Þjóðviljinn - 17.07.1951, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 17.07.1951, Qupperneq 7
Þriðjudagur 17. júlí 1951 ÞPöÐVILJINN (7 iiui if ,úl ln IMiT ■ttl Myndir og málverk til taDkifærisgjafa. Verzlun G. Sigurðssonar, Skólavörðustíg 28. Minningárspjöld Krabbameinsíélags Reykjavíkur fást í verzl. Remedía, Aust- urstræti 7 og skrifstofu Elli- og hjúkrunarheimilisins GRUNDAR. Seljum allskonar húsgögn o.fl. undir hálfvirði. PAKKHÚSSALAN, ; I Ingólfsstræti 11. Sími 4663. Ödýr loftljós Tðja h.f., Lækjargötu 10. ; Gólfteppi :eypt og tekið í umboðsölu. ími 6682. Fornsaian Lauga- reg 47. Almenna Fasteignasalan, Ingólfsstræti 3. Sími 81320. Kaup — Sala Umboðssala: Otvarpsfónar, útvarpstæki, gólfteppi, karlmannafatnað- ur, gamlar bækur og fleira. Verzlunin Grettisgötu 31, Sími 3562. Daglega ný egg, soðin og hrá. — Kaffisalan, Hafnarstræti 16. Herraföt — Húsgögn Kaupum og seijum ný og notuð húsgögn, karlmanna- föt o. m. fl. — Sækjum — Sendum. — Söluskálinn, Klapparstíg 11, sími 2926. Munið kaffisöluna í Hafnarstræti 16. pngRisi Amper h.f., raftækjavinnustofa, Þingholtsstræti 21 sími 81556 Gúmmíviðgerðir Stórholti 27. Móttaka einnig í Kamp Knox G-9. Sendibílastöðin h. f., Ingólfsstræti 11. Sími 5113. Saumavélaviðgerðir- skrifstofuvélaviðgerðir S y 1 g j a, Laufásveg 19. Sími 2656. Lögfræðingar: Áki Jakobsson og Kristján Eiríksson, Laugaveg 27, 1. hæð. — Sími 1453. Viðgerðir á allskonar stoppuðum hús- gögnum. — Húsgagnaverk- smiðjan Bergþórugötu 11. Ragnar Ótafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi: — Lðgfræðistörf, endurskoðun og fasteignasala — Vonar- stræti 12. Sími 5999. Útvarpsviðgerðir Badíóvinnustofan, Laugaveg 166. Nýja sendibílastöðin Aðalstræti 16. Simi 1395 ’ fslendingar handteknír Framhald af 8. síðu. svar að hann kæmi rétt bráð- um. Svo leið hálftími að eng- inn vaktstjóri birtist, en ioks kom lögregluþjónn og sagði: Þið megið fara. ★ Sennilega er þessi atbur'ður enn eitt heimsmet núverandi ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin gef- Ur út fyrirmæli sem hinum er- lendu hermönnum ber að fara eftir. Þau eru höfð að engu. t Stað þess að láta þá bera virð- ingu fyrir tilskipunum sínum lætur ríkisstjórnin handtaka Is- lendinga fyrir að leyfa sér að horfa á yfirtroðslur bandarísku hermannanna! Hér er ekki við lögregluþjón- ána að sakast. Þeir framkvæma einungis fyrirskipanir síns yf- irmanns, yfirleppsins, Bjarna Benediktssonar dómsmálaráð- herra. Síldin Framhald af 8. síðu. B.iarmi Dalvík 1.143 Björg Eskifirði 912 Biörgvin Dalvík 1.339 Biörgvin Keflavík 999 Einar Hálfdáns Bolungav. 1.872 Einar Þveræingur Ólafsf. 1.167 Erlingur II. Vestm.eyjum 810 Fannev Rvík 1.630 Flosi Bolungávík 840 Frigg Höfðakaupstáð 511 Fróði Niarðvíkum 948 Garðar Rauðuvík 1.228 Grundfirðingur Grundarf. 