Þjóðviljinn - 06.01.1952, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 06.01.1952, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. janúar 1952 Sælnvika Framhald á 3. síöu. mundu teljast Salt í kvikunni, Skei'ð af 'silfri gjörð — þó háð- ið 1 henni sé dálítið daufgerc — og Kona skósmiðsins. Það er "egiulega vel gerð saga. nema ég skil ekki hvers vegna síðasta blaðsíðan var ekki strikuð út í próförk. Aðrar sögurnar flestar eru meira og minna óunnið hráefni- Tvær þeirra, Selkollu og Vígsluhátíð- ina, getur höfundur ekki botn- að á sögulegan hitt, svo hann skrifar bara ritgerðarstúf í staðinn. Sagan Dalurinn er sviplítil rómantík, en Rusl og Sæluvika eru eins og óbeisiuð vötn — renna a5 lokum út í sandinn. Margt í sögum Indriða Þor- steinssonar bendir til þess að lífsreynsla hans sé ennþá hvorki djúp né auðug, kjmni h'ans af fóiki séu einkum >á yf- irborðinu. Víst er kynhvötin merkileg hvöt, kyniífið mjög athyglisvert líf. En þær bók- menntir hafa iöngum verið skammlífar- Þessi höfundur spyr enn þeirrar spumingar fyrst hvort mannlífið sé hon- um heppilegt söguefni, hvort hann geti nýtt manneskjur sem sögupersónur. Allar sögur hans fjalla um einstaklinga einvörð- ungu, það örlar hvergi á þjóð- lífi að baki þeim. Mannhygð hans er hlutlaus, og það leika tvímæli á eisku hans til fólks- ins. Sæluvika verður ekki lang- iíf bók fyrir eigin skuld. Sjálf- ur má þessi höfundur ugga um ódauðleik í bókmenntunum ef honum tekst ekki að vikka á- hugasvæði sitt langt út fyrir þröng takmörk rúmfara og holdástar. Skáld á að hjálpa fólkinu, skýra öriög þess, leið- beina því í lífsbaráttunni. Skáld þarf að hafa markvísa stjórn, j'ákvæð tök á hæfileikum sin- um. Annars verður það bara efnilegt. Frægð Indriða Þor- steissonar yrði áreiðanlega von svikin eftir aðra sæluviku — þrátt fyrir allan safa. B. B. Bókmenntir Uglur og páfagaukar Framhald af 3. síðu. umar eru ekki annað en skrýtl- ur, og maður veit hvemig kímninni reiðir af þegar hún fer að teygja úr sér- Annars er ekkert sérstakt um þetta að segja, nema tvær skrýtluraar em svo lélegar að það er full- komlega forkastanlegt að eyða undir þær pappír „á þessum erfiðu tímum fyrir þjóífélag- ið“. Þetta eru sögumar: „Litið um öxl (án þess að snúa sig úr hálsliðnum)", og „Jónmund- ur Ferdinandsson og DjöfuII- inn“. Seinni sagan á sjálfsagt að vera djarfleg og hispurs- laus, og þó um fram aílt raun- hæf. En hún er ekkert af þessu. Hún er einvörðungu dónaleg, og geigar langt frá hverju marki. Dónaskapur er aldrei djarflegur. Enn sem komið er vantar þennan höf. flest til að vera skáld, nema hann er gædd ur a’Imiklu ímvndunarafli og hefur nokkra ritleikni til aö fcera. En öll lífsskyggni og mannúðleg alvara er honum fjarlæg. Ilann hefur hættulega gaman af íslenzkri fyndni. Hann þarf að sjá sig um hönd í því efni (án þess að snúa sig úr axiarliðnum). B. B. NæturvörSur er í Ingólfsapótek) — Simi 1330. Næturlæknir er i læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum. — Sími 5030. , 6'\ DAGUR komin út úr herbergi sínu og slóst í-för með þeini. Strax og fjölskyldan var setzt við borðið, var farið að tala um ýmis mál sem voru ofarlega á baugi. Bella sem var aðal- fréttasnápur fjölskyldunnar og safnaði bæjarslúðri í Snedecker skólanum, sagði allt í einu: „Veiztu hvað, mamma? Rosetta Nickolson, frænka frú Disston Nickolson, sem kom hingað frá Albaný síðast liðið sumar — manstu ekki, hún kom kvöldið sem við héldum skólaboð úti á grasflötinni — þessi ljóshærða, rangeygða dóttir stórkaupmannsins þama yfir frá — hún er búin að opinbera með Herbert Tickham frá Uticka, sem dvald- ist hjá frii Lambert í fyrrasumar. Þú manst sjálfsagt ekki eft- ir honum, en það geri ég. Hann var hár og dökkhærður, dá- lítið iklunnalegur og hryllilega fölur, en afskapiega laglegur -— alveg eins og kvikmyndaleikari." „Þarna sérðu, frú Griffiths," skaut Gilbert inn í og sneri sér að móður sinni. „Sendinefnd úr skóla Sneeker ungfrúnna laumast öðru hverju í kvikmyndahús til þess að dýrka kvik- myndahetjur.