Þjóðviljinn - 13.06.1951, Side 4

Þjóðviljinn - 13.06.1951, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 13. júní 1951 giJÓOVILIINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóti: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur). Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiöja Þjóðviljans h.f. _______________________________________—' í einokunarklétn MorgunblaÖið skýrir frá því í gær að tveir brezkir forstjórai 'nafi dvalizt hér undanfariö og fest kaup á 6000 smálestum af freðfiski. Foi’stjórar þessir eru starfsmenn Bemast, Ltd., sem Morgunblaöið kallar „stærsta fisksölusamlag Bretlands“ og segir aö að því standi „fimm af stærstu fisksölu- og fiskframleiöslufirm- um Bretlands“. Gefur blaöiö þar meö í skyn aö þarna sé um aö ræða írjáls samtök ýmissa brezkra aöila, sem aöeins hafi samíök sér til hægðarauka. Sannleikurinn er hins vegar sá aö þau fyrirtæki sem þarna er um aö ræöa eru öll í eigu eins og sama aöila. Orðiö Bemast er tengt saman úr nöfnum þriggja stór- íyriltækja, Bennett, Mac Fisheries og Smethurst. Mac Fisheries var kevpt upp af Unileverhringnum, einum voldugasta einokunarhringi heims, 1920. Smethurst var keypt upp 1946 af Unileverhringnum. Og Bennett *var keypt upp skömmu seinna af hinum sama Unileverhring, og þá var samsteypan Bemast mynduö. Þarna er sem sé ekki um neitt „fisksölusamlag" að ræöa, heldur einok- unarfirma sem er hluti af einum ríkasta auöhring heims. Og þessi angi Unileverhringsins er ekki aöeins „fisk- sölufélag“. Það hefur einnig innan vébanda sinna stærsta togaraflota heims, stærstu hraðfrystifyrirtæki Bretlands, stóra síldveiöiflota o. s. frv. Þarna er sem sé um að ræöa einliverja stærstu keppinauta íslendinga, og þaðan eru árlega sendir stórir ránsflotar á íslandsmið til að ræna auóiindir íslenzku þjóðarinnar. Það er þannig einn einokunarhringur, fjandsamleg- ur hagsmunum íslenzka sjávarútvegsins, sem kaupir allan þann freöíisk sem seldur er til Bretlands. Þannig er til komiö hið , frjálsa framboö" og hin „frjálsa verö- myndun“ á heimsmarkaðnum sem afturhaldsblöðin láta eer jafrian t.íörætt um þegar rætt er um afuröasölumálin; það er valdboö brezka einokunarhringsins. Og þaö er 0:kki aöeins freöfiskurinn sem fer um hendur einokunar- hringsins, þaö er einnig Unilever sem kaupir síldarlýsið sem til Bietlands er selt, en þaö er sem kunnugt er meginhluti framieiöslunnar. íslendingar hafa langa reynslu af því hvernig Uni- leverhringurinn beitir aöstöðu sinni, og hefur sú saga oft verið rakin hér í blaöinu. Sérstaklega er minnisstætt hvernig verðinu á síldarlýsi var haldið niðri á styrjaldar- árunum,- og hvernig sósíalistum tókst aö stórhækka þaö með því að koma á viðskiptasamböndum vió Sovétríkin og þannig frjálsrf verömyndun. Eftir að þau viöskipta- sambönd hafa veriö slitin hefur Unileverhringurinn á ný beitt einokunaraöstööu sinni í vaxandi mæli og lækkaö verö íslénzkra afuröa ár frá ári. Hefur Thorsaraklíkan oröiö uppví§ að því að selja ár eftir ár bæöi freðfisk og síldarlýsi til