Þjóðviljinn - 16.02.1952, Síða 3

Þjóðviljinn - 16.02.1952, Síða 3
Laugardagur 16. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Hjalmar Andersen setur nýtt ævin- áisfflet -102 Osló í janúar. Hinn 9. og 10. f.m. var al- þjóðlegt skautamót í bænum Hamri í Noregi. Þetta var keppni milli Norðmanna ann- ars vegar og „alls heimsins" hins vegar. Veður var svo gott sem á varð kosið, glaða sól- skin og lítið frost, svo að ís- inn var hreinasti „olíuís“ á borð við Davos og Alma Ata. Hinn ósigrandi skautakóngur Hjalmar Andersen hafði ekki ætlað að taka þátt í öðru en 500 m hlaupi að þessu sinni, var ákveðinn í að hvíla sig nú eftir eitt hið harðasta keppnis- programm í manna minnum síð ustu vikurnar. En þegar Hol- lendingurinn Kees Broekman hafði á laugardaginn hlaupið 5000 m á svo frábærum tíma sem 8,11 mí* — Norðmönnum almennt til stórrar skelfingar — gat „Hjallis" ekki staðizt mátið og skellti sér í 10 000 metrana á sunnudag. Hann hafði sett upp áætlun um að hlaupa á 16,48 mín (3 sek betri tíma en hið hálfsmánaðar- gamla heimsmet hans), en fljótt varð Ijóst, að hann myndi fara langt framúr þeirri áætlun. Barinn áfram — bros- andi einsog endranær — af villtum lirópum 7000 áhorfenda, sterkari og mýkri en nokkru sinni brunaði hann í mark á 16 mín 32,6 sek, sem er 19 sek. betra en hið hálfsmánaðar- gamla met hans, og er alveg ótrúlega góður tími. Kees Broekman hljóp á 16 mín 56,3 sek, sem líka er afburðatími, eða þriðji bezti, er náðst hefur á þessari vegalengd. Annars eru N»iY*menn að verða alláhyggju'fullir útaf skautahlaupunum á ólympíu- leikunum. Það er nefnilega svo langt bil á milli „Hjallis“ og hinna Norðmannanna, og inní þetta bi] storma nú ýmsir út- lendingar svo sem Broekman Lamrnie, Finnlandi, Huiskes Hollandi, Asplund, Svíþjóð o. fl. — Nokkur sárabót er þó, að allt útlit er á, að Norðmönn- unum Finn Helgesen og Sig- mund Söfteland muni takast að slá Ameríkanann Ken Henry á 500 m. — Á 1500 m er Vim van des Voost, Hollandi, talinn mjög sigurviss, en honum er þó fast fylgt eftir af Norð- mönnunum Ivar Marthinsen, Roald Aas og Hroar Elvenes. Gallinn er bara sá, að norsku skautahlaupararnir hafa keppt svo alltof mikið síðan um nýjár, iðulega tvisvar í viku, og hefur þótt áberandi uppá síðkastið, að þeir voru farnir að þreyt- ast. Nema Hjalmar Andersen. hann er svo gegnum þjálfaður, að á hann virðist ekkert bíta. — Ekkert nema reginóhapp virðist geta afstýrt, að hann kræki í gullið á 5 bg 10 000 metrunum á ólympíuleikunum. Séra Eiríkur Helgason Leppum sýnd lítilsvirðing Baráttan fyrir atvinnu hefur sett svip sinn á starfsemi verkalýðsfélaganna um allt land á þessura vetri. Það er sama hvert litið er, í öllum landsfjórðungum hafa verka- lýðssamtökin gert baráttuna gegn vágesti atvinnuleysis og skorts að höfuðinntaki allrar félagsstarfseminnar í vetur. Þessi viðbrögð verkalýðsfé- laganna eru í fullu samræmi við núverandi aðstæður. At- vinnuleysið þjakar þúsundir al- þýðuheimila um allt land. Aft- urhalds- og skemmdarpólitík ríkisstjórnarinnar hefur að nýju leitt hungur og allsleýsi yfir íslenzk alþýðuheimili. Al- þýðuheimilin geta ekki lengur veitt sér allra nauðsynlegustu lífsþarfir. Alþýðumenn, um allt land, konur þeirra og börn hafa á ný orðið herfang at- vinnuleysisins og þeirrar neyð- ar sem fylgir í kjölfar þess. Þrátt fyrir þessar staðreynd- ir hefur afturhaldsstjórnin í Alþýðusambandi Islands sofið værum svefni og ekkert látið frá sér heyra í atvinnumálun- um á þessum vétri. Það er eins og þessi stjórn svörtu samfýlk- ingarinnar hafi ekki hugmynd um að atvinnuleysið þjakar ís- lenzkan verkalýð og er að leggja heimili hans í rústir fá- tæktarinnar. Hvernig má.