Þjóðviljinn - 07.02.1952, Qupperneq 1
Sósíalistar Halnarfirði
Skemmtifundur með sam-
eiginlegri kaffidrykkju verð-
ur í Strandgötu 41 n. k.
fösfudagskvöld kl. 9. Á
fundinum flytur Magnús
Kjartansson erindi um
Egyptaland, upplestrar
verða, söngur og að lokutn
féíagsvist.
M9 þus. krónum úfhlutað tll skálda,
rlthöfunda og annarra listamanna
Hinni árlegu úthlutun fjár þess sem Alþingi veitir til
listamanna er lokið og var úthlutað' 609 200 kr. til 101
manns. Þingkjörinni nefnd áem annast úthlutunina bár-
ust 180 umsóknir.
Að þessu sinni fengust nokkrar lagfæringar á misfell-
um undanfarandi ára, en hinsvegar gerðar ýmsar breyt-
ingar sem hæpnar mega teljast.
Fulltrúi Sósíalistaflokksins lét bóka nokkrar athuga-
semdir, og eru þær birtar hér á eftir.
í nefndinni áttu sæti Þorsteinn Þorsteinsson sýslumað-
ur (formaður), Þorkell Jóhannesson prófessor (ritari),
Helgi Sæmundsson blaðamaður og Sigurður Guðmunds-
son ritstjóri.
15 000,00 krónur hlutu:
Ásgrímur Jónsson,
Davíð Stefánsson,
Guðm. Gíslason Hagalín,
Halldór Kiljan Laxness,
Kviknar í Gúmmí-
barðannm
Um kl. 17.30 í gær var
slökkviliðið kvatt að Kveldúlfs-
húsunum við Skúlagötu, en þar
hafði kviknað í vinnustofu
Gúmmíbarðans h.f. Varð eldur-
inn þegar slökktur, og urðu
engar teljandi skemmdir. Ekki
var vitað um upptök eldsins,
er blaðið átti tal við slökkvi-
liðið.
Jakob Thorarensen,
Jóhannes S. Kjarval,
Jóhannes úr Kötlum,
Jón Stefánsson,
Kristmann Guðmundsson,
Tómas Guðmundsson,
Þórbergur Þórðarson.
9 000,00 krónur hlutu:
Ásmundur Sveinsson,
Elínborg Lárusdóttir,
Finnur Jónsson,
Guðmundur Böðvarsson,
Guðmundur Daníelsson,
Guðmundur Einarsson,
Gunnlaugur Blöndal,
Gunnlaugur Scheving,
Jón Björnsson,
Jón Engilberts,
Jón Þorleifsson,
Kristín Jónsdóttir,
Magnús Ásgeirsson,
Frá atvinnaleysisfandinum:
„k8 stórsér á börnunin"
„Seldi sparifötin sín.. I fyrmdag var hann að
reyna að selja olíaofninn .. .**
Hvað hefðu bændurnir sagt um þetta leyti í
fyrra þegar þá vantaði mat handa húsdýrum sín-
um, ef stjórnarvöldin hefðu sagt við þá: Þetta lag-
ast allt í vor! En þá var brugðið bæði fljótt og Vel
við, eins og skylt var.
Þannig fórust Dagsbrúnarmanninum Sigurjóni
Bjamasyni orð á atvinnuleysingjafundinum í fyrra
kvöld. Og hann hélt áfram.
Nú em það ekki skepnur bændanna sem svelta,
nú eru það börn verkamanna í Reykjavík. Og nú
svara líka stjórnai’völdin: Þetta lagast allt í vor!
Einar 4 millj. kr. eru ætlaðar til atvinnuaukning-
ar í öllum kaupstöðum landsins. Það getur hver
sagt sér sjálfur hvaða gagn muni vera að því.
Það er komið svo að mörg verkamannaheimili í
Reykjavík svelta. Ég veit um eitt heimili í her-
mannaskála. Heimilisfaðirinn hefur verið Iengi at-
vinnulaus. Það stórsér á börnunum. Ég veit að
þetta fólk hefur í lengstu lög reynt að komast hjá
því að leita opinberrar aðstoðar. Ég veit að maður-
inn seídi sparifötin sín fyrir nokkru. í fyrradag var
hann að reyna að selja hráolíuofninn úr braggan-
um sem hann býr í.
Erum við ekki samábyrg fyrir slíku ástandj í
þjóðfélaginu? Við höfum ekki leyfi til að standa
hjá aðg-erðalausir, þótt við höfum sjálfir vinnu —
enn. Þess vegna verða allir að sameinast í barátt-
unni gegn atvinnuleysinu.
Ég vil því skora á forustumenn Sósíalistaflokks-
ins og Alþýðuflokksins að leggja nú allar pólitísk-
ar deilur á hilluna og vinna saman af heilindum í
stærsta máli alþýðunnar í dag: baráttunni gegn
atvinnuleysinu.
Ólafur Jóh. Sigurðsson,
Ríkharður Jónsson,
Sigurjón Ólafsson,
•Steinn Steinarr,
Sveinn Þórarinsson,
Þorsteinn Jónsson.
8 900,00 krónur hlaut:
Friðrik Friðriksson, dr.theol.
5 400,00 krónur hlutu:
Friðrik Á. Brekkan,
Guðmundur Frímann,
Gúðm. Ingi Kristjánsson,
Halldór Stefánsson,
Heiðrekur Guðmundsson,
Framhald á 7. síðu.
