Þjóðviljinn - 28.04.1951, Page 4
4)
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 28. apríl 1951
r”j ri f ij' ji i,7 ji ji r
(MÓÐVILIINN
Útg'efandi: Sameiningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartanason, Siguröur Guðmundsson (áb.),
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. elnt
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Enginn skylmingaleikur
Alþýöublaöið heldur áfram þvaöri sínu um prent-
frelsi í gær, en er nú ögn hógværara eftir aö Þjóövilj-
inn rakti fyrir því fjölmargar hliöstæöur viö kröfur
verkalýðsfélaganna nú, bæði hérlendis og erlendis. Af-
sakanir blaðsins eru nú helztar þær aö dæmi þau sem
Þjóöviljinn nefndi eigi aöeins viö kaupdeilu prentara
sjálfra — og viröist þá helzt eiga aö skilja þaö þannig
aö baráttan fyrir mánaöarlegum vísitölugreiðslum á kaup
sé ekkert áhugamál íslenzku prentarastéttarinnar!
En einnig þessi málsvörn AlþýðublaÖsklíkunnar er
þvaður. Þegar brezku verkalyössamtökin stöövuðu öll
blöö í Bretlandi nema Daily Herald, blað Verkamanna-
flokksins, áttu prentarar ekki í neinni vinnudeilu sjálfir,
heldur var um aö ræöa allsherjarverkfall til stuönings
viö námumenn. Þar var því seilzt enn lengra en hér er
lagt til, því baráttan fyrir mánaöarlegri vísitölugreiöslu
er auðvitað einnig launabarátta prentara, þó svo standi
á að samningar þeirra séu ekki lausir nú.
Annars skal Alþýöublaöinu bent á þaö í fyllstu al-
vöru aö barátta sú sem framundan er er enginn skylm-
ingaleikur, heldur barátta um lífskjör og lífshamingju
sjálfra alþýðuheimilanna og tilveru verkalýðssamtak-
anna. Alþýðusamtökin verða aö beita öllu valdi sínu
gegn valdi auöstéttarinnar. Ríkisstjórnarklíkan er stað-
ráðin í því aö halda baráttunni áfram mánuðum saman
og svelta konur og börn; ef hún hefur aðstööu til, og í
því skyni hefur hún þegiö 100 millj. kr. mútur aukalega
frá Bandaríkjunum. ÞaÖ er því fjarri öllum raunveruleika
aö halda nú uppi umræðum um riddaraskap og skylm-
ingaraðferðir. Alþýöa íslands hefur veriö beitt ofbeldi af
alþingi með vísitölubindingunni og nú er verkefni að
hrinda því ofbeldi meö valdi alþýðusamtakanna á eins
skjótan og öruggan hátt og kostur er. Eitt beittasta
vopnið er aö stööva áróðurstæki auðmannastéttarinnar
eins og glöggt hefur komiö í Ijós síðustu daga.
ÁburðarverksmiSjan
Það er reyndar oröin aðalfrétt á forsíöu Tímans og
Alþýöublaösins að íslendingar eigi stórkostlega framtíð
armöguieika í fossaafli sínu, hér muni rísa upp stóriðja
og hafinn veröa útflutningur á tilbúnum áburði. Og til
efni þeirra óvenjulega gáfulegu skrifa er að þetta er
,,álit amei'ískra séi’fræðinga, sem ei'u að undii'búa á-
bui’Öarverksmiðjuna hér. “
Fyrir þá íslendinga sem fylgzt hafa meö stjórnmála-
lífi undanfai’andi ára eru þetta ekki nýjungar. Þaö er
é allra vitorði a'ö risavii’kjanir og ábui’öarvei’ksmiðja til
útfiutnings væru nú komnar á veg ef hinar gagnmerku
tillögur Sósíalistaflokksins um þessi mál hefðu ekki verið
eyöilagöar af meirihlutavaldi Framsóknar, Alþýöuflokks-
ins og Sjálfstæöisflokksins á Alþingi.