“ Allt i einu sagði Griffiths eldri: „Það kom dálítið skrýtið fyrir mig í Chicago núna, og ég býst við að ykkur öllum þyki fróðlegt að heyra um það.“ I Chicago tveim dögum áður hafði hann af tilviljun hitt ungan mann, sem reyndist vera elzti sonur Asa, yngra bróður hans. Og hann hafði ráðagerð á prjónunum í sambandi við hann. „Hvað er það, pabbi?“ spurði Bella strax. „Segðu mér frá því.“ „Já, pabbi, leystu frá skjóðunni," bætti Giibert við, sem var í talsverðum metum hjá föður sínum og var ævinlega frjáls- mannlegur við hann. „Jæja þá, þegar ég var í Chicago í Union League klúbbnum, iiitti ég ungan mann, sem er skyldur okkur, systkinabarn við ykkur krakkana, — elzti sonur Asa bróður mins, sem á núna heirna í Denver. Ég hef hvorki séð hann né heyrt frá honum í þrjátiu ár.“ ITann þagnaði og varð hugsi á svip. . „Er það hann sem pródikar, pabbi ?“ spurði Bella og leit upp. „Já, einmitt. Að minnsta kosti gerði hann það eftir að hann fór að heiman. En sonur hans sagði mér, að nú væri hann hætt- ur tþví. Mér skilst að hann starfi nú í Denver í sambandi við eitthvert hótel.“ „En hvernig er sonur hans?“ spurði Bella, sem þekkti ekki annað en vel búna unga. menn af auðugu foreldri, og fylltist strax áiiuga. Sonur hóteleiganda að vestan! „Frændi okkar? Hvað er hann gamall?“ spurði Gilbert strax og langaði til að vita öll deili á honum. „Þetta er mjmdarmaður, virðist mér,“ hélt Griífiths áfram hugsandi og dálítið hikandi, því að hann var ekki enn búinn að mynda. sér skoðun á Clyde. „Hann er aðlaðandi í útliti og kem- ur vel fyrir — hann virðist vera á aldur við þig, Gil, og er talsvert lík.ur þér — mjög líkur — augun, munnurinn og hakan eru hin sömu.“ Hann virti son sinn rannsakandi fyrir sér. „Hann er eilítið hærri en þú og virðist grennri, en ég veit þó ekki hvort hann er það.“ Við tilhugsunina um frænda sem líktist honum í útliti — var ef til vill alveg eins aðlaðandi — og bar sama nafn, fór lirollur um Gilbert. Fram að þessu hafði hann í Lycurgus verið alþekktur eem einkasonur cg erfingi flibbdverksmiðjanna að þriðja hluta ef é’.'M meira. Og ef nú kæmi á daginn, að hann ætti frænda, ná- skyldan frænda á svipuðu reki, sem líktist honum í útliti og framkomu —- honum fannst tilhugsunin óbærileg. Ilonum var strax Ijóst, að honum var illa við þennan frænda ( hann gat ekki að því gert og skildi ekki hvers vegna). „Hvað gerir hann núna?“ spurði hann stuttur í spuna og rödd hans var dálítið gremjuleg, þótt hann reyndi að leyna gremju sinni. „Atvinna hans er nú ekki upp á marga fiska,“ sagði Samúel Griffiths og brosti við. „Núna er hann vikadrengur hjá Union League klúbbnum.á.Chicago, en hann er mjög prúður og aðlað- andi piltur. Mér Teizt einstaklega vel á hann. Hann sagði mér einmitt að hann hefði litla möguleika á frama þar sem liann væri, og hann vildi gjarnan fá atvinnu við eitthvað sem gæfi meira í aðra hönd og gæfi honum tækifæri til að verða eitthvað. Ég sagði honum, að ef hann vildi koma hingað og freista gæf- unnar.hjáokkur, þá gætum við ef til vill gert eitthvað fyrir hann — gefið honum kost á að sýna hvað í honum býr, ef ekki an:iað.“ Hann hafði ekki ætlað sér að segja fjölskyldúnhi' þégár í fatað, hversu vel honum hefðj litizt á frænda sinn, en — í stað þess að bíða ;átekta og ráðfæra sig hvað eftir annað .við konu ?