Þjóðviljinn - 05.02.1952, Page 1
SósíalisSar HaínarfiiSi
Skemmtifundur með sam-
eiginlegri kaffidrykkju verð-
ur í Strandgötu 41 n. k.
föstudagskvökl kk 9. Á
fundinum fiytut Magnús
Kjartansson erindi uin
Egypíaíand, upplestrar
verða, söngur og að iokuiu
félagsvist.
mæta (i\ skráningar
Hin Iögboðna atvinnuleysisskránmg hófst í gær og fór
fram í Hafnarstræti 20 á efri liæðinnL í gær munu innan
við 180 manns hafa komið til skráningar.
Fyrir nokkrti Iétu veriíalýðssamtökin fara fram rann-
sókn á atvinnuástandinu innan 13 verkalýðsfélaga og
kom þá í ljós að atvinnulausir menn Lnnan þessara fé-
laga væru nær 1500, og síðan hel'ur atvinnuleysið ekkert
minnkað.
Það er gömul reynsla að ekki kemur nema lítill hluti
atvinMuieysingjaiina tiJ hinnar lögboðnu skrántngar, og
það er líka síendurfcekin reynsla að þær lágu og óraun-
hæfu töiur nota stjórnarvöldin ætíð sem afsökun fyrir
því að gera ekki neitt, eða a.m.k. aldrei neitt viðunandi
tii úrbóta á atvinnuleysiriu.
Þetta vita félagsmenn verkalýðsfélaganna
ofurvel af reynslunni. Þess vegna mega þeir
ekki sitja heima. Hver sá atvinnuleysingi sem
situr heima og mætir ekki til atvinnuleysis-
skráningarinnar er þar með að svíkja sjálfan
sig, heimili sitt og stétt sína.
Mætið því til skráningarinnar, þið sem eru
atvinnulausir.
Hún fer fram í Hafnarstræti 20, annarri
hæð, frá kl. 10—12 og 1—5.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna:
Atvinnuleysisfundur
Stjóm og atvimiumálanefnd Fnlltzúazáðs
verkalýðsíéiaganna koSa tii
ALMENNS FUNDðR
um atvinnumái í Iðné i kvöld kiukkan 8.30.
Skorað er á allt verkaiéik í bænum að Ijöl-
menna á fundinn.
Stjórn og atvinnomáianeínd
15 Asíuríki kæra aðfarir
Frakka í Tíinis fyrir SÞ
Fimmtán Austurlandaríki hafa ákveSið að kæra Frakk-
land fyrir öryggsráðinu.
Sakarefnið eru aðfarir frönsku
nýlendustjórnarinnar í Túnis
undanfarið. Eindreginni kröfu
Túnisbúa um fullveldi var svar
að með því að handtaka leið-
toga þeirra og gera þá útlæga.
Þegar Túnisbúar héldu svo
fundi og hópgöngur til að mót-
mæla þessu gerræði, var
franskt herlið látið skjóta á þá
með þeim afleiðingum, að tugir
manna hafa beðið bana.
í hópi þeirra ríkja, sem bera
fram kæruna, eru Arabaríkin
sex, Indland, Pakistan, Indónes
ía og Filippseyjar. Talsmaður
frönsku stjórnarinnar sagði í
gær, að liún myndi bera þá
vörn fyrir sig, að öryggisráðið
hefði ekki vald til að ræða mál-
efni Túnis vegna þess að það
væri ekki ríki.
Viðsjár héldu áfram í Túnis
í gær. Tveir Túnisbúar voru
drepnir í Túnisborg, er herlið
skaut á hópgöngu. Brú nálægt
Bizerte var sprengd í fyrrinótt.
Við Sfax var handsprengjum
varpað að frönskum herflokki.
