Þjóðviljinn - 21.07.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÖÐVILJINN
Laugardagur 21. júlí 1951
PIÓÐVIUINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuðl. — Lausasöluverð 75 aur. elnt
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Truman í hlutverki Hitlers
Fimmtán ár eru liðin fra þvi fasistiskar herforingja-
klíkur, í fararbroddi alls afturhalds Spánar, gerðu upp-
reisn gegn löglegri lýðræðisstjóm landsins, og tókst með
þriggja ára borgarastyrjöld, herstyrk frá Hitlers-Þýzka-
iandi og Ítalíu Mússolinis — og lúalegum svikum Bret-
lands og Frakklands, að hrifsa völdin í hendur sér.
Stjórn Francós var aö sjálfsögðu fasistísk einræðis-
stjórn, eftir fyrirmyndunum frá Þýzkalandi' og Ítalíu.
Með hryllilegri grimmd var verkalýðshreyfing landsins
bæld niður, foringjar verkalýðsins myrtir, fangelsaðir eða
hraktir í útlegð. Innlent og erlent auðvald og landherrar
fengu frjálsar hendur til að arðsjúga spönsku þjóðina,
sökkva henni djúpt í eymd og niðurlægingu.
Alþýða allra landa, frjálshuga menn hvarvetna um
heim, fylgdist með hetjubaráttu sp>önsku þjóðarinnar
gegn innlendum og erlendum fasistum af heitri samúð
og veittu margs konar virka hjálp, þótt afturhaldsríkis-
stjórnum tækist að hindra að sú hjálp nægði.
Enn í dag nýtur spánska þjóðin heitrar samúðar
allra frjálshuga manna og alþýðu heimsins. Nú í vetur,
þegar spánska alþýðan reis upp til fyrstu skipulegu að-
gerðanna gegn fasistastjórn Francós, í verkföllunum
miklu í Barcelona, á Norður-Spáni og víðar, blossaði upp
fögnuður alþýðu allra landa, hún sá í þessum þróttmiklu
aðgerðum vott þess að blóði stokkin fasistastjóm Francós
rambaði til falls.
En heimsafturhaldið rumskaði líka. Hvað yrði um
Spán ef þjóðin risi gegn blóðveldi Francós? Hitler var
dauður, Mússólíni hengdur, — hvar var sá maður, hvar
vár það afl, sem gæti haldið fasistískum einræðisherra,
blóðugum til axla af ofsóknum gegn verkalýðshreyfingu
og lýðræðissinnum lands síns, á veldisstóli sem þegar
riðaði til falls? Hvar átti heimsafturhaldið þann kraft er
tæki við í baráttunni gegn framfaraöflum heimsins, öfl-
um lýðræðis og verkalýðshreyfingar; þar sem Hitler og
Mússólíni voru neyddir til að sleppa?
Þeim spurningum er svarað í heimsfréttunum þessa
daga.Forseti Bandaríkjanna, Harry Truman, hefur hik-
laust tekið við því hlutverki Hitiers og Mússolinis að
styðja rambandi blóðveldi spánska fasismans. Banda-
ríkjaauðvaldið þekkir sína, samningur þess við einn ó-
þokkasælasta fasista heimsins varpar skírri og miskunn-
arlausri birtu á hræsni þess um lýðræði og frelsisást,
sýnir þá staðreynd nakta að þjóðfélagsöflin að baki fas-
istastjórn Francós á Spáni og stjóm Trumans í Banda-
ríkjum eru samskonar.
En Bandaríkjaauðvaldið vill hafa eitthvað fyrir snúð
sinn og dollar. Fasistinn Francó hefur greitt stuðning
Bandaríkjanna með ránsfeng sínum, með eign spænsku
þjóðarinnar, sjálfu landi hennar. Spán hefur hann selt
bandarísku húsbændunum að herstöð og fótaþurrku, sett
hann í aðstöðu hersetinnar hálfnýlendu. í samningi
spánskra fasista við Bandaríkjaauðvaldið felst enn blygð-
unarlausara afsal landsréttinda en Francó taldi heppi-
legt að láta uppskátt meðan húsbændurnir hétu Hitler
og Mússólíni. Og meira að segja ríkisstjómir Bretlands
og Frakklands, sem einmitt þessa daga eru að breiða
faðm sinn og Atlanzhafsbandalagsins við fasistastjórnum
Tyrklands og Grikklands, skilja hve erfitt muni reynast
að halda yfirskini lýðræðis og frelsisvarna á því banda-
lagi með aðalríki þess í innilegum hemaðarmökum við
blóðhundinn Francó.
