Þjóðviljinn - 21.07.1951, Blaðsíða 8
Umráð tslenélinga gfir KeflaríktirflugreHi:
islendmgum við fæknlstörf sagt upp
og bandapískir Iteriiieiiii settlr í stad þeirra
íslenzku marsjallblöSin hafa ekkert tækifæri ónotaS
látið til að reyna að telja þjóðinni trú um að Keflavíkur-
ílugvöllur væri undir íslsnzkri stjórn. Á sínum tíma
skýrðu þau frá því að hópur íslendinga hefði hafið nám
til að geta tekið að sér stjórn vallarins, og væri þaö liður
í því að íslendingar tækju að sér stjórn hans að fullu.
Á þriðjudaginn var skýrði Morgunblaðið frá því sem
miklum sigri að íslendingar hefðu nú tekið við „stjórn
þeirra deilda sem sjá um hið almenna farþegaflug. Er
brevting þessi gerð samkvæmt Keflavíkursamningnum."
Það sem gerðist á miðnætti aðfaranótt s.l. mánudags var
hinsvegar það, að 10—12 fslendingar sem unnið höfðu tækni-
störf á vellinum hættu starfi sínu, vegna þess að fjórum
dögum áður sagði bandarísbi flugvallarstjórinn Mr. Gribbon,
þeim upp starfi sínu, ÞAR SEM BANDARÍSKI FLUGHERINN
HEFÐI TEKIÐ VIÐ STJÓRN FLUGVALLARINS.
Ofan á allan blekkingavað-
alinn á undanfömum árum til
þess að reyna að telja þjóðinni
trú um að Islendingar réðu
sjálfir yfir Keflavíkurflugvell-
inum reyndu marsjallblöðin að
láta það líta svo út að Islend-
ingar hefðu fengið aukin völd á
Keflavíkurflugvellinum um sið-
ustu helgi. Það sem gerðist var
raunverulega "það, að um helm-
Líf og lisf
efnir til verðlaunaget-
raunar
Líf og list, júlíheftið er ný-
komið út. Flytur það kvæðið
Blóðlaus skuggi, eftir Vilhjálm
frá Skáholti og tvö keltnesk
Ijóð í þýðingu Hermanns Páls-
sonar. Af sögum eru í heftinu
Tvær ferðaminningar, Anna
María og Dorovisky, eftir Sig-
urð Benediktsson,
•I þessu hefti er efnt til
myndKstargetraunar. Birtar
eru 10 myndir í heftinu og eiga
lesendur að leysa úr því hverj-
ar myndanna séu málaðar af
óbrjáluðum mönnum og hverj-
ar af geðveikum. Svör eiga að
hafa borizt fyrir 20. ágúst n. k.
Sá eða sú er sendir rétta lausn
fær myndabók Kjarvals eða
dýrmæta erlenda listabók að
verðlaunum.
Á forsíðu heftisins er mynd
eftir Gaugin af nakinni konu
frá Tahiti. — Kaffihúsarabbið
um mannvígagloríuna nýju
þurfa allir að lesa.
ingi þeirra Islendinga er unnu
tæknistörf var sagt upp.
Stutt gaman skemmtilegt
Sem frægt er orðið voru Is-
lendingar aðallega notaðir til
að SÖPA og annarra ámóta
starfa á Keflavíkurflugvelli. —
Skyndilega var svo tilkynnt
að nú ættu íslendingar að fá
að gegna þýðingarmeiri störf-
um en SÓPUN á Keflavíkur-
flugvelli, og gáfu sig þá fram
áhugasamir ungir menn til áð
læra tæknileg störf, í því augna
miði að gegna þeim síðan á
flugvellinum.
Þessir ungu Islendingar urðu
ekki langlífir í starfinu, því 12.
júlí s. 1. fengu 10—12 íslend-
ingar uppsagnarbréf frá Mr.
Gribbqn, sem verið hafði flug-
vallarstjóri.
Framhaid á 2. síðu.
ALMENN OG TÖLUVERÐ
SÍLDVEIÐI í FYRRINÓTT
4000 mál og 1485 tunnur til Rauíarhafnar
á einum sólarhring
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Velði var töluvert almenn í gærkvöld og nótt. Var almenn
og töluverð söltun á Siglufirðí í nótt og dag.
I dag var engin veiði og í kvöld var veðrið farið að versna
á miðunum.
Síldin veiddist út af Skaga-
grunnshorni og 20 mílur norð-
vestur af Grímsey og ennfremur
40 mílur norðaustur af Gríms-
ey. 1 morgun fengu nokkrir
bátar veiði 20—25 mílur norð-
ur af Siglufirði.
