Þjóðviljinn - 11.01.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.01.1952, Blaðsíða 8
Þannig er atvinnuleysiS skipulagt: Rí 100 liúsism í byggingu eru 35 stöðvnð með lánsfiárbcinm Hér í Reykjavík eru nú um 100 hús í byggingu, fyrir utan bæjaríbúðir og smáíbúðir, og eru í húsum þessum gert ráð fyrir um 300 íbúðum. Af þessvun 100 husum eru um 35 algerlega stöðvuð sökum þess að eigendurna skort- ir lánsfé til framkvæmdanna. í þessum 35 húsum er gert ráð fyrir á annað hundrað íbúðum. Á sama tíma hafa um 30—35 múrarar atvinnu af 150 sem eru í múrarafélaginu, eins og skýrt var frá í blaöinu í gær. Svipaða sögu er að segja um aörar greinar bygg- ingariðnaðarins, t.d. hefur um 40 rafvirkjum verið sagt upp störfum frá áramótum, en í félagi þeirra eru 140— 150 manns. Þannig e.r atvinnuleysið skipulagt. Nú er til byggingar- efni í landinu. Vinnuaflið er nægilegt. Enn eru til menn sem hafa bolmagn og tekjur til að leggja í húsbyggingar. — Það eina sem skortir er a'ð hið opinbera, ríki og bankar, leggi fram eðlilegt lánsfé til byggingarframkvæmda. En þáð fé er ekki lagt fram Afleiðingin verður sú að bygg- ingamar stöðvast hálfkaraðar. Byggingarefnið liggur ónotað. Byggingariðnaðarmenn ganga atvinnulausir. Og stöðvunin bindur þeim sem ráðast í hús- byggingar þunga óþarfa fjár- hagsbagga. Ef hafin væri vinna við þau Frumvarp m Lá smáíbúðarhúsa Ríkisstjórnin hefur Iagt fyrir Alþingi frumvarp um að bæta ltafla um fánadeild smáíbúoar- húsa í lögin uin opinbera að- stoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Er þar kveðið á hvernig lána skuli þær 4 milljónir króna, sem stjórnin leggur til að var- ið verði af tekjuafgangi sl. árs. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lána gegn 2. veðrétti og 5 !/•> % vöxtum 30 þús. kr. til ,,smáhýsis“, og séu lánin tii 15 ára. Ekki megi hvíla hærri lán á 1. veðrétti en 60 þús. kr. Við 1. umr. málsins í neðri- deild í gær taldi Einar Olgeirs- son að margt væri vel um frum varpið, en hann taldi þó ó- heppilegt áð binda lánin við „íbúðarhús“ i stað íbúða og einnig að það væri sett að skil- Framhald á 6. síðu* 35 hús sem nú eru stöðvuð myndi meginþo.rri hinna at- vinnulausu múrara fá atvinnu á ný Og verulegur hluti ann- arra byggingariðnaðarmanna. Atvinnan er þarna. Það er að- eins ríkisvaldið sem hindrar að hún verði liagnýtt. Kona verður fvrir bifreið I fyrradag gaf sig fram við Rannsóknarlögregluna kona sem orðið hafði fyrir sendibíl á Hverfisgötu hinn 4. þ.m. Slysið vildi til með þeim hætti að bílstjórinn þurfti að hemla snögglega. Rann bíllinn til í hálkunni og slengdist á konuna. Taldi hún sig í fy.rstu lítið meidda, en við rannsókn kom í ljós að um allveruleg meiðsli var að ræða, aðallega mar á baki og útlimum. Kon- an heitir Sveinbjörg Guðmunds dóttir, og á lieima á Lindar- götu 27. Reyðarfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. í gærmorgun geisaði, Iiér norðvestan stórviðri. Skemnnlir urðu miklar. Rúður brotnuðu, þök skemmdust, skálar brotnuðu og fuku og Reykjanes