íhaldssamur brezkur útvarpsfyrirlesari hefur líkt
samningi Bandaríkjastjórnar og Francós við bandalag
Bandaríkjanna og annars fasista — Sjang Kajséks. Einn-
ig þar var fasisti keyptur, seldi land sitt fyrir dollara og
völd. Þar — og víðar — hefur Bandaríkjaauðvaldinu
reynzt dýrt að ætla að kaupa land og landsréttindi af
fasistum. Kínverska þjóðin sýndi hver átti landið.
Spánska þjóðin mun einnig sýna það — og aðrar þær
þjóðir sem beittar hafa verið sömu lúalegu þrælatökunum.
Sjúkrasamlagið.
„Llsa“ skrifar: „I „Bæjar-
pósti“ Þjóðviljans 18. þ.m. er
minnst á kjaraskerðingu þá,
sem Sjúkrasamlag Reykjavíkur
stendur fyrir. En vegna þess
að mér finnst þar ekki nógu
fast að orði kveðið, þá langar
mig að biðja „Bæjarpóstinn"
fyrir fá orð í viðbót. S.R. hef-
ur ekki aðeins lækkað greiðsl-
ur sínar úr % í V2 gjald, held-
ur algerlega hætt að greiða
sum nauðsynleg lyf. T.d. þekki
ég gamla konu, sem hefur að
staðaldri nú á annað ár orðið
að nota pillur vi’ð of háum blóð
þrýstingi, sem læknir hennar
telur mjög mikilsvert að halda
niðri eftir því sem föng eru á.
En nú bregður svo undarlega
við, að S.R. greiðir ekki einn
einasta eyri fyrir þessi bráð-
nauðsynlegu lyf.
•
Báðist á garðinn þar
sem hann er lægstnr.
„Það virðist sannarlega að
ráðast á garðinn þar sem hann
er lægstur, að svifta gamal-
menni sem komið er á grafar-
bakkann — og hefur rúið sig
inn að skyrtunni í mörg ár, til
að greiða gjöld sín í S.R. —
þessari sjálfsögðu hjálp til að
geta keypt þau lyf, sem eiga
að halda lífinu í henni. Ég
þekki fleiri dæmi þess hvernig
ráðstöfun S.R. kemur við fá-
tækt fólk og lasið, en læt þetta
nægja í bili. Get þó ekki stillt
mig um að spyrja hvort ekki
mætti spara örlítið hjá S.R.
með því að fækka svolítið starfs
fólkinu sem minnst veit. —
— Lísa“.
•
Mjólkin þrotin kl. 9.
Bæjarpósturinn hefur af
mörgum verið beðinn að vekja
athygli Mjólkursamsölunnar á
því, að útkeyrslu mjólkurinnar
í búðirnar á morgnana hljóti að
vera eitthvað meira en lítið á-
bótavant. I allt vor og sumar
hefur flöskumjólkin þrotið í
búðunum um kl. 10 á morgnana
og jafnvel brúsamjólkin líka.
Hefur fólk því orðið að hverfa
frá og fara aðra ferð eftir
mjólkinni kl. 11—12, en þá er
keyrður út nýr skammtur.
Nú síðustu dagana hefur þetta
óviðunandi ástand enn versnað,
því nú fæst engin mjólk eftir
kl. 9 á morgnana og búðirnar
eru mjólkurlausar a.m.k. til Jtl.
Þetta er afar óþægilegt fyrir
húsmæður og aðra sem á mjólk
inni burfa að halda strax á
morgnana. Tíminn milli 11 og
12 fer hjá húsmæðrunum í
eldamennsku og undirbúning há
degisverðar. — Þessu hlýtur að
vera hægt að kippa í lag með
því að auka útsendingu magns-
ins sem keyrt er í búðirnar
strax á morgnana.