900 tunnur í einu kasti
Eitt skip, Illugi frá Hafnar-
firði, fékk 900 tunnur í einu
kasti á Skagagrunni.
Missti annan bátinn
og hálfa nótina
Þótt veiði væri i gær og í
nótt var veðrið ekki alltaf sem
bezt. Dagný missti annan bát-
inn og hálfa nótina.
Norðmenn ferðbúast til
Jan Mayen
Norsk skip sem stunda rek-
í dag til að fá olíu o. fl. og
ætla að fara til Jan Mayen á
reknetaveiðar.
Til viðbótar þessu síðasta í
fréttinni er rétt að geta þess,
að á s.l. sumri sagði rannsókn-
arskipið Sars norsku síldveiði-
mönnunum til er síldin var kom
in austur og norður, en þeir
tóku þá ekki mark á því. Rann-
sóknarmennirnir á Sars sögðu
þáð í vor, og byggðu það á und-
angengnum rannsóknum Norð-
manna, að síldin myndi ekki
Framhald á 7. síðu.
Togaranum Austfirðingi fagnað vel
á Eskifirði. Fáskrúðsfyrði og Reyðarfirði
Togarinn Austfirðingur kom
Siœmt viðhald vega í
Þingeyjarsýslu
Ifantar tilfinnanlega veghefil í sýslnna
Þjóðvegurirm frá Akureyri um Ljósavatnssbarð, Kalda-
kinn, Reykjadal og Aðaldal til Húsavíkur hefur verið mjög
slæmur í sumar, ósléttur og holóttur. Kvarta bifreiða-
stjórar yfir því að veglhum sé illa við haldið og valdi það
tíðum skemmdum á ökutækjum. Hinsvegar ber mönnum
saman 'um að vegurinn um Mývatnssveit geti talizt góður,
en Pétur Jónsson í Reynihlíð sér um viðhald þess vegar.
Umferð er nú mjkil um sýsluna.
Enginn veghefill er nú staðsettur innan sýslunnar
þótt undarlegt kunni að virðast, þeir næstu á Akureyri,
enda ei*u vegirnir sjaldan heflaðir þrátt fyrir kvartanir
bifreiðastjóranna. S.l. fimmtudag voru þó tveir vegheflar
sendir frá Akureyri austur í sveitírnar og var talið að
þeir hefðu staðið ónotað<r á Akureyri í \ibu.
1 ,*#'##<#'#<#<#<#<#'#<##<##'#<#'#<#'##'#'#'#<##'###'#*#<##>##'#>#<#<#<##<#<#<##<##>#<#<#'###<#'##<##*##*#J
þlÓÐVILIINN
Laugardagur 21. júlí 1951 — 16. árgangur — 163. tölublað
til Eskifjarðar í fyrrinótt og
var komu hans fagnað með hófi
og ræðuhöldum í gær. Þaðan
fór hann til Fáskrúðsfjarðar en
síðan til Reyðarf jarðar í gær-
kvöld og fagnað þar með há-
tíðlegri móttöku.
Það eru Reyðarfjörður, Eski-
f jörður og Fáskrúðsfjörður sem
eiga hinn nýja togara og gera
hann út í sameiningu, en heima
höfn hans verður á Eskifirði.
Skipstjóri er Þórður Sigurðs-
son. Framkvæmdastjóri útgerð-
arinnar er Þorleifur Jónsson
frá Hafnarfirði. Togarinn er
smíðaður í Aberdeen og er 707
lestir að stærð.
Æ. F. R.
Ef nægileg þátttaka fæst,
fer Æskulýðsfylkingin í sum-
arleyfisferð í Þjórsárdal
laugardaginn 28. júlí.
Skóli Guðmundsson sigraði Banda-
ríkjamanninn Bryan í hástökki
ðrn Clausen sefti nýtt íslandsmet í 110 m grinda-
hlaupi. — Seinni hluti meistaramáts Reykjavíbur
hefst kl. 2.30 í dag
Skúli Guðmundsson sigraði Bandaríkjamaiminn Gaylord
Bryan í hástökkinu á Reykjavíkurmeistaramótinu í gærkvöld.
Guðmundur Lárusson varð aðeins */» úr sek. á eftlr Robert
Chambers í 800 m hlaupi. Örn Glausen setti nýtt íslandsmet i
110 m grindahláupi á 14,8 sek. Gamla metið, sem var 15 sek.,
átti hann sjálfur. I 800 m hlaupinu setti Akureyringurijin Hreið-
ar Jónsson nýtt drengjamet. Er það 2 mín. og */, úr sek.
Bandaríkjamenn: sigruðu I undanrásum í 100 m hlaupi, í
800 m hlaupinu, spjótkasti, 200 m hlaupi, langstökki og 3000
m hlaupi, en náðu hvergj íslenzkum metárangri nema í 3000
m þlaupi.
Formaður Frjálsíþróttasam-
bands Islands, Garðar S. Gísla-
son, setti mótið og bauð hina
bandarísku íþróttamenn vel-
komna. Mótið hófst síðan með
undanrásum í 100 m hlaupi.
Sigraði Gaylord Bryan í I. riðli
og McKenley í II., en næstir
þeim voru Hörður Haraldsson,
Ásmundur Bjarnason og Finn-
björn Þorvaldsson, sem allir
hlupu á sama tíma, 10,9 sek.
I hástökkinu var einvígi milli
Skúla og Bryan. Stökk Skúli
léttilega yfir 1.85, en Banda-
ríkjamaðurinn byrjaði með að
fella slána í þeirri hæð þótt
hann kæmist síðar yfir. Réði
það úrslitum því báðir reyndu
árangurslaust að stökkva 1,90
m.
Keppni þeirra Gu'ðmundar og
Barnaverndarfé-
lagið býður
námsstyrk
Barnavemdarfélag Reykjavík-
ur hefur ákveðið að gefa efni-
legum námsmanni kost á átta
þúsund króna styrk á ári til
að stunda tveggja ára nám í
fávitakennslu. Til greina koma
aðeins kennaraskólamenn og
stúdentar. Umsóknir um styrk
þennan, ásamt prófskírteini og
meðmælum, eiga að sendast
Barnavemdarfélagi Reykjavík-
ur, Melaskólanum, fyrir 15. á-
gúst n. k
Chambers í 800 m hlaupinu var
tvísýn og skemmtileg. Guðm.
tók forystuna í byrjun hlaups-
ins, en hleypti Chambers fljót-
lega fram fyrir sig og var
talsvert tail á milli þeirra um
tíma. Biðu menn með óþolin-
mæði eftir endaspretti Guð-
mundar og töldu áhorfendur að
hann hefði komið nokkuð seint.
Sótti Guðmundur stöðugt á sið-
ustu 100 m og var aðeins 2/10
Framh. á 7. síðu
íslenzkir lista-
menn fá góða
dóma í París
Svo sem kunnugt er opnu'ðu
íslenzku listamennirnir Gerður
Helgadóttir og Hörður Ágústs-
son sýningar í París 3. og 5.
júlí. Sýnir Gerður tíu stand-
myndir, tvær íágmyndir og
teikningar í garðinum við sýn-
ingarsal Colette Allendy, en
Hörður sýnir 30 oliumálverk
og 20 teikningar í sýningarsal
Breteau’s.
I vikublaðinu Arts föstudag-
inn 6. júlí er farið lofsamlegum
orðum um báðar sýningarnar.
Einkum er farið miklum viður-
kenningarorðum um sýningu
Har'ðar sem listdómarinn virð-
ist telja eftirtektarverðustu sýn
ingu vikunnar. Um Gerði segir,
að hún sé enn að leita að tján-
ingarformi en muni eiga mikla
framtíð fvrir sér.
Sfórþjófnaður í skartgripaverzlun
Þýfið um 40 þús. kr. virði
Stórþjófnaður var framinn
hér í bænum í fyrrinótt, er
brotizt var inn í Skartgripa-
verzlun Kornelíusar Jónssonar
á Skólavörðustíg 8;
Ekki hefur verið rannsakað
til hlýtar hve miklu hefur ver-
ið stolið úr búðinni, er áætlað
að það sé um 40 þús. kr. virði.
Talið er að stolið hafi veri'ð
um 40—60 úrum, aðallega karl-
mannsúrum, og voru þau ýmist
úr stáli, gullpletti eða gulli.
Ennfremur mun hafa verið stol-
ið 2—3 tylftum að silfurteskeið-
um, 30—40 hringjum, 38 eyraa-
Framhald á 7. síðu.
Slæmar sprettu-
horfur
Reyðarfirði. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Unnið er nú að lagningu
jarðsíma milli Reyðarf jarðar og
Eskifjarðar og starfar 20—30
manna hópur að símalagning-
unni.
Mikið kal er í túnum hér og
sprettuhorfur slæmar og útlit
fyrir að heyfengur ver'ði með
rýrasta móti.