strandaði. Meðal þess sem fauk var vöruskáii, ásamt vörumjHænsna hús skemmdist og hænur dráp- ust. Bílar ultu. Hey fauk. Önn- ur nýja loftskeytastöngin kengbognaði og vírar slitnuðu. Reykjanesið dró akkerið suð- ur yfir fjörð, en var komið hjálparlaust að bryggju í gær- morgun. Rafmagnsbilun enn 1 gær bilaði hluti af Ljósa- fossstöðiimi, en komst í lag aft- ur eftir nokliurn tíma. Sendið myndir í Strandabókina Næsta árbók Ferðafélags ís- lands verður um Strandasýslu, og er nú verið að ganga frá handriíinu til prentunar. Nokkuð hefur skort á að fengizt hafi nóg af góðum myndum úr sýslunni og væri Ferðafélaginu kærkomið að Strandamenn og aðrir sem kynnu að eiga góðar myndir úr sýslunni vildu láta þær í té og koma þeim til Jóns Eyþórs- sonar veðurfræðings eða Páls Jónss. auglýsingastj hjá Vísi. Indverskir kommúnistar vinna kosningasigur Fengu 20 sæti aí 58 á íylkisþingi Þrátt fyrir kúgun og ofsóknir hafa kommúnistar komiö öllum á óvart í fyrstu almennu kosningunum, sem fram fara á Indlandi. 850 liafa kosið í Sjóioannaféiagmii Stjórnarkjör í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur stendur yfir daglega. Kosið er frá kl. 10 til 11,30 f. h. og 3 til 6 e. lv. í skrifstofu félagsins í Alþýðu- húsinu. í kjöri eru A-listi, listi Sæmundar Ólafssonar & Co og B-listi, listi starfandi sjómanna skipaður eftirtöidum mönnum: Karl G. Sig'urbergsson, formaður, Guðni Sigurðsson, varafor- maður, Hreggviður Daníelsson riíari, Bjarni Bjarnason féhirðir, Ólafur Sigurðsson varafé- hirðir, Guðmundur Elías Símonar- son, Jón Halldórsson með- stjórnendur, Stefán Oddur Ólafsson, Sig- urður Magnússon, Ilólni- ar Magnússon í varastjórn. Kjósið sem íyrst — Kjósið B-listann. Kosningarnar, sem bæði eru til fylkisþinga í 28 ríkjum Ind- landg og til alríkisþingsins, standa yfir í þrjá mánuði, des- ember, janúar og febrúar. Næst fyrsta ríkið, sem ikosið var í, er Travancore-Cochin. Þar er kunnugt um 58 þingsæti af 108 á fylkisþinginu og af þeim hef ur lýðræðisbandalagið, sem kommúnistar hafa myndað á- so.mt ýmsum vinstrisinnuðum smáflokkum og samtökum, fengið 20. Þjóðþingsflokkurinn, Slys í sírætisvagm 1 fyrradag vildi það óhapp til í strætisvagni að maður klemmdist með þumalfingur milli stafs og hur'ðar. Skarst fingurinn illa að ofan og alveg fram á fremri lið, og fór lið- pokinn sundur. Var gert að sárinu á Landspítalanum, og er maðurinn handlama. Hann heitir Sigvaldi Jónsson, og býr á Snorrabraut 34. sem hingað til hefur algeriega einokað ríkisvaldið í Indlandi, fékk nú aðeins 40% atkvæð- anna og 29- sæti á fylkisþing- inu. Sósíaldemókratar fengu fimm sæti og aðrir flokkar fjög ur. Hefðu sósíaldemókratar tekið boði um að ganga í banda lag við hina vinstriflokkanna hefði það bandalag fengið hrein an meirihluta. í Travaneore-Cochin hefur kommúnistaflokkurinn verið bannaður síðan 1948 og helztu forystumenn hans hafa setið í fangelsi eða farið huldu höfði. Samskonar aðferðum hefur ver ið beitt um allt Indland, í fjór- um ríkjunum hefur kommún- istaflokkurinn verið bannaður áfram og handtökum flokks- manna hraðað í kosningabar- áttunni. Til dæmis var Sharma, foi'manni Bændasambands Ind- lands, varpað í fangelsi jafn- skjótt og hann. bauð sig fram fyrir lýðræðisbandalagið. 