Þjóðviljinn - 13.02.1952, Side 7

Þjóðviljinn - 13.02.1952, Side 7
Miðvikudagur 13. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (T WÍW. Stoíuskápar, klæðaskápar, kommóður ávalt fyrirliggjandi. Húsgagnaverz.unin Þórsgiítu 1. Ensk íataeíni fyrirliggjandi. Sauma úr til lögðum efnum, einnig kven dragtir. Geri við hreinlegan ; fatnað. Gunnar Sæmundsson, 1 klæðskeri Þórsgötu 26 a. Sími 7748. Minningarspjöld Krabbameinsfélagsins fást í verzl. Remedía, Austurstræti 6 og í skrifstofu Elliheimil- ísins. Minningarspjöld Samband ísl. berklasjúklinga |fást á eftirt. stöðum: Skrif- jjSigríðar Helgadóttur, Lækj- argötu 2, Hirti Hjartarsyni, Bræðraborgarstíg 1, Máli og menningu, Laugaveg 19, Haf liðabúð, Njálsgötu 1, Bóka- búð Sigvalda Þorsteinssonar, Efstasundi 28, Bókabúð Þor valdar Bjarnasonar, Hafnar- firði, Verzl. Halldóru Ólafs- dóttur, Grettisgötu 26, Blómabúðinni Lofn, Skóla- vörðustíg 5 og hjá trúnað- armönnum sambandsins um land allt. :: Málverk, litaðar ljósmyndir og vatns- litamyndir til tækifærisgjafa. Ásbrú, Grettisgötu 54. Húsgögn: ÍDívanar, stofuskápar, klæða- J3kápar (sundurteknir), borð- stofuborð og stólar. Ásbrú, Grettisgötu 54. I§ja h.L, Lækjarg. 10. ?Úrval af smekklegum brúð- argjöfum. Skermagerðin Iðja, Lækjargötu 10. Munið kaffisöluna í Hafnarstræti 16. Iðja h.f. \ Ódýrar ryksugur, verð kr. 92S.00. Ljósakúlur í loft og á veggi. Skermagerðin Iðja h.f., Lækjargötu 10. VINN/V Amper h.f., raftækjavinnustofa, Þing- holtsstræti 21. — Sími 81556. GB Get ekki skoðað... Útvarpsviðgerðir Radíóvinnustofan, Veltusundi 1. Nýja sendibílastöðin, Aðalstræti 16 — Sími 1395 SendibílasSöðin Þór SlMI 81148. - Sendibílastöðin h.f. Ineólfsstræti 11. Sími 5113. Ljósmyndastofa Laugaveg 12. Lögfræðingar: Áki Jakobsson og Kristján;j Eiríksson, Laugaveg 27, 1. hæð. Sími 1453. Innrömmum málverk, ljósmyndir o. fl. Ásbrú, Grettisgötu 54. íbÍtyMUl-MVlflMl LMAl/EG 68 Ragnar ólafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi: Lög- fræðistörf, endurskoðun og fasteignasala. Vonarstræti 12. — Sími 5999. Saumavélaviðgerðir Skrifstofuvéla- viðgerðir. S Y L G I A '*■ Laufásveg 19. Sími 2656 Svefnsóíar, nýjar gerðir. Borðstofustólar og borðstofuborð i úr eik og birki. | Sófaborð, arm- ? stólar o. fl' Mjög lágt verð. i Allskonar húsgögn og inn- J réttingar eftir pöntun. Axei i Eyjólfsson, Skipholti 7, sími f 80Í17. Daglega ný egg, soðin og hrá. Kaffisalan Hafnarstræti 16. ? Gerízt áskríf endur a<5 ÞjóSvilianum Frá Fatapressu KRON Getum nú afgreitt kemiska hreinsun og pressun íata með siuttnm afgreiðsluíresti Fatamóttaka á Grettisgötu 3 og Hverfisgötu 78 Fatapressa Framhald af 5. sí3u. landi“. (Meint til Sveins í Firðí.) Síðan heldur Bjarni áfram: „En ef sérleyfislögin verða ekki samþykkt nú, hverjum er það til góðs? Ekki rikinu eða kjósendum almennt, né í Árnessýslu, heldur einstökum bröskurum erlendum sem búa meðfram stóránum og hafa von um gróða í fossabraski. Það er vitað mál, að aldrei hef- ur verið hamast eins í fossabraski og síðan miliiþinganefnd í fossa- málum tók til starfa. Og samþykkti ekki þetta þing sérleyfislög og setji þannig skorð- ur við frekara braski, þá mun eftir nokkurn tíma ekki eitt ein- asta vatn vera óselt, og mun það, sem selt er, ekki aðeins verða metið á 12 milljónir króna, heldur á 100 milljónir króna. — Þessar vífilengjur um að sérleyf- islög eigi ekki að samþykkja nú, eru því til þess eins fram born- ar, að fossafélögin geti grætt sem mest á bralli því, sem þau hafa haft hér í frammi, með því að senda hingað leynilega sendimenn til þess að ginna þessa hluti