•
Sagt upp eftir 33 ára
starf.
Verkamaður skrifar: „Mér
finnst rétt að allur almenning-
ur fái að vita hvernig Ihaldið
framkvæmir nú uppsagnirnar í
bæjarvinnunni. Meðal þeirra 40
verkamanna, se.n var sagt upp
í gatnagerðinni fyrir . síðustu
helgi voru ýmsir eidri verka-
mer.n, sem hafa unnið hjá bæn-
um árum saman. Er skal nefna
tvö dæmi, sem sýna Ijóslega
hversu löng þjónusta hjá bæn-
um er metin og hvert öryggi
verkamenn í bæjarvinnunni búa
við: Meðal þeiira sem kastað
er út í atvinnuleysið er verka-
maður á sjötugsaldri, sem unn-
ið hefur hjá bænum í 33 ár.
Þessi verkamaður er slitinn orð
inn og litlar líkur til að hann
geti fengið vinnu annarsstaðar.
Öðrum er sagt upp eftir 18 ára
starf. Mér finnst þetta ákaf-
lega táknrænt um þáð öryggi
sem verkamenn búa við í hinu
margprísaða auðvaldsskipulagi.
— Verkamaður".
★ ★
Eimskip
Brúarfoss fer frá Reykjavik kl.
1 e. h. í dag vestur og norður.
Dettifoss fór frá New York 19.
þm. til Reykjavíkur. Goðafoss er
í Antwerpen. Guilfoss fer frá R-
vík kl. 12 á hádegi í dag til
Leith og Khafnar. Lagarfoss kom
til Siglufjarðar I gærkvöldi. Sel>-
foss er í Rvik. Tröllafoss kom til
Gautaborgar 19. þm. frá London.
Hesnes fermir i Antwerpen og
Hull í lok þessa mánaðar.
Skipadelld S.I.S.:
Hvassafell er á leið til Kotka
i Finnlandi frá Khöfn. Arnarfell
fór frá Vestmannaeyjum 16. þm.
áleiðis til Itaiu.
Ríkisskip
Hekla er í Glasgow. Esja var
væntanleg til Reykjavikur í morg-
un að vestan og norðan. Herðu-
breið kom til Rvikur í gærkv. að
austan og norðan. Skjaldbreið er á
Vestfjórðum á norðurleið. Þyrill
er í Faxaflóa. Ármann er í Rvik.
Flugfélag lslánds
í dag eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Blönduóss, Sauðár-
króks, Isafjarðar, Egilsstaða og
Siglufjarðar. Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (kl. 9,30
og 16,30), Sauðárkróks og Vest-
mannaeyja. — Gullfaxí er í K-
höfn og er væntartlegur þaðan til
Rvikur kl. 18,15 á morgun,
yf , 8,0Q—9,00 Morgun-
útvarp. 10,10 Veð-
urfregnir. 12,10—
13,15 Hádegisút-
varp. 15,30 Miðdeg-
isútvarp. 16,25 Veð-
urfregnir. 19,25 Veðurfregnir. 19,30
Samsóngur (plötur). 19,45 Auglýs-
ingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Einsöng-
ur: Nelson Eddy syngur (plötur).
20,45 Erindi: Ferð um England
á heslbaki (eftir dr. Jón Stefáns-
son. — Andrés Björnsson flytur).
21,10 Tónleikar: Hljómsveit Sidney
Torch leikur létt lög (plötur).
21,35 Upplestur (Haraldur Björns-
son leikari). 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,10 Danslög (pl.) til 24,00.
^ _ Já, það hefur löng-
um þótt við brenna
að ljúgvitnunum
bærl illa saman.
Þrjú marsjallblöð-
in birtu í gær
mikla frétt um giftingu dóttur
Stalíne. Morgunblaðið og Tíminn
segja að brúðkaupsveizlan hafi
staðið yfir í hálfan mánuð en
Vísir segir að hún hafi staðið
yfir í viku. Hefði nú ekki verið
nær að reyna að halda í hann
lvar hér lieima og feia honum
að annast samræmdan fréttaflutn-
ing marsjallblaðanna ailia til að
koma í veg fyrir svona leiðinleg
mistök?
