Þjóðviljinn - 17.07.1951, Blaðsíða 1
ifigstt veiðiútlit
Mestan aíla haía
íengið til þessa Víðir
3600 mál og Helga
3500.
Margar síldartorfur sáust
vaða á austursvæðlnu seinni
partinn í gær og vc'ru síldar-
skipin yfirleitt á leiðinni
þangað og sum þegar kom-
in á vettvang í gærkvöld og
farin að kasta. Veiðiveður
var mjög ákjósanlegt og
bezta útlit með veiði. — Það
var síldarleitarflugvél'in sem
fann síldina á þessu svæði|i
í gær og er það f jórða kvöld-
i? í röð sem hún Ieiðbeinir
skipunum á síldarmið. Af
síldarskipimum hafa nú
hæstan afla Víðir frá Eski-
firði með 3600 mál og Helga
frá Reykjavík með 3500 mál.
de Gasperi
fer frá
Forsætisráðherra Italíu, de
Gasperi baðst í gærkvöld lausn-
ar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Er gert ráð fyrir að honum
vaki endurskipulagning stjóm-
arinnar, en stjórnarflokkarnir
hafa átt i vaxandi erjum inn-
byrðis frá því í kosningunum
í suxnar, er ítalski Kommúnista-
flokkurinn vann hinn glæsilega
kosningasigur.
Frjálsari flug-
ferðir
Stjórnir Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar hafa krafizt þess
af efnahagsstofnun Evrópu í
París að hún beiti sér fyrir
því að bætt verði skilyrði flug-
félaga til frjálsrar samkeppni
á flugleiðum landa á milli.
Takmarkanir þær sem nú séu
í gildi hamli mjög heilbrigðri
þróun loftsamgangna.
Þriðjudagur 17. júlí 1951
16. árgangur
158. tölublað
Bandaríkjamenn reyna að hindra
árangur af umræðunum í Kaeson
Norður-Kóreumenn deila harðlega á ivöfeldni og
óbyrgðarleysi bandarísku hernaðaryfirvaldanna
í blöðum og útvarpi Norður-Kóreumanna er harð-
lega gagnrýnd framkoma bandarísku samninganefndar-
innar á vopnahlésfundinum’ í Kaeson, og "'-hún talin
merki þess að Bandaríkjastjórn sé lítil alvaiJá með friðar-
tal sitt.
Telja Norður-Kóreumenn að bandaríska nefndin
komi til viðræðnanna furðulega illa undirbúin og hafi
á fundunum nú í gær og fyrradag ekkert haft fram aö
læra annað en almenna talsliætti. Nefnd Norðanmanna
hafi hinsvegar flutt á fundinum ákveðnar tillögxir um
vopnahlé cg friðarumleitanir í Kóreustyrjöldinni, og á-
herzla lögö á þau atriöi er brýnust væri til þess aö það
mætti takast.
Benda blöð Norðanmánna á
að Bandaríkjamenn haldi lát-
laust áfram hermdarverkáárás-
unum á bæi og þorp Norður-
Kóreu, engu síður nú eftir að
vopnahlésviðræður eru hafnar
og sýni það eitt með öðru „frið-
anna.
Miðar í áttina
— að dagskrá!
1 opinberri tilkynningu sem
yfirherstjóm Bandaríkjamanna
í Japan birti í gær segir að
ekki sé að vænta verulegs ár-
angurs af þeim stuttu fund-
um sem haldnir hafi verið, en
þó megi segja að miðað hafi í
áttina til samkomulags um dag-
skrá.
Viðurkenna Bandaríkjamenn
að Norðanmenn hafi fylgt ná-
kvæmlega settum reglum um
að flytja burt hvem einasta
hermenn frá Kaeson og ná-
grenni og frá veginum til borg-
arinnar.
Ósvíínar ögranir
Víðsvegar um heim láta blöð
í ljós ánægju sína með fram-
hald vopnahlésviðræðnanna.
