Þjóðviljinn - 04.10.1951, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.10.1951, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 4. október 1951 6. D A G U R . við vél, leggja múrsteina, smíða, múra eða hamra, þegar aðrir drengir, sem ekki voru hótinu betri en hann, gátu orðið skrif- stofumenn, lyfjafræðingar, bókhaldarar, bankamenn og kaup- sýslumenn? Var það ekki aumt líf, engu betra en líf hans hingað til, að ganga í slitnum og óhreinum fötum, fara snemma á fætur og vinna algenga, ómerkiiega vinnu? Því að Clyde var jafn hégómlegur og stórlyndur og hann var fátækur. Hann var einn hinna sérkennilegu einstaiklinga, sem líta á sjálfa sig eins og undantekningu — hann tengdist aldrei fjölskyldunni órjúfandi böndum og fann aldrei til þakklætis til þeirra, sem báru ábyrgð á komu hans í þennan heim. Þvert á móti varð honum oft á að gagnrýni foreldra s-ína, ekki með illgirni eða beizkju, en með glöggu auga fyrir séreinkennum þeirra og ágöllum. En þrátt fyrir glðgga dómgreind sína að þessu leyti, gat hann aldrei — að minnsta kosti eklki áður en hann varð sextán ára — gert neinar raunhæfar áætlanir um framtíð sína. Um þetta leyti var hann að komast á kynþroskaaldurinn, og hann var þegar búinn að fá mikinn áhuga á hinu veika kyni, á aðdráttarafli þess á hann, og því aðdráttarafli sem hann hafði yfir að búa. Og um leið fór hann að hugsa mikið um ldæðaburð sinn og útlit — hvort hann stæðist samanburð við aðra drengi. Honum var raun að því að finna að hann var rytjulega klæddur; hann var ekki eins glæsilegur og aðlaðandi og hann hefði ann- ars getað verið. Það var hræðilegt að vera fæddur fátæ’mr og eiga engan að til að hjálpa sér og geta ekki einu sinni hjálpað sér sjálfur. Þá sjaldan að hann komst yfir spegil til að skoða sig 1, leiddu athuganir hans í ljós, að hann var ekki ósnotur — nef hans var beint og fallega lagað, ennið hátt og hvítt, svart, liðað hár sem stimdi á og svört augu, sem voru oft dálítið þung- lyndisleg. Þunglyndi og dapurleiki voru .þegar farin að angra hann, og það lofaði ekki góðu um framtíð hans. Fjölskylda háns var skuggamein í lífinu, hann ihafði aldrei átt neina vini og gat aldrei eignazt þá, af því að fjölskylda hans var eins og hún var. Oft fylltist hann reiði og gremju yfir þéssu, en þess á milli var hann afar niðurdreginn. Þrátt fyrir glæsilegt útlit, sem stóðst fyllilega samanburð við hvern sem var, hlaut hann oft að mis- skilja þau augnatillit sem stúlkur úr öðrum þjóðfélagsstéttum sendu honum — fyrirlitningaraugnaráð, sem um leið voru eggj- andi, til þess að athuga hvort hann væri móttælkilegur eða ekki, djarfur eða huglaus. Og áður en hann var sjálfur farinn að vinna sér inn peninga, hafði hann alltaf sagt við sjálfan sig, að ef hann ætti aðeins betri flibba, íallegri skyrtu, þokkalegri skó, falleg föt og glæsi- legan yfirfrakka. eíns og sumir drengir, þá væri ekki að vita—. 0, þessi glæsilegu föt, fallegu heimilin, úrin, hringarnir, bindis- nálar, sem sumir drengirnir gátu státað af; margir drengir á hans aldri voru eir.s og glæsimenni til fara. Súmir foreldrar gáfu þeim jafnvel bíla til að leika sér að. Þeir sáust oft á aðalgötun- um í Kansas City eins og flugur sem þutu til og frá. Og fallegar stúlikur sátu í bílunum hjá þeim. En hann hafði ekki neitt. Og hafði aldrei haft. Og samt voru ótal möguleikar í þessum heimi — alls staðar var hamingjusamt og heppið fólk. Hvað átti hann að gera? Hvert átti hann að snúa sér? Hvað átti liann að leggja fyrir sig — sem gæti gert honum kleift að verða að manni? Hann vissi það ekki. Og þessir undarlegu foreldrar hans gátu ekki gefið honum neinar leiðbeiningar. ÞRIÐJI KAFLI Nú gerðist atvik sem varð til að auka á þunglyndi Clydes, þegar hann var einmitt að velta fyrir sér vandamálum sjálfs sín. Það var einnig mikið áfall fyrir Griffiths fjölskylduna í heild. Esta, systir hans, sem hann hafði mikinn áhuga á (þótt þau ættau fátt eitt sameiginlegt) strauk að heiman með leikara sem var af hendingu á ferð 1 Kansas City og varð gripinn skyndilegum ástarhug til hennar. Þrátt fyrir strangt uppeldi Estu og þann trúarhita, sem Bæjarpósturinn Framhald af 4. síðu. selja matvælin á smásöluverði og koma fæði^kostnaði verka- manna á Keflavíkurflugvelli upp fyrir allt sambærilegt sem vitað er um á þessu sviði. Er þetta einkar táknrænt fyrir þær starfsaðferðir sem harðsvíraðir og ósvífnir fjáraflamenn beita til þess að skara eld að sinni köku á annarra kostnað. En ekki er hlutur þeirra betri en Þörbjarnar, sem gengið hafa inn á þennan verzlunarmáta og veitt hafa líonum aðstclðu til að skapa sér álitlegan gróða á þennan hátt. Ástæðulaust að sætta sig við okrið. Verkamenn á Keflavíkurflug- velli þurfa með samtökum sín í milli að kveða okurverðið á fæðinu niður. Einis og sakir standa gleypir fæðiskostnaður- inn nær allt eftirvinnukaup þeirra. Þeir eiga að krefjast þess að fyllsta hagsýni sé við- höfð í innkaupum og þess gætt að kaupa allt inn á lægsta fá- anlegu verði án þess að það gangi þó út yfir gæðin, enda er það auðvelt. Þeir eiga að velja sér sinn trúnaðarmann sem fylgist með öllu fyrir þeirra hönd, eins og venja er undir sömu kringumstæðum og þarna eru. Það er engin ástæða til að sætta sig við okur og fjárplógs- starfsemi og því skal ekki trú- að fyrr en á reynir að Samein- aðir verktakar mæti »ekki slík- um óskum verkamanna um um- bætur í þessu efni með skilningi og velvilja, séu þær bomar fram af fullri djörfung. — Hrafna-Flóki.“ . Á síðastliðn'um tveimur áram hafa bifreiðastjórar og bifreiða- eigendur sannfærst um hina einstæðu eiginleika BIFREIÐASTJÓRAR! og er hún tvímælalaust eftirsóttasta bifreiðaolían á markað- inum. Það, sem gerir þessa bifreiðaolíu svo eftirsótta, er að hun ernsar om icio og 111111 smyr sýrumynáim og óeðlilegi slit Stenzt ve! hita við mikið álag Er drjág í notknn -' Ef þér hafið ekki þegar SHELL X-100 á bifreið yðar, þá dragið það ekki Sengur að skipta um. Notið ávallt SHELL X-100. Það eru Iiyggindi, sem í hag koma. H.F. SHELL Á ISLANDI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.