1.138 Hagbarður Húsavík 727 Hannes Hafstein Dalvík 759 Hilmir Keflavík 739 Kári Vestmannaeyjum 1.030 Keilir Akranesi 500 Mummi Garði 998 Muninn II. Sandgerði 568 Nanna Keflavík 590 Piá’l Pálsson Hnífsdal 1.166 Pétur Jónsson Húsavík 560 Revnir Vestmannaeyjum 1.206 Ruriólfur Grundarfirði 603 Sigurður Siglufirði 1.664 Smári Hnifsdal 705 Sæfari Súðavík 639 Særún Sig'uf. fufsi 1349) 563 Sæva’dur Óiafsf. (ufsi 282) 796 Von Grenivík 883 Vörður Grenivík 1.210 Þorsteinn Dalvik 892 Bandarísk Framhald af 5. síðu. árlega flytja vindur og vatn yf- ir tuttngu sinnum meira af nær ingarefnum plantna út í busk- ann heldur en öll uppskera landsins þarf á sama tíma. En missir fjilrefna jarðar er svo sem alls ekki eina tjónið, sem af jarðvegseyðingunni leið- ir. Árlegt tjón af völdum hinna skefjalausu landskemmda og vatnsflóða í sambandi við þau er metið á 3.844 milljónir dala. Á þá allt að vera talið með, verðmæti jarðvegsins og frjó- efna lians, skaði bændanna og tjón, sem uppblástur og vatns- flóð valda á samgönguleiðum, þjóðvegum, járnbrautum, vatns vegum og hvers konar gæðum og eignum. Loks minnkar framleiðslu geta landsins, því að augljóst er, að þær jarðir, sem missa frjómold sína, geta ekki gefið jafnmikla og góða uppskeru eins og áður en þær fóru að skemmast, en þetta tjón er enginn kostur að meta á auð- veldan hátt. 1 þessu felst að jarðvegseyð- ing og jarðvegsskemmdir verða vandamál hvers einstaks íbúa Bandaríkjanna. Vér höfum ekki meira en nægjanlegt atkur- yrkjuland til þess að afla oss fæðu og klæða í framtíðinni. Verði ekki gerð gangskör að því að vernda þann jarðveg, sem enn er til, endurgræða það, sem kostur er á að gera ræktanlegt, þá lilýtur sá tími miskunnarlaust að færast nær, er Bandaríkin geta ekki leng- ur haft ofan af fyrir íbúum sínum, — alveg eins og raun- in hefur orðið víða annars stað- ar“. Landverndarastofnunin (The Soil Conservation Service) hefur aðeins starfað frá árinu 1935. Sambandsþingið setti hana á fót rneð lögum á því ári, cg var það fyrst og fremst ótti sá, sem vaknað liafði meðal fólks yfir hamförum náttúr- unnar gegn manninum, eins og skýrt kom í ljós í sandrokinu mikla. 12. maí árið áður, er rak á eftir aðgerðum, en miklu síð- ur hitt, að stjórnin hefði fram sýni og fyrirhyggju til þess að hefja baráttuna. En þennan eftirminnilega dag formyrkvað- ist sólin yfir öllu landinu frá Kiettafjöllum að Atlantshafs- ströndum af rykmekki, sem hvassviðri skófu upp af slétt- unum miklu í vesturhluta Kansas, Texas, Oklahoma og austurhluta Nýju-Mexíco og Colorado, þar sem áður voru frjósöm graslendi, sem nú voru ýmist hálfeydd eða aleydd eftir illa meðferð. Frá því að þessi stofnun hóf störf sín hef ur meðferð lands batnað mjög víða, og í öllum ririjunum hef- ur verið komið á fót jarðvernd- arnefndum, sem efla frjálsa samvinnu og samstarf bænda um þessi mál. Jarðverndar- svæði eru nú komin í öll ríkin og frá þeim hafa komið betri ræktunaraðferðir, er víða hafa verið teknar upp. Én samt sem áður er þetta lífsnauðsynlega starf, sem er frumskilyrðið fyr ir velferð þjóðarinnar, aðeins hafið og stutt á veg komið. í bók um jarðvegseyðingu í heiminum, sem kom út rétt fyr- ir styrjöldina, segja höfundar frá því, a.