Unileverhringsins á'miklu lægra veröi en fáanlegt hefur verið annars staðar, og getur skýringin ekki verið önnur en sú að Thorsararnir standi í einhverju annarlegn sambandi við valdamenn innan Unileverhrings ins, báöum til ábata. íslenzkur almenningur hefur hins vegar oröið að bera þungann af þessum viöskiptum, og hefur hann bæöi komiö fram í mikilli framleiöslutregöu og síhækkandi álögum tikað greiða bætur á of lágt verð. Morgunblaðið getur þess ekki hvert verð fáist fyrir freöfisk þann sem nú hefur verið seldur til Unilever- hringsins, en kemst hins vegar þannig aö orði: „Verðið mun vera hagstætt, eftir atvikum.“ Hvaöa atvik þarna er um aö ræða er ekki ljóst, en hitt er alkunnugt að freð- fiskurinn sem fór til Unileverhringsins í fyrra var seldur a. m. k. 10% undir framleiösluveröi. Og til þess aö geta haldið slíkum viöskiptum áfram er okurgjaldeyriskerfið til komið. Útvegsmenn fá aö ráöstafa helmingi þess gjald- eyris sem þeir fá fyrir freðfiskinn hjá Unileverhringnum að eigin geöþótta án nokkurs verðlagseftirlits. Það okur sem þannig er framkvæmt er beinn skattur Unilever- hringsins á íslendingum, á lagður til að bæta upp það lága verö sem einokunarherrarnir skammta. Þetta eru ástæðurnar til þess að Morgunblaðið skírir einn versta auöhring heims „fisksölusamlag“. Engin barnamjólk í gær hringdi til'mín maður og vakti athygli á því, að Mjólkursamsalan hér hefði enga barnamjólk á boðstólum. Hann minnti á, að nauðsynlegt væri að mjólk sem gefin væri smábörnum væri sem allra rík- ust af kostum, en f.aldi, og vafalaust með fullum rétti, að samsölumjólkin almennt sem seld er í búðunum væri- ekki hæf sem ungbamafæða; Á þessu þyrfti að verða breyting til batnaðar. Sérstök barnamjólk sekl á Akureyri Þegar við fórum að spjalla um þetta nánar rifjaðist það upp fyrir lrunningja mínum, að norður á Akureyri þar sern hann átti heima áður en hann flutti hingað, hefði mjólkur- samlagið jafnan barnamjólk til sölu í útsölum sínum. Þessi mjólk er valin frá þeirn heim- ildum á samlagssvæðinu, sem reynsla og rannsókn hefur sýnt að skila beztri mjólk, hreinni og fiturikri. En það er vitan- lega nauðsynlegt að lögð sé áherzla á, að barnamjólk sé að- eins tekin frá viðurkenndum þrifnaðarheimilum. En í því efni eru sveitaheimilin misjöfn eins og gengur. Ekki gefandi smábörnum Þessi kunnungi minn sagði ennfremur: .,Hér fæst nú aldrei skyr sem forsvaranlegt er að gefa börnum. Skyrið sem við fáum hér frá Mjólkursamsöl- unni er ekki aðeing gróft og hrjónungslegt heldur svo að segja undantekningarlaust súrt eða fúlt. Ég veit ekki live langt er síðan mitt heimili hefur fengið skyr sem kallast get- ur mannamatur. Þó kom þa'ð fyrir einstaka sinnum í vetur og töldum við þá að það væri ofan úr Borgarfirði. En Borg- arfj.skyr hefur alltaf haft betra orð á sér en skvrið frá Mjólk- urbúi Flóamanna. Hvað þessu veldur veit. ég ekki, en ma.nni dettur helzt i hug sú skýring. að Mjólkursamsalan sé farin að hræra þessu öllu saman. svo enginn munur finnist lengur á gæðum. — Ég ber fram þá