Þjóðviljinn - 13.02.1952, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 13.02.1952, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 13. febrúar 1952 1- ' - 5 Eftirþáíiki... Framhald af 3. síðu um þeirra eru aðeiris fimm árum yngri en þau sjálf. Fatn- aðúr iþeirra sumra er sniðinn fyrir ■ hitabeltislönd. Manni verður á að spyrja: livers- vegna fara börnin beint úr rúiriinu út í snjóinn, án þess að klæða sig fyrst? Heyrðu litla stúlka, af hverju ferðu ekki í föt? En litla stúlkan hristir bara öskugrátt hárið. Því börn- um sem alast upp við kulda og Seyru er yfirleitt heldur ó- greitt um mál. Þau vantar frelsið í sálina. Það hlýtur að vera óskap- leg synd sem þéssi börn eiga að gjalda. Svo ikoma útlendir menn til landsins. Og við segjum þeim að ef við legðum saman allar borholurnar á Réykjum og gerðum þær að einni, þá næði hún gegnum jörðiriá, og þannig mætti skaffa þeim heitt vatn í Ástralíu líka. Þjóðleikhús höf- um við, og háskóia, menningu og alþing. Hins vegar kemur það fyrir í hörðum vetrum að framkvæmdirnar grafast undir snjó, atvinnan verður úti í hríð- inni. Og daglaunin villast fram hjá vösuin okkar. Heima sitja börnin og fá frost á diskana. Hver er framtíð þeirra barna sem nú vaxa upp köld og svöng í þessum bæ? Það er til þess ætlazt að þau verði misheppn- uð æska, vansköpuð kynslóð. Þeir sem ráða þessu þjóðfélagi miðá athöfn sína við það að þau snapi vín austur í Tryggva skála eftir fjörutíu ár. Og eætti sig við sitt daglega skip- brot. Enda skal verða nóg brennsluspritt á prímusinn. B. B. Krossgáta 26. í. 1 i 1 S <0 7 8 9 'O it 11 '3 'V <S 'k '} n <9 lo Lárétt: 1 ljómar — 7 hefur ekki 8 hermann — 9 draup — 11 skóg- arguð — 12 byrði — 14 tveir samhljóðar — 15 mönnum — 17 fæði — 18 hnöttur — 20 huglaus. Lóðrétt: 1 hrip — 2 hina — 3 tveir eins — 4 flakk — 5 saurgar 6' húsi — 10 hreysi — 13 völdu 15 slæm — 16 þhéytt — 17 skáld 19 upphafsstafir. Lausn 25. krossgátu. Lárétt: 1 frýði — 4 sá — 5 sé 7 sat — 9 elt — 10 aki — 11 ósk 13 af — 15 au — 16 ásinn. Lóðrétt: 1 fá — 2 ýta — 3 is 4 skera — 6 élinu — 7 stó — 8 tak — 12 sói — 14 fá — 15 an. SkautamétiS Framhald af 8. síðu. grímsson (Þrótti) 10:10,2. 3. Björn Baldursson (SA) 10020,4 4- Hjalti oÞrsteisnons-mn,l 4. Hjalti Þorsteinsson (SA) 10:23,2. Hlupu þeir aliir undir fyrra meti á þessari vegalengd. Björn Baldursson er aðeins 16 ára og mjög efnilegur skauta- hlaupari. Stigafjöldi hæstu keppend- anna er þessi að mótinu loknu: Kristján Árnason: 228,317, Þorsteinn Steingrímsson: 231, 006 og Björn Baldursson: 232, 507 stig. 99. DAGUR sem vantaði einnig fleiri saumakonur. Og ef þær virtust hæfar til að framkvæma stimplunina, vorur þær sendar til Clydes til reynslu. En áður en Liggett sendi nokkra þeirra til Clydes, skýrði hann vandíega út fyrir honum, eftir hvaða reglum þessar bráðabirgðaráðningar og uppsagnir færu. Hversu vel sem ný starfsstúlka reyndist, mátti aldrei gefa henni í skyn að hún ynni nema sæmilega, þangað til búið var að fullreyna leikni hennar. Það hafði ruglandi áhrif á þjálfun þeirra. Einnig var óhætt að taka eins margar stúlkur og þörf krafði þegar svona stóð á, og segja þeim síðan upp þegar annatímanum var lok- ið — nema einhver sérlega dugleg stúlka væri meðal hinna nýkomnu. Þá var yfirleitt ráðlegt að reyna að halda í ha-na, annaðhvort með því að segja einhverri annarri upp eða flytja á milli deilda, til þess að veita nýju blóði inn í fyrirtækið. Daginn eftir komu. fjórar stúlkur sitt í hvoru lagi og alltaf var Liggett í fylgd með þeim og sagði í hvert skipti við Clyde: „Þessa stúlku getið þér ef til vill notað. Hún heitir ungfrú Tyndal. Þér ættuð að taka hana til reynslu." Eða: „Þér ættuð að athuga, hvort þér getið notazt við þessa stúlku.