Þjóðviljinn - 26.04.1951, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 26. a.príl 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5
í vetur kom út í Stokkhólmi
myndabók er nefnist ísland og
hefur inni að halda hinar prýði-
legustu mjmdir frá íslandi, eft-
ir ungan sænskan ljósmyndara.
Helgi P. Briem sendihcrra hef'
ur skrifað ágætan formála fyr-
ir bókinni.
Þessi sænski ljósmyndari,
Hans Malmberg að nafni,
dvaidi um tíma hér á landi og
ferðaðist allmikið hér á vegum
Flugfélagsins, enda eru mynd-
imar víðsvegar að af land-
inu, frá atvinnu- og menningar
lífi, landslagi í byggð og ó-
byggðum. Bókin er 128 bls. og
eru í henni um 130 myndir,
flestar þeirra sérstaklega góð-
ar, Er bók þessi hin bezta land
kynning fyrir Island og eiga
höfundarnir, Briem sendiherra
og hinn ungi sænski ljósmynd-
ari Malberg, skilið beztu þakk-
ir íslendinga fyrir þessa ágætu
bók.
— Einhverra mistaka vegna
gleymdist Þjóðviljinn þegar höf
undurinn var hér á landi í vet-
ur, eftir útkomu bókarinnar,
og barst blaðinu hún nú fyrir
4 eða 5 dögum, og er það á-
stæðan fyrir því; að hennar hef-
ur ekki verið getið fyrr.
Lagarfoss við bryggju í „Friðarhöfn“ í Vestmannaeyjum
öflugarðar fyrir 5 áium
höfninni þar sem voru kart-
i 28 feta dvpi
Miklar hafnarbætur háfa verið framkvæmdar í Vestmanna-
eyjum á undánförnum árum, svo þar er nú orðið ein öruggasta
höfn landsins.
Merkilegasta framkvæmdin
innanliafnar, fyrir utan almenna
dýpkun á höfninni, er hin svo-
nefnda „Friðarhöfn“. Grafinn
hefur verið vogur inn í sandinn
MINJAGRIPASAMKEPPNI
Ferðaskrifstofuimar og Heimilisiðn-
aðarfélags Islands
Eins og á síðastliðnum vetri hafa Ferðaskrifstofa ríkisins
og Heimilisiðnaðarfélag Islands ákveðið að efna á ný til sam-
keppni um bezt gerða íslenzka niinjagripi.
Samkeppni síðasta árs var
einkum miðuð við sölu til er-
lendra ferðamanna, en nii er
ætlunin að hún nái einnig til
hagnýtra muna, sem selja má
á innanlandsmarkaðinum. ■—
Þá verða og sérstök verðlaun
veitt fyrir snjallar hugmynd-
ir (teikningar eða framkvæman
legar ábendingar) um fram-
leiðslu minjagripa, þótt við-
komendur hafi ef til vill ekki
aðstæður eða hentugleika til að
sýna munina fullgerða.
Ferðaskrifstofan og Heimilis
iðnaðarfélagið efna til sölu-
sýningar að lokinni samkeppn-
inni í vor og verður hún upp-
haf að minjagripa- og heimilis-
iðnaðarverzlun þessara aðila.
Margs konar munir koma
hér til greina, og. má nefna hér
sem dæmi:
1. Fjölbreytt prónles. Á-
herzla lögð á góðar skíðapeys-
ur og sterka stígvélaleista,
hyrnur, trefla, vettlinga alls-
konar, einnig vinnuvettlinga..
2. Vefnaður, svo sem javi, refl-
ar, mottur og gólfdreglar. 3.
Útsaumur eftir íslenzkum gerð-
um, gömlum og nýjum. 4.
Skinnavara, t.d. hanzkar, barna
skór, inniskór, veski og íslenzk
ir skór með illeppum. 5. Smá-
hlutir, bæði telgdir og renndir,
bæði úr horni svo og úr birki
og öðru tré. 6. Brenndir og
handunnir leirmunir. 7. Telgd-
ir eða renndir smáhlutir úr
fiskabeinum (t.d. ýsubeinum)
svo og úr hvalbeinum. 8. Smá-
hlutir, handunnir, úr góðmálm-
um, og viljum vér þá sérstak-
lega minna á hið íslenzka víra-
virki. Einnig smáhlutir úr ís-
lenzkum bergtegundum (hrafn-
tinnu, silfurbergi o.fl.). 9.