ð Bandaríkjamenn’ rányrkja beini meiri athygli að jarðvegs- eyðingu heldur en nokkur önn- ur þjóð, og að þeir séu fremst- í flokki að berjast á móti henni. En berið þessa frásögn saman við það, er sjálf stjórnardeildin, sem er að reyna að bægja þess- ari hættu frá, segir hér að framan. Baráttan gegn jarð- vegseyðingunni er varla hafin. Fjárveitingar sambandsstjórn- arinnar til hverskonar land- verndar, til verndar jarðvegi, skógum, dýralífi og til vatns- miðlunar og endurgræðslu, eru minna en einn hundraðshluti af árlegum útgjöldum ríkisins. Þótt hér við bætist fé, sem hin ýmsu ríki veita í sama skyni, þá er þetta allt aðeins örlítið brot af því, sem nauðsyn kref- ur til þess að verja og vernda þær náttúrlegu auðlindir, sem eru undirstaðan að styrk þjóð- arinnar í nútíð og framtíð. Mjög væri óskynsamlegt að ætla, að þessi sívaxandi vanda- mál þjóðarinnar séu auðleyst. Jarðvegsskemmdirnar eru að- eins einn þáttur í þeim glund- roða, sem ríkir um alla álfuna. Þær eru lokaþátturinn, sem skapazt hefur af öðrum skil- yrðum, bæði landfræðilegum og fjárhagslegum og meira að segja af þjóðfélagsháttum og stjórnarfari. Þess er enginn kostur, að sigrast á jarðvegseyðingunni, fyrr en það tekst að vernda svo skógana, að árlegt skógar- högg nemi ekki meiru en ár- legum vexti. Mikill hluti af hin- um ógurlegu fjárhæðum, sem varið hefur verið til að fyrir- byggja flóðahættu, mun á kom andi árum fara algerlega í súginn, nema því aðeins að ir.enn rækti á ný hæfilega mikla skóga við lækjadrög og ár- upptök og komi í veg fyrir uppblástur og eyðingu þeirra landa, sem að vatnsdrögun- um liggja. Enn sem komið er höfum vér ekki skipulagt þetta. fjölþætta starf. Verkfræðingar vorir horfa aldrei upp á móti árstraumi. Á vatnasvæði Rio Grande í Nýju-Mexícó er verið að gera áætlanir um að hefta flóð, og gert er ráð fyrir að það muni kosta 100 milljónir dala, en ekki er skeytt htð minnsta um að gera samtímis áætlun um að græða löndin við árupptökin, sem eru að cyðast og fylla ána meö leir og sandi. Menn hafa sagt um þetta hér- að, „að .það hvíldi bölvun yfir dalnum, því að náttúran væri að fremja sjálfsmorð“, En það er víða pottur brotinn, og slíkir 3rðugleikar steðja allt of víða að. Árásin á þjóðlöndin í vestri mun leiða marga erfiðleika af sór, ef hún tekst. Ekki er fegurra umhorfs við stærsta f 1 jót álfunnar, Missis- sippi, sem er (kórguð af leit og frjómold frá arðbærum lönd- um og hefur borið svo mikið undir sig við ósana, að vatnið stendur hátt á götum New Orleans hvenær sem nokkurt flóð kemur. Sagan mun endur- *:aka sig hér eins og dæmin sanna, og öfl náttúrunnar munu einhverntíma geysast fram með svo miklum ofsa, að þau munu ryðja hverri þeirri tor- færu úr vegi, sem hugvitssöm- ustu verkfræðingar kunna að hafa smíðað. Ætti það að vera öllum Ijóst, að það er ekki unnt að taka náttúruna tökum verkfræðinganna. Þegar graf- izt er fyrir um hinar fyrstu or saikir eyðleggingarinnar í Rio Grande-dalnum, má greina hið ævagamla og háskalega stríð milli hjarðmanna og akuryrkju. manna á meðal þeirra. Þetta lætur i eyrum eins og bergmál frá löngu liðnum dögum, berg- mál úr auðnum Litlu-Asíu, Palestínu, Grikklands og Spán. ar. En nú koma ýnlis tilbrigði fram. Ránsferðir hirðingja fyrri alda endurspeglast í fyr- irsát og grenjaveiðum útsend- ara hinna harðdrægu nautpen- ingseigenda á göngum og stig- um í bandaríska þjóðþinginu. Umboðsmenn skógaböðlanna eru þar lika á róli til þess að komast að samningum, er geti gefið félögum þeirra arð eða helzt stórgróða. Og það er ekkert ósiðlegt við þetta eins og þjóðfélaginu er nú háttaö. Þetta er liinn bandaríski verzl- unarsiður eins og sakir standa. - Nú er það hins vegar auðsann- að mál, að landið verður að nota með héill alþjóðar fyrir augum, og koma hér undir arð- bær lönd, skógar, dýralíf og vötn. Þetta er siðferðilegt lög- mál. Samkvæmt gildandi refsi- logum má setja hvern þann mann í fangelsi, sem stelur sér mat af búðarborði kaupmanns- ins. Brot hans snertir þó bara kaupmanninn. En þegar skóg- areigandi ryður skóg af hæð- um og meðfram vatnsdrögum til þess að auðga sjálfan sig, verður afleiðingn ekki aðeins sú, að hann taki bitann frá munni eins manns, heldur allra bænda, sem neðar búa. Eyðing" skóga umhverfis vantsdrög hlýtur óhjákvæmilega að raska allri vatnsmiðlun þar fyrir neð an, og getur meira að segja þurrkað upp allar lindir og brunria. Óteljandi þúsundir bænda í Bandarí'kjunUm hafa orðið gjaldþrota af þessum á- stæðum. Þetta lýsir vel því réttlæti, sem felst í siðferðis- hugtökum vorum. Mundu Svíar sigra? Framhald af 3. síðu. Os!ó. Bezti árangur í Svíþjóð í ár er til þessa 47,44. Bryn- geirsson er einnig mjög sterkt íslerzkt tromp í stangarstökki, en þar verðum við samt að leggja á Ragnar Lundberg. sem er vanari. (Sama daginn og þessi grein birtist sigraði Torfi Lundberg í Stokkhólmi, og Lundberg taldi Torfa sér mun fremri. Aths. Íþróttaáíðunnar). I öðrum greinum myndu Sví- ar sennilega hafa meiri eða minni yfirburði og tvöfaldur sænskur sigUr ætti að geta orðið í 7—8 greinum. I grindahlaupi mætti þó reikna með óvæntum afrekum frá Islendinga hálfu, þótt sænskir sigrar séu senni- legri. Við reiknuðum með hugs- anlegum sigri íslendinga í lang stökki, en þar geta Svíar snúið útkomunni við ef heppnin er með. Lengri hlaupin, frá 800 m og upp úr eiga, eins og lengri hindrunarhlaupin, að færa full- an sænskan sigur, einnig spjót- kast og sleggjukast og senni- lega einnig hástökk. Enn sem komið er ættu Svíar því að hafa forustu í frjálsum íþróttum á Norðurlöndum en það dregur á engan hátt úr ljómanum af afrekum Islend- ihganna á Bislett. Þau skópu íþiróttasögu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.