“ Og þegar Clyde var búinn að spyrja þær spjörunum úr, um fyrri vinnustaði þeirra, hvað þær hefðu lært, og hvort þær byggju heima á heimilum sinum eða einar (Ver’ismiðjan tók síður stúlkur sem bjuggu einar), skýrði hann út fyrir þeim starf þeirra og launakjör og kallaði síðan á ungfrú Todd, sem fylgdi þeim fyrst inn í almenninginn, þar sem yfirhafnirnar voru geymdar, og síðan að einu borðanna, þar sem þerm var sýnt hvað þær áttu að gera. Og svo var það hlutverlí Todd og Clydes að fylgjast meo afköstum þeirra og hvort það væri ó- maksins vert að hafa þær kyrrar í starfinu. Að undanteknum þeim fáu stúlkum sem Clyde leizt vel á, höfðu verksmiðjustúlkurnar yfirleitt fallið honum illa í geð. Honum fannst þær flestar þunglamalegar og einfalaar, og honum hafði dottið í hug hvort ekki væri hægt að ráða snotr- ara kvenfólk. Því ekki það? Voru engar álitlegar stúlkur í Lycurgus sem unnu í verksmiðjum? Þessar stúlkur voru flest- ar handstórar, stórleitar með svera fætur. Sumar töluðu jafnvel erlendmn hreim, voru Pólverjar eða afkomendur Pólverja og áttu heima í fátækrahverfinu fyrir norðan verksmiðjuna. Og þeim var öllum efst í huga að „ná í strák“ farar með honum á dansleik og dálítið meira. Og Clyde hafði einnig tekið eftir því, að bandarísku stúlkurnar voru allt öðruvísi, horaðri, tauga- óstyrkari, fáskiptnar og gagnteknar hleypidómum hvað snerti kynþætti, siðgæði og trúarbrögð, svo að þær komust ekki í kynni við hinar stúlkurnar, hvað þá karlmenn. En meðal nýju stúl'.manna sem sendar voru til hans næstu daga, var loks stúlka, sem Clyde leizt betur á en nokkra aðra sem hann hafði séð. Við fyrstu sýn virtist honum hún gáfulegri og viðfelldnari — skynsamari — og þrátt fyrir yndisþokka sinn var hún hraustlega vaxin og mjúk í hreyfingum. Hon- um virtist hún hafa til að bera yndisþokka fram yfir allar hin- ar stúlkurnar sem unnu þarna, angurværð og tilfinninganæmi, sem blandaðist hugrekki og.einbeitni. En hún sagðist þó ekki hafa neina reynslu af svona vinnu og vissi ekki hvort hún gæti lært hana. Nafn hennar var Róberta Alden og eins og hún sagði strax, hafði hún áður unnið í lítilli sokkaverksmiðju í borginni Tripp- etts Mills, fímmtíu mílum fyrir norðan Lycurgus. Hún var með lítinn brúnan hatt, sem var engan veginn nýlegur og hann slútti fram yfir andlitið, sem var smágert, reglulegt og fallegt, umkringt gljáandi, ljósbrúnu hári. Augu hennar voru gráblá og skær. Kjóllinn hennar var hversdagslegur og skórn- ir slitnir, en sólarnir þykkir og sterklegir. Hún virtist hagsýn og alvarleg en þó var hún svo fjörleg og hrein, vinnufús og vongóð, að hann varð undir eins hrifinn af henni eins og Ligg- ett, sem hafði talað við hana fyrst. Hún var bersýnilega fremri öllum stúikunum sem þarna unnu. Og hann fór ósjálfrátt að hugsa um hagi hennar meðan hann talaði við hana, því að hún virtist svo eftirvæntingarfull og taugaóstyrk yfir þessum spurningum, eins og þetta væri mjög merkilegur atburður í lífi hennar. Hún sagði að fram að þessu hefði hún átt heima hjá for- eldrum sínum í nágrenni borgar sem hét Biltz en byggi nú hjá vinum sínum í þessum bæ. Tún talaði svo hreir.lega og opinskátt, að Clyde fylltist samúð með henni og langaði til að hjálpa henni. En um leið fannst honum sem hún væri of góð til að vinna störf af þessu tagi. Augu hennar voru opinská, blá og greindarleg — varir hennar, nef, eyru og hendur svo nett og geðþekk. „Og þér ætlið þá að setjast að í Lycurgus, ef þér getið fengið vinnu hér?“ sagði hann til þess eins að geta haldið áfram að tala við hana. „Já,“ sagði hún og horfði beint á hann. „Og nafn yðar var?