Þjóðviljinn - 24.01.1952, Síða 1
Fimmtudagur 24. janúar 1952 — 17. árgangur — 19. tölublað
fflíiakkunnnf
Félagar! Gætið þess a3 glata
ekki ílokksréttindum vegna
vanskila. Greiðið. því flokks-
gjöldin skiivíslega í byrjun
hvers mánaðar. Skrifstofan er
opin daglega kl. 10—12 f. li. og
1—7 e. h. Stjórnin.
- » ■ Ag t % ' ^
.
? ' , ■ ..'-■ ■ * . - i
-v -x- '*X' -HÍ-
;■*• -■■-: *'■
w •/ - ■“
| J. ■■
Öldum saman hefur fljótið Ilúæ í Kína jafnaðarlega flætt yfir bakka sína, eyðilagt uppskeru og
drekkt mönnum og skepnum. I>að var ekki fyrr en alþýðuríki var stofnað í Kína sem gerð var
gangskör að því að beizla fljótið. Með frumstæðum tækjum en því meiri eldmóði gengu hundruð
þusunda manna að verki og á átta mánuðum var Iokið við að reisa 1800 kílómetra Ianga flóð-
garða. Á myndinni sést hópur bænda á fljótsbakkanum fagna fullnuðu verki.
Bandaríkin sögð vopna
Kuomintangher í Burina
Taliö er aö Bandaríkjamenn séu aö skipuleggja Kuomin
tangher í noröurhéruöum Burnra.
Allsheriarverkföil og vopna-
viðskipti í borgum Túnis
Ýfingar milli Frakka og Túnisbúa fara heldur vaxandi
en minnkandi.
Allsherjarverkföll standa
yfir eða hafa verið boðuð í
ýmsum borgum til að mótmæla
aðförum frönsku nýlendustjórn
arinnar og manntjón hefur
orðið í viðureignum lögreglu
Frakka ög sveita þjóðernis-
sinna.
Skipulögð barátta.
Sú stefna franska landstjór-
ans að láta vopnað lið skjóta
niður fólk, sem safnaðist sam-
an til að krefjast fullveldis
fyrir Túnis, liefur orðið til
þess að hópar þjóðernissinna
hafa byrjað skipulagðar árás-
ir á Frakka. I gær var fransk-
ur undirforingi skotinn til
bana í Túnis og þrír lögreglu-
þjónar létu lífiS er þjóðernis-
sinnar tóku á sitt vald lög-
reglustöð í smábæ nærri
Sousse, þar sem tíu manns
féilu í viðureign í fyrradag.
Þegar Frakkar sendu öfluga
liðssveit á vettvang yfirgáfu
þjóðernissinnar lögreglustöðina
og höfðu tvo lögregluþjóna á
brott með sér.
Svik Frakka orsökin.
f Sousse var allsherjarverk-
fall í gær til að mótmæla árás
Berfasf & bóða
bóga
Fréttaritarar í Saigon í Indó
Kina segja, að þar sé ekki
talið að sjálfstæðishreyfingin
Viet Minh hafi staSið að fjölda
sprengjutilræða, sem gerð hafa
verið undanfarna daga, heldur
hafi óánægðir menn úr trú-
flokknum caodai verið þar að
verki. Trúfélag þetta heldur
uppi her, sem það hefur leigt
Frökkum, en fyrir skömmu
gerðu um 1000 menn~úr liðinu
uppreisn og hafa lýst yfir, áð
þeir muni taka upp baráttu
bæði gegn Frökkum og Viet
Minh.
Frakka á fund Túnisbúa.
Frönsku yfirvöldin hafa sett
herlög í Sfax, þar sem verka-
lýðssamtökin hafa einnig boð-
að allsherjarverkfall.
Forsætisráðherra hins valda-
lausa ráðuneytis Túnisbúa
Framhald á 7. siðu.