út úr fáfróðum mönnum fyrir smámuni. Það er þvi til góðs þjónum þess- ara félaga, sem eiga hér bæði heil blöð og venzlamenn, og nú er að sjá, að eigi suma þingmenn líka. Þetta er það, sem orsakar allt hatrið og allar skammirnar, sem dynja á okkur, meirihluta fossanefndar í blöðum þessara þjóna-erlendra auðkýfinga". Svo mörg eru þessi orð Bjarna frá Vogi þann dag og dugði ekki til að knýja lögin fram. Frávísunartillaga Sigurð- ar frá Vigur var samþykkt 19. sept- með 17 atkv gegn 4. Móti voru: Jón Jónsson, Bén Sv., Bjarni frá Vogi og Ólafur Briem. Þófið í fossamálinu hélt nú áfram næstu ár, unz því lauk á þingi 1923. RíkiSstjórnin hafði þá lagt frumvarp um fossamálið fyrir þingið. Hinn gamli meirihluti fossanefndarinnar, sem var orðinn minnihluti í þingnefnd þeirri, er stjórnarfrumvarpið fór til, var ákaflega óánægður með það stjórnarfrumvarp, sök- um þess að það gæfi eigendum fallvatnanna alltof mikið vald. Þeir Bjarni frá Vogi og Jón Þorláksson mynduðu minni- hluta þennan, en Guðmundur Björnsson landlæknir, sem ver- ið hafði með þeim í fossanef.nd- inni, sat þá ekki lengur á þingi. Þótt skoðanir þeirra Bjarna ög Jóns væru að sumu leyti ólíkar, þá voru þeir sammála um fordæmingu stjórnarfrum- varpsins og um breytingartil- lögur við það, fyrst og fremst um að takmarka valdsvið „eig- enda“. tLAGSLI Þjóðdansaíélag Rvíkurj Æfingar fyrir fullorðna íj dag í Skátahcimilinu. Byrj-Í endaflokkur mæti ld. 8 e. h.j Framhaldsflokkur mæti kl.; 9,30. Stjórnin. VÍKINGAR Knattspyrnumenn. Meistara-, ‘ 1. og 2. fl.: Þriðjud. kl.j 19,50—20,40 í Austurbæjar-« skóla. Föstud. kl. 20,30—! 21,30 að Hálogalandi. 3. fl. Föstud. kl. 19,50—20,40 íj Austurbæjarskóla. líandknatííeiksmenn. Meist- J ara-, 1. og 2. fl.: Miðvikud. kl. 22,10—23,00 að Háloga-i landi. 3. fl.: Miðvikud. kl. I 21,20—22,10 að Hálogalandi. j Sunnud. kl. 16,20—17,10 aðj I-Iálogalandi. Þ.jálfarinn. Aðal gagnrýni.sína á stjórn- arfrumvarpinu fólu þeir Bjarni og Jón í þessum atriðum (nefndarálit þeirra er þingskjal 486 í A-deild Alþ.tíð. 1923)i: „1. Alerlendum og hálferlendum mönnum og félögum, sem hafa keypt vatnsréttindi til nær allra stærstu fallvatna landsins, er gef- inn miklu ríkari og víðtækari réttur yfir þessum feng sínum en þeir jarðeigendur höfðu, sem seldu þeim hann. 2. Alls engar hömlur eru lagði- ar á verzlun með vatnsréttindi (fossaprang), en uppörfun mikil gefin þessari „atvinnugrein", þar sem verðmæti verzlunarvörunnar er stórkostlega aukið samkvæmt framansögðu". Umræðurnar um málið urðu allharðar- Jón Þorláksson, sem þá var þingmaður Reykvíkinga hafði framsögu fyrir minnihlutanum. Beitti hann auðsjáanlega öilu því áhrifavaldi, sem hann átti til og sótti aðstoð út fyrir þing ið, til Guðmundar Björnsson- ar, til þess að láta ekkert til sparað að afstýra því versta, er yfir vofði. Fórust honum m. a. svo orð í ræðu sinni í neðri deild 3. maí 1923: „N-ú var svo ástatt, áð þegar fossanefndin sat að stöi-fum, voru svo að segja öll stærstu og hag- kvæmustu fallvötn landsins komin í hendur útlendinga, nema hluti landssjóðs og Reykjavikurbæjar í vatnsréttindum Sogsins. Ýmist voru vötnin seld eða leigð útlendum félögum til lengri eða skemmri tíma. Af þessum ástæð- um tókum við (þ. e. fossanefndin) til athugunar, hvort fara skyldi ■eins að og Norðmenn 1880 og við- urkenna eignaréttinn og leggja síðan strangar sérleyfishömlur á verzlun þeirra. En okkur þótti of seint að fara þá leið. Við vorum búnir þegar að selja vatnsrétt- indin í hendur útlendinga". .... Síðan hélt hann áfram: „En nú vill háttv. mciri hluti fara þessa leið