Kaiipgjaíds-
niál fráfarar-
atriði
Faure forsætisráðherra í
Frakklandi hefur tilkynnt, að
stjórn sín muni gera það að
fráfararatriöi ef þingið sam-
þykkir ekki tilfögur hennar um
greiðslu visitöluuppbótar á
laun. Atkvæðagreiðslan fer
fram i dag.
Vill semja við
Vesíiirvelííin
Aly Maher Pasha, forsætis-
ráðherra Egyptalands, sagði í
útvarpsræðu í gær, að hann
myndi Ieitast við að bæta sam-
búð Egyptalands og Vestur-
veldanna. Þátttöku Egypta-
lands í hernaðarsamtökum
þeim, sem Vesturveldin hafa
einsett sér að koma á fót viö
Miðjarðarhafsbotn, kvað hann
vera samningsatriði.
Baiidaríkin yfir-
vega sambandsslii
Fréttaritari Reuters í Wash-
ington skýrir frá því að banda-
ríska utanríkisráðuneytið sé
að undirbúa ráðstefnu sendi-
herra Bandaríkjanna í löndun-
um í Austur-Evrópu. Hallast
ráðuneytið æ meira áð því ráði,
að slíta stjórnmálasambandi
'við öll ríki í Austur-Evrópu
nema Sovétrikin. Vill ráðuneyt-
ið fá umsögn sendiherranna um
þessa fyrirætlun áður en end-
anleg ákvörðun er tekin.
Elísabet II. Bretadrottning og maður hennar, Philip
hertogi af Edinborg. Myndin var tekin á brúðkaupsdag
\ þeirra, 20. nóvember 1947.
Georg konungur látinn,
Etísabet tekur við ríki
Georg VI. Bretakonungur léizt í gærmorgun í svefni
og tekur Elísabet dóttir hans nú við riki.
Georg konungur, sem varð óafmáanleg merki harðneskju-
56 ára gamall, haxði átt við van
heilsu að stríða siðan 1948 og
ágerðist hún á síðasta ári, er
gera varð á honum -mikinn
lungaskurð. Hann virtist þó
hafa náð sér fnrðu vei eftir að-
gerðina og ákveðið hafði verið,
að hann færi í heil-s'ubótarsigl-
ingu til Suður-Afríku í vor.
Konungur var næstelzti son-
ur Georgs V. og kom til ríkis
1936, þegar eldri bróðir hans
Játvarður, nú hertogi af Wind-
sor, afsalaði sér konungdómi
vegna þess að IBaldwin forsæt-
isráðherra og erkibis-kupinn af
Kantaraborg vildu ekki leyfa
honum að giftast fráskilinni,
bandarískri konu, frú Simpson.
Á yngr; árum var Georg VI. í
sjóhernum og flughernum og
bar titilinn -hertoginn af Jórvík.
Georg bar einsog bróðir hans
TekiS g3 rœða endanlegan
friðarsamning í Kóreu
Fullskipaðar vopnahlésnefnd-
ir í Kóreu komu saman á fund
í gær eftir langt hlé til að
ræða síðasta atriðið á dagskrá
sinni, ráðléggingar um endan-
lega, friðsamlega lausn Kóreu-
deilunnar.
Nam U hershöfðingi, formáð-
ur samninganefndar Kórea og
kínversku sjálfboðaliðanna,
lagði fram tillögur fyrir þeirra
hönd. Eru þær á þá leið, að
háttsettir stjórnmálamenn
beggja aðila, fimm af hvorum,
skuli koma saman á fund inn-
an þriggja mánaða eftir að
vopnahlé kemst á í Kóreu.
Vilja norðanmenn að vopna-
hlésráðstefnan leggi til við
stjórnmálamennina að þeir ræði
brottflutning alls erlends her-
liðs frá Kóreu, friðsamlega
lausn Kóreudeilunnar og önnur
skyld mál.
Joy floíaforingi, formaður
bandarísku vopnahlésnefndar-
innar, bað um frest til að at-
huga tillögnr norðamnanna.
legs uppeldis, faðir þeirra var
annálaður heimilisharðstjóri.
Játvarður fj’lltist uppreisnar-
anda, bauð viðteknum venjum
byrginn og gerðist -heimsmaður
mikill að dæmi afa sins, Ját-
varðar VII. Georg bognaði hins-
vegar, varð feiminn, hlédrægur
og taugaveiklaður einsog auð-
heyrt var á mæli hans, hann
varð að leggja sig allan fram
til að stama ekki, er -hann flutti
opinberar ræður. En Bretar
kunnu vel að meta samvizku-
semi Georgs konungs og skyldu
rækni og var hann ástsæll af
þjóð sinni.
Drottning Georgs konungs,
Elísabet, er af sk-ozkri aðalsætt.
Þeim varð tveggja dætra auðið.
Á fundi leyndarráðs Bretaveld-
is í gær var hin eldri þeirra,
Elísabet 26 ára gömul, útnefnd
til þjóðhöfðingja. Hún var stödd
í Kenya í Austur-Afríku ásamt
Philip manni sínum á leið til
Ástralíu og Nýja Sjálands er
konungur lézt. Lögðu þau þegar
af stað' heimleiðis og er von á
beim til London í dag.
★
Handhafar farsetavafds.
Steingrímur Steinþórsson, Jón.
Pálmason og Jón Ásbjörnsson,
sendu Elisabeth drottningu
.amúðarskeyti í morsrun, er
kunnugt varð um andlát Breta-
konungs.
Einnig hefur forsærisráýherra.
Steingrímur Steinþórsson, sent
forsætisráðherra Breta samúð-
arkveðju.
(Fcrsætisráðuneytið, 6.2. ’52.)