Helgidagslæknir frá kl. 2 í dag til
kl. 12 á miðnætti er Signiundur
Jónsson, sími 9717. Helgidagslækne
ir á morgun (sunnudag) er Ólaf-
ur Sigurðsson, Barmahlíð 49. —
Sími 81248.
1 dag verða
gefin saman í
hjónaband af
séra Þorsteini
Björnss., Berg-
þóra Bachmann
Friðgoirsdóttir, Sundlaugavegi 24
og BaTdur Magnús Stefánsson
prentari, Karfavogi 13. Heimili
þeirra verður að Karfavogi 13.
— 7. júní sl. voru gefin saman í
hjónaoand af sr. Eiríki Bryn-
jólfssyni að Útskálum, ringfrú
Kolbrún Bjarnadóttir, stúdent og
Sigurður Jónsson (Þingeyingur),
íþróttakennari, frá Yztafelli. —
Heimili ungu hjónanna er í Máva-
hlíð 30.
Fríkirkjan. Messa
kl. 2 e. h. á morg-
un. — Sr, Þor-
steinn Björnsson.
— Nesprestakall.
Messa í kapeliu
Háskólans kl. 11 árdegis. Eftir
helgina verður prestur safnaðar-
ins, Jón Thorarensen, fjarverandi
um tí na.
Forseti Hæstaréttar
Dómarar í Hæstarétti hafa
kjörið Jón Ásbjörnsson forseta
dómsins frá 1. sept n. k. til 31.
ágúst 1952.
75 ára er í dag Júlíus Guðbrands-
son, Laugaveg 50. Hann varð rétt
eftir aldamótin húsvörður við Mið-
bæjarbarnaskólann og kannast all-
ir eldri Reykvíkingar vel við
hann. Síðan hann liætti þeim
starfa, hefur hann unnið sem
hafnarverkamaður og lengst af hjá
Ríkisskip. Július er alþekktur
dugnoðar- og atorkumaður, enn
vel ern, þrátt fyrir langan og erf-
iðan starfsdag, — og heldur enn
áfram starfi sínu hvern morgun
af fullu fjöri. Munu margir hugsa
hlýtt til gamla mannsins i dag,
þegar hann stendur við vinnuna
sína eins og endranær.
Frá húsameistarafélagi Islands
Á síðasta aðalfundi Húsameist-
arafélags Islands, voru þessir kosne
ir í stjórn: Hörður Bjarnason,
skipulagsstjóri, formaður; Gunn-
laugur Halldórsson, arkitekt, gjald-
keri, en fyrir voru í stjórninni:
Aðalsteinn Richter, arkitekt, ritari
og Sigurður Guðmundsson, arki-
tekt, sem nú er meðstjórnandi.
Ritnefnd tímarits félagsins „Bygg-
ingarlistin", var einnig kosin á
fundinum, og hana skipa nú: Sig-
valdi Thordarson, arkitekt, Sig-
uröur Guðmundsson, arkitekt,
Gunnlaugur Halldórsson, arkitekt,
Hannes Davíðsson. arkitekt og
Hörður Bjarnason form. fél.
fþróttablaðið, júli-
heftið 1951 er kom-
ið út. Efni: Sigr-
arnir styrkja þjóð-
areiningu Islend-
inga. Viðbragðið í
spretthlaupunum. Móttaka lands-
liðsins. Deyfð á þjóðhátíðardaginn.
Sexmenningarnir í sigurför. Frétta
bréf til drengja. Knttspyrnari: Ak-
urnesingar urðu íslandsmeistarar
1951. Landskeppnin Island—Svi-
þjóð. Á grasafjalli. Frá íþrótta-
þinginu. Frá Skíðasambandi Is-
lands. Fréttir frá ÍSI o. fl.
Næturlæknlr er í læknavarðstof-
unni. — Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavikur-
apóteki. — Sími 1760.