og gefa út- lendingum allán þann framtíðar- gróða, sem vér getum haft af notkun fallvatnanna. Ég er ekki fyrir að nota stór ovð, en get þó ekki látið hjá líða að flytja þessari háttv. deild þá orðsend ingu frá fyrrverandi forseta efri deildar, fyrrverandi meðnefndar- manni mínum, Guðmundi Björns- syni landlælcni, eftir beinum til- mælum hans, að hann geti ekki slcöðað þetta öðruvísi en föður- landssvik". .... Því næst gerir Jón grein fyrir skoðunum sínum og Guð- mundar Björnssonar og segir svo „Við höfðum og höfum enn trú á þvi, að sá bími komi, að unt verði að ráða fram úr þeirri fjár- hagslegu þraut að nota vatnsork- una fyrir ljósgjafa. og hitagjafa handa landsmönnum og við för- um fram á það, að löggjafarvald- ið sýni þá framsýni að taka tillit til nauðsynjarinnar á þessum Ú tscilcs framkvæmdum og leggja ekki stein í götu þeirra, og við förum fram á það, að þeir jarðeigendur, sem kynnu að hafa gert sér von um að geta selt einhver vatns- réttindi, sleppi þeim vonum vegna nauðsynjar eftirkomendanna". Þetta voru orð Jóns Þorláks- sonar. Og á þessu þingi fór svo, að ein breytingartillaga þeirra Jóns og Bjarna var samþykkt, einmitt um að að tryggja rík- inu virkjunarvaldið, svo þeir urðu með frumvarpinu sem sáttaleið, en Sveinn í Firði varð á móti- Lauk því fossamáxinu á Alþingi eftir allar þessar hörðu og löngu deilur með samkomu- lagslögum, er hindruðu hin er- lendu auðfélög í að virkja fall- vötnin, en létu hins vegar eigna rétt þeirra haldast. Og þar við situr enn. Síðan eru liðin 25 ár. En hætta sú, sem þá var slegið á frest fyrir harða bar- áttu framsýnna og þjóðhollra manna, vofir nú yfir í nýrri mynd, ólíkt ægilegri en um leið betur dulbúin en fyrrum. Brusselsýningin Framhald af 8. síðu. son höggmyndir. Listfræðing- arnir sem sáu sýninguna í Nor- egi báru þó fram ákveðnar ósk- ir um listamannaval, og var að sjálfsögðu farið eftir þeim. Yf- irieitt var beðið um þrjár myndir eftir hvern listamann, en þó vildu Belgíumenn fá sjö myndir eftir Kjarval og fimm eftir Þorvald Skúlason. Sýningarnefndin hefur nú lokið störfum og í gær var blaðamönnum boðið að skoða myndirnar sem valdar höfðu verið og að ræða við nefndina og menntámálaráð um sýning- una. Málverkin eru um 65 tals- ins, teikningar 10, 11 svartlist- armyndir og 11 höggmyndir og nokkrar vatnslitamyndir- — Rúmur þriðjungur myndanna var á Oslóarsýningunni. Á sýningunni verða olíumál- verk eftir þessa listamenn, 3 frá hverjum nema 7 frá Kjar- val: Ásgrim Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Hörð Ágústsson, Jóhannes Jó- hannesson, Jóhannes S. Kjar- val, Jón Engilberts, Jón Ste- fánsson, Jón Þorleifsson, Júií- önu Sveinsdóttur, Kjartan Guð- jónsson, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Kristján Davíðsson, Snorra Arinbjarnar, Svavar Guðnason, Sverrir Har- aldsson, Valtý Pétursson, Þor- vald Skúlason og Þórarinn B. Þorláksson. Vatnslitamyndir eru eftir þessa listamenn: Ásgrím Jóns- son, Nínu Tryggvadóttur og Valtý Pétursson. Teikningar sýna þessir: Guð- mundur Thorsteinsson, Jóhann- es Kjarval og Jón Engilberts. Svartlist er eftir þau tvö Barböru Árnason og Jón Eng- ilberts- Og að lokum eru svo högg- myndir eftir Ásmund Sveins- son, Sigurjón Ólafsson, Tove Ólafsson. Gerði Hjörleifsdótt- ur og Guðmund Elíasson. Kvenkápur frá kr. 100—550.00. Kvenkjólar frá kr. 200—350.00. Krakkagallar, ullar frá 2—4 ára, kr. 100.00. Telpuútiföt, ullar, frá 4—6 ára, kr. 170—200. Puöaborö kr. 20.00 stk. Tvisttau og sirs 10% afsláttur. Verzl. Fram, Klapparstíg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.