Þjóðviljinn - 07.07.1951, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 07.07.1951, Qupperneq 4
4) ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 7. júlí 1951 PIÓÐVIIJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fr'éttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur). Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Ummæli Alþýöublaðsms um friöarsamningana í Xóreu voru táknræn fyrir viðhorf Bandaríkjadindlanna lim gervallan heim. Það lýsti yfir því að vopnahlé væri ekki ákjósanlegt og að það væri vel skiljanlegt að friður vckti enga hrifningu. Engin önnur endalok stríðsins væru viðunandi en þau að Bandaríkjin Ieggi undir sig Norður- Kóreu alla. . Ummæli þessi birtust í leiðara Alþýöublaðsins 3. júlí s.l. og þau voru blessunarlega hreinskilin. Síðan viröist liafa verió hnippt í Stefán Pétursson og honum sagt aö slík hreinskilni væri ekki æskileg eins og sakir stæöu, aö rninnsta kosti hefur hinn stríðsþyrsti ritsstjóri vent kvæöi sínu í kross síöustu dagana og reynt að halda því fram að vopnahlé í Kóreu sé mikill „ósigur fyrir Rússa“. Nú er það svo, eins og alkunnugt er, þótt Stefán Pét- iirsson vilji ekki vita það, að Sovétríkin eru alls ekki aöili aö Kóreustyrjöldinni.. Þau hafa ekki tekiö neinn þátt í henni, hvorki beint né óbeint, enda hafa áróðursstofnanir Bandaríkjanna ekki einu sinni reynt að halda slíku fram Hins vegar hafa Sovétríkin aö sjálfsögöu fyllstu samúö með frelsisbaráttu Kórverja, þótt þau geröu sér hitt ljóst að þátttaka í Kóreustyrjöldinni hefði haft í för meö sér lieimsstyrjöld með öllum hennar afleiðingmn. Ögranirnar liefur ekki skort af hálfu bandaríska auðvaldsins en Sovétríkin hafa ekki látiö ögra sér. Sovétríkin hafa hins vegar frá upphafi verið óþreyt- andi að bera fram kröfur sínar um frið í Kóreu. Þessa dagana er t. d. tæpt ár lioið síðan mikilvæg bréfaskipti fóru á milli Nehru, forsætisráðherra Indlands, og Stalíns, íorsætisráöherra Sovétríkjanna. Nehru bauöst þar til að hafa frumkvæði að tafarlausum friðarumleitunum og friösamlegri lausn, og Stalín svaraöi um hæl og kvaö Sovétríkin styöja hann af alefli: „Ég fagna friöárfrum- kvæöi yöar. Ég er algerlega sammála yður um nauösyn þess að leysa Kóreudeiluna á. friðsamlegan hátt...“ Og cnn skrifaöi Nehru mjög vongóður 16. júlí í fyrra: „Ég er ákaflega þakklátur yður fyrir fljót og jákvæð svör. Ég set mig nú í samband við aðrar ríkisstjómir sem hiut eiga að máli og vonast til þess að geta fljótlega aft- ur snúið mér til yðar.“ En Nehru varð fyrir vonbrigðum. Bandaríkin vildu ekkert viö hann tala um friö í Kóreu, enda þótt þrjú fjöl- mennustu ríki hnattarins, Sovétríkin. Kína og Indland, með yfir milljarö íbúa, væru sömu skoöunar um friðsam- lega lausn Kóreudeilunnai. Þetta var fyrsta tilraunin, og síðan hafa stjórnmála- menn Sovétríkjanna aldrei rætt svo um alþjóðamál aö þeir hafi ekki boriö fram kröfur um frið í Kóreu. Þeim kröfum hefur hins vegar aldrei verið anzað — fyrr en nú — heldur hafa árásarherir Bandaríkjanna haldið á- íram að myrða og