Þjóðviljinn - 14.10.1951, Page 1

Þjóðviljinn - 14.10.1951, Page 1
Sunnudagur 14. október 1951 — 16. árgangur — 234. tölublað Þórbergur Þórðarson flytur Frásagnir úr Suðursveit raeS EgyptalciBidi, segir F@kisf@nstiórn Stjórnir Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Tyrklands hafa sent egypzku stjórninni tilboð um mynd- nn hernaðarbandalags fyrir löndin við* botn Miðjaröar- hafs, er starfi í nánum tengslum við Atlanzhafsbanda- iagið, og taki m. a. þegar vió vörnum Súezskuröarins. Teljist brezk-egypzki samningurinn frá 1936 samtímis fallinn úr gildi. Er lagt mjög fast aö egypzku stjórninni að fallast á aö fara þessa leið en hætta við hinar einhliða aðgerðir sem fyrirhugaöar eru. Stjórn Pakistans hefur birt yfirlýsingu um deilu Egypta og Breta og styöur eindregið aðgerðir Egypta. ,,Allur hinn múhameöski heimur stendur með Egyptum í þessu réttlætismáli þeirra“, segir í yfirlýsingunni. Þorsteinn Ö. Stephensen les kvætafloldi eftir Þabio Ncruda Sverrir Kristjánsson: Hugsjón- ir Jóns Sigurðssonar uni alþing- ismenn og kjósendur Meðal egypzkra stjórnmála- manna er talið ólíklegt að þetta tilboð verði þess valdandi að Egyptar hætti við þær einhliða aðgerðir sem fyrirhugaðar eru. Er bent á að egypzka stjórn- in hafi kosið þessa leið vegna mjög sterkrar þjóðernisvakn- ingar í landinu, og eigi stjórn- in bágt með að snúa aftur þó fengist staðfestar. Vakið hefur mikla athygli að egypzka hernum hefur verið gefin fyrirskipun 'um að vera viðbúinn svo hann sé til í allt með sólarhrings fyrirvara Orðrómur um að verið sé að flytja brezka herinn á Kýprus til Súezsvæðisins hafa ekki fangist staðfestar. SÚDAN ÞRÆTUEPLI Haldi Egyptar fast við á- kvörðun sína og felli brezka samninginn frá 1936 úr gildi á morgun (mánudag) með sam- þykkt þingsins og undirskrift Farúks konungs er talið að Bretar muni einbeita sér að því að hindra egypzk yfirráð í Súdan. M MIR opnar lessfofu MlR — Menningartengsl Is- lands og Ráðstjórnarríkjanna opnar í dag lesstofu í Þing- holtsstræti 25. Jafnframt er þarna sýning á margskonar liandíðamunum, listunnum, frá Sovétríkjunum, er menningarfélagið Voks hef- ur sent MlR að gjöf. Mun eitt- hvað af þeim fást keypt að sýningunni lokinni. 1 lesstofunni eru bækur, blöð og myndrit á ensku, sænsku •, frönsku og rússnesku. Lesstof- an verður opin almenningi frá kl. 5—7 og 8—10 daglega. — Félagsmönnum í MÍR er sér- staklega boðið að koma og sjá hið nýja heimili félagsins, sem er hið vistlegasta, og taka gesti með sér. ais eg kl. 1,30 í Austurbæj arbíói. Þar lesa Gunnar Benediktsson og Þórbergur Þórðarson úr óprentuðum bókum sínum. Sverrir Kristjánsson og Þorsteinn Ö. Stephensen lesa : app. — Nokkrir óseldir aðgöngum. fást viö innganginn. 6500 Gunnar Benediktsson flytur er- Kristinn E. Andrésson flytur indið: Ég er konan þín, Gísli, ávarp er hann nefnir: Trúin á hugleiðingar um Gísla sögu íslenzkar bókmenntir. Súrssonar í gær voru Þjóðvlj- anum færðar 320 kr. að gjöf og er þá heildarupphæð- in í afmælissöfnuninni komin úpp í 6590 kr. Einn af gefendunum í fyrradag — hann færöi Þjóðvilj- anum hvorki meira né minna en 500 kr. — lýSti yfir því að hann væri á öndverðum meið við Þjóð- viljann í stjórnmálum, en hann vildi þó ekki verða án þess*að lesa b’aðið á hverjum degi. Það eru vissulega fleiri en sósíalistar sem skilja gildi Þjóðviljans í bar- áttunni fyrir sæmilegum lífskjör- um almennings og sjálfstæði lands- ins og kunna að meta það. Einn nýr áskrifandi bættist við i gær