Þjóðviljinn - 30.10.1951, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur .30. október 1951
lnómmmMM
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
rréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jóíisteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
\______________________________________________________y
Atvinnuleysisskráiringin á Bíiduda!
SíðastliÖinn laugardag skýrði Þjóðviljinn frá niður-
stöðu atvinnuleysisskráningar fyrir ágústmánuð, sem
framkvæmd var af Verkalýðsfélaginu Vörn á Bíldudal.
Þótt um væri að ræða einn af sumarmánuðunum sýndi
atvinnuleysisskráningin að þeir fjölskyldumenn, sem til
tiennar mættu, höfðu haft aðeins kr. 250,76 til framfæris
hverjum fjölskyldumeðlim í ágústmánuði.
Þótt þessi atvinnueysisskráning og niðurstöður henn-
ar taki aðeins til fámenns kauptúns á Vestfjörðum, er
langt frá því að hér sé um nokkurt einsdæmi að ræða.
Svipað þessu er atvinnuástandið víðsvegar út um land
og jafnvel enn hörmulegra. Það er kunnugt að á Siglu-
firði, ísafirði, Ólafsfirði og víðar hefur atvinna algjörlega
brugöist og það svo að við fullkomnu neyðarástandi ligg-
ur á þessum stöðum, verði ekki gripið til ákveðinna ráð-
stafana til bjargar í tíma.
Haldbeztu og traustustu rökin fyrir kröfum verka-
lýðsins um fulla atvinnu eru reglubundnar mánaðarlegar
skráningar atvinnulausra manna og þær staðreyndir sem
þær leiða í ljós um tekjur og afkomu verkamanna. Verka-
lýðsfélagið Vörn á Bíldudal hefur lengi verið öðrum verka-
lýðsféögum fyrirmynd í þessu cfni. Það hefur undanfarna
vetur framkvæmt mánaðarlegar skráningar á félagssvæði
sínu og tekizt með því að vekja alþjóðarathygli á atvinnu-
ástandinu á Bíldudal. Ættu önnur verkalýðsfélög að
taka sér Vörn til eftirbreytni á þessu sviði og láta fram
fara skráningu atvinnulausra manna á sínum félags-
svæöum þegar ástæða þykir til.
Sú ríkisstjórn, sem nú situr að völdum og sá þing-
meirihluti sem veitir henni brautargengi, er síður en svo
hkleg til nokkurra raunhæfra aðgerða í atvinnumálun-
um nema hún verði til þeirra knúin af valdi fólksins
sjálfs og samtökum þess. En ríkisstjórnin má engan frið
fá fyrr en hún lætur undan réttlátum kröfum almennings
um atvinnu og brauð. Um það verða verkalýðssamtökin
að sjá og linna ekki kröfum sínum og baráttu fyrr en
undan er látið og allir verkamenn búa við næga og örugga
atvinnu.
Fiirðulsg sljérnarandstaða
Alþýðuflokkurinn læst vera í harðvítugri andstöðu
við núverandi afturhaldsstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar og á Alþýðublaðið varla nægilega hástemmd
orð til að lýsa vasklegri glímu Stefáns Jóhanns, Gylfa Þ.
og annarra berserkja Alþ.fl. á alþingi við stjórnina og
fylgilið hennar. Alþýðublaðið segir aö flokkur sinn sé and-
vígur kjaraskerðingum gengislækkunarinnar, bátagjald-
eyrinum, okurstarfssmi heildsalanna og öðru slílcu, sem
einkennir stjórnarstefnuna og fylgir í kjölfar hennar.
Fordæmir Alþ.bl. þetta cllt réttilega, kveður þessa þróun
alla stefna til hins mesta ófarnaðar fyrir íslenzka alþýðu.
Oftsinnis hefur liér í blaðinu verið bent á þann skrípa-
leik sem einksnnir pólitíska afstöðu foringja Alþýðu-
flokksins. Þeir eru innilega sammála grundvelli stjórnar-
stefnunnar og kjaraskerðinganna. marsjallstefnunni og
þjónustunni við Bandaríkin, en afneita óhjákvæmilegum
og rökréttum afleiðingum hennar. Þeir nota hvert tæki-
færi sem gisfst til að lýsa yfir samstöðu með stjórnarflokk-
unum í utanríkismálum og fyllsta trausti sínu á auðvirði-
legasta Iepp Bandaríkjanna á íslandi, Bjarna Benedikts-
syni. Flytur Stefán Jóhann aldrei mál sitt af innilegri
fjálgleik en þegar hann gefur þessar yfirlýsingar.
Verkalýðssamtökin eru eina aflið í landinu sem væri
þess msgnugt að setja ríkisstjórninni stólinn fyrir dyrnar
og knýja fram breytta stefnu. Einhuga afstöðu þeirra
gæti eingin ríkisstjórn hundsað. En innan verkalýðssam-
takanna hafa foringjar Alþ.fl. gert innilegt bandalag við
flokka kjaraskerðingarinnar, Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkinn, og fá aö lafa í 'stjórn heildarsamtakanna gegn
því skilyrði að halda eftir megni aftur af baráttu verka-
lýðsins, tilbúnir að vega aftan að samtökum hans þegar
mest á reynir, sbr. vinnud:ilurnar í vor og afstöðu Al-
þýðusambandsstjórnarinnar til þeirra.
Neytendasamtökin eru annað aðalvígi alþýðunnar,
við hlið verkalýðsfélaganna. Við síðustu kosningar til aðal
Röclcl úr sveitinni.
Úlfur Uggason skrifar: —
„Kæri Bæjarpóstur! Herjólfur
nökkur skrifar nýlega í Þjóð-
viljann um umgengni hjá okkur
Islendingum. í því tilefni lang-
ar mig til að biðja þig fyrir
eftirfarandi: Herjólfur er mjög
hneykslaður yfir umgengninni
hjá bændunum á landi voru.
Ekki skal það dregið í efa af
mér að henni ss að ýmsu leyti
mjög ábótavant og mætti vissu-
lega ganga víða betur um en
gert er, cllum ao kostnaðar-
lausu. En reisuleg húsakynni
verða aldrei byggð nema fyrir
ærna fjármuni og hlutur dreif-
býlisins hefur verið slíkur á
undanförnum árum að hann
gefur ekki tilefni til mikilla
framlkvæmda. Og hafi einhverri
nefndinni eða ráðinu dottið í
hug að það væri máske ekki
svo vitlaust að gera bændum
kleift að laga ofurlítið til hjá
sér, þá hafa sumir Reykvíking-
ar brugðist þannig við, að það
er engu líkara en að þeir haldi
að jörðin muni gleypa þá með
húð og hári ef eitthvað yrði úr
framkvæmdum.
★
Danssalir á Raufarhöfn
og Sigluíirði.
,,I þessu sambandi er
skemmst að minnast útvarps-
erindis, er dr. Sigurður Þórar-
insson flutti nýlega, en í því
sagði hann að á undanfömum
árum hefði miklu fé verið varið
í að viðhalda byggðinni dreift
um sveitir landsins og taldi að
það hefði verið nær að byggja
fyrir það danssali á Raufarhöfn
og Siglufirði! En þó „vakning"
sú er Fegrunarfélagið hefur
komið af stað hafi farið fram
hjá blessuðum bændunum cikk-
ar, hafa sumar vakningar borg-
arlífsins þó ekki farið fram hjá
sveitunum, a. m. k. hafa þær
gert þar lítilsháttar vart við
sig. Eins og Herjólfur réttilega
segir er það eina sem frá ung-
mennafélögunum heyrist að þau
auglýsa dansleiki um helgar.
Og svo eru það nú fleiri sem
halda slíkar skemmtanir í sveit-
unum.
★
Skemmtikraftar á ferð.
„Nú á síðustu árum hafa
ýmiskonar skemmtikraftar úr
höfuðborginni gert sér nokkuð
tiðfarið út um byggðina og vilja
sumir meina að það só ekki
eingöngu vegna^ þess að þeir
vilji hre'ssa við hið fábreytta
skemmtanalíf sveitanna, helclur
einnig vegna hins að bekkurinn
sé svo setinn í átthögunum að
þeir sc'm neyddir til að róa á
önnur og dýpri mið. Á skemmt-
unum þessum er oft venju frem-
ur taumlaus drykkjuskapur,
enda ekki grunlaust um "að
stundum séu veitingamenn á
staðnum. Sækir þær og oft all
stór hópur yeykvískra unglinga,
sem virðast hvorki vilja né
þurfa að spara við sig dropann
eða annað. Er allt háttalag
þeirra á þann veg, að okkur í
sveitinni þykir lítið meiri sómi
að en kofunum okkar, þó byggð-
ir séu úr tunnustöfum, riðguðu
bárujárni og tjörupappa.
★
Ekki „meistarastykki
íslenzkrar bænda-
menningar“.
„Ég veit nú ekki hvemig sú
vakning er, sem unglinga þessa
hefur mótað, en hitt veit ég að
yfirleitt munu þeir ekki vera
„meistarastykki íslenzkrar
bændamenningar“. Við Herjólf-
ur gætum ef til vill orðið sain-
mála um það, að nær hefði
verið að byggja upp sveitirnar
meir en gert hefur verið, heldur
en að leggja fjármuni í suma
þá „uppbyggingu“ sem átt hef-
ur sér stað síðustu árin. E. t. v.
væri þá fegurra um að litast
víðar á íslandi en nú er. Það
hefur verið svo á undanförnum
árum að stefna þeirra manna
hefur ráðið, sem hafa tekið
danssalina fram yfir landið
sjálft og gæði þess. Því er nú
komið sem komið er. En við
skulum vona að í framtíðinni
ráði ijnnur stefna og heilla-
drýgri. — Með þökk fyrir birt-
inguna og beztu kveðju. —
Úlfur Uggason."
★
Eimskip
Brúarfoss er ; Gautaborg-;' fer
þaðan til Rvikur. Dettifoss fór frá
Ingólfsfirði í gærkv. til Isafjarðar.
Goðafoss er í Rvík. Gullfoss er í
Rvik. Lagarfoss fer frá Rvik í
kvöld til New York. Reykjafoss
er í Hamborg. Selfoss fór frá
Húsavik 26. þm. til Delfzyl í
Hollandi. Tröllafoss er í Rvík.
Bravo er í Rvík.
Skipadeiíd SIS
Hvassafell kom ti’ Akureyrar í
morgun frá Póllandi. Arnarfell
fór frá Malaga 26. þm. áleiðis til
Rvíkur. Jökulfell átti að fara í
gær frá Cubu áleiðis ti! New Yorlc.
Loftleiðir h. f.:
1 dag verður flogið til Akur-
eyrar, Heilissands og Vestmanna-
eyja. Á morgun cr áætlað að
fljúga til Akureyrar, Hólmavikur,
Isáfjarðar og Vestmannaeyja.
Flugfélag Isiands:
I dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar. Vestmannaeyja. Biöndu
óss og Sauðárkróks. •— Á morg-
un eru áætlaðar flugferðir ti! .A!c-
ureyrar, Vestmannaeyja, Hellis-
sancls, ísáfjarðar og Hólmav.'kur.
■— Gullfaxi fór í morgun til Prest-
víkur og Klíafnar; væntanlegur
aftur til Rvíkur kl. 17 á morgun.
WýwT
í'J *fj/
40
Ai!ir katmasí vxð
gamlan orðaleík Flca
manna er hljóðar á
þessa leið: „í>?gar
rúgbrauúið í Eyrar-
bakka-búKinni koatar
hvaðerþá iangt uppað Hails.koti?“
IMer datt þessi gamii orðaleikur í
hug við iestur Morgunblaðsins á
sunnudaginn. Atvinnutaus.ir Iiafn-
arverkamenn gengu fyrir nokkr-
um dögum undir forustu Sigurð-
fundar í neytendasamtökum reykvískrar alþýöu stóðu
foringjar Alþfl. við hlið stjórnarflokkanna og heildsal-
anna. Engir sóttu það af meiri áfergju og kappi en fcr-
ingjar Alþ.fl., að KRON hætti að ve::a skjól og skjöldur
reykvískra alþýðuheimila á sviði verzlunarmála cn yrði
í þgss stað herfang heildsala og afturhalds. *
Svona furðuleg er stjórnarandstaða Alþýðuflokksins.
Og hver getur tekið þann flokk alvarlega, ssm þannig
hagar störfum sínum og stefnu?
ar Guðnasonar upp í viðskipia-
málaráðuiieyti, til að mótmæla ó-
sannri fullyröingu Björns ólafs-
sonar ráðherra um að eklxert at-
vinnuleysi væri nú á íslandi og
sanna lionum liið gagnstæða. Við-
brögö Morgunblaðsins eru óneyt-
anlega i ætt við orðaleik Flóa-
manna. Valtýr setur eftirfarandl
vizkuspurningu frani í Reykjavík-
urbréfi sínu á sunnudaginn: „Er
Siguröur Guönason með eða móti
virinulöggjöfinni í Rússlandi? Svar
óskast, já eða nei“. Þetta er nú
að kunna vel til vígs í rökræöum
um aivarlegt vandamál íslenzkra
verkamanna, eða finnst mönnum
það ekki? Fer nú sannarlega að
verða vandfundinn kjörgripur á
borð viö Vaitý og má Sjálfstæðis-
flokkurinn vera stoltur af ritstjóra
sinum.
18,15 Framburðar-
kennsla í esperan-
tó. 18,30 Könskuk.;
II. fl. 19,00 Ensku-
kennsla; I. fl. 19,25
Þingfréttir.— Tón-
leikar. 20,30 Erindi: Einstaklingar,
söfnuður, kirkja, eftir Christian
Schelderup biskup á Hamri í Nor-
egi. (Helgi Tryggvason c.and. the-
ol. flytur). 21,00 Kórsöngur: Bach-
lcórinn í Stuttgart syngur lög eft-
ir Hal'grím Helgason (pl.) 21,20
Upplestur: „Útlegðin", smásaga
eftir Leo Tolstoy (frú Margrét
Jónsdóttir þýðir og les). 21,40 Tón-
leikar (pl.) 21,45 Frá útlöndum
(Benedikt Gröndal ritstjóri). 22,10
Kammertónleikar (plötur): a)
Strengjakvartett í B-dúr op. 18 nr.
6 eftir Beethoven (Lenér-kvartett-
inn leikur). b) Tríó í c-moll op.
101 eftir Brahms (Leila Pirani,
Charles Hambourg og Max Piriani
leika). 23,00 Dagskrárlok.
S.: I. laugardag
voru gefin sam-
an í hjónaband
af sr. Óslcari J.
Þorlákss. ungv
frú Ósk Sig-
mundsdóttir og Eiríkur Jensen,
iðnaðarmaður. Heimili þeirra verð-
ur í Drápuhlíð 42. — Nýlega voru
gefin saman í hjónaband af sr.
Jóni Thorarensen ungfrú Elísabet
Jóhannsdóttir og Arnar R. Jörg-
ensen, vé’.virki. Heimili þeirra er
að Hrísateig 23. — S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónanband af
sr. Jóni AuSuns, ungfrú Björg
Bjarndis Sigurðardóttir frá Hest-
eyri og Jón Jónsson múrari frá
Eskifirði. Heimili þeirra er að
Bergstaðastræti 9. — Nýlega voru
gefin saman í hjónaband í Vest-
mannaeyjum ungfrú Eygló Einars-
dóttir og Steingrímur Arnar frá
Siglufirði.
Hg — Söngæfing í
m fi®' lcvöld í Edduhús-
inu í kvöld. Tenór og bassi mæti
kl. 8, sópran og allt kl. 8,30. —•
Mætið öll stundvís’ega.
Hiuíavclta KR. Þessi vinnings-
númer komu upp í bappdrættinu:
12864 mátarforði. 6843 ávaxtaforði.
21691 jivottavél. 3S012 bókasafn.
16392 farmiði ti! Færeyja og heim
aftur 2489 flugferð til Isafjarðar.
— Vinningar sækist ti! Erlendár
O. Péturssonar, co. Sameinaða.
Þingeylngafclagið í Roykjavlk
he!dur fyrsta skemmtifund sinn
á vetrinum í Breiðfirðingabúð kl.
8.30 á föstudagskvöldið, Til
skemmtunar verður: Kvik'mynda-
sýning, spurningaþáttur o. fl.
Ríkisskip
I-Iekla er á Vestfjörðum á suður-
leið. Esja var á Akureyri í gær á
austurleið. Herðubreið fór frá R-
vík i dag til Breiðafjarðarhafna.
Skjaldbreið var væntanleg til R-
víkur í gærkvö'd frá Húnaflóa.
ÞyríII var á Raufarhöfn í gter.
Baldur fer frá Reykjavlk á morg-
un til Króksfj.-ness.
Sýning Ásmundar Sveinssonar i
Listvinasalnum, Froyjugötu 41, er
opin daglega kl. 1—10 e. h.
TJngbarnavernd Líknar Templara
sundi 3. Opið þriðjudaga 3,15—1 og
fimmtudaga 1.30—2,30.
Helgidags.læknir: Stefán Ólafsson,
Laugaveg 144. — Simi 81211.
Næturlæknir er í lælcnavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Simi 5030.