú ekki beint til þess að
bæta afkomu fólksins þegar
þeir hækkuðu rafmagnið um
helming í haust. Það fara allt-
af hjá okkur núna á annað
hundrað krónur í rafmagn á
mánuði. Eg hef ekkert þvotta-
hús og verð að þvo mest allt
í eldhúsinu og við rafmagn
og þar sem s\"ona mörg börn
eru er maður alltaf með þessa
smáþvotta, þægindin eru sann-
arlega af skornum skammti
eins og þú sérð, en svo þegar
ofan á allt baslið og þæginda-
leysið bætist þessi gífurlega
dýrtíð, sem er að sliga allt og
alla þá fer að verða erfitt að
lifa fyrir barnmargar verka-
mannafjölskyldur. Eg hef hing
að til verið svo djörf að kaupa
alltaf 4 potta af mjólk á dag,
það er yfir 300 kr. á mánuði,
því þrátt fyrir alla verðhækk-
un á mjólkinni eins og öllu
öðru þá finnst mér hún þó allt
af vera ódýrust þegar á allt
er litið. >
Mundi það ekki létta mikið
undir með þér ef þú gætir sent
eitthvert barnanna á dagheim-
ili?
Jú, vissulega hefur mér oft
dottið það í hug. I fvrra var
ég t. d. lengi lasin, fékk enga
hjálp og langaði þá til að
koma næst elzta barninu fyrir
4 barnaheimili, en þegar ég
heyrði að það kostaði 600 kr.
4 mánuði, varð ég að hætta
við það. En hvað gerir það þó
maður leggi dálítið hart að sér,
við mæðumar fáum svo mörg
falleg órð í staðinn í ræðum
og ritum á tyllidögum þjó/ísr-
innar!! En engu síður ■ þalda
braggarnii' áfj’am áð” grótna
niður jafnvel þó eytt sé stórum
fújgum. í viðgerðir. .Qólfkuldinn
heídur afram að spiíla heilsu
barnanna ár eftir ár. Þegar
kosningar eru fram undan er
lofað öllu fögru. Eg man ekki
betur en allir íhaldsflokkarn-
ir hafi lirópað sig hása um öll
fríðindin sem okkur bragga-
búum mundi falla í skaut ef
þeir fengju að stjórna áfram í
landinu. Átti ekki að reisa
mannsæmandi bústaði fyrir alla,
dagheimili og leikskóla fyrir
blrnin okkar. Hvar ern fram-
kvæmdirnar? Eg hef ekki orð-
ið vör við neinar breytingar
nema vaxandi dýrtíð og skatta
og með hverjum deginum sem
líður fær maður minna og
minna fyrir peningana.
Hefur maðurinn þinn aíltaf
atviimu ?
Já, fram að þessu hefur hann
alltaf haft vinnu. Kann var bú-
inn að vera mörg ár fastur
starfsmaður hjá bænum en var
svo einn í þeim hópi, sem bær-
inn sagði upp fyrir jólin í vet-
ur. Þú manst kannsiki a.ð það
fór fram nokkurskonar
,,hremsun“ hjá bænum í haust
og maðurinn minn hefur lik-
lega ekki trúað nógu mikið á
Bjarna Ben og Gunnar Thor-
oddsen og þess vegna, sam-
kvæmt vestrænu lýðræði, lát-
inn fara.
Er nokkur Ieikvöílur hér í
hverfinu eða iiágrenninu?
Nei, hér er enginn leiikvöll-
ur nema móarnir og holtin í
kring, að sumrinu til er það
kannski nógu gott, en það er
ekki skemmfcilegt að fá þessi
ángagrey inn blaut og forug
eins og oft viil verða þegar
kannski er nýbúið að senda
þau út hrein og þokkaleg. Það
eru mörg handtökin þegar allt
kemur á eina manneskju. En
verst við þessa gömlu hjalla
sem ég og mínir líkar verða að
sætta sig við er það að þó ver-
ið sé að skrúbba og skúra all-
an daginn sést það varla. Allt
er af sér gengið, máining og
annað.
Tvær litlar stúlkur koma inn
og tala leyndarmál við mömmu
sína. Það er sumardagurinn
fyrsti, dagurinn þeirra, dagur
æskunnar og framtíðar íslands.
En það eru forustumenn þjóð-
félagsins í dag sem bera á-
byrgðina á því með stjórnleysi
sínu að þessar litlu telpur og
fjöldi annarra reykvískra barna
verður að alast upp í niður-
níddum hermannaskálum, kjall
araholum og öðrum álika vist-
arverum.
Þ. V.
Hinn sígildi telpukjóll rykktur með vöflusaum undir stykkL
Allt sama snið í mismunandi stærðum. Kjólarnir eru úr
ljósu bómullarefni
Útlendar fréttir
HoIIand.
