Þjóðviljinn - 04.10.1951, Qupperneq 3
Fimmtudagur 4. október 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Fáein minningarorð
um Kristján Ó. Skagfgörð
Fyrir tæpri viku síðan kom-
um við nokkrir samstarfsmenn
Kristjáns Ó. Skagfjörðs í
Ferðafélagi Islands ofan af ör-
æfum, sennilega úr seinustu ó-
byggðaferð félagsins á þessu
hausti.
Þá var Kristján látinn.
Að vísu kom slík fregn okk-
ur ekki á óvart. Veikindi hans
voru upp á síðkastið með þeim
hætti áð ekki gat þar á orðið
nema einn endir.
Samt setti mig hljóðan.
Og nú er ég hefi lofað Þjóð-
viljanum að skrifa fáein minn-
ingarorð um Kristján, vefst.
þetta allt fyrir mér. Og í raun
er mér það að því leyti nauð-
ugt, að ég get ekki gert þetta
í örstuttu máii eins vel og ég
vildi og hann á skilið.
Kynni mín við hann hafa
beint og óbeint orðið einn þátt-
ur í hamingju minni og gleði
um röska.n áratug. I fylgd hans
um byggðir og öræfi Islands
hef ég átt óteljandi ánægju-
stundir, og í starfi því, sem ég
hef gegnt sem leiðsögumaður
ferðahópa um landið undanfar-
in ár í þágu þess starfs, sem
hann sá um framkvæmdir á,
hefi ég kynnzt nokkru af þeirri
sömu fegurð, sem hreif hann
svo djúpt og sem færði okkur
báðum þá djúpu gleði, er menn
minnast æfilangt og búa að,
en trauðla verður með orðum
tjáð. Og þegar mannkostir hans
og vinátta, heil og brestalaus
er svo fast saman ofin við þessi
áhrif og minningar, er þetta
allt huganum svo létt og sam-
gróið, en pennanum svo erfitt
og ótiltækt.
Því eru þessar línur fátæk-
legar og tregar.
Kristján 0. Skagfjörð var
Breiðfirðingur að ætt, fæddur í
Flatey 11. október 1883. En
til Skagafjarðar átti hann og
ætt að rekja. Ungur mun hann
hafa byr.iað verzlunarstörf; um
skeið á Patreksfirði. 1913 lauk
hann prófi í verzlunarfræðum
í Lundúnum, og í Englandi
vann hann við þau efni í nokk-
ur ár.
1916 hóf Kristján umboðs-
og heildsölustörf í Reykjavik
og gegndi þeim æ síðan öðrum
þræði.
Um þá starfsemi hans verð-
nr hér ekki ritað. Það gera ef-
laust aðrir kunnugri. Þó fór
það ekki leynt. jafnvel okkur.
sem áttum með honum samstarf
í a.Ilt öðrum efnum. að í kaup-
sýslu sinni var Kristján sami
grandvari heiðursmaðurinn sem
öllum öðrum verkum. er hann
innt.i af höndum um langa æfi.
Lífið og sálin í Skíðafélagi
Reykjávíkur var hann og um
fjölda 'ára.
En bað eru störf hans í
Ferðafélagi Islands. er ég hygg
að halda. munu mirminfru hans
hæst og lengst á lofti. Þar var
hann brautryðjandi. Þar vann
lrann hátt á annan áratug mik-
ilsverðustu störfin og af þeirri
einlæFni, þeim heilhug og giftu
að fátítt, mun
Ferðafélag Islands á ýmsum
ágætura mönnum mikið að
bakka, allt frá stofnun þess og
til þesna dags. Samt mun eng-
um bei-*'* góðu manna rangt
til gert/ þótt fullyrt sé. að
ekkert eins mnnns nafn beri þar
jafn hátt og hans, sem borinn
er til moldar í dag. Undir hans
framkvfpmdastiórn óx F.I. uup
í einn fiölmennasta félansskan
á landinu. Hann kenudi fólki að
férffast. Hann kenndi mönn-
um ferðamenningu Og hann
kenndi okkur að bekkia land
okkar og met.a. Ekki með há-
værum áróðri, ræðuhöldun) né
auglýsingaskrumi, heldur með
því fyrst og fremst að gefa
okkur kost á ferðalögum með
hagkvæmu móti um byggðir og
öræfi og sjá eigin augum ýmsa
fegurstu og svipmestu staði og
svæði. Og það má vera furðu
sljófur hugur og sál, er ekki
býr að þeim áhrifum lengur
og betur en mörgu því, sem
annars er talið hverjum manni
KRISTJÁN Ö. SKAGFJÖRÐ
þroskavænleg nauðsyn. Sjálfur
var Skagfjörð hinn mesti ferða-
garpur og eirði óvíða betur en
uppi um fjöll og jökla. Auk
þess fór hann flest sumur vest-
ur á Breiðafjörð til átthag-
anna, þar sem hann átti hvar-
vetna vinum að máeta. Síðasta
fjallaferðin hans var í fyrra
sumar, seint í ágúst. Vi'ð höfð-
um þá nokkurn grun um, að
hann gengi ekki heill til skóg-
ar. Þegar leggja átti af stað
upp á Hánípur frá sæluhúsinu
í Kerlingaf jöllum veigraði hann
sér við fjallgöngunni og fékk
annan leiðsögumann. En er hóp-
urinn var kominn upp á Há-
nípujökul, sást til ferða Skag-
fjörðs. Hann unnti sér ekki
friðar, en hélt af stað hálf-
tíma síðar en aðrir. En upp á
Snækoll komst hann 10 minút-
um seinna en förunautar hans.
Einhver bezta leiðin til áð
unna ættjörð sinni, vinna
henni sem mest og bezt af
heilli, yfirdrepslausri ást, er að
kynnast henni, alveg á sama
hátt og sá, er nemur tungu
okkar af næmum skilningi og
dýpt verður hrifinn af kostum
hennar og fegurð og gerist upp
frá því hennar verndari eftir
því stm efni hrökkva til.
Og nú er Kristján Skagfjörð
horfinn — sjónum okkar að
minnsta kosti. En minnistæð
verða mér orð eins félaga míns
er við komum heim úr seinustu
fjallaferðinni og fréttum áð
hann hefði dáið kvöldið sem
við héldum inn á öræfin. —
..Kannski hann hafi verið með
okkur þarnp uppfrá“!
Já, kannski það. Eitt er víst:
minning hans fylgir okkur hve.r
sem við eigum eftir áð fara
um öræfi Islands. Sú minning
er björt. og hlý.
Ástvinir hans og ættingiar
eiga Iiér á bak að s.já um-
hyggjusamri forsjá og kær-
leiksríkum vini.
Og við samstarfsmenn hans
einhverjum mætasta sæmdar-
dreng sem við höfum kynnzt.
HalÍEcr. Jónasson.
★
I dag kveðjum við Kristján
0. Skagfjörð í hinzta sinni
Á plíkri kveðjustund ríkir
eftirsjáin. Því dýpri alvara og
freai sem sá er kvaddur er var
meíri mannkostamaður. — En
góðra drengja er gott að minn-
ast. Minningin lifir þótt maðux--
inn hverfi. Minjiing í verkum,
Fmmvarp sósíalista um endurgreiðslu á þriðjungi söluskattsins:
Fjárhagsörðuglelkar bæjar- og sveif-
arfélaga eitt stærsta vandamálið
Sésíalistafl. itmn beita sér fyrir algerri
niðurfellmgu ■ söfiuskatts frá áramótuui
Eins og áður hefur verið getið í Þjóðviljanum hafa þiug-
menn sósíalista þeir Brynjólfur Bjarnason, Firmbogi Rútur
Valdimarsson og Steingrímur Aðalsteinsson, borið fram í efri
deald Alþingis frumvarp um sölnskattinn. Efni þess kemur fram
í greinum frumvarpsins, en þar segir svo m. a.:
,,Af tekjum af söluskatti (skv. 21. og 22. gr. laga nr.
100/1948 sbr. 2. gr. þessara laga áriö 1951) skal greiöa
bæjar- og sveitarfélögxim í landinu Vá hluta söluskatts-
upphæöarinnar. Nú innheimtir bæjar- eöa sveitarfélag
útsvarsálag með aukaniöurjöfnun á árinu 1951 og missir
þaö þá rétt til hluta af söluskatti skv. þessari grein.
„Hluta bæjar- og sveitarfélaga af söluskatti skal
skipt milli þeirra í réttu hlutfalli viö íbúafjöldann í
hverju einstöku bæjar- eöa sveitarfélagi við árslok áriö
1950. — Nú hefur bæjar- eða sveitarfélag innheimt út-
svarsálag á árinu 1951 og 'skal þá þeim hluta söluskatts,
sem iþví hafði borið, skipt eftir sömu reglu milli annarra
bæjar- og sveitarfélaga.
„Fjármálai'áðuneytiö annast skiptingu á hluta bæjar-
og sveitarfélaga af söluskatti."
1 greinargerð segir:
„Af öllum þeim margvíslegu
sköttum og gjöldum, sem þegn-
um þjóðfélagsins er gert að
greiða er söluskatturinn óvin-
sælastur og það ekki að ástæðu-
lausu. Sölusikatturinn er marg
lagður á sömu vöru og sclnu
þjónustu og verður því í ýmsum
tilfellum mjög veruleg upphæð,
sem hefur átt drjúgan þátt í
að auka dýrtíðina í landiiiu.
Söluskatturinn veldur auk þessa
ýmsum truflunum í viðskipta-
lífinu og er iþó engin vissa fyrir
því, að allur sá söluskattur, sem
innheimtur er komi endanlega
til skila í rSkissjóð. Loks er
söluskattur ófyrirleitinn nef-
skattur, sem leggst þyngst á
hina fátæku í þjóðfélaginu.
Þess er að vænta, að sölu-
"katturinn verði ekki látinn
gilda nema til ársloka og mun
Sósíalistaflokkurinn beita sér
ryrir því, að skatturinn verði
’átinn falla niður um næstu
íramót.
Á fjárlagafrv. fyrir 1951 eru
íætlaðar tekjur af söluskatti
55 millj. r.cróna.
Allt bendir til þess, að þessi
tekjuliður fari verulega fram
úr áætlun vegna hins aukna
innflutnings. Hins vegar eiga
bví nær öll bæjar- og sveitar-
félög í landinu í liinum mestu
fjárhagskröggum, og það svo
að ýms ])eirra geta ekki staðið
við suldbindingar sínar. Á und-
anförnum 4 árum hefur ríkis-
valdið teygt sig æ lengra í
hverskonar skattlagningu og
tolla álögum á almenning. Á
hverju þingi þessi 4 ár hafa
verið lagðir á nýir skattar, sém
nema nú samtals mikið á annað
hundrað milljónir króna. Með
bessu hefur ríkisvaldið gengið
svo nærri greiðslugetu almenn-
ings, að lítið’ er orðið eftir
minning í huga. Kristjáns Skag-
fjörðs og starfs hanns verður
minnzt með gleði og þakklæti
svo lengi sem íslenzkir menn
gista í fjallaskálum Ferðafé-
lag; íslands.
Minningin um Kristján Skag-
f.jörð, hinn glaðværa, liressa.
einlæga drengskaparmann, ylj-
ar öllum sem áttu því láni að
fagna að kynnast honum.
Vertu sæll, Kristján Skag-
fjörð. Þökk fyrir samverustund-
irnar. J. B.
fyrir bæjar- og sveitasjóðina til
að leggja á og mjög erfitt að
innheimta útsvörin. Fjárhags-
örðugleikar bæjar- og sveita-
félaga er nú orðið eitt stærsta
vandamálið í þjóðfólaginu og
þeir hljóta að aúkast verulega,
ef ríkisvaldið heldur ;uppteknum
hætti að síauka álögur sínar
jafnframt þeim ráðstöfunum,
sem bankar og ríkisvald eru nú
að framkvæma við að draga
saman atvinnulífið í landinu cg
minnka atvinnuna.
Frv. þessu er ekki ætlað að
leysa fjárhagsvandamál bæjar-
og sveitafélaga, iþó það veiti
nokkra úrlausn til bráðabirg.ða.
Ekki þýkir ástæða til þess,
að þau bæjar- eða sveitafélög,
sem innheimta viðaukaútsvör á
árinu 1951 njóti tekna af frv.
þessu.“
Harpa
fer enn tvær ferðir á þessu
hausti urn Strandahafnir frá
Ingólfsfirði til Hólmavíkur og
til baka. Hefjast ferðimar á
Ingólfsfirði á þriðjudaginn (9.
cg 16. okt.).
Herðubreið
austur um land til Raufarhafn-
ar um næstu helgi. Tekið á
móti flutningi til Hornafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar,
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar,
Bakkafjarðar, Þórshafnar og
Raufarhafnar í dag. Farséðlar
.seldir á morgun. Sú breyting
verður á áætlun skipsins, að
iþað fer ekki lengra en til Rauf-
arhafnar.
Ármann
til Vestmannaeyja í kvöld. Vöru
móttafía í dag.
Skjaldbreið
til Skagafjarðar og Eyjafiarð-
arhafna hinn 9. þ.m. Tekið á
móti flutningi til Sauðárs-
króks, Hofsóss, Haganesvíkur,
Ölafsfjarðar og Hríseyjar í dag
og á morgun. Farseðlar seldir
á mánudaginn.
Alþýðoblaðið
og Jbræðra- !
Ílolílíurinn"
★ Léttúð Alþýðnblaðsins S
umgengni við sannleikann er
alkunn, og í gœr bitnar virðing.
arleysi þess fyrir staðreyndum:
óþyrmilega á „bræðraflokknum44
brezka. Fregn þess af flokks-
þingi hans er samsuða af ó-
sannindum og missögnum« Blað-
ið segir að I miðstjórn flokks-
ins hafi hlotið kosningu
„þrír úr fylkingararmi Bevans.
.... . að honum meðtöldum ....
Hinir fjórir eru kosnir voru
eru úr fylkingararmi Attlees'd
Vill Alþýðublaðið gera grein
fyrir hvern af f jórmenningu: ::in
Bevan, Castle, Driberg og Mik-
ardo það eignar „fylldngar-
armi Attlees“?
★ Alþýðuþlaðsmenn em
auðvitað ekki það kunnugir for-
ystuliði „bræðraflokksins" að
þeir kannist við nafn frú Bar-
böru Castle og kalla hana
„Costello“, hafa líklega villzt
á henni og bófaforingjanum;
fræga í New York með því
nafni! Ekki er þekkingin meiri
á starfsháttum flokksins, blað-
ið segir að „þingflokkur Al-
þýðuflokksins" hafi kosið 12
miðstjórnarmenn en hann kýs
ekki einn einasta, það vora
verkalýðsfélögin, sem kusn 12
menn í miðstjórnina.
★ Hætt er við að Bevan
kæmi ýmislegt ókunnuglcga
f.vrir sjónir í frásögn Alþýðu-
blaðsins af ræðu hans á ílokks-
þinginu, svo sem er það held-
ur því fram að hann hafi vaiað
við „örlögum þeim, er rúss-
neska (svo) jafnaðarmanna-
flokkurinn hlaut“ í rússneskn
byltingunni, „of mikilli íhalds-
semi flokksins, er leiddi til
valdatöku kommúnista“. Það
sem Bevan sagði var að stefna
brezkra ílialdsmanna og þá.
einkum ChurchiIIs gagmarfi
byltingunni 1917 hefði orðið
þess valdandi að hún hefði orð-
ið blóðug og' bitur og cins'
myndi fara nú ef íhaldssíjórn
undir forystu Churehills ætti
að ráða stefnu Bretlands gagn-
vart byltíngarhreyfingunni í
Asíu og MiðauSturlöndum.
★ Af þessum fréttaflutningi
Alþýðublaðsins af flokksþingi
öflugasta sósíaldemokrataflokks
heimsins geta nienn nrarkað,
hvern trúnað er hægt að leggja
á frásagnir þess af atburðum,
sem erfiðara er að afla vitn-
eskju uni og þar sem ætla má
að allar aðstæður séu Alþýðu-
bíaðsmönnum enn ókunnugrL
Ef svo skyldi vera, sem raun-
ar virðist ótrúlegt, að Alþýðu-
blaðsmönnum þyki viðkunnan-
legra að einhver heil brú sé
framvegis í fréttum IJaiV;
þeirra af „bræðrafIokknmn“.
skulum við Þjóðviljamenn ekkí
skorast undan að veita þeimi
tilsögn um menn og málefni í
„brezka Alþýðuflokknum".