Tillögur Sósíalistaflokksins um tilteknar, skipulegar
framkvæmdir aö sköpun stóriöju á grundvelli risastórra
xaforkuvera hafa hvaö eftir annaö komiö til kasta stjórn-
máiaflokka og Alþingis síðustu 5—6 árin, og hefur bygg-
ing áburðai'verksmiöju er framleiddi allt aö 40 þúsund
tonn köfnunarefnis einmitt verið talið fyrsta skrefið aö
sköpun nýrrar útflutningsframleiöslu er fært gæti íslend-
ingum verðmæti er næmi 60—100 milljónum króna.
Skammsýni og þjónusta viö erlenda húsbændur hafa
valdiö því aö Framsókn, Alþýöuflokkurinn og Sjálfstæö-
isflokkurinn hafa hindraö aö tillögur Sósíalistaflokksins
um þessar miklu framkvæmdir næöu fram aö ganga.
En blöð þessara sömu flokka uppveörast ef ba,ndarískir
sérfræöingar benda á hin augljósu sannindi um framtíð-
armöguleika raforkunnar og stórrar áburðai’verksmiöju
til útflutningsframleiðslu. Tíminn er meira aö segja svo
barnalegur að taka 1 alvöru hin skoplegu ummæli um af-
buröamennsku Vilhjálms Þór við aö kría út „leyfi“ er-
Jendis handa íslendingum til að byggja 6000 tonna verk-
ísmiðju!
BÆJARPOSTliRIM
Vítaverð afstaða
bíóeigenda.
Hörður skrifar: — ,,Ég var
aö lesa kvikmyndagagniýni
blaðsins og sá þar, að „E.“
þakkar eigendum Nýja Bíós, að
þeir skuli ekki hefja sýningar
á Önnu Pétursdóttur, fyrr en
lokið er við að sýna samnefnt
leikrit í Iðnó. Ég veit ekki,
hvort „sú linkind, sem þeir
sýna fátækri leikstarfsemi okk-
ar“, eins og hann kemst að
orði, sé svo mjög þakkarverð.
Hún á að vera sj'álfsögð. Sú
hegðun bíóeigenda, að gera sér
ýtrasta far um áð fá hingað til
sýninga, samtímis eða áður,
heimsfrægar kvikmyndir eftir
leikritum, sem af vanefnum er
verið að reyna að uppfæra hér,
er vægast sagt vítaverð og
hefir vakið mikla reiði meðal
leikara og annarra leikhús-
manna.
“ □
Hamlet og Tjarnarbíó.
„Mér er tjáð, að stjórnendur
Leikfélagsins hafi grátbeðið eig
endur Tjarnarbíós um að sýna
ekki Hamlet samtímis þeim. En
allt kom fyrir ekki — daginn
eftir premíu á Iðnó kom mynd-
in í Tjarnarbíó. Var það sér-
staklega ámælisvert í því til-
felli, af því að myndinni fylgdi
lágætur íslenzkur texti. Vafa-
laust hefur þessi einstæða
greiðvikni kostað Leikfélagið
tugþúsundir, auk þess, sem
furðulega góð uppfærsla á
þessu merkisleikriti var gjör-
eyðilögð. En þar var ekki látið
staðar numið. Það var eins og
þessi merkilega framkvæmd
beinlínis ýtti undir áðra, að
standa sig nú ekki laklegar.
□
Heilög Jóhanna.
„Næst í röðinni varð ,,Pabbi“.
Á síðustu stundu tókst þó að fá
ráðamennina ofan af illri fyrir-
ætlan í því tilfelli. Þar á eftir
fylgdi Heilög Jóhanna. Það,
sem þá bjargaði stórskaða fyrir
Þjóðleikhúsið, var það eitt, að
kvikmyndin var gjörólík Shaw-
leikritinu — og hið síðarnefnda
margfalt skemmtilegra. — Og
svo átti að gera mikia og á-
hættusama tilraun í Þjóðleik-
húsinu, 'í fyrsta skipti skyldi
uppfæra á íslenzku óperu með'
íslenzkan söngvara eða leik-
ara nærri í hverju hlutverki.
Allir biðu með eftirvæntingu.
Hvernig skyldi þeim takast?
