Þjóðviljinn - 28.02.1952, Síða 3

Þjóðviljinn - 28.02.1952, Síða 3
Fimmíudagur 28. feferúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (.3 ^ Ritstjóri: Þóra Vigfúsdóttir j Llfið inn fil hi Fyrir eitthvað rúmum tuttugu árum sá ég frú Þuríði Friðriks- dóttur f fyrsta sinn, það vár á opinberum verkalýðsfundi I Keykja- n'k. Mér er það minnisstætt að það var aðeins ein kona sem tók Til máls á þessum fundi, fyrirmannieg og drengileg á svip og fannst mér þá strax að hverjum máistað væri betur borgið, sem þéssi kona iegði iið. Konan var Þuríður Friðriksdóttir. Ég kynntist henni Svo tíðar. Við urðum og erum pólitískir samherjar og Ieiðir okkar lágu saman í ýmsum kvennasamtökum, og þar hef ég einnig kynnzt Þuríði sem hinni einörðu hreinskilnu og djörfu bardagakonu og um það mun flestum koma saman, að hvort sem hún stendur í fund- arsal og deillr á andstæðinga sína — eða samherja, sem hún á stund- um til að gera þegar lienni finnst þörf að segja okkur eitthvað tii syndanna — eða situr veizlubúin á skémmtifundum með öðrum kon- um, þá fari þar svipmikll og drengiieg kona. I tilefni tuttugu ára afmælis Þvottakvennafélagsins Freyja 7. febr. síðastiiðinn notaði ég tækifærið til að heilsa upp á Þuríði og fá að heyra eitthvað um afmæiisbamið. Þvottakvennafélagið er stofn- að 7. febrúar 1932 að tilhlutun Jóhönnu Egilsdóttur, segir Þuríður. Verkakvennafélagið Framsókn áleit nefnilega ekki þá að það hefði aðstöðu til áð hefja baráttu fyrir bættum kjörum þeirra kvenna sem unnu að ræstingu í opinberum bygg- ingum, einkafyrirtækjum eða yfirleitt fyrir kjörum kvenna sem hefðu slík störf sér til framdráttar. Þessar konur voru óskipulagður hópur, þær höfðu engin réttindi, kaupið var ó- heyrilega lágt. Bærinn stækk- aði. Skrifstofur og stórbygging- ar þurfti áð ræsta svo vinna fór að verða töluverð við þessi störf. Og bú tókst að þér að hefja baráttu fyrir bættum lífsbjör- um þeirra sem fengust við þessa illa launuðu atvinnu? Já, það má segja það. Við vorum 30 konur sem stofnuð- um félagið, ég var kosin for- maður og hef verið það síðan. Jóhann Egilsdóttir var fyrSti varamaður, og gjaldkeri félags- ins frá byrjun hefur verið Sig- ríður Friðriksdóttir, systir mín, en fyrsti ritari félagsins var Svava Jónsdóttir. Fyrsta verkefni félagsins, heldur Þuríður áfram, var að reyna að ná samningum við ríki og bæ og aðra atvinnurek- endur á þessu sviði. — Það tókust brátt samningar við rík- ið, þar sem Þvottakvennafélag- ið Freyja var viðurkenndur réttur samningsaðili í þessum atvinnuvegi, en bærinn viður- kenndi taxta félagsins. Næsta skref var svo að kynna sér kaup og kjör þessara kvenna og kom þá í ljós hve miklum misrétti þær höfðu verið beitt- ar, borið saman við aðrar at- vinnugreinar og fyrir utan hið lága kaup fengu þær mjög víða ekki að þvo gólfin nema úr köldu vatni, en þvi var nú ★ ★ Lítil hvit blússa. Takið eftir erm- unum, þær eru nýjasta tízka ★ ★ strax kippt í lag með öðrum kjarabótum. Á Pósthúsinu og Stjórnar- ráðinu var stúlkum f jölgað um helming við ræstingar og kaup- ið hækkað um helming eða ríf- lega það. Á öðrum stöðum sem konur höfðu unnið árum saman fengust ríflegar kjarabætur fyr ir milligöngu félagsins. Framan af fórum við venjulega samn- ingaleið í kröfum okkar, en seinna tók félagið upp fermetra taxta, sem er það lang réttasta, þar sem gólfflöturinn segir til hve mikið sé þvegið og hvað þvottakonan því réttlátlega eigi að bera úr býtum. Tókst ykkur að herja út ein- hver önnur fríðindi? Já, félaginu tókst að fá við- urkennt 12 daga sumarfrí og 45 daga veikindaforföll og njóta stúlkur í þessari atvinnu- grein þessara hlunninda áfram- haldandi. Nú er atvinnuleysi aftur að berja að dyrum og mun það ekki sízt koma niður á þessari stétt, því er það ekki svo, segir Þuríður, að konunni er venjulegast ýtt til hliðar þegar á að fara að spara og dragá saman. Maður hélt hérna á velmagtarárunum að íslend- ingar mundu aldrei oftar sjá framan í kreppu og atvinnu- leysi, en það ætlar að takast furðanlega fyrir stjórnarvöld unum að koma öllu i rúst og kaldakol. Já, mikið höfum við kjóséndur landsins á samvizk- unni. Hvemig hefar svo félágSStaríið veríð hjá ykkur í öll þessi ár? Samstarfið hefur verið ágætt og „Freyja“ hefur tekið ríkan þátt í kvenfélagastarfseminni yfirleitt. Við erum í Kvenrétt- indafélagi Isiands. Eigum fuli- trúa í Mæðrastyrksnefnd og eins í söfnunarnefnd Haliveig- arstaða, og leggjum fram allmikið starf í þágu „Vorboð- ans“. Þvottakvennafél. ,Fieyja‘ er enn á fegursta aldri, seg- ir formaður þess, við s.-m höf- um starfað bar um tuttugu ára skeið vorum að þessi fe- lagsskaþur oxkai eigi eftir a'S þroskast og dafna og okkur auðnist ævíjilega a.i leggja fram okkar skerf til að starf- andi fólk megi ber-« þax úr být- um sem bv, rviti'egj ber. Þnu kjör sem islanzk alþýða iÁi við í dag hafa ekíi k.ir.jð af sjálfu sér, hvert fet sem okk- ur hefur miðað áfram til betri lífskjara hefur kostað baráttu og stundum harða baráttu, en sú barátta hefur líka kennt okkur að samtakamáttur al- þýðunnar þýðir sigrar hennar. Það hefur náttúrlega blásið svalan um þíg eins og aðra sem gerast Iiðsmenn nýrra þ jóðf éla gshugs jóna ?- Ég veit ekki, það hrín víst ekkert á mér. Maður kveður þá sér til hugarhægðar ef eitt- hváð blæs á móti. Ég skal Fá$£egur klútur gretur iífgrað upp gamlan kjól. — Á myndinni er klútnum smeygrt undir kjól- kragrann og bundin stór slaufa. I sfuftu máli Þuríður Friðriksdóttir segja þér að það er ekkert eins hressandi og að kveða rímur og ferskeytlur þegar maður er þreyttur á fundar- höldum og stjórnmálastappi. Ég er í kvæðafélaginu „Iðunn“ og hef verið þar síðan 1929. Ég álít að kvæðafélagið Iðunn gegni merku þjóðfélagsstarfi, sem ekki hefur verið nógu mikill gaúmúr gefinn, og svo er annað að þáð er engin skemmtun á við að heyra vel- kveðnar rímur með mörgum kenningum og miðrími. En rím- urnar hafa líka verið tónleikar alþýðunnar gegnum aldaiaðir. Mér finnst alltaf fara áð syngja í hjartanu þegar ég heyri vel kveðið. EG kveð Þuríði. Á leiðinni heim er ég að hugsa um hvað hún sé ævinlega hressileg og ung í anda og áhuginn lifandi fyrir öllu þvi sem lýtur að hag og velgengni alþýðunnar í !and- in'u. Starf hennar í þágu Þvotta kvennafélagsins „Freyja“ verð- ur einhvern tíma meti'ð að verð- leikum og megi félagið enn um langt skeið njóta krafta hennar og forystu. Þ. V. KONUR t BÆNUM ræða mikið um „Snorralaug", almennings- þvottahúsið nýja, sem tekið er til starfa hér í bæ. Nú eru ailir ieiðinda þvottadagar úr sögunni, segja þær. Við búum okkur upp á, tökum bíl, förum með okkar þvott, stingum 4 kg ofan í hverja vél og löbbum okkur síðan út í bæ. Öll blöðin segja að við get- um farið í búðir og verzlað (hvar éigum við að taka peningana?), eða bara spókað okkur á götun- um meðan vélarnar þvo þvott- inn. Þetta er allt saman gott og blessað og von að almenn hr'ifh- ing ríki yfir því að vélarnar taki af okkur stritið og við getum hugsað um okkar þvott í vist- legum húsakynnum. Það er alltaf einhver höggormur í paradísinni. Ætli að okkur verkamannakonun- um sem höfum tæplega til hnifs og skeiðar verði ekki ofviða að leggja í bílkostnað þann sem fyig- ir svona fyrirkomulagi, það kost- ar skilding að taka bíl úr út- hverfunum inn á Snorrabraut, en svona almenningsþvottahús ná fyrst tilgangi sínum ef þeir fá- tækustu i þjöðfélaginu geta notað sér slíka tækni. Létta mundi und. ir ef kæmu ódýrar bílferðir frá „Snorralaug" á vissum dögum í hin ýmsu hverfi bæjarins, þar sem þvotturinn væri fluttur fyrir húsmæðurnar fram og til baka. Við skulum vona að „Snorra- laug" eigi eftir að verða almenn- ingsþvottahúsið sem allir geta notfært sér. □ TÍMARITIÐ „Virkið í Norðri" er nýkomið út. Þar eru m. a. birtar blaðagreinar þær frá öllum blöð- unum, sem spunnust út af Kven- réttindafélagsfundinum 7. mai s..l vor. Þessi sögulegi fundur vakti féikilegt umtal í bænum og út um land og urðu mikil blaða- skrif í sambandi við það. 1 þessu riti geta konur lesið allar grein- ar blaðanna og borið þær saman við staðreyndirnar. Þær eru ó- fögur lýsing á æsiblaðamennsku sumra dagblaðanna hér í höfuð- staðnum, þar sem beztu konum þjóðarinnar eru valin hin háðu- legustu orð í pólitísku ofstæki og geðshræringu út af að hafa íeng- ið erlent herlið inn í landið þenn- an dag. □ NÝLEGA VAR haldinn fundur hér í bænum á vegum Stúdenta- félags Reykjavikur um menningv armál, þar sem ýmsum mönnum var boðið að hafa framsögu. ÞaS vekur furðu að enginn kona skyldi verða fyrir valinu. Við eig- um hóp af íslenzkum konum sem hafa lagt drjúgan skerf til menningarmála þjóðarinnar og það ætti vissulega að heyrast raddir frá konum þegar rædd eru þessi mál opinberlega. Þrátt fyrir allt jafnrétti á pappírnum eru þær áreiðanlega ekki enn þá sköð- aðar þær vitsmunaverur að þær eigi að hafa orðið þegar rætt er um andleg mál íslenzku þjóð- arinnar. 75 ára Guðrun Jónasson Frú Guðrún Jónasson kaup- maður og bæjarfulltrúi átti 75 ára afmæli 8. febrúar síðastlið- inn. Þegar ég fyrst heyrði á hana minnzt, var það í sambandi við að hún hafði stutt málaleitun A.S.B., félags starfsstúlkna í brauða- og mjólkurbúðum, í bæjarstjórn Reykjavíkur, og var það henni mjög í vil í huga mínum. Ég hugsa að hún hafi kosið sér að reyna að hafa sem já- kvæðast viðhorf til málefna. kvenna yfirleitt. Á landsfundi kvenna 1944 kom hún fram. með þá tillögu, þegar skipulag Kvenréttindafélags Islands var rætt, að í stjórn félagsins ætti sæti 1 kona frá hverjum póli- tískum flokki, og var það hugs- að sem sameiningargrundvöllur til málefnabaráttu og varð það úr. Og hefur sú tilhögun áreið- anlega verið félaginu til góðs, þó að hugsjón Guðrúnar væri miklu stærri en svo að lágkúru- legum flokkssjónarmiðum. hentaði. Enda segir sú góða kona í viðtali á afmælisdaginn: ,,Við þurfunt svo mikið á því að halda að geta staðið santan. Ef við gerffum það yfirleitt, vært ruiörgum steini rutt úr vegi“. Ég veit að Guðrún Jónasson mælir hér af djúpri reynslu og að hún skilur það til fulls hversu konur eiga í vök að verj- ast með sérmál sín á Alþirigi og víðar. Hvenær fáunt við sömu laun fyrir samskonar störf, hvenær fáum við frjálst Framhald á 6. síðu. j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.