Þjóðviljinn - 30.08.1951, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.08.1951, Blaðsíða 8
Rekstrarafgangur ríkissjóðs á fyrra árshelmingi rumlega söluskatturinn! Tekjur ríkissjóðs á fyrra helmingi yfirstandandi árs nema 157% millj. króna, en voru á sama tíma í fyrra 106,4 millj. kr. og hafa því aukizt um ca. þriðjung. Mesta tekjulind ríkisstjórnarinnar er verðtollurinn, sem gefur nær 50 millj. kr. eða fast að þriðjungi heild- arteknanna. Næstar koma ríkisstofnanirnar með 42% millj. kr. hriði hæsti tekjuliðurinn er svo hinn illræmdi söluskattur, sem stjórnarflokkarnir framlengdu enn á síðasta þingi, og færir hann ríissjóði rúml. 37 millj. kr. á þeim sex mánuðum sem yfirlitið nær yfir. í fyrra nam söluskatturinn á sama tíma 15 millj. kr. og í hitteðfyrra aðeins 10% millj. kr. Rekstrarútgjöldi nema samanlagt 121,7 millj. kr. auk heimildarlaga, þingsályktana o.fl. er nema 1,7 millj. kr. Rekstrarafgangur ríkissjóðs eftir hálft árið nemur því nú 39,2 millj. kr. í stað 13,2 millj. kr. í fyrra og 12,8 millj. kr. í hitteðfyrra. Eins og þessar tölur bera með sér nemur rekstraraf- gangur ríkissjóðs rúmlega allri þeirri upphæð, sem ríkis- stjórnin hefur kreist undan blóðugum nöglum almenn- ings og atvinnufyrirtækja í landinu með innheimtunni á söluskattinum. Þegar Alþingi kemur saman mun svo Eystenn Jónsson, heimsmethafi í skipulagðri dýrtíðar- aukningu, hrósa sér af glæsilegri fjárhagsafkomu ríkis- sjóðs. En almennigur skilur nú enn betur en áður hve gjörsamlega óþörf og óverjandi álagning og innheimta söluskattsins er. SóEborg kom til ísafjarðar í gær íssfirðingar hafa nú eignast tvo togara Isafirði. Frá fréttaritara Þjóðviijans. Hinn nýi togari, Sólborg, kom hingað um sex- leytið í kvöld og var komu skipsins vel fagnað. Sól- borg er 732 lestir og stærsti togarinn í íslenzka flot- anum. þlÓÐVlUINM Fimmtudagur 30. ágúst 1951 — 16. árgangur — 196. tölublað Hér sést Gunnar H'useby kasta kringlunni til sigurs í Berlín, 48,09 m. Var keppnin í kringlunni geysihörð, því að Tékldnn Kormuth var Iengi fyrstur með 47,57 m. Þriðji í röðinni varð Formaschka frá Tékkóslóvakíu, kastaði 44,84 m. Afli Akureyrartogaranna: Komu með 11 þús. tonn af fiski til Krossaness Við komu skipsins flutti Matthías Bjamason formaður Óháða fríhirhju- söfnuðinum berst höfðingleg gjöf frá hjónum í Vesturheimi Nýlega hafa vestur-íslenzku hjónin Margrét Oddgeirsdóttir Bjarnason og Skúli Bjarnason í Los Angeles sent Óháða frí- kirkjusöfnuðinum hér í bæ um 2000 krónur að gjöf í íslenzk- um krónum talið. Þessa stór- höfðinglegu gjöf, sem Andrés Andrésson safnaðarforma'ður hefur veitt viðtöku, gefa þau til eflingar kirkjubyggingarhug- sjón þessa safnaðar jafnframt því sem þau láta í ljósi aðdá- un á áhuga þeim og samheldni, er þar ríkir fyrir kirkjumál- unum og óska þess að söfnuð- urinn megi sem fyrst eignast kirkju. Frú Margrét er dóttir séra Oddgeirs Guðmundssotiar í Framhald á 7. síðu. Sæmileg veiði í Eyjum Vestmannaeyjum. Frá fréttaritara Þjóðv. Flestir bátanna munu hafa landað í dag, voru að koma fram á kvöld. Afli frá 50—100 tunnur. Flestir munu hafa feng- ið 60—70 tunnur. Isfirðings h.f. og Ásberg Sig- urðsson framkvæmdastjóri fé- lagsins ávörp, en Sunnukórinn söng. Síðar um kvöldið var hóf fyrir skipshöfn og bæjar- stjórn. Sólborg er smíðuð hjá Alex- ander Hall í Aberdeen. Skip- stjóri er Páll Pálsson frá Hnífsdal, fyrsti stýrim. Guð- mundur Thorlacius og fyrsti vélstjóri Kristinn Gu'ðlaugsson. Sólborg er annar togari Is- firðings h.f., en Isafjarðarbær á meirihluta hlutafjár í félag- inu. Fyrri togari Isfirðings, Isborg, er enn á síldveiðum. Fjórir af bátum samvinnu- félags Isfirðinga eru að faia á reknetaveiðar við Faxaflóa. Ferð að Hagavatni Páll Arason, bifreiðastjóri ráðgerir að fara með ferðafólk í vikulokin um Kakladal og Skessubásaveg að Hagavatni, en það er mjög sérkennileg leið og fögur. Gerir Páll ráð fyrir að fara héðan úr bænum á morgun og gista í Brunnum á Kaldadal næstu nótt. Á laugardag verður gengið á Hlöðufell og tjaldað um kvöldið í Lambahrauni, sunnan Langjökuls. Að Haga- vatni verður komið á sunnudag og eki'ð um Gullfoss til Reykja- víkur á sunnudagskvöld. Farið verður i 2—3 bifreið- um og munu nokkur sæti laus ennþá. Frekari upplýsingar um ferðina geta menn fengið í síma 7641. Bisquit, bisquit! ★ Æskiliegt væri að Sæ- mundur Elías, foreman in a bisquit factory, skrifi sem mest í Alþýðublaðið. Bæði er . hann með því að borga fyrir matinn úr heimboðinu westur og svo sýnir hann innræti sitt og flokks síns svo skýrt að aðrir gætu ekki gert það betur, og mannskinnið er líka að borga fyrir 10 þúsund króna dúsuna sem íhaldsstjómin íslenzka stakk að honum áður en lagt var af stað til Trumans. ★ Hvernig væri að reyna að borga eitthvað af þessum þungu samvizkuskuldum með kexinu sem ekki gengur út? Lítil síld til Keflavíkur Keflavík. Frá fréttarit- ara Þjóðviljans. 1 dag lönduðu aðeins 6 eða 7 síldveiðibátar í Keflavík, lönduðu flestir í Sandgerði og Grindavík. Einstaka bátur mun hafa fengið sæmilega. góðan afla í dag en afli yfirleitt tregur. 3300 tunnur salt- aðarí Sandgerði 27 bátar lönduðu þar í gær Sandgerði. Frá fréttarit- ara Þjóðviljans. 1 dag lönduðu hér 27 bátar samtals rúmlega 1000 tunnum. Aflinn var nokku'ð misjafn eða frá 7 til 109 tunnur á bát, meðalafli um 38 tunnur. Afla- hæstir voru Egill Skallagríms- son og Haffell með rúmlega 100 tunnur. — Afli var beztur í Grindavíkursjó í dag, en lítill í Miðnessjó og undir Jökli. I dag hafði verið saltað í sanitals 3300 tunnur í Sand- gerði. Um 4006 bíða eftir síma í Reykjavík Byrjað á kjallara viðbót- arbygginar í haust Um 4000 manns er nú á bið- lista í Reykjavík eftir því að fá síma. Ástæðan til þess cr einfáldlega sú að húsnæði lands símans er orðið of Iítið og get- ur ekki fjölgað símanúmerum nema með stækkun húsnæðis. Leyfi Fjárhagsráðs hefur nú fengizt fyrir byrjunarfram- kvæmdum á þessu hausti við stækkun landssimahússins og hefur húsið sem stendur á lóð- inni bak við landssímahúsið verið auglýst til ni'ðurrifs, en Fjárhagsráð mun ekki hafa leyft meiri framkvæmdir að sinni en byggingu kjallara und- ir væntanlega stækkun. Togarar Utgerðarfélags Ak- ureyrar lögðu afla sinn á karfa- Tjara til boða Á síðasta bæjarráðsfundi var skýrt frá því að Reykjavíkur- bæ hefði borizt tilboð um kaup á tjörubirgðum Reykjavíkur- flugvallarins. Var tilboði þessu vísað til afgreiðslu bæjarverk- fræðings. Hér mun vera um að ræða tjörubirgðir þær sem geymdar eru í vatnsgeymum flugvallar- ins, en á sínum tíma voru nokkrir af geymum þeim á flugvellinum, sem ætlaðir voru fyrir vatn til notkunar þegar slökkva þyrfti eld, fylltir af tjöru. Loks levft að graf a fyrir bæjar- sjukrahusi Á bæjarráðsfundi 24. þ. m. var lagt fram bréf frá Fjár- hagsráði, þar sem ráðið leyfir byrjunarframkvæmdir við bygg ingu bæjarsjúkrahúss. Sjúkrahúsaskorturinn í bæn- um og drátturinn á byggingu bæjarsjúkrahúss er enn einn vitnisburðurinn um það sem Ihaldið kallar „góða stjórn Sjálfstæðisflokksins“ á Reykja- víkurbæ. vertíðinni í sumar hjá Krossa- nesverksmiðjunni. — Alls tók verksmiðjan á móti hjá togur- unum um 11 þús. tonnum fiskj- ar og framleiddi úr aflanum 2200 tonn af mjöli og 550 tonn af lýsi. Skiptist aflinn þannig á tog- arana: Kaldbakur 3.300 tonn, Harðbakur 3.300, Svalbakur 3.200 og Jörundur 1.200 tonn. Jörundur hefur sem kunnugt er verið á síldvei'ðum í sumar, og er hlutur hans í aflanum því ekki meiri. Togararnir Pétur Halldórsson sigldi í fyrrakvöld með ca. 300 tonn af saltfiski til Danmerkur. Ingólf- ur Arnarson fer væntanlega á ísfiskveiðar í dag. Neptúnus kom inn af karfaveiðum í gær. Islandsnieistar- arnir unni Akureyri Knattspyrnuflokkur frá Akra nesi, sem varð Islandsmeistai- ar 1951, kom til Akureyrar í lok sl. viku. Kepptu Akurnes- ingar við úrvalslið úr Knatt- spymufélagi Akureyrar og Þór á laugardaginn og sigruðu með 2 mörkum gegn 1. Á sunnudag- inn kepptu Islandsmeistararnir aftur við sama lið, og unnu þá með 10 mörkum gegn 1.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.