A síoastiiðnum 70 árum hafa
meir en 5.500 konur loikið há-
skólaprófi í Hollandi. Árið 1932
voru 42.5% hákólagen.rrinnp
kvenna. giftar. 1949 voru 56%
giftar. Fimmtán konur eru
prófessorar vio hollenzka há-
skóla.
Alþýðumemitun í
Asíulöndum.
Samkvæmt skýrslum frá
1946 eru aðeins 1% íbúanna
ólæsir í Japan. Líbanon er
einnig sagt vel á vegi statt í
þessum efnum. Á Filipseyjum
eru 52,6% læsir og er talið til
tölulega gott. Hið sama má
segja um Ceylon, Thailand.
Burma og Kína. Á Indlandi aft
ur á móti eru tæplega 10% full
orðinna læsir.
Nýtt hefti af MELK0RKU
Tímarit kvenna Melkorka er
nýkomið út, 1. hefti 7. árg.
I þessu hefti eru margar á-
gætar og athyglisverðar grein-
ar. Þar á meðal Konurnar olg
heimsfriðuriim eftir frú Sig-
ríði Eiríksdóttur. Grein þessi
var ætluð sem erindi í útvarp-
ii]u á:-ál'þjóðadegi kvenna 8.
niarz, ’en höfundi var synjað
að fljdja erindið. Þá er grein
eftir Rannveigu Kristjánsdótt-
ir Hallberg, sem hún nefnir
„Má ég skríða í þessum bux-
um mamma?“ Lysistrata —
Konan sem gerði uppreisn gegn
stríðin'u, þýdd grein. Gabriela
Mistre! eftir Málfríði Einars-
dóttur, Að svala þorsta kvæði
eftir Gabrela Mistrel. Suniár-
dagar í Slóvakíu eftir Sigríði
Helgadóttur. Dýrtíðin eftir Guð-
rúnu Gísladóttur. Á vesturlcið
saga eftir Vilborgu Auðunk-
dóttur. Útlendar fréttir. I heft
inu eru einnig myndir af leik-
konunni Önnu Borg og Sovét-
listakonunni Nadezda. Kazant-
zeva, munstur af frönskum
borðrenning o.fl.
Áfgreiðsla Melkorku er í
bókabúð Máls og menningar á
Laugaveg 19, sími 5055, þar
er einnig tekið á móti áskrif-
endum.
Konur gerist áskrifendur
rig Iesið ykkar eigið tima-
rit.
? ilggur leiðin |
Italía.
Á stríðsárunum myndaði hóp
ur kvenna á ítalíu með sér fé-
lagsskap ti] að kenna löndum
rnun lestur. Ástandið hefur
"11 a tíð verið mjög slæmt á
Ítalíu, en keyrði þó um þver-
bak .meðan fasisminn ríkti þar.
Fasistarnir hclfðu engan á-
huga á alþýðumenntun. Mjög
fáir skólar voru til og ekkert
eftirlit með að böm sæktu
skóla. Fyrir utan hirðuleysi yf-
irvaldanna um þessi mál kem-
ur svo sár fátækt alþýðufólks,
sem ekki hefur ráð á að klæða
börn sín hvað þá meira. Börn-
in byrja mjög snemma að taka
þátt í lifsbaráttunni með for-
eldrnm sínum og þar sem það
dugir ekki einu sinni til má
geta nærri að lærdómur situr á
haikanum. Árið 1947 tók ítalska
stjórnin sig til og stofnaði
nokkrar námskeiðsmiðstöðvar í
þeim héruðum þar sem ástand-
ið var verst, Basilicata og Kala.
bríu. Þetta voru fjögurra mán-
aða námskeið og kom brátt í
ljcs að fólkið vildi fá lengri
námstima. Ástandið er þó mjög
erfitt viðureignar þar sem bæði
vantar skólahús og kennaralið.
Sömu lauit fyrir
s-ömu vinnu.
■ Alþjúðavinnumálastofnunin
hefur séiit öllum löndum innan
Sameinuðu þjóðanna fyrirspurn
um afstöðu þeirra tii greiðslu
á eömu launum fyrir sömu
vinnu. Ellefu lönd hafa. svarað
að þau vilji styðja alþjóðlegt
þing um þessi mál: Belgía,
Chile, Cuba, Frakkland, Israel,
Filipseyjar, Pólland, . Tckkó-
slóvakía, Tyrkland og Austur-
ríki.
•Níu ömuir lönd hafa svarað
að þau styðji uppástungu, sem
sé ekki einp| bindandi Argentíjiia.
Kanada, Indland, Luxemburg,
Niðurlönd, Pakistan, Sviss, Svl
þjóð cg Sýrland.