þetta ske? Hvar gæti það hent annarsstaðar að stjóra heildarsamtaka verka- lýðsins héldi að sér höndum og hefðist ekki að undir svipu'ð- um kringumstæðum ? Þótt hægrikratar séu víða um lönd langt leiddir í þjón- ustu sinni við auðstéttaröfl og þeirra hagsmuni myndi lengi þurfa að leita jafnhundslegr- ar auðraýktar og þeirrar sem Alþýðusambandsstjóm svörtu samfylkingarinnar á Islandi sýnir afturhaldsstjóm Ihalds og Framsóknar. Alþýðublaðið skýrði frá því fyrir skömmu áð Alþýðusam- bandsstjórn hefði mánuðum saman beðið eftir samtali við ríkisstjórnina um atvinnuleys- ið, en ríkisstjórnin ekki svo mikið sem virt hana svars. Virtist Alþýðublaðið alveg undrandi á því virðingarleysi sern fram kæmi 1 þesSári af- stöðu ríkisstjómarinnar. Nú ér það kunnugt áð ríkis- stjórnin og einstakir ráðherrar hafa ekki færzt undan því að eiga viðtöl við nefndir og full- trúa frá verkalýðssamtökuniim um þetta vandamál, þótt þeir hafi fram að þessu talað þar fyrir daufum og skilningssljó- um eyrum. Það virðist þvi vera Alþýðusambandsstjórn ein, sem nýtur þeirrar sérstöðu hjá rik- isstjórn afturhaldsins að ná ekki tali af henni um vanda- mál hins atvinnulausa fjölda, sé frásögn Alþý'ðublaðsins sann leikanum samkvæm. Gengið út frá því að fiá- sögn Alþýðublaðsins hafi Við rök að styðjast, er aúðsætt að ríkisstjórnin sýnir Alþýðusam- bandsstjóm lítilsvirðingu sem engri annarri stofnun verka- lýðsins er boði’ð upp á, Mætti þetta verða Alþýðublaðinu og öðrum aðstandendum Alþýðu- sambandsstjórnar til aukins Framhald á 6. síðu. I dag er séra Eiríkur Helga- son Bjarnancsi í Hornafirði sex- tugur að aldri. Hann er fæddur að Eiði á Seltjarnarnesi 16. febr. 1892. Voru foreldrar hans Helgi Árnason bóndi á Eiði og kona hans Kristín Eiríksdóttir. Séra Eiríkur gekk í mennta- skólann og tók stúdentspróf 1914. Innritaðist sama ár í guð- fræðideild háskólans og lauk kandidatsprófi 1918. Var hann sama ár vígður til Sandfells i Öræfum og þjónaði því presta- kalli til vors 1931, en þá var hann kosinn prestur í Bjarna- nesprestakalli í Hornafirði. Hefur hann þjónað því síðan eða um 20 ára skeið. Þegar skrifuð er afmælisgrein um einhvern mann á merkum tímamótum' í æfi hans, þá segir upptalning æfiatriða slík sem þessi næsta lítið um raunveru- legt æfistarf, og enn þá minna um hæfileika og mannkosti þess, sem afmælið á. Svo er éinnig í þessu tilfelli. En það er vandasamt verk að skrifa persónulega um menn og þar sem ég þekki af langri kynn- ingu við séra Eirík, að hann metur persónulegt lóf næsta lít- ils mun slíku verða mjög stillt í hóf í þessum línum. Eins og að líkum lætur, héf- ur prestsþjónustan verið aðal- starf séra Eiríks. Ungur vigð- ist hann því og hefur nú verið þjónandi prestur yfir 30 ár. Nú um nokkur ár hefur hann verið eini prestur í Austur-Skafta- fellssýslu og þjónað þar þrem- ur prestaköllum Hefur sýslan löngum verið ein hin erfiðasta á landi hér hvað samgöngur snerti, vegna stórvatna og því einatt reynt á dugnaðinn við að sinna hinum prestlegu skyldu- störfum. 