ein- dregnu ósk að forráðamenn Mjólkursamsölunnar kippi þessu í lag og hafj á boðrtól- um skyr sem fært er að gefa börnum, þvi vel tilbúið skyr er hollt og mesta kostafæða". Vill fá Iag við „Drekktu nú garmurinn“ „Hrafn“ er enn við góða heilsu og skrifar okkur 10. júní á þessa leið: „Góði póst- ur.' Enn sendi ég þér fáar lín- ur. Orsök þess er hið nýja smellna kvæði eftir „Skattborg- ara“, sem þú færðir mér í dag. „Drekktu nú garmurinn". Færðu skáldinu mínar beztu þakkir. Hér sannast sem fyrr: „Þegar eitt er fengið er annars vant“. Við kvæðið vantar lag, gott lag, þá fyrst fá ljóðin gildi sitt þegar hægt er að syngja þau. — Þú sem ferð svo Víða, ættir nú að ýta und- ir tónsmiðina um samningu á góðu lagi, svo hægt sé að syngja eitthvað nýtt á ferða- lögunum í sumar. — I sumar- friði. — Þinn Hrafn.“ — Við þökkum bréfið og komum orð- sendingunni hér með á fram- færi við tónsmiðina. Vonandi láta þeir ekki Hrafn verða fyrir vonbrigðum og semja lag við kvæðið. Nýtt Iandnám samvinnu- stefnunnar. Blöðin hafa skýrt frá því ný- lega að Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis hafi opnað nýtt brauðgerðarhús í Tjamargötu 10, þar sem áður var braugerð Ingólfs Petersen. í sambandi við brauðgerðarhúsið verður út- sala á framleiðslu þéss og út- sölur víðar um bæinn. Allir unn endur samvinnuhreyfingar munu fagna þessu nýja spori, sem KRON hefur nú stigið til bættrar og aukinnar þjónustu við almenning. Svona þarf að halda áfram, eftir því sem möguleikar eru á. Samvinnu- samtök alþýöunnar þurfa áð láta æ fleiri og fleiri greinar framleiðslu og verzlunar .til sín taka. Með því er bezt séð fyr- ir vöruvöndun, réttu verðlagi og almennum neytendahags- munum. Stefnt sé framar öllu að vöruvöndun. Nú þegar KRON opnar sínar útsölur og hefur sölu á framl. vörum síns brauðgerðarhúss og kökugerðar, fylgja þessum fram kvæmdum beztu óskir allra kaupfélagssinna En jafnframt er^rétt að leggja áherzlu á það, að til þess er ætlazt af neytend um og húsmæðrum bæjarins, að þessi stofnun stefni öllu fram ar að því að vanda vöruna, gera hana á allan hátt sem bezt úr garði og skapa henni stfax í byrjun það álit sem nægir til þess að tryggja öruggan fram- tíðarrekstur þessarar nýju grein ar á stofni samvinnusamtaka reykvískrar alþýðu. Ég veit að forvígismenn KRON og starfs- fólk brauðgerðarhússins hafa á þessu fullan hug, en ekki sakar að á þetta þýðingarmikla atriði sé minnzt. Ríkisskip Hekla er í Glasgow og fer það- an á morgun til Reykjavíkur. Esja fór frá Reykjavík í gærkvöld aust ur um land til Siglufjarðar. Herðu breið er væntanleg til Reykjavík- ur í dag að austan og norðan. Skjaldbreið fer á morgun frá R.- vík til Húnaflóahafna. Þyrill er í Faxaflóa. Ármann átti að fara frá Reykjavík i gærkvöld til Vest- mannaeyja. Eimskip Brúarfoss er í Hamborg. Detti- foss er í Reykjavik. Goðafosá fór fi'á Patreksfirði í gær 12.6. til Breiðafjal'ðar og Vestmannaeyja. Guilfoss fór frá Reykjavik 9.6. til Leith og Kaupmannahafnar. Lag- arfoss fói' frá Rotterdam 11.6. til Antverpen og Hull. Selfoss er í Reykjavík, Tröllafoss kom til Hali fax 10.6. fer þaðan til Reykjavik- ur. Katla fór frá Gautaborg 9.6. til Húsavíkur. I Skipadeild SÍS Hvassafell er væntanlegt. til Ibiza í dag, frá Napoli. Arnarfell er í Ibiza. Jökuifell er í Guaya- quil í Ecuador. ,/K ) ^ .00 Morgunútvarp. 