Aðfarir Ridgways hershöfð-
ingja er hann hugðist slíta við-
ræðunum vegna jafn smávægi-
legs ágreiningsmáls og „blaða-
mannadeilunnar" svonefndu,
hafa mælzt mjög illa fyrir, og
algerlega misheppnazt sem á-
róðurstiltæki.
Blaðamennirnir
— átylla!
I enskum blöðum var fram-
koma bandarísku herstjórnar-
innar tekin mjög óstinnt upp,
m. a. af stórblöðunum Nevv
Chronicle (frjálsl.) og Daily
Telegraph (íhaldsblað).
Fréttaritari News Chronicle
í Kóreu upplýsir að einnig
áður en blaðamennirnir voru
stanzaðir á fimmtudaginn hafi
„æðsti fréttaþjónustuforinginn,
Frank Allen hershöfðingi, á eig-
in ábyrgð sent fimm blaðaljós-
myndara til Kaeson, dulbúna
sem hermenn“. Telur frétta-
maðurinn að jafn ábyrgðarlaust
tiltæki sé með öllu óafsakanlegt,
og því síður sú ögrun er Ridge-
way sendi 20 blaðamenn gegn-
um víglínu Norðanmanna, án
þess að samkomulag hefði ver-
ið um það gert.
Fréttamaður Daily Telegraph
í Múnsan, segir hiklaust að
Ridgeway hafi notað blaða-
mannamálið sem átyllu til að
hætta viðræðunum. Fréttaritari
þessa áhrifamesta íhaldsblaðs
Bretlands segir:
„Eftir þeim sönnunargögnum'
sem fyrir liggja hefur Ridgeway,
hershöfðingi af ráðnujn hug
gert málið um nærveru blaða-
manna að striði sem á að
sanna, að gangi viðræðnanna
sé ekki stjórnað af kommúnist-
um“.
Það var ekki fyrr en banda-
rísku herstjórninni var orðið
ljóst að þessi átylla dugði ekki
til að breiða yfir andúð banda-
riskra stjórnarvalda á vopna-
hlésviðræðum að Ridgeway bar
fram nýjar kröfur um hlutlaust
svæði í Kaeson og fleira, ea
hafi verið tilætlunin að látaJ
stranda á þeim tókst það ekki
vegna þess hve NorðanmennJ
brugðu skjótt við, alls ósmeyk-
ir að ganga að kröfunum.
BANDARÍSK MÚTUBOÐ TIL ÍRANS
Karrimann býtur nefnahagshjálp“ ef olíudeilan verður
leyst í samræmi við hagsmuni Breta!
í fregaum frá Teheran er skýrt frá því að Averil
Harrimann reki þar erindi Bandaríkjastjórnar meö því
aigera blygðunarleysi sem einkennir diplómatí Banda-
ríkjanna siðustu árin.
í fyrsta samtali við forsætisráðherra írans aflienti
Harrimann orðsendingu frá Truman forseta, og er þar
boðin „efnahagshjálp“ frá Bandaríkjunum til írans EF
.,viðunandi“ lausn fæst á olíudeilunni, og er tekið fram
að átt sé við „viðunandi lausn“ fyrir Breta!
Forsætisráðhsrrann lýsti yfir þyí að hann væri fús
að leita sætta í deilu íransstjórnar við enska auðfélagið
Anglo Iranian, en einungis á grundvelli þjóðnýtingar-
laganna.
Fólkið rís gegn
kúgurunum
Samtímis hefur Iransstjórn
ráðizt gegn hinni róttæku al-
þýðuhreyfingu í landinu, sem
mest og bezt hefur ýtt á eftir
þjóðnýtingarhreyfingunni.
Á sunnudag voru famar
geysifjölmennar kröfugöngur í
Teheran gegn íhlutun Bretlands
og Bandarikjanna um innan-
landsmál Irans og krafðist
mannfjöldinn þess að Harri-
mann, útsendari Trumans, færi
tafarlaust úr Iandi.
Iransstjórn sendi lögreglu og
her gegn kröfugöngumönnum
og kom til ákafra bardaga. Sagt
er að þrir kröfugöngumenn
hafi látið lífið og fjöldi manna
særzt, einn lögregluþjónn beð-
ið bana og 62 særzt. Talið er
x.ð manntjón hafi orðið mun
meira en þarna er viðurkennt.
HERNAÐARÁSTAND
I gær lét íransstjórn lýsa yf-
ir hernaðarástandi í Teheran og
nágrenni.
Til þess að hægt væri að
framkvæma það varð að skipta
um héraðsstjóra í því héraði
sem höfuðborgin stendur í, því
hann neitaði að framkvæma
ráðstafanir til að koma á hem-
aðarástandi.
OFSÖKNIR
Jafnframt lét stjórnin gera
árásir á aðalstöðvar friðar-
hreyfingarinnar og Túdeh-al-
þýðuflokksins í Teheran, fang-
elsa marga leiðtoga þeirra og
banna blöðin.
Er ólga mikil í íran vegna
þessara atburða, s^m af mörg-
um er talið að geti boðað~ und-
anhald ríkisstjórnarinnar í olíu-
málinu.
Æ. F. R.
Ef nægileg þátttaka fæst,
fer Æskulýðsfylkingin í sum-
arleyfisferð í Þjórsárdal
laugardaginn 28. júlí. Dval-
ið verður í viku í tjöldum!
við Ásólfsstaði og gengið; •
þaðan um dalinn og hann
skoðaður. — Þátttaka til-
kynnist á skrifstofu ÆFR
kl. 6 til 7 daglega.
Franco og Truman semja
Samningar liafnir milli spánskra fas-
ista og „lýðræðishetjannaí4 í USA um
hernaðarbandalag
Sherman aðmíráll, yfirmaður bandaríska flotans, kom í
gær til Madrid og fébk tafarlaust viðtal við fasistaforþigjann
Franco.
Er talið að í undirbúningi sé hernaðarbandalag fasiþta-
stjórnar Spánar og „Iýðræðisstjórnarinnar“ í Washington, og
liafi jafnvel komið ti.l mála að Franco breytti stjórn sinni eitt-
hvað í þá átt að hún yrði „vinsælli“ rneðal þjóða Atlanzhafs-
bandalagsins!
Talsmaður utanríkisráðu-
neyta Bretlar.ds og Frakklands
létu í Ijós að stjórnir þeirra
teldu ekki hyggilegt að nein
þjóða Atlanzhafsbandalagsins
hæfi nána hernaðarsamvinnu
við Franco á Spáni, Stjórnir
Evrópuríkja óttast þá reiði-
öldu alþýðu manna er rísi af
slíku bandalagi við böðla
spönsku þjóðarinnar. En Banda-
ríkjastjórn fer sínu fram án
þess að spyrja um álit eða vilja
annarra ríkisstjóma Atlanz-
hafsbandalagsins. Sherman að-
míráll svaraði brezkum blaða-
manni því einu til að ferð sín
væri Bretum óviðkomandi! —
Bandaríkjaafturhaldið telur sig
hafa kúgað hægrikratana
brezku svo að hægt sé að bjóða
þeim allt — líka faðmlög við
Franco.
Hótað stríðí!
Hemámsstjóri Bandaríkjanna.
í Vestur-Þýzkalandi lét svo um
mælt í ræðu um helgina að
Þjóðverjar mættu ekki draga
þáð lengi úr þessu að leggja
fram skerf til sameiginlegra
,,varna“ Vestur-Evrópu.
Tíminn er orðinn naumur,
sagði hernámsstjórinn, það sem
gera á má ekki draga. Tafar-
laust yrði að koma upp sam-
eiginlegum Evrópuher, það
þyldi enga bið.
Ræðan var haldin í veizlu
bandarískra foringja og voru
viðstaddir háttsettir brezkir og
franskir herforingja»*