og vantar þá aðeins 20 upp á að fyrsta áfanganum verði náð. Síðustu viku bættust við 34 áskrifendur. Nú um hclgina er gott tækifæri ti'. að gera stórt á- tak í söfnununum báðum og verð- ur spennandi að sjá hversu marga áskrifendur vantar að fyrsta markinu á þriðjudagsmorguninn. Muni Bretar ætla sér að ýta undir sjálfstæðishreyfingu Súdanbúa og viðurkenna Súd- an sem sjálfstætt ríki gegn því að fá þar herstöðvar og bandalag við hið nýja ríki. VOPNAKAUP? Hermálaráðherra Egypta- lands er á ferðalagi um Sví- þjóð, og hefur skoðað helztu vopnaverksmiðjur Svía. I gær ræddi hann við sænska Ifer- málaráðherrann. lækninga Refsicaðgerðsr gegn CeyEon Brauí aí sér við U.S.A. Opinberlega er tilkynnt í Washington að í ráði séu refsi- aðgerðir gegn Ceyion vegna þess að stjórnarvöldin þar í landi hafi óhlýðnast banni Bandaríkjastjórnar við útflutn- ingi til Kína. Eru hinar fyrirhuguðu refsi- aðgerðir í því fólgnar að svipta Ceylon ,,efnahagshjálp“. Sigfús Sigurhjartarson fór utan með Gullfossi í gær. Ferð hans cr heitið til Sovétríkjanna, en þar mun hann dveljast um nokkurra mánaða skeið til lækn inga og hressingar. Sigfús hef- ur dvalizt á Landspítalanum hér rúmar fimm vikur undanfarið til rannsóknar. Meðan Sigfús er fjarverandi gegnir Guðmundur Vigfússon störfum hans í bæjarráði, Brynjólfur Bjarnason störfum hansj í (ryggingaráði og Þorlák- ur Ottesen í Kron. Ówíst að Bretar fái öryggisráði$ til a§ ferdæma Srassstjéra Talið er í New York að Bretum muni reynast örðugt að iá nægilegt atkvæðamagn í öryggisráði Sameimiðu þjóðanna til að fá samþykkta hina nýju tiUtígu sína um fordæmingu á frans- stjórn. Ér jafnvel búizt við að öryggisráðið taki ekki að svo stöddu neina ákvörðun í málinu á ráðsfundinum sem halda á í dag, heldur fresti því um óákveðinn tíma. Bandaríkjastjórn vinnur nú að því öllum árum að fá Breta og íransmenn til að taka upp samninga á ný, helzt án þess að tillaga Breta kæmi fyrir ör- yggisráðið, en litlar líkur eru taldar að það takist. Iranski ráðherrann Fatemi lýsti yfir í gær að hin nýja tillaga Breta væri með öllu ó- aðgengileg, því hún gerði ráö fyrir að öryggisráðið fyrir- skipi Iran að játast undir dóms- vald Haagdómstólsins í qIíu- deilunni. Ilarðir bardagar í Kóreo Harðir bardagar eru nú háð- ir 'á öllum vígstöðvum í Kóreu. Á miðvígstöðvunum hefur innrásarherinn beitt miklu fót- gönguliði, stutt stórskotaliði, og flugvélum, til að ná hæða- drögum nokkrum, um 50 km norður af 38 breiddarbaugnum. Á austurvígstöðvunum skipt- ast á áhlaup innrásarhersins og gagnáhlaup alþýðuhersins. — Segir í hernaðartilkynningunni frá Pyongyang að alþýðuherinn hafi hvarvetna haldið velli í átökum þessum. Ekkert markvert hefur gerzt varðandi vopnahlésumræðurnar, en sambandsmenn herjanna halda áfram viðræðunum. áráðursræðuna Er fyrrverandi nazistahers- höfðingi Ha~so von Manteufel reyndi að hefja ræðuhöld í Bremen, Þýzkalandi, til áróðurs fyrir endurvígbúnaði Þýzka- lands, tóku hundruð ungra að mótmæla hástöfum þessum „uppvakningi" nazismans. Hrópuðu áheyrendur: Burt með stríðsæsingamennina! Við hlustum ekki á nazistahershöfð- ingja! Enda þótt öflugt lögreglulið væri sent á vettvang og það reyndi að dreifa mannfjöldan- um, tókst von Mantéufel' ekki að fá næði til að flytja ræðu sína. Fundinum, sem átti að verða áróðursfundur fyrir endurvúg- búnaði Þýzkalands, lauk með því að mannfjöldinn söng int- ernasjónalinn, alþjóðasöng verkamanna. 130

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.