Brúður, klæddar íslenzkum
þjóðbúningum. 10. Einnig
heimaspunnið band, margar
tegundir.
Ýmiss.konar fleiri munir
koma til greina, en umfram
allt skal leggja áhrezlu á það,
að vandað sé til munanna,
þeir séu framleiðendum og ís-
lenzku þjóðinni til sóma.
Fólk er vinsamlega beðið að
senda munina til Ferðaskrif-
stofu ríkisins í Reykjavík eða
útibúsins á Akureyri, eftir því
hvað hverjum hentar bezt, svo
íljótt sem auðið er.
Um lejð og muninrnir berast
verða þeir teknir til athugunar
af sérstakri dómnefnd, og þyki
þeir í alla staði ákjósanlegir,
verða viðkomandi framleiðend-
ur þegar beðnir um frekari
framleiðslu.
Þátttakendur eru beðnir að
gæta þess vandlega að hafa
góðar umbúðir um muni sína,
merkja þá greinilega og láta
nafn og heimilisfang sendanda
fylgja í lokuðu umslagi; taka
fram það, sem þeir telja sér
nauðsynlegt að fá fyrir mun-
ina. Æskilegt væri, að þátttak-
endur úti á landi gætu haft
umboðsmenn i Reykjavík, sem
mætti snúa sér til.
innst í höfninni, og þar gerðar
bryggjur fyrir skip allt að 3000
brúttólestir að stærð.
Þar sem fyrir nokkrum ár-
um voru ræktaðar kartöflur er
nú um 20 feta dýpi á stór-
straumsfjöru. Er þarna hið á-
kjósanlegásta var fyrir stormi
og sjógangi og svo gott lægi
fyrir stór skip, eins og t. d.
nýju ,,fossa“ Elskipafélagsins,
að Tröllafossi undanskildum,
að vart mun annað betra hér
á landi.
Nú er það talinn viðburður
ef skip þarf að bíða meira
en 2—4 tíma til þess að kom-
ast i höfn, þar eð dýpi sjálfr-
ar innsiglingarinnar er 20 fet
á stæstu stórstraumsfjöru, og
talið útilokað að skipi hlekkist
á innan hafnar eftir að það
hefur verið fest við hafnar-
bakka.
Á föstudaginn var gerðist
það sorglega slys á Bræðraá í
Sbagafirði, að steinn féll af
bæjarþakinu í höfuð þriggja
ára telpu og beið hún bana af.
Telpan var dóttir bóndans á
Bræðraá, Jóns Dagssonar, og
voru- börn hans þrjú að leika
sér úti. Þýða var og mun bróð-
ir telpunnar hafa spyrnt við
steininum uppi á þakinu, svo
hann rann niður. Læknir var
sóttur á Hofsós, en þegar hann
kom .var telpan látin.
Sýtt knÉtt-
spyrnu-
sambaitd
S.l. mánudág var stoífnað hér
í bænum Knattspyrnusamband
fyrirtækja í Reykjavík.
Á stofnfundinum voru mætt-
ir fulltrúar frá eftirtöldum 10
fyrirtækjum: Egill Vilhjálms-
■son h.f., Flugfélag Islands h.
f., Héðinn h.f., Hreyfill, Keilir,
Landssmiðjan, Olíufélagið h.f.,
Oliuverzlun íslands, Slippfélag-
ið og Strætisvagnar Reykja-
víkur.
Samþykkt voru lög fyrir
sambandið og ennfremur reglu-
gerð fyrir væntanlega firma-
keppni. Iieppt verður í deildum
og er ráðgert að ekki verði
fleiri en 6 fyrirtæki í hverri
deild.
Ákveðið hefur verið, að
firmakeppnin hefjist 10. maí n.
k. og er öllum fyrirtækjum i
Reykjavík heimii þátttaka í
henni sé vissum skilyrðum upp
fyllt. Þátttöku ber að tilkynna
til formanns K.F.R., Baldvins
Baldvinssonar c/o Olíuverzlun
íslands, eigi síðar en 5 dögum
fyrir keppni.
Fegrunarfélag
Hafnafjarðar
Sunnudaginn 21. apríl s. 5.
var stofnað Fegrunarfélag
Hafnarf jarðar. Var það stofnað
að tilhlutan Rotaryklúbbs Hafn
a.rf jarðar.