tortíma á þann hátt sem lýst var hér í blaðinu i gær. En hvaö kemur til að allt í einu verða jákvæð við- brögð viö síðustu ræðu Maliks, sem aðeins var framhald af tilraunum Sovétríkjanna í heilt ár? Skýringin er án cfa sú að um sama leyti sendu Bandaríkin frá sér neyöar- cp til 39 ríkisstjórna um tafarlausar hersendingar til Kóreu, og Ridgway lýsti jafnframt yfir því aö norðurher- irnir væru enn ósigraðir og heföu fullan styrk til að hefja sóknaraögeröir. Baiidaríkin hafa sem sé ekki aðeins myrt og tortímt, þau hafa einnig beöiö geysilegt tjón og oröiö aö bera það mestmegnis ein. Því var það aö fylgiríki Bandaríkjanna, sem höföu í höndunum kröfur Banclaríkjanna um hersendingar til Kóreu, brugðu við þegar eftir ræðu Maliks og tóku undir af alefli, áður en ráðamenn Bandaríkjanna höfðu fengið nokkuö ráörúm til að senda frá sér fyrirmæli. Eítir það varð ekki snúið viö, það hefði þýtt einangrun Banda- ríkjanna og ómótstæðilega sókn friðarhreyfingarinnar á vesturhveli heims. Því eru friðarsamningarnir í Kóreu mjög mikilvægur sigur fyrir stsfnu Sovétríkjanna, en agentar Bandaríkj- anna, eins og Stefán Pétursson, geta ekki dulið heift sína. Vilja ekki að sjnn hlut- ur sé eftir. Ung kona leit inn til mín í fyrradag. Hún býr í sumarbú- stað alllangt frá bænum og hafði brugðið sér til bæjarins til að ljúka 200 metra sund- inu í samnorrænu sundkeppn- inni. Konan sag'ðist þekkja margar kynsystur sínar sem væru í sumarbústöðum og öðru húsnæði sem fólk verður nú að gera sér að góðu í húsnæðis- vandræðunum, og er fjarri bæn um og því að ýmsu leyti óþægi- legt að komast þaðan í sund- laugarnar og Sundhöllina til æfinga fyrir keppnina. En hún kvað mikinn áhuga fyrir keppn inni meðal kvenna og teldu þær yfirleitt ekki eftir sér þótt þær þyrftu nokkuð á sig að Ieggja til þess að þeirra hlutur yrði ekki eftir. Konan spurði starfs- fólkið í sundhöllinni um þótt- tökuna yfirleitt og þá um leið hvort það teldi hallast á kven- fólkið í keppninni. m 200 metramir engin þolraun. Þessi kona hafði eftir starfs- fólkinu að greinilegt væri að ekki hallaði á kvenfólkið í keppninni. Þa'ð sýndi mikinn og vaxandi áhuga og teldi ekki eft- ir sér æfingar og fyrirhöfn. Hinsvegar virtist meiri deyfð ríkjandi meðal karlmannanna og mættu þeir áreiðanlega taka betur á þann tíma sem eftir er ættu þeir ekki að verða eftir- bátar kvennanna. Sjálfsagt er að gleðjast yfir þeim áhuga sem konurnar sýna fyrir sund- keppninni og sýna þær með þátt töku sinni að þær hafa vakandi skilning á þeirri þýðingu sem þessi samnorræna sundkeppni hefur fyrir okkur Islendinga. Er það vissulega líkt konunum að láta ekki sinn hlut eftir liggja þegar teflt er um stöðu íslands í þessari fyrstu al- mennu sundkeppni milli Norður- landanna allra. En hva'ð um karlmennina? Ætla þeir að láta á sannast að beir standi sig hlutfallslega ver en konumar; þvi skal ekki trúað fyrr en í síð- ustu lög- Bæjarpósturinn vill því skora á karlmenn- ina að herða sóknina. Nú eru aðeins örfáir dagur eftir og enginn syndur Islandingur (hvorki karl eða kona) má bregðast. 