1 Travancore-Cochin hefur lýðræðisbandalagið þegar feng- ið einn mann kjörinn á alríkis- þingið. Föstudagur 11. janúar 1952 — 17. árgangur — 8. tölublað liínverska leikritiff Pi-pa-ki hefur nú verið leikið sex sinnum í Iðnó fyrir fullu húsi og viff mikla hrifningu leikluisgesta, enda er leikritið mjög athyglisvert og skemmtilegt að efni og fram- setningu. Á myndinni sjást tvö af aðalleikenduuum, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Gísli Halldórsson. Sjöunda sýning er í kvöld. Frönsk borgarsffórn méf- mœiir framkomu bandarísks HeriiÖs Borgarstjóri og lögreglustjóri La Rochelle biðja hernámslioið að taka upp hegðun siðaðra manna Allt er í uppnámi í frönsku hafnarborginni La Rochelle, yfir framkomu bandarísks hers sem þar hefur aösetur. Um nokkurt skeið hefur La Rochelle verið ein helzt birgða- höfn Bandaríkjahers í Frakk- landi. Bandarísku hermennirn- ir hafa í hvívetna komið fram af ruddaskap og ósvífni gagn- vart „hinum innfæddu", en þó keyrði um þverbak á jólunum. Tveir Frakkar drepnir. Þá drápu Bandaríkjamenn tvo borgarbúa og borgarstjórn- in ákvað að láta málið ekki afskiptalaust lengur. Einróma l iidanþágur im iiiiiOiiiiiing dýra víttar Tilviljun að gin- og klauíaveiki er ekki kornin til íslands Það má teljast tilviijun að gin- og klaufaveiki hefur ekki borizt til landsins, sag'ði Jón Pálmason á fund neðri deild- ar í gær. Svo margar undan- þágur hafa ráðherrar gefið um innflutning dýra, hunda, fugla, smádýra og nú síðast villidýr- anna í vetur. Jón var að tala fyrir frum- varpi sem flutt er að tilhlutan ríkisstjórnarinnar um þyngdar sektir og auknar heimildir til varna gegn búfjársjúkdómum. var samþykkt áð senda borgar- stjórann og lögregiustjóraim á fund yfirmanna hernámsliðs- ins til að mótmæla framkomu Bandaríkjamanna og skora á þá að temja sér framvegis háttu siðaðra manna. Allir flokkar samnmla. Fulltrúar kommúnista, sem báru tillöguna fram, röktu þau óhæfuverk og slys, sem bandarísku hermennirnir höfðu drýgt og verið valdir að. Jóla- dagana eina drápu bandarísk- ir herbí'.ar tvo menn og stór- slösuðu einn, Frakki var særð- ur hættulega er bandarískur hermaður réðst á hann með hníf á veitingahúsi og stórtjón hefur or'öið á eignum af völd- um Bandaríkjamanna, einkum ]:tó af ógætilegum akstri þeirra. Tillagan var samþykkt með samliljóða atkvæðum í bæjar- stjórninni, en liana skipa 19 gaullistar, 10 kommúnistar og fjórir sósíaldemókratar. Lög ná ekki yfir illvirkjana. Borgarstjóri og lögreglustjóri báru mótmælin fram við banda ríska yfirforingjann og kröfð- ust þess að hann sæi um, að lið hans hegðaði sér þannig, að hægt yrði að halda uppi lög- um og reglu í borginni og áð því yrði skipað að fara eftir frönskum umfei'ðareglum. Það hefur vakið mikla Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.