ína og son, hafði hann gripið tækifærið þegar það gafst hon- um. Og þegar þessu var lokið, þá var hann ■ ánægður, því að hann langaði til að liðsinna: Clyde á einhvern hátt, af því að hana var &vo líkur Gilbert. En Gilbert rann kalt vatn milli skinns og liörunds, og frú Griffiths hafði svo miklar mætur á syni sínum ,að hún vildi helzt að hann losnaði við all®. frændur og keppinauta, en Bella og Myra urðu himinlifandi. Frændi þeirra, sem bar Griffiths nafnið, glæsilegur og á aldur við Gilbert — tilliugsunin ein vakti með þeim ánægju, en frú Griffiths, sem tók eftir gremju- svipnum á Gilbert, var ekki eins hrifin. Gilbert myndi ekki geðjast að honum. En hún bar fulla virðingu fyrir dómgreind og skarpskyggni eiginmanns síns og sagði því ekki neitt. En Bella lá ekki á skoðun sinni. ,,Ó, pabbi, ætlarðu ekki að láta hann hafa atvinnu?“ spurði hún. „Þetta var gaman. Ég vona að hann sé laglegri en hinir frændur okkar.“ ,Bella,“ sagði frú Griffiths ávítandi, en Myra, sem mundi eftir kauðalegum föðurbróður og syni hans, sem höfðu komið í heimsókn til þeirra. frá Vermont, samsinnti Bellu með því að brosa. En Gilbert var sárgramur og velti þessu fyrir sér fram og aftur. Honum fannst hugmyndin einskis virði. „Auðvitað rekum við ekki umsækjendur á dyr, ef þeir vilja læra þessa iðngrein,“ sagði hann gramur. ,,Ég veit hvað þú átt við,“ svaraði faðir hans. „Auk þess er þarna um frændsemi að ræða. Enda virðist mér pilturinn greind- —oOo--oOo--oOo— —oOo— —oOo-oOo--oOo— BARNASAGAN SKESSAN Á STEÍNNÖKKVANUM 3. DAGUR Þegar ekki sáfft lengur til nökkvans, fór sveinninn kóngsson að hrína, og var bað hvort sem annað, að tröllkonan lagði sig lítt til að hugga hann, enda tjáði það ekki. Gekk hún þá með sveininn á handlegg sér niður undir þiljur, þar sem kóngur svaf, ocr vek- lii hann með hörðum átölum, að hann hirði ekki um, hvernig um sig fari, þar sem hún megi vera ein með son þeirra á þiljum uppi, en hann sofi og hrjóti og öll skipshöfnin með honum; telur hún það mikla ó- nærgætni og ofætlun af honum að láta engan ann- an vaka hjá sér á skipinu, því fátt segi af einum, enda sé nú svo komið, að hún fái með engu móti huggað sveininn cg kysi því helzt að komazt þang- að með sveininn, sem hann ætti að vera, og væri bess nú kosíur, ef nokkur dugur eða dáð væri sýnd, bar sem kominn væri blásandi byr. Sigurði kóngi kemur það mjög á óvart, að drottning hans er svo íasmikil og harðorð, er aldrei hafði eitt móðsyrði til hans talað. Hann tekur þó ávarpi hennar með blíðu, og þykir henni mikil vorkunn, þó hún sé ömruleg. Ilann ’leitaðist við að hugga með henni sveininn; en það tiáir ekki. Fer hann þá til og vek- ur skipverja og biður bá taka til segla, því nógur var byr kominn og beinn til hafna. Því næst var siglt sem mest mátti, og segir ekki frá ferðum beirra, fyrr en þeir komu við land, þar sem Sigurð- ur átti fyrir að ráða; íór hann þá til hirðar sinnar, og voru bar allir hryggir vfir fráfalli föður hans, en glöddust, er þeir höfðu hann aftur heimt heilan á hófi, og var honum gefið kóngs nafn, og tók hann við ríkium. Sveinninn kóngsson numdi nálega aldrei af hljóðum hjá móður sinni, frá því hann var skilinn eftir einn hjá henni á þilíarinu, sem áður er sagt, bótt hann væri áður mesta spektarbarn, svo að kóngur varð að fá houm fóstru, einá' aí hirð- meyjunum. Þegar sveinninn var til hennar kom- inn, tók hann skjótt spekt sína aítur og hrna fyrri værð. . ivaqiBví u Nú er frá því að segja, að eftir sióf8fiM‘j-foiínst kóngi sem drottning.væri mjög breytt ofðfhl,ftoörgr ;■ um háttum og það ekki til batnaðar. þinkitm þótti ■ honum hún; mikilfengari og stygglyndari ;og>róyi0'-. ■> felldnari en hann átti von á. Þó virtist hún kurteis og látprúð; en fljótt bar að því, að fleíírKerindu'

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.