Á fundinum var kosin 7
manna stjórn, skal hún starfa
fram að næsta aðalfundi og
safna félagsmönnum, skulu all-
ir er ganga inn til næsta aðal-
fundar teljast stofnendur félagp
ins. Tilgangurinn er að prýða
Hafnarfjarðarbæ.
hagkvæmari
vinnubrögð
Atvinnumálaráðuneytið hef-
ur skipað þriggja manna nefnd
íil að „gera tillögur um bætt
vinnuskilyrði og hagkvæmari
vinnubrögð við íslenzkan iðnað
og önnur þau atriði, sem máli
skipta í því sambandi“.
I nefndinni eru Þorbjörn Sig-
urgeirsson framkvæmdastjóri
rannsóknarráðs, og er hann for
maður nefndarinnar, Þorsteinn
Gíslason vélaverkfræðingur og
Páll Kr. Pálsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenzkra iðnrek-
enda.
Erfendir rsnn-
séknarieiðangrarf
Á s. I. ári voru hér allmargir
erlendir rannsóknarleiðangrar.
Á þessu ári hefur frain að
þessu fjórum slíkum leiðangr-
um verið eitt leyfi til raim-
sókna í sumar.
Rannsaka framburð
jökulvatna.
Fyrsti leiðangurinn er frá.
Svíþjóð, undir forustu prófess-
ors Hjulströms, ætlar hann að
rannsaka framburð jökulvatna
og sanda í nánd við Hornaf jörð.
I leiðangrinum eru 5 menn, eir.n
þeirra íslenzkur, Jón Jónsson.
jarðfræðistúdent er hefur dval
ið við nám í Uppsölum í Sví-
þjóð. Leiðangurinn mun senni-
lega koma hingað í júní.
Frá Durhamháskóla.
Þá er væntanlegur hingað 7
manna hópur frá Durhamhá-
skóla í Bretlandi. Ætla þeir að
dvelja við jökulrannsól uir,
grasafræðirannsóknir og athug
anir á fuglalífi á Breiðamerkur
sandi. Mun s‘á leiðangur starfa
í samráði og samvinnu við Jón
Eyþórsson veðurfræðing, a, m.
k. hvað jöklarannsóknirnar
snertir.
Brezkir skólapiltar.
Ennfremur er væntanlegur
hópur skólapilta frá Bretlandi
er mun ferðast -eitthvað um
■landið, en tæpast mun hægt
að telja þá för til vísindarann-
sókna nema þá að einhverju
takmörkuðu léyti.
Þýzkur jarðfræðingur.
Loks mun svo Emmy Todt-
man, þýzkur jarðfræðingur,
halda áfram rannsóknum sín,-
um á jökulruðningi austur við
Vatnajökul, en hún var hér
slíkra erinda á s. 1. ári, auk.
þess sem hún kom hingað laust
eftir 1930.
I FYRRA.
S. 1. ár vo.ru hér 3 brezkir
leiðangrar, 1 austurrískur, 1
hollenzkur, einn Þjóðverjí
(Emmy Todtmann) og 3
Fralíkar úr Grænlandsleiðangri
Victors. Þrjú erlend hafrann-
sóknaskip voru um tíma við Is-
land.
Lögreglan eignast hund
Morgunblaðið skýrir frá þvi
að lögreglan hafi eignazt hund,
hinn fyrsta lögregluhund hér.
Morgunbl. tekur það skýrt fram
að þetta sé „íslenzkur“ lög-
regluhundur, en kunni þó ekki
nema dönsku, en hann sé nú
sem óðast að læra íslenzku,
enda bæði gáfaður og vel ætt-
aður. — Lögregluhundinum er
ætlað það hlutverk að haía
u.ppi á sökudólgum, finna týnt
fólk o. fl.
Skaut á vegfar-
anda úr loftbyssu
Maður nokkur, sem var á
gangi eftir Tjarnargötu á mánu
dag varð fyrir skeyti úr loft-
byssu og hlaut nokkurn ávérka,
á læri, þar eð skeytið úr byss-
unni gekk inn úr fötum hans.
Skyttan var 15 ára ungling-
ur, sem hafði það sér til af-
þreyingar að skjóta á vegfar-
endur. Maðurinn sem varð fyrir
skotinu kærði þetta atferli fyrir
lögreglunni og gerði hún byss-
una upptæka.