Eru þeir ekki að reisa sér
þarna hurðarás um öxl? Og
hvað svo ? Ja, það vitið þið eins
vel og ég. ,
□
Rígólettó.
„Ef Rígólettó í Tjarnarbíó er
eitthvað svipuð La Ttravíata,
sem hér var sýnd fyrir skömmu,
veit ég hvert fátækur almúgi
muni fremur sækja. Og nú
voru þeir góðu menn virki-
lega komnir á skrið. Anna Pét-
ursdóttir skyldi koma næst. Ég
sé þó, að tekizt hefur að koma
í veg fyrir, að hún yrði sýnd
samtímis leikritinu. Og nú allra
Síðast hefur því verið fleygt,
að eitt (eða jafnvel fleiri) kvik
myndahúsanna reyni af fremsta
megni að krækja sér í myndina,
sem gerð hefur verið eftir leik-
riti John Patricks, „The Hasty
Heart“ (Stund milli stríða),
sem Leikfélagið mun byrja sýn
ingar á eftir fáa daga.
□ .;
Hagnaðarvon eða
skilnirigsleysi ?
„Og hváð er það, sem veldur
því, að svo óséntilmannlega er
að farið? Hagnaðarvon? Eða
bara tómt skilningsleysi ? Ég
held ekki hagnaðurinn sé mjög
mikill. En tjónið getur orðið
geipilegt fyrir það leikhús, sem
í hlut á. Mörgum er svo farið
að reynist myndin léleg, nenna
þeir ekki að sjá leikritið eftirá;
gildi hið gagnstæða, veigra þeir
sér við því (sbr. Hamlet). Auk
þess er fátækur almúginn orð-
inn það auralaus á þessum síð-
ustu og verstu tímum, að eigi
hann kost á álíka skemmtun
fyrir þrjár krónur og fyrir þrjá
tíu, kýs hann í flestum tilfell-
um hina fyrri. Erlendis vita
menn þetta og hegða sér eftir
því. Hvergi í hinum siðmennt-
aða heimi tíðkast, að kvikmynd
ir séu sýndar samtímis leikrit-
um — nema í fyllsta samráði
við leikhúsin. Við eigum kröfu
á, að þannig sé einnig farið að
hér, — leikstarfsemi okkar á
sannarlega ekki of auðvelt upp-
dráttar fyrir því. Hörður".
Upplestrar úr ritum Theódórs
Friðrikssonar. — Tónleikar. 21.30
Leikrit: „Tengdapabbi flýgur" eft-
ir Örnólf í Vík. Leikstjóri: Brynj-
ólfur Jóhannesson. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Dansiög:
a) Danslagakeppni Skemmtifélags
góðtemplara. b) Ýmis dansiög af
plötum til kl. 24.
80 ára er í da.g Valdimar Lofts-
son, 'iakarameistari, Laufásveg 65.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki. — Sínii 1760.
HVAÐ
hefur þú gert til að út-
vega Þjóðviljanum
áskrifendur ?
Hjónunum Guð-
M — rúnu og Sigurði
\ ý- S. Waage fæddist
l w v dóttir í gær. 27.
aprll. —
Bólusetning gegn harnaveiki. —
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 1. maí kl. 10—12 f. h.
í síma 2781. —
Ríkisskip
Hekla er í Rvík; fer þaðan á
mánudag vestur um land til Þórs-
. hafnar. Esja er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að vestan og
norðan. Herðubreið er á leið frá
Austfjörðum til Rvíkur. Skjald-
breið er á Austfjörðum á norður-
leið. Þyrill er væntanl. til Rvíkur
í dag. Ármann fer frá Rvik i dag
til Vestmannaeyja.
Eimskip
Brúarfoss er i Hulj; fer þaðan
til Reykjavikur. Dettifoss kom til
Haifa í Palestinu 21. apríl. Fjall-
foss fór frá Rvík 26. april til
vestur- og norðurlandsins. Goða-
foss er i Rvik. Lagarfoss var
væntanlegur til Vestmannaeyja í
gærkvöldi. Selfoss fór frá Gauta-
borg 22. apríl; væntanjegur til
Reykjavílcur i dag. Tröllafoss kom
til New York 24. april. Tovelil
fór frá Rotterdam 25. apríl til
Rvíkur. Barjama fór frá Leith
25. apríl til Rvíkur. Dux fermir
í Rotterdam og Hamborg um
þessar mundir til Rvíkur. Hijde
Fermir í Rotterdam og Leith um
jjessar mundir til Rvíkur. Hans
Boye fermir í Álaborg og Odda
i Noregi í byrjun maí til Rvíkur.