200 metra sundið er svo auðvelt að enginn þarf að hika við þátttöku sem getur fleytt sér á annað borð. Ein æfing er ágæt fyrir þá sem ekki hafa lengi komið í vatn. Að henni lokinni taka menn 200 metrana eins og ekkert þrifamáli", að mig minnir. En það er í sjálfu sér athyglisyert ef Víkverji fer að taka stefnu- breytingu, og ef sú breytta stefna yrði varanleg lijá honum og hans flokki mun það ver'ða mörgum gleðiefni. En „þjóð- þrifamálið“ sem Víkverji ræddi í pistli sínum þennan umrædda dag var dömufrí á dansleikjum. Þau eru að visu stundum á gömlu dönsunum. en ekki nógu oft, en hinsvegar aldrei á nýju dönsunum. Ég gæti trúað því að vinsælt yrði að hafa dömu- frí yfirleitt 15—20 mínútur í senn tvisvar eða þrisvar sinn- um á hverjum dansleik. hvort sem þar eru dansaðir nýir dans ar eða gamlir. Það ætti a. m. k. engu að spilla. Heiíir á Björn R. Ein- arsson. „Annars finnst mér að hljóm- sveitarstjórarnir ættu að taka þessa nýbreyttni upp og sér- staklega vil ég skora á mitt uppáhald í þeirra hópi, Björn R. Einarsson, að gera það. Þær muna honum það áreiðanlega sem mest á þessu græða, þ. e. þær sem verða alveg útundan með núverandi fyrirkomulagi. Fullt jafnrétti karla ok kvenna er krafa nútímans, og þess vegna á að vinna að því að dömufri verði tekin upp á hverj um dansleik. Um það er ég Vík- verja alveg sammála þótt margt beri annars í milli. — Áskrif- andi.“ Skipatlelld SIS Hvassafell losar salt á Húsavík. Arnarfell lestar saltfisk á Patreks- firði. Jökulfell er á leiðinni frá Guayaquil til Valparaiso í Chile. Ríkisskip Hekla er væntanleg til Glasgow í dag\ Esja er á leið frá Aust- fjöröum til Akureyrar. Herðu- breið er væntanleg til Rvikur í dag frá Vestfjörðum. Skjaldbreið verður væntanlega á Skagagtrönd í dag. Þyrill er norðanlands. Ár- mann fer frá Rvík i dag til Vest- mannaeyja. Flugféiag' lslands 1 dag eru áætlaðar flugferðir til Akureyrar (kl. 9,15 og 16,30), Vestmannaeyja, Blönduóss, Sauð- árkróks, isafjarðar, Egilsstaða, Siglufjarðar og frá Akureyri til Siglufjarðar. — Á morgun er ráð- gert að fljúga til Akureyrar (kl. 9,15 og 16,30), Vestmannaeyja og Sauðárkróks. — Gullfaxi fór i morgun til Khafnar; væntanlegur annað kvöld kl. 20,15 frá Kliöfn og Osló. Frá Osló kemur knatt- spyrnuliðið frá norska knatt- pyrnufélaginu Vaalerengen. væri. Víkverji og dömufrí. „Áskrifandi" sendir mér eft- irfarandi pistil um Víkverja og dömufrí á dansleikjum: ,,Til- efni þess að ég skrifa. þér er að mig langar til að drepa á mál, er minrrt var á í dáiki Vík- verja í Mbl. 15. júní s. I. Vík- verji lauk þá dálki sínum með þeim orðum, að hér væri valtið máls á „menningar- og þjóð- Elmskip Brúarfoss kom til Antwerpen 4. þm.; fer þaðan til Hull og R- víkur. Dettifoss er í N. Y. Goða- foss og Selfoss eru í Rvík. Gull- foss fer frá Reykjavík kl. 12,00 á hádegi í dag til Khafnar og Leith. Lagarfoss fór frá Húsavik 3. þm. til Gautaborgar. TröIIafoss er í Hull; fer þaðan væntanl. 