Krefjíi Chur-
chill sagna
Miðstjórn Verkamannaflokks
ins brezka samþykkti í gær að
krefjast þess að Churchill for-
sætisráðherra geri grein fyrir
för simii til Washington strax
og þing kemur saman í næstu
viku. Sér í lagi vill miðstjórn-
in fá að vita, hvað Ohurchill
og Bandaríkjamönnum fór á
milli varðandi Austur-Asíu.
Sex ónpplýst sverting|amofó
í Flórída á niniii ári'
NEW YORK, (Telepress)
Svertingjahjón, sem urðu fyrir sprengjutilræði á heim-
ili sínu í Flórída á jólanóttina, eru nú bæði látin.
Á jólanóttina varð mikil
dynamit sprenging, sem tætti
í sundur hús svertingjaieiðtog-
ans Harry Moore. Hann lézt
samdægurs en kona hans Harri-
et lifði á þriíju viku eftir til-
ræðið.
Hafði mótmælt fyrri morðum.
Moore var fulitrúi Fram-
farasamtaka hörundsdökkra
Bandaríkjamanna í Flórida og
hafði barizt fyrir því að fá
rannsökuð fyrri kynþáttamorð
í fylkinu, sem með dauða þeirra
hjóna eru orðin sex á rúmu
ári. Enginn morðingjanna hef-
ur þurft að svara til saka.
Hermdarverkafélagið Ku
Klux Klan veður uppi í Flór-
ida. Fjórir hvítiþ menn drógu
svertingjann Melvin Womack
fram úr rúmi sínu, börðu hann
og skutu til bana.
Nokkrum vikum síðar fleygðu
hvítir morðingjar líki svertingj-
ans Willie Vincent út úr bíl.
f marz 1951 myrti blóðþyrst-
ur múgur svertingjapiltinn
Ernest Thomas, einn af fjórum
sem ákærðir voru fyrir að
hafa nauðgað hvítri stúlku.
Þegar Hæstiréttur Bandarikj
anna hafði hrundiö sektardómi
yfir þrem félögum Thomas
skaut Wiilis McÓall iögreglu-
stjóri einn þeirra, Sanuiel Shep
herd, er hann var að flytja
Jiann í járnum milli fangelsa.
Moore hafði forystu fyrir til-
raunum, sem gerðar voru til
að fá McCall dreginn fyrir lög
og dóm. Fyrir þá dirfsku urðu
hann og kona hans að gjalda
með lífi sínu.
Truman forseti, sem hefur
vald til að láta leynilögregluna
taka að sér rannsókn þessara
morða, hefur ekki hreyft til
þess fingur.
Fréttaritarar í Rangoon,
höfuðborg Burma, segja að
þar sé það liaft fyrir satt að
bandarískar flugvélar flytji
vopn og hernaðarráðunauta
til Kuomintanghers, sem flúði
inní Burma frá suðvesturhér-
uðum Kína fyrir rúmu ári. Seg-
ir sagan, að Bandaríkjamenn
séu búnir að sameina hina
Sigra þrátt fyrir
morð og kúgun
Samkvæmt síðustu fréttum
af kosningunum til fylkisþings
í Hyderabad í Indiandi
hefur bandalag kommúnista og
annarra vinstri flokka fengið 23
menn kjörna, Þjóðþingsflokkur
inn, sém fer með stjórn í Ind-
landi 41 og sósíaldemókratar
sex.
Kommúnistaflokkurinn er
bannaður í Hyderabad og hundr
uð stuðningsmanna hans sitja i
fangelsi, Yfirvöldin liafa ekki
skirrzf við að beita versta of-
beldi í kosningabaráttunni,
þannig s'kaut til dæmis lögregl-
an í þorpinu Krishnapuram
þrjá erindreka vinstribandalags
ins til bana.
amenn
játa griðrof
Bandaríska herstjórnin
Kóreu játaði í gær að flugvél
hennar hefði varpað snrengju
á hlutlausa svæðið við Kae
song en sagði að það hefði
verið vegna þess að flugmað-
urinn hefði stutt á rangan
takka þegar hann ætlaði að
losa sig við tóman benzíngeymi.
Einnig sagði herstjórnin, að
líklegt væri a'ð flugvél hennar
hefði ráðizt á bílalest samn-
inganefndar norðanmanna.
Vishinskí heifir Araharikjum
sfuSningi Sovéfrikjanna
Vishinski utanríkisráöherra hefur lýst yfir, að Sovét-
ríkin muni veita Arabaþjóöunum stuðning í frelsisbar-
áttu þeirra.
dreifðu herflokka í heila her-
deild, sem búi sig undir her-
hlaup inní suðvesturhéruð
Kína frá stöðvum í Burma.
Stjórnin í Burma hefur ekki
neitt bolmagn til áð afvopna
Kuomintangsveitir, sem þar
leituðu liælis, því að hún hefur
ekkert lið í landamærahéruðun-
um og þar ríkir algert stjórn-
leysi.
Acheson neitar.
Blaðamenn spurðu Acheson,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í gær hvað hæft væri í
þessum fregnum frá Burma.
Hann neitaði að nokkur fótur
væri fyrir þeim og sagði að
bandarískar flugvélar flyttu
hvorki vopn né foringja til
Kuomintangherflokkanna í
Burma.
’ept aS bjarga
f gær birti Kairóblaðið A1
Misri, stærsta blað Egyptal.,
viðtal sem fréttaritari þess
hafði átt við Vishinski. Segir
Vishinski þar, að sovétstjórnin
muni leitast við að veita Araba
ríkjunum pólitískan og efna-
hagslegan stuðning í baráttu
þeirra fyrir lausn undan öki
heimsvaldastefnu Vesturveld-
anna. Vishinski er farinn frá
?arís heim til Moskva.
Brezkur her hélt í gær áfram
húsrannsóknum í egypzku borg
inni Ismailia við Súesskurð.
Egypzki innanríkisráðherr-
ann lýsti yfir í gær, að tími
motmælanna væri nú liðinn.
Stjórnin hefði í undirbúningi á-
hrifaríkar aðgerðir til að svara
villimannlegri framkomu Breta
á Súessvæðinu en þó einkum í
Ismailia, þar sem þeir hefðu
gert konur og börn húsvillt,
eyðilagt eignir manna og farið
ránshendi.
Á flóðinu í nótt, rétt eftir
miðnætti, átti að gera tilrauu
til þess að ná Laxfossi út.
f gær og fyrradag var unr.ið
að undirbúningi verksins.
Kkristján Gíslason, vélsmiður
og skipstjórinn á Laxfossi bafa
haft forystu um undirbúning-
inn. Vélbáturinn Aðalbjörg fór
með dæiúr og örnur tæki á
strandstaðinn. Varðskipið Þór
Iiefur og verið þar, og ætiaði
hann að gera tilraun til þess í
nótt að ná sldpinu á flot.
Kafarar hafa reynt að þétta
Laxfoss, en hann var nærri
hálfur á kafi, og aðstaða öll er
þarna hin erfiðasta.
Bretum bannað að
skipta um vinnu
1 gær samþykktu fulltrúar
atvinnurekenda og verkalýðs-
félaganna á Bretlandi nýjar
reglur stjórnarinnar um vinnu-
ráðningar. Þær hafa ekki ver-
ið birtar en talið er, að þar
sé starfsfólki í ýmsum iðn-
greinum bannað að skipta um
atvinnu.
Flugvél ferst í útborg
New York
Bandarísk farþegaflugvél á
leið frá Buffalo til New York
fórst í gær er hún rakst á hús
í Elizabeth, einni af útborgum
New York. í flugvélinni voru
24 mcnn, sem allir biðu bana,
og að minnsta kosti átta í hús
unum. Meðal farþega var Ro-
bert Patterson, fyrrverandi her
málaráðherra Bandaríkjanna.