HLUTI AF ÞÚSUNDUM ÞEIM SEM SAFNAZT HÖFÐU SAMAN Á AUSTURVELLI TIL AÐ
KVEÐJA FYRSTA FORSETA ÍSLENZKA LÝÐ VELDISINS ( Ljósm. Siguröur Guðmundsson)
Þegar þjóðin kvaddi fyrsta
forseta lýðveidisins
Veður var stillt og bjart á l&ugardag þegar þjóð-
in kvaddi íyrsta íorseta lýðveldisins hinztu kveðju.
Fánar blöktu í hálía stöng hvarvetna, cg íánalitirn-
ir voru óvenju skýrir og tærir með hvítan snjó að
grunni. Laust efíir klukkan eitt fór fólk að safnast
saman á Austurvelli og við götur þær sem líkfylgd
forsetans átti að aka um, og að lokum höfðu safn-
azt saman margar þúsundir manna til að voíta hin-
um látna forseta virðingu og kveðju.
Gjallarhornum hafði verið komið fyrir á Aust-
urvelli og þar hlustaði mannfjöldinn þögull á minn-
ingarkveðjurnar í Alþingishúsinu og Dómkirkjunni,
látlausar, virðulegar og hlýlegar. Andi lýðveldis-
stofnunarinnar var þjóðinni nákominn á þessari
stund, blandinn trega.
Að Bessastöðum
Að forsetabústaðnum á
Bessastöðum hófst húskveðja
stundarfjórðungi fyrir kl. eitt.
Voru þar einungis viðstaddir
vandamenn og nánustu vinir,
en engir opinberir fulltrúar, en
hins vegar var athöfninni út-
varpað. Kistan var í viðhafn-
arsal forsetabústaðarins, sveip-
uð íslenzkum fána.
Athöfnin hófst á því að
strokkvartett lék undir stjórn
Björns Ólafssonar, bróðurson-
ar forseta, en kór Bessastaða-
sóknar söng sálminn: Ó þá náð
að eiga Jesúm. Séra Bjami
Jónsson vígslubiskup flutti hús-
kveðju, en sóknarpresturinn, sr.
Garðar Þorsteinsson söng ein-
söng: Kom dauðans blær. Hús-
Við vottum ríkiisstjórn íslands, Alþingi og
íslenzku þjóðinni allri innilegt þakidæti fyrir
samúó og hlýhug við andlát og útför
SVEINS BIÖRNSSONAB,
íorseta.
Georgia Bjömsson,
böni, tengdaböm
og bamabörn.
kveðjunni lauk á því að sókn-
arkórinn söng: Góður engill
guðs oss leiðir. Nánir vinir
forsetans úr reglu frímúrara
báru kistuna út af heimilinu
en lögregluþjónar stóðu heið-
ursvörð. Við hliðið stóðu með-
limir Ungmennafélags Garða-
hrepps heiðuxsvörð og kvöddu
forseta með fánakveoju.
I Alþingishúsinu
Fólk hafði safnazt saraan á
leiðinni frá Bessastöðum til
Reykjavíkur til að kveðja
fyrsta forseta lýðveldisins, og
í Reykjavík skipti mannfjöld-
inn mörgum þúsundum. Þeg-
ar komið var að Alþingishús-
inu gekk á undan líkfylgdinni
hópur lögregiuþjóna undir
stjóm Erlings Pálssonar yfir-
lögregluþjóns, síðan fór flokk-
ur skáta, en þeir mynduðu á-
samt félagssamtökum í Reykja-
vík fánaborg milli Alþingis-
hússins og Dómkirkjunnar. —
Lúðrasveit Reykjavíkur lék
sorgarlög.
I Alþingishúsinu höfðu safn-
azt saman þingmenn, rikis-
stjóm og fulltrúar erlendra
ríkja og þjóðhöfðingja. Þang-
að var kista forseta borin af
försetum deildanna, fonnönnutn.
Framhald á 3. síðu.
FRÁ ATHÖFNINNI í DÓMKIRKJUNNI
(Ljósm. Guðmundur Hannesson)