Liibeck fermir í Antwerpen og
Hull 2.—6. maí til Rvíkur. Teddy
fermir í Khöfn um 30. apríl til
Rvíkur.
8.30 Morgunútvarp.
10.10 Veðurfregnir.
12.10—13.15 Hádeg-
isútvarp. 15.30 Mið-
degisútv. 16.25 Veð
15.30 Miðdegisútvarp. — 16.25 Veð-
urfregnir, 18.30 Dönskukennsla; I.
fl. 19.00 Enskukennsla; II. fl. 19.25
Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar. Sam
söngur (pj.) 19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpstríóið:
Tríó í B-dúr eftir Mozart. 20.45
tJfvarpsiriðliidi, 5.
tbl. þ. á. er kom-
ið út. Efni: Fylgt
úr hlaði. Dagskrá-
in: Björgvin Guð-
mundsson sextug-
ur, Þættir af skáldinu Erni Arn-
arsyni, Héðan og handan. Ald-
arafmælis Indriða Einarssonar
verður minnzt í Þjóðjeikhúsinu og
ríkisútvarpinu. Var barið að dyr-
um. Leikrit Þjóðleikhússins. „Halló
— þetta er rikisútvarpið... .“ og
„Samband útvarpshlustenda"., —
Iþróttablaðið, aprílheftið 1951, er
komið út. Efni: Ávarp um þátt-
töku í samnorrænu sundkeppn-
inni. Skiðamótin. 10 km hlaupið,
Badminton-meistaramótið. Sund-
samband lslands stofnað. Yngstá
iþróttafélag Reykjavíkur. Knatt-
spyrnan:" Tveir landsleikir næsta
sumar. Fjölbragðaglíman. Sund-
mót 1R. Úr vesturför Ásmundar.
Samnorrænar áhugamannareglur.
Á grasafjalji. Bændaglíman mikla
að Grund. Frumíþróttir. Fréttir
frá I.S.I.
Messur á morgun.
Laugarneskirkja.
Messa kl'. 2 e. h.
(Bænadagurinn) —
Sr. Garðar Svav-
arsson. — Foss-
vogskirkja. Messa kl. 5 e. h.
(Bænadagurinn) — Sr. Garðar
Svavarsson. — Óháði frikirkju-
söfnuðurinn. Messa í Aðventkirkj-
unni kl. 2 e. h. (Bænadagurinn)
— Sr. Emil Björnsson. — Fríkirkj
an. Messa kl. 2 e. h. (Bænadag-
urinn) —- Barnaguðsþjónusta kl.
11. — Sr. Þorsteinn Björnsson.
— Nesprestakali. Messað í kapellu.
Háskólans kl. 2 e.h. — Sr. Jón
Thórarensen.
Nýiega öpinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Ásthildur Ól-
afsdóttii-, Tjarnar-
•braut 11, Hafnar-
firði og Hörður
Zópóniasson frá Akureyri, nem-
andi í Kennaraskólanum.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband Kat-
rín Sæmunds-
dóttir frá Höfn
i Hornafirði og
Eiríkur Guðjónsson frá Steinholti
í Leirársveit.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni. — Simi 5030.
SÖFNIN:
Landsbókasafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 aila virka daga
nema laugardaga kl. 10—12 og
1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 10—12
og 2—7 alla virka daga nema
laugardaga yfir sumarmánuðina
kl. 10—12. Listasafn Einars Jóns-
sonar kl. 1.30—3.30 á sunnudögum.
Bæjarbókasafnið kl. 10—10 alla
virka daga nema laugardaga ki.
1—4. Náttúrugripasafnið opið
sunnudaga kl. 1.30—3 og þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 2—®,