Þjóðviljinn - 16.03.1952, Side 1
flokkunnní
Allir deildafundir falla
niður annaokvöld.
SIGFUS SIGURHJARTARSON LATINN
Þjdðviljinn flytur íslenzku þjóðinni harmafregn.
Sigfús Sigurhjartarson er látinn. Hann andaðist
í gærkvöldi að heimili sínu um klukkan hálf níu.
Banamein hans var hjartaslag.
ísland á þar á bak að sjá einum sinna allra beztu
sona. Alþýða fslands hefur misst einn glæsilegasta og
giftusamasta foringja sem hún hefur eignazt.
Er þungur harmur kveðinn að ástvinum hans, og
öllum þeim öðrum sem fagnað höfðu svo nýlega heim-
komu hans.
Einn bezti sonur íslands er lagztur til hvíldar
eftir annasaman og erfiðan vinnudag.
Starfi hans og minningu mun alþýða íslands ætíð
halda í heiðri og geyma sem hjartfólgins fjársjóðs.
Rotaforingjamlr Lynde McCormick
09 Williðm Andrews koma í dag
Olíufélagið og hvalsföðin lófin víkja úr
Hvalfirði til að rýma fyrir herraþjóðinni
Þjóðviljanum barst í gær þessi . frettatilkynning fra
utanríkisráðuneytinu, dags 15. marz:
„Lynde McCormick yfirflotaforingi Atlantshafsbanda-
Iagsins er væntanlcgur til íslands sunnudaginn 16. marz.
Kemur hann til viöræöna viö ríkisstjórn íslands og yfir-
mann vamarliðsins á íslandi. í för með yfirflotaforingj-
anum er flotaráösforingi hans, Sir Wiiliam Andrewes
flotaforingi, og annað íöruneyti.“
Heimsókn þessa flotaforinsria
Atlanzhafsbandaiagrsins er Is-
lendingrum síður en svo á-
nægjuefni. Telja má vis.t að
meB komu þeirra eiffi að
herða á þeim hernaðarhlekkj-
irni sem verið er að vefja Is-
land ogr íslenzku þjóðinsír
Nú er svo komið. að her-
stjórn Bandarikjanna telur sér
heimilt að haga sér gagrnvart
Islendingum sem hernuminni
þjóð, dreifa um allt Iand her-
gtöðvum sínum án alls tiliits
til lífs og hagrsmuna íslenzku
þjóðarinnar. Heimsókn Lynde
MoCormick yfiríiotaf oringja
Atlanzhafsbandalagsins er vafa
laust liður í þeirri áætlun
bandarisku herstjórnarinnar að
gera fsland að mikUvægtim iið
undirbúningrs heimsauðvaldsins
tll árásarstyrjaidar.
Einhver minnist nú varnað-
arorða Þjóðviijans Vegna olíu-
Htöðvarinnar f Hvalