Þjóðviljinn - 05.08.1951, Blaðsíða 5
Sunnudagur 5. ágúst 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Útflutninqur bandarískra
vara ti! Sviss stöðvaður
Vegna þess að landið vill ekki beygja sig fyrir
bandarískri skipun um takmörkun viðskipta við
Austur-Evrópu
Bandaríkjastjórn hefur nú stigið’ skref sem sýnir
glöggt hvernig farið er með marshalllöndin til að liindra
viðskipti þeirra og Austur-Evrópu.
Bandaríkin haía fyrirvaralaust stöövað allan útflutn-
ing til Sviss, vegna þess að Svisslendingar hafa hikað
við aö hlýða bandarískri fyrirskipun urn niðurskurð verzl-
unar við Austur-Evrópu.
I fréttastofuskeyti frá Was-
hington segir nánar frá þessu:
Washington, 25. júlí. Verzl-
nnarráðuneytið tilkynnir að
Bandaríkin banni útflutning
vara til Sviss, því þær geti þar
beint eða óbeint orðið komm-
únistisku löndunum að gagni.
Sviss hefur hikað við að sam
Hvenær flytur Jónas?
Stjörnuspámaður í Lindau,
Vestur-Þýzkalandi las það í
stjörnunum að þriðja heims-
styrjöldin ætti að hefjast í
júlí.
Hann sagði upp íbúð srnni
og flutti til fjalla. Þegar hon-
um var ljóst að annaðhvort
hefðu stjörnumar logið eða
hann lesið vitlaust úr þeim,
sneri hann heim aftur. En þá
var búið að leigja öðrum íbúð-
ina.
Grannar Jónasar Pýramída-
spámanns ættu að hafa gát á
því hvenær hann tekur saman
íöggur sínar og flytur til fjalla
— því hver veit nema pýra-
midinn ljúgi síður en stjöm-
nmar.
þykkja tvö ný skilyrði sem
verzlunarráðuneydið hefur sett
fyrir útflutningsleyfmn, sagði
talsmaður alþjóðaviðsikipta-
deildar ráðuneytisins. Annað
skiljTðið er að vömrnar megi
ekki koma í stað vara í Sviss
sem út séu fiuttar til komm-
únistiskra landa, og hitt að
bandarískar vömr séu ekki not-
aðar til framleiðslu vara sem
kommúnistisk ríki fái.“
Þetta fréttaskeyti sýnir ekki
einungis að Bandaríkin hika
ekki við að leggja útflutnings-
bann á vörur til lands af þeim
einum sökum að það beygir sig
ekki fyrir bandarískri fyrirskip
un. Það er jafnframt bénding
um að öll marsjallríkin hafi
fengið fyrirskipun um að þau
megi ekki selja vörur til austur-
Evrópu sem em sömu tegundar
og þær sem keyptar eru - fi*á
Bandaríkjunum né heldur nein-
ar þær vörur sem framleiddar
eru úr bandarískum vörum.
Auðvitað er þetta ósvífin
íhlutun um innanlandsmál sjálf-
stæðra ríkja — en Bandaríkin
em ekki orðin feimin \*ið „smá-
muni“ í þeim efnum.
Jofntefli
Sænska skáksambandið hefur
nú dæmt jafntefli útvarpsskák
sem þeir tefldu 28. marz í vet-
ur danski meistarinn Jens Ene-
voldsen og finnski meistarinn
Erik Böök. Skákinni var ekki
lokið þegar hætt var og áttu
Svíarnir að dæma.
Dómurinn er þannig: Þar.sem
skákinni var hætt í miðtafli og
beiðni til skákmanna um álit og
stöðumat hefur rejmzt árang-
urslaus, verður skákin að telj-
ast jafntefli.
Shaw og Edisort skrifuSust á
Irska skáldið Bemard Shaw
hefði orðið 95 ára á þessu ári,
og á afmælisdaginn vora nokk-
ur bréf hans seld á uppboði
í London.
Meðal bréfanna var svar sem
Shaw sendi Thomas Alva E<li-
son uppfinningamanninum
fræga. Edison var mjög fróð-
leiksfús og hann skrifaði Shaw
á þessa leið:
„Hvaða staðreyndir hefðu úr-
slitaáhrif á dóm yðar um hvort
ævin hafi verð árangursrík eða
ekki, ef þér lægjuð á banabeði
og lituð yfir lífsferil yðar?“
Shaw svaraði:
„Eg ligg ekki á banabeði.
Annars ikysi ég mér fremur að
deyja í vegarskurði uppi í
sveit með stjömur yfir mér.
Ævi min hefur ekki verið
árangursrík, en menn hafa á-
kveðið að telja hana það.“
Boðið var í bréfið um 900 kr.
Missti 54 konui í einu
Bandarískur kvenrithöfundur
kom nýlega í heimsókn til hins
áttræða Bikon-höfðingja í
Brezka-Kamerún, Afriku. Höfð-
inginn átti 104 konur, en dag-
inn sem rithöfundurinn kom,
náði hann ekki upp í nefið á
sér fyrir reiði, því 54 kvenn-
anna höfðu hlaupizt á brott
frá honum.
Haile Selassie (til hægri) býður fulltrúa sameinuðu þjóð-
anna í Eritreu, Eduardo Onze Matienzo frá Bolivíu, velkominn
til veizlu í Keisarahiillinni í Addis Abeba.
Á dögum árúsarstríðs Mússalínis gegn Abessiníu var nafn Ílaile
Seiassies, Abessiuíukeisara daglega á fréttasíðura blaðanna. Síð-
an hann var aftur „settur í embætii“ að stríði loknu hefur sjald-
an heyrzt á hann miniLzt, en iiaiui hóf fyrri hætti mcð grhnmd-
arharðstjórn í landinu.
Hinn 26. júií voru átta menn dæmdir til dauða í Abessiníu
og gefið að sök samsæri til að ráða keisarann af dögmn og
stoína lýðveldi í iandinu. Dómuriim var kveðinn upp eftir tveggja
daga rettarhöld i'yrr Iulvtum dyrum. Meðal sakborninga er ráð-
Iierra einn, Bilwoded Negash, sem einnig hefur verið forseti
þingsins. Handtökuruar fóru fram 9. júlí og 10. var tilkyimt
að fangarnir hefðu allir játað og beðið kesarann miskunnar.
Kínverska þjóðin qeymir
minninqu Aqnesar Smedley
Aska hennar ílutt í „giaíreit byltingarmanna”
Peking, höfuðborg Kína
Aska bandarísku skáldkon-
unnar Agnesar Smedley var
jarðsett í „grafreit byltinga-
manna“ í vesturjaðri Peking,
höfuðborgar Kína, 6. maí í vor,
með hátíðlegri viðhöfn.
Lík hinnar heimskunnu skáld
konu og blaðamanns var flutt
frá Englandi til Kína. Hún var
einlægur vinur 'kínverskrar al-
þýðu, ritaði bækur og óteljandi
blaðagreinar um kínverska
kommúnista og alþýðubylting-
una í Kína.
Viðstaddir minningarathclfn-
ina voru 800 manns, þar á með-
al ýmsir kunnustu rithöfundar
og listamenn Kínverja, Maú
Tún, Ting Ling, Laú Se, Húng
Sen, frú Lúsín og margir
fleiri. Viðstaddir voru einnig
fulltrúar ríkisstjómarinnar.
I ræðum. sem lialdnar voru
létii forystumenn hins nýja
Kína í ljós virðingu sína og
þakklæti til hinna.r látnu skáld-
konu, þökkuðu henni vináttuna
við kínversku þjóðina og hetju-
baráttu hennar gegn heimsvalda
sinnum iands síns. Þung orð
fédlu í garð þeirra bandarísku
stjórnaivalda er hröktu Agnesi
Smedley í útlegð er varð bein-
línis valdandi dauða þessarar
merku konu,
Kínverska þjóðin mun ævin-
lega gejTna minningu he.nnar
og bækur.
(Úr esperantoblaðinu E1
pojKila Cinio, Peking).
Berlínarmóts-frímerki
Rúmenska póststjómin hef-
ur gefið út frímerkjaflokk til
heiðurs Berlínarmótinu. Eru á
merkjunum myndir með kjör-
orðum mótsins.
Hryllilegir glæpir innrás-
I arherjanna og fasistaböðla
Svngmans Rhee í Kóren
Þegar alþýðuherinn kóreski náði aftur
á vald sítt hafnarbænum Inehon var þar
hryllieg aðkoma. Fasistasveitir Syngmans
Khee höfðu myrt þúsuitdir manna, þar á
meðal fangana, ,,rauðliðana“ í bangahúsi
borgarinnar. Margir fundúst í steypuþró
jioirri sem mjTidin er af, þar höfðu þessar
bardagahetjur lýðræðisins sprautað bensíni
á varnarlausa fangana og kveikt í.
Isienzka afturhaldsstjórnin, Bjarni
Ben., Eysteinn, Hermann & Co. liafa lýst
biessun sinni og velþóknun á licrnaðj inn-
rásarherjanna og fasistaböðla Syngmans
Rhee í Koreu. Það eru þeirra stríðshetjur,
stríðshetjur hiiis „vestræna lýðræðis"
Bandaríkjaauðvaldsins og isienzkra leppa
{æirra.
Fundu gullskip
I fréttastofufregn frá Miin-
el>en segir:
Tveir ungir Þjóðverjar, 25
ára piltar, segjast hafa fundið
verðmætt skip, sem prins
Ferdinand María af Bayem lét
smíða 1663 til notkunar á Starn
berg-vatni,
I því voru tvenn gullslegin
þilför og gosbmnnur, umkringcl
ur gullgrindum. 1 stafni var
gullsegin stytta af Neptúni og
í skut tvil gyllt ljón. Prinsinn
notaði skipið í veiðiferðum,
sat um borð og lét hirðmenn
sína reka veðidýrin að vatn-
inu. Talið er að i því liafi einn-
ig verið borðbúnaður lir gulli og
aðrir dýrgripir.
Skipið sökk 1758, og er ekki
vitað hvar það var. Piltarnir
hafa eytt 93 dögum að leita að
því. Þeir eru nú að safna sér
peningum til að geta kostað
björgunina, en halda staðnum
leyndum.
Gangur lífsins
Þessi smáauglýsing fannst í
sænsku blaði::
„Bamavagn óskast í skipt-
um fyrir ballkjól, sem aðeins
var. notaður í eitt skipti.“
Ógætilega auglýst
Veðlánari einn í New York
Lester Redman að nafni, sett
auglýsingu í gluggann sinn
„Vanti ykkur peninga í sum
arfríið, komið þá til mín.“
Tveir menn með skammbyss
ur tóku þessa hvatningu bck
staflega og sóttu sér 2000 doll
ara nú í vikunni.