“ Hann tók skrifblokk. „Róberta Alden.“ . ' „Og heimilisfang yðar ihér?“ „Taylor stræti 228.“ „Ég veit ekki einu sinni hvar það er,“ sagði hann við hana, af því að hann hafði ánægju af að tala við hana. „Ég er sjálfur nýkominn hingað.“ Seinna fór hann að velta því f>Tir sér, hvers vegna hann hefði strax farið að segja henni þetta um sjálfan sig. Siðan bætti hann við: „Ég veit ekki, hvort herra Liggett hefur skýrt fyrir yður starfið hérna. En þetta er ákvæðisvinna, skiljið þér, þessi stimplun á flibbunum. Ég skal sýna yður það, ef þér viljið gera svo vel að koma með mér.“ Og hann gekk á undan henni að einu borðinu. Fyrst' lét hann hana virða fyrir sér hvernig stimplunin fór fram án þess að kalla á ungfrú Todd, og síðan tók hann upp einn flibbann og hélt áfram að gefa henni upplýs- ingar um allt sem hann vissi. Um leið var hann dálítið feiminn og vandræðalegur vegna áhugans í svip hennar, meðan hún horfði á hann og athafnir hans. Það var eitthvað rannsakandj og stingandi í augnaráði hennar. Þegar hann var aftur búinn að skýra út fyrir henni, hversu mikið borgað var fyrir hvert knippi og hve mikið sum- ar unnu sér inn og hve lítið aðrar fengu, kallaði hann á ungfrú Todd, sem fór með hana fram í almenninginn, þar sem hún gat hengt frá sér hatt sinn og yfirhöfn. Og brátt sá hariri, að hún kom aftur og Ijóst hárið lók um enni hennar, kinnar hennar voru rjóðar og augu hennar áköf og alvarleg. Og hann sá að hún bretti upp ermarnar að ráði ungfrú Todd, og þá komu í ljós fallegir handleggir. Svo tók hún til starfa og Clyde sá af hreyfingum hennar, að hún gæti unnið bæði hratt og örugg- lega. Því að henni virtist mikið í mun að fá þessa stöðu. Þegar hún var búin að vinna um stund, gekk hann til henn- ar og horfði á hana meðan hún tók upp flibbana og stimplaði þá og fleygði þeim síðan - til hliðar. Og hún var nákvæm og fljótvirk. Og svo sneri hún sér að honum andartak og brosti til hans, sakleysisleg og hugrökk, og hann endurgalt bros hennar með ánægjusvip. —oOo— ■—o Oo— —oOo—- —o O o— —oöo— —oOo— —oOo—* BARNASAGAN JVeyttu, á meðan á nefinii * “ 2. DAGUR Þegar kerling er búin með þetta srnjör, segir hún karlinum: ,,Kallað er í kóngsríkinu enn, og er ég enn beðin að koma og halda þar barni undir skírn." „Far þú þá,” segir karl. Kerling fer og segist eiga: að sækja smjör. Tók hún nú svo mikið, að hún sá í löggina. Þegar heim kom, spyr karl, hvað barnið heiti. Kerling segir: „Lögg heitir Ijót mær.” Nú leið og beið, þangað til kerling var enn orðin smjörlaus. Þá segir hún við karlinn: „Kallað er í kóngsríkinu enn." „Á hvern og til hvers?” spyr karl. „Á mig til að halda barni undir skírn,” segir kerling. „Far þú þá," segir kariinn. Kerling fer og segir sem fyrr í kóngsríkinu, að hún eigi að sækja smjör. Tekur hún þá allt, sem eftir var í tunnunni. Þegar hún kom heim, spurði karlinn, hvað barnið héti. „Botni heitir burðugur sveinn," segir kerling. Nú líður og bíður fram á útmánuði. Þá fór að verða hart í búi hjá karli og kerlingu. Þá segir karlinn við kerlingu sína, að nú sé bezt að sækja smjörtunnuna í kóngsríkið. Kerling fellst á það, og fara þau nú bæði og segjast ætla að sækja tunnuna sína. Þeim var íengin tunnan, og sáu þau, að um- búðirnar voru óhaggaðar. Velíu þau nú tunnunni heim til sín og inn í kotið. Opnaði karlinn nú tunn- una, en þá var hún galtóm. Karli bregður heldur en ekki í brún og spyr kerlingu sína, hvernig á þessu muni standa. Hún lézt nú ekki verða síður hissa á þessu en hann og þóttist ekkert skilja í, hverjum brögðum þau væru beitt. En í sama bili séc

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.