1 preststdrfinu hefur séra Eiríkur notið sín vel. Ætla ég þar fyrst og fremst komi tvennt til greina. 1 fyrsta lagi hinar f jölbreyttu gáfur, sem hann er gæddur, skarpskyggni og glögg innsýn í kjarna livers máls og í öðru lagi sú lífsskoðun, sem hann þegar á unga aldri tileinkaði sér, þ.e. lífsskoðun sósíalism- ans. Alloft er minnzt á það, að ís- lenzka kirkjan sé orðin lítils virt stofnun í þjóðfélagi okkar, og boðskapur sá, er prestar hennar flytja af prédikunar- stólunum sé innantóm orð, „hljómandi málmur og hvell- andi bjalla“, eins og höfundur kristninnar komst að orði. Mér er það kunnugt að á þessu vandamáli hefur séra Eiríkur sínar sérstöku skoðanir, sem hann fer ekki dult með. Hans dkoðanir eru þær að hlutverk kirkjunnar auk þess sem henni er opinberlega ætlað sé engu síður það, að leggja fram sína krafta til að bæta úr mannlegu böli og eymd hvar og livernig sem það birtist, berjast á móti þeim öflum, sem valda skorti, fátækt, eyðileggingum og styrj- öldum. Með öðrum orðum, kirkj an eigi að láta mannfélagsmálin til sín taka, gerast öruggur málsvari allra þeirra, er fótum troðast í hinnj villimannlegu baráttu um réttinn til að lifa, sem hinn kapitalistiski heimur nútímans neyðir einstaklinginn til að berjast. Og röksemdir fyrir þessari skoðun hefur séra Eiríkur á takeinum úr biblíunni sjálfri, orðum og kenningum Krists, postula hans og spá mannanna. Og það er þetta viðhorf til kirkjunnar, lífsskoðun hans og efni, er hefur gert hann að þeim úrvalsræðumanni í prédik unarstólnum,. sem sóknarbörn hans þekkja svo vel, ekki síður sextugur en þegar hann ræðir um önn- ur efni utan kirkjunnar. Mundi ekki athugandi sfyrir íslenzka préstastétt sem heild, áð beina áhuga sínum og kröftiim að því að gera kirkjuna að stofnun, sem teldi sér ekkert mannlegt; óviðkomandi, og kirkjan þá jafn Séra Eiríkur Ilelgason framt vaxa að áliti og virðingu og verða það afl í þjóðfélaginu, er lyfti því á hærra stig menn- ingar og félagsþroska ? Þegar séra Eiríkur í prédik- unarstólnum leggur út af orð- um Krists, postula hans og spá mannanna, og sýnir fram á það með sannfærandi rökum, hvern- ig lífsstarf þeirra var öðrum þræði ádeila á þjóðfélagsástand síns tima, fjárdrátt, misk- unnarleysi og kúgun spilltrar yfirstéttar, og a'ð öðru leyti barátta fyrir réttindum hinna minni máttar, þá opnast gleggri yfirsýn yfir þau verkefni er liggja fyrir hverjum þeim er gjaman vill sjá baráttuna fyr- ir betra mannlífi bera árangur, og jafnframt að sú barátta er árþúsunda gömul. Ekki hefur séra Eiríkur látið við það sitja að rækja prests- starfið eitt. Hann hefur ætíð tékið mjög virkan þátt í almennu félags- starfi í prestaköllum sínum. Meðan hann þjónaði Sandfells- prestakalli var hann lengst af deildarstjóri í Öræfadeild í Kaupfélagi Vestur-Skaftfell- inga. Eftir að hann kom að Bjarnanesi hefur hann verið mjög virkur þátttakandi í hverskonar menningar og fram- faramÉdum Nesjahrepps. Um nokkur ár hefur hann átt sæti í stjórn Búnaðarfélags hreppsins, deildarstjóri Nesjadeildar í Kaupfélagi Austur-Skaftfell- inga og þegar jarðræktarsam- band var stofnað sameiginlega með þremur eystri hreppum sýslunnar Bæjar-, Nesja- og Hafnarhreppi, þá var hann þeg- ar kosinn í stjórn þess og hef- ur átt sæti þar síðan. Er áhugi hans á framförum landbúnaðar- ins í héraðinu alþekktur. Þá hefur hann og um margra ára skeið átt sæti í stjórni Menningarfélags Aiistur- Skaft- fellinga og áhrifa lrans .mikið gætt á hinum árlegu mótum þess, enda er hann fundarmað- ur og fyrirlesari mjög góður. Þannig hefjir sé.ra Eiríki tekizt að sameina á hinn prýðilegasta hátt prestsstarfið við önnur störf í almennum félags-, át- vinnu- og menningarmálum þess héraðs, sem hann ungur flúttist í og hefur lielgað starfs- krafta sína síðan. Um afskipti séra Eiríks af opin’berum málum verður ekki rætt hér nema lítið. Ungur að aldri hneigðist hann til sósíal- Framhald á 7. síðu. Loftleiðir áætla 2 millj. kr. halla Loftleiðir tilkynntu eins og 'kunnugt er að félagið myndi hætta áætlunarflugi, eftir að ráðherra hafði áltveðið skipt- ingu leiðanna milli féláganna. í greinargerð frá Loftleiðum fyrir ákvörðun þessari segir, að Loftleiðum hafi verið út- hlutað hinum styttri flugléið- um, er séu mun óhagstæðari í rekstri og myndi því tap af rekstri þeirra verða uffll 2 millj. kr. Segir svo m. a. £ greinargerðinni: „Til grundvallar tekjuhlið- inni voru lagðar farþegatölurí ársins' 1950 og bætt við þær þeirri hundraðstölu, sem heild- araukning innanlandsflugsinsi nam árið 1951- Með slíkum útreikningi komi í ljós að heildarárstekjuú myndu ekki verða meiri en tæp- ar 3 milljónir króna (krónup 2.900.000.00). Greiðsla væntan- legra póstflutninga var þó eigi talin hér. með, en ósennilegt þótti áð hún myndi nema veru- legum fjárhæðum. Til þess að geta veitt æski- lega þjónustu á þessum leið- um og rækt óaðfinnanlega þær skyldur, sem réttinduúum1 fylgdu, bar nauðsyn til þess aði' hafa vegna sérleyfisins fjóraú flugvélar í förum, tvær Dougl- asvélar og tvær Catalinavélar. Samkvæmt þessum sömu út- reikningum nemur árlegur kostnaður vegna þessa rekst- urs tæpum 5 milljónum króna þó eigi gert ráð fyrir ýmsum; þeim hækkunum nokkurra út- gjaldaliða, sem ætla má að verði á þessu ári“. Áðalfimdiir Þróttar á Siglufirði Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans Aðalfundur Þróttar var haldinn 4. þ.m. Sú breyting var gerðl á lögunum að fjölgað var í Stjóminni úr 5 í 7. Eins og áðup hefur verið frá sagt var stjóm Þróttar sjálfkjörin. Eftirtaldir menn voru kosn- ir í aðalstjórnina: Formaður Gunnar Jóhannsson, varaform. Jónas Jónasson, ritari: Gunn- laugur Hjálmarsson, gjaldkeri: Óskar Garibaldason, meðstjórn- endur: Gísli Hreiðar Elíasson, Bjarni Þorsteinsson og Frið- rik Márusson. Varastjóm rit- ari Gisli Sigurðsson, gjaldkeri Kristmar Ölafsson, meðstjóm- endur: Steingrímur Magnússon og Gunnar GuðbrandSson. End- urskoðendur: Einar Albertsson og Jóhann Möller. Úr stjórninni gekk Jón Jó- hannsson, en hann er nú fbr- maður sjómannadeildar félags- ins. Eignir félagsins höfðu aukizt á árinu um 34 þús. 945,83 kr. Skuldlaus eign þess er nú 255 þús. 374,92 kr. — að meðtöld- um hjálparsjóði þess, sem er 107 þús. Samþykkt var að hækka árgjald félagsmanna úq kr. 100 í 110.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.