10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádeg isútvarp. • — 16.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónl.: Óþerulög. 20.30 Upplestur: Saga Gústafs Vasa eftir Jacob Riis, í þýðingu séra Röngvalds Péturssonar; fyrri lestur (Einar Guðmundsson kenn- ari les). 20,50 Tónleikar: Norsk þjóðlög. Gudrun Grave Nordlund syngur; Magne Mannheim leikur á harðangursfiðlu; Ólafur Gunn- arsson frá Vik í Lóni flytur skýr- ingar (tekið á plötur í Osló i.nóv. s. 1.). 21.20 .Erindi: Alþjóðasam^ s'tarf veðurfræðinga og -alþjóða veð.Urfræðistofnunin 'J frú Theresla Guðmundsson veðurstofustjóri)', 21.40 Djasstónleikar: „Fats“ ffall- er og Count Basie leika. 22.10 Danslög. 22.30 Dagskrárlok. Nýlega opinber- uðu trúlofun sína, ungfrú Brynja Her mannsd. og Har- aldur Ólafss., rak- aranemi, Akureyri. Ungbarnavernd Líknar Templ- arasundi 3' er opin þriðjudaga ki. 3,15—4 og fimmtudaga kl. 1,30 til 2.30 e. h. Öldungurinn Guðjón Guðmunds- son á Ljótunnarstöðum í Hrútaf. er staddur i bænum um þessar mundir og býr að Egilsgöui 16. Þrátt fyrir háan aldui', en Guðjón er 84 áya, er hann heilsuhraustur, léttur á sér sem ungur væri og fer allra sinna ferða. Hann mun dvelja í bænum fram á næstu helgi en heldur þá norður aftur. S. 1. iaugardag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Jakobi Jónssyni ungfrú Ásthildur Tóm- Snorri Gunnarsson, Heimili þeirra er i Úthlíð 16. Flugfélag íslanas Innanlandsflug: í dag eru ráð- gerðar flugferðir til Akureyrar, Vestm.-eyja, Sauðárkróks, Hclli- sands, Siglufj., Isa’fj. og Hólma- víkui'. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Vestmanna- eyja, Seyðisfjarðar, Neskaupstað- ar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarð- ar, Sauðárkróks, Blönduóss, Siglu fjarðar og Kópaskers. Flugferð verður frá Akureyri til Ólafsfjarð ar. — Millilandaflug: Gullfaxi kom frá London í gærkvöld. Víðförli, tímarit um guðfræði og kii'kjumál, 1. heftí 1951, er komið út.- Éfni: Skírn— ung barnaskírn, eftir Sigurbjörn Einarsson. Kirkjulif á Grikkiandi, eftir Eric Segeiberg. Gildi lúthersku játmngarritanna, eftir Alfred Th. Jörgensen. Himnaför Mai’íu. Hefur kristin- dómurinn gert gagn? eft'ir Sigur björn Einarsson. Til alþingis- manna, eftir Ingólf Ástmarason. Niður i bráðan Breiðafjörð, eftir Sigurbjörn Einarsson. Berginál, júni-heftið 1951, er komið út. Efni: Allt vitlaust í vinnustofunni. gleði saga frá Stokkhóimi. Heimsökn í Sþandaufangelsið. Talað af reynslu, smásaga eftir Skerrat. Þegar mað- urinn minn gerðist árisull, skop- saga. Síðasti fresturinn sakaxaála- saga. Úr heimi kvikmyndanna. Trúlofun slitið, smásaga.' Orðiaus, skopsaga. Læknisfrúin, framhalds« saga, o. fl. , _ asdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.