10. þm. til London og Gautaborgar. Barj- ama fer væntanl.'frá Leith í dag til Rvíkur. Loftleiðir h. f. 1 dag er ráðgert að fljúga til Vestmannaeyja, Isafjarðar, Akur- eyrar og Keflavíkur (2 ferðir). — Frá Vestmannaeyjum verður farið til Hellu og Skógasands. — Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja og Keflavíkur (2 ferðir.) CiVVi’n Laugarneskirkja. Messa kl. 11 f. h. ‘F'wPaíi Séra Garðar Svav- arsson. — Foss- l [Oslýí^ vogsklrkja. Messa kl. 2 e. h. Séra Garðar Svavarsson. — Nespresta- kall. Messa fellur niður vegna við- gei-ða bæði á kapellu Háskólans og Mýrarhúsaskóla. 19.30 Tónleikar: Samsöngur (plöt- ur). 20.30 Útvarps- tríóið: Tveir kaflar úr tríói i G-dúr eftir Mozart. 20.45 Leikrit: „Andrés og hvalurinn“ eftir Gunnar Falkás. Leikstjóri: Þorsteinn Ö. Stephensen. Leikend- ur: Emilía Jónasdóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen, Steindór Hjörleifs- son, Guðný Pétursdóttir, Hólm- fríður Pálsdóttir og Einar Pálsson. 21.30 Tónleikar (pl.) 21.35 Erindi: Kirkjubæjarklaustur (frú Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá). 22.10 Dansdög (pl.) til 24.00, Hinn 30. júní voru gefin sam- ap. í hjónaband af séra Pétri Sigurgeirssyni ungfrú ^Sólveig Hermannsdóttir og Gunnar Ólafs- son sjómaður Lækjargötu 3 Akur- eyri. — Ekki var Tímiim borubrattur í gær. Framboðsfundirnir _ , í Mýrasýslu hafa alveg farið fram lijá honum líkt og finnsku þingkosningarnar skutust l'rain hjá Morgunblaðlnu á dög- unum. Þessi þögn Tímans er stað- festing á undanlialdi Framsóknar- mannaklíkunnar og sókn Bergs Sigurbjörnssonar í Mýrasýslu og veit á gott. Fundarmenn á fram- boðsfundunum voru að yfirgnæf- andi melrililuta til á máli Bergs. Hjóminum Hlín ‘Ingólfsdóttur og' Árna Einarssyni Reykjalundi fædd- ist 17 marka son- ur hinn 18. júní s.I. Iíappdrætti Háskóla lslands. Dregið verður i 7. flokki næstk. þriðjudag. Endurnýjun fer fram í dag og á mánudag, og ættu menn að gæta þess að verða ekki of seinir að endurnýja. \ ' Hinn 30. júni s. 1. opinberuðu trúlof- un sína ungfrú Arnheiður Guð- mundsdóttir og Á- gúst Hafberg. forstjóri Landaleiða. — Hclgidagslæknir: Alfreð Gíslason Barmahlíð 2. — Simi 3894. — Ósköp hafa Al- þýðublaðsmenn verið úti á þekju í fyrrakvöld. — 1 blaðinu í gær er skipið, sem ketil- sprenging varð í í Berlín, orðið leið yfir brú“ (1. síða) og á 8. síðu segir, að ellefu brezkir her- menn, sem herréttur í Ivóreu dæmdi í tveggja ára varðhald ut- an Bretlands, hafi verið sýknaðir. Verður helzt af þessum fáránlega fi'éttaflutningi ráðið, að mennirnir séú svo langt leiddir, að þeirn sé orðið gersamlega fyrirmunað að segja satt frá nokkrum hlut. Hjúkrunarkvenna- blaðið, 2. tbl. 27. árgangs er nýkom- ið út og flytur m. a. grein eftir Þór- arin Guðnason lækni, sem hann kallar Umhverfi kabbameins3júlc- linga. Sigrún Magnúsdóttir hjúkr- unarkona skrifar Eitt ár við heilsuvernd í Ameríku og Sigríður Eiriksdóttir skrifar hugleiðingar í sambandi við doktorsritgerð (Sig- urðar Sigurðssonar berklayfirlæl\n- is). Ýmislegt fleira er í ritinu Framhald á 6. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.