Þjóðviljinn - 06.01.1952, Blaðsíða 1
Félagar! GætiS þess að glata
ekki flokksréttindum vegna
vansldla. GreiðiS l>ví flokks-
gjöldin skilvíslega í byrjun
hvers mánaðar. Skrifstofan er
opin daglega kl. 10—12 f. h. og
1—7 e. li. Stjórnin.
Sunnudagur 6. janúar 1952 — 17. árgangur
tölublað
ri
r\
SUBUR- OG SUÐVESTURLANOII GÆR
Sogslínan bilaði — Staurabrot og bilanir á raflínum meiri en
nokkru sinni áður - Austurland símasambandslaust
Um miðnætti í fyrrinótt fór að hvessa af suð-
austri og um k\. 5 í gærmorgun var veðurhæðin
orðin 13 vindstig í Vestmannaeyjum og 11 hér í
Reykjavík og komst síðar upp í 14 vindstig hér
og í Vestmannaeyjum og sennilega víðar. Telur
V.eðurstofan þetta eitt mesta hvassviðri sem komið
hafi hér að vetrarlagi. Hvassviðrið varð mest hér,
á Suðvesturlandi en um kl. 8 í gærmorgun hafði
það náð til alls landsins.
Stórkostlegt tjón hefur orðið á raf- og símalín-
um. Sogslínan bilaði um kl. 5 í fyrrinótt oq var
ekki hægt sökum veðurhæðar að hefja viðgerð
hennar fyrr en kl. 4 síðdegis í gær.. — Af þessum
sökum varð að hafa bæjarhverfi Reykjavíkur raf-
magnslaus til skiptis í gær, þar sem aðeins var
rafmagn frá varastöðinni við Elliðaár.
Á miðnætSi í nótt stóðu vonis iil að viðgerð á
Sogslínunni yrði lokið um kl. 2.
Tveir vírar slitnuðfi á Sogs-
línunni fyrir ofan Grafarholt
og steinsteypustaur brotnaði á
Reykjalínunni. Margir staurar
brotnuðu á Lögbergslínunni fyr
Framhaid á 8. síðu.
Fýkur ofan af 7 manna fjölskyldu
í Selási
Lögregan átti annríkt í gærmorgun og frameftir degi
við að aðstoða fólk, að því er Pálmi Jónsson vaktstjóri
tjáði Þjóðviljanum í gær. Bárust lögreglunni margvís-
legar hjálparbeiðnir af völdum óveðursins. — Þak fauk
af húsinu Ásheimar í Seláshverfinu, en þar bjuggu hjón
með 5 ung börn. Flutti lögreglan fjölskyldUna til bæjarins
og var henni útvegað húsnæði til bráðahirgða í Camp
Knox.
6 sfræfisvagnar fóru. útaf — Lög-
reglasi flutti fólk s útbverfunum
Slys á mönnum kvað lögreglan ekki hafa orðið þrátt fyrir
veðurofsann, bílaveltur, járnplötufok og rúðubrot.
Sex strætisvagna hrakti út af vegunum þegar hvassast var
en skemmdust ekkert svo teljandi sé og féllu niður ferðir af
þeim sökum til nokkurra staða og flutti lögreglan þá fólk sem
lengst átti heim til sín svo sem að Lögbergi, út á Seltjarnarnes
og víðar. Upp úr kl. 3 síðdegis komust strætisvagnaferðirnar
aftur í sæmilegt lag.
Járnplötur fuku af þvottahúsi Landspítalans, húsi á Eiríks-
götu og Verzlunarskólanum.
Ekki hægt a£ kveikja sld né Sjós
í Biesngréf
Slvsavaznalélagió skipulagði hjálpazsvestir
Slysavarnafélagið skipulagði hjálparsveitir skáta til að vera
til taks á lögreglustöðinnj um liádegi í gær. Ennfremur menn úr
flugbjorgunarsveitinni. Fóru þær í eftiriitsferðir út fyrir bæinn.
Sérstaklega var ástandið slæmt í Blesugróf, en þar er mikið af
liúsum sem gerð eru af vanefnum. Skorsíeinar höfðu fokið svo
fólkið gat ekki kveikt eld. Raftaugar að húsunum eru lausar og
höfðu slitnað, svo ekki var heldur hægt að kveikja ljós.
Svipað var að segja af fólkinu er býr í Kálgarðahverfinu.
Hjálparsveitirnar höfðu tvc I um um Kársnes og Kópavog
sterka bíla og var farið í öð.r-| Framhald á 8. síðu.
Tveir Akranes-
bátar ókomnir að
í gærkvöld
Akranesi. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Ofsaveður var hér í fyrrinótt
og fram yfir miðjan dag. Fjór-
ir bátar réru í fyrrinótt en
voru að koma síðdegis. Munu
þeir hafa misst töluvert af
veíðarfærum.
Engar stórvægilegar skemmd
ir urðu af völdum veðursins;
plötur losnuðu á nokkrum hús-
um o. fl. smávegisskemmdir.
Rafn.agnsbilun varð í gærmorg-
un en komst í lag aftur eftir
stuttan tíma.
Seint í gærkvöldi voru tveir
af Akranesbátunum, Sigrún
og Valur, enn ókomnir að
landi. Hafði ekkert til þeirra
heyrzt síðan um miðjan dag
í gær- Samt voru menn von-
góðir um að þeir myndu ná
landi.
14 vindstig í
Eyjura
Vestmannaeyjum. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Fárviðri skall hér á í fyrri-
nótt og fram eftir degi n;un
veðrið hafa verið um 14 vind-
stig í hviðunum.
Ekki er vitað um skemmdir
á bátunum, né neitt annað tjón
sern teljandi sé, nema eitthva'ö
hrotnaði af rúðum og grind-
verk'jm.
Veiðarfæratjón
s Keflavik
Keflavík. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Aðeins einn bátur, Andvari,
réri héðan í fyrrinótt. Kom
hann að landi síðdegis og hafði
náð aðeins 12 bjóðum af 30.
í þessari átt er skjól í höfn-
inni og því allt í lagi með bát-
ana, en lítilsháttar skemmdir
munu hafa orðið á húsum.
Rafmagnslaust var allan dag-
inn-
Ekkert tjón í
Sandgerði
Sandgerði. Frá frétta-
ritara Þjóðviijans.
Meira hvassviðri en menn
minnast í langan tíma geisaði
hér frá því snemma í fyrri-
nótt.
Engir bátar réru í fyrrinótt
og yarð ekkert tjón á bátum
hér og yfirleitt ekki teljandi
skemmdir svo vitað sé um af
völdum veðursins.
Miltlar símabilanir urðn í ofviðrinu. I gærkvöld var Austur-
land sambandslaust. Ritsímasamband var við Akureyri, en tal-
sambandslaust austur frá Blönduósi að norðan en austur frá
Skarðshlíð að sunnan.
Ekkert hafði frétzt af bilana-
svæðunum austan Akureyrar að
norðan og Skarðshlíðar á Suður-
landi.
Agætt talsamband var hins-
vegar við Isafjörð og aðra staði
á Vestfjörðum.
Hægt var að senda skeyti til
Hornafjarðar gegnum loftskeyta-
stöðina í Vestmannaeyjum.
ffitaveitaíi sennilega í lagi í dag
Staur brotiiaði á raflínunni aö Reykjum í fyrrinótt
skammt frá Grafarholti og varð dælustöðin þar því óvirk
og aðeins þriðjungur af hitaveitusvæðinu í Reykjavík
hafði heitt vatn í gær.
Varastööin á Reykjum var tekin í notkun síðdegis í
gær og ætti hitaveitan því að vera 1 sæmilegn lagi 1 dag.
íbúðarbús brann á Selfossi
Selfossi. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
I gærmorgun milli kl. 9 og 10 kom npp eldur liér í cinnar
hæðar timburhúsi á síeyptum kjallara og brann það allt sem
brunnið gat. Fólkið, um 8 manns bjargaðist út og allmiklu yarð
bjargað út húsinu.
í húsinu bjuggu Þorleifur Hall-
dórsson og Gísli Þorleifsson á-
samt fjölskyldum sínum. Óvíst er
um upptök eldsins.
í gærmorgun bilaði í mastri
rafveitustöðvarinnar og varð r.af-
magnslaust um tíma. Nokkrar
rafmagnsbilanir munu einnig
hafa orðið úti um sveitirnar.
Framhald á 8. síðu.
Togara rak á land í Geldinganesi
Togarinn Helgafell frá Vestmannaeyjum (áður Surprise)
slitnaði upp inni á sundum og rak á lard í Geldinganesi.
Bjarni Ólafsson slitnaði upp á Akraneai í gærmorgun, en skips-
hSfnin var um borð og kom togarinn híngað til Reykjavíkur.
Togarann Faxa rak út á flóa
I fyrririótt slitnaði togarinn Faxi (áð’ur Arinbjörn Hersir)
upp þar sem hann Iá á Hafnarfirði, rak hann út fjörðinn út á
Faxaílóa og seint í gærkyöld hafði ekliert til lians spurzt.
Vélbáturinn Guðbjörg slitnaði frá bryggju í Hafnarfirði og
rak upp að hafnaruppfyllingunni, en var brátt náð út aftur
lítið eða ekkert skemmdri.
Eldborg rak upp í Borgarfirði
iBorgarnesi. Frá fréttaritara Þjóðviijans.
Ofsaveður skall á í íyrrinótt. Eldborgin slitnaði upp undir
miðjan dag og munaðj mjóu að hún lenti á Brákarsundsbrúninni,
en svo rak hana upp á leirunum frainundan mjóllíursamlaginu.
Er hún talin óskemmd og að hún muni nást út á næsta straumi.
Annað tjón af völdum veðurs-
ins varð ekki hér. Feiknasnjór
var kominn og vegir illfærir, en
löguðust við þýðuna.
Hskla i óveðrðnu raeð 369 farþega
Strandferðaskipiö Hekla kom úr strandferð að austan
um níuleytiö í gærmorgun. Lenti hún f versta veður-
ofsanum hér á flóanum. Með skipinu voru 300 farþegar.
I gærkvöld kl. 8 var Hekla Ármann og Skógafoss fóru
áleiðis til Vestmannaeyja í
fyrrakvöld, en snéru við cg
komu til Reykjavíkur í gær.
aftur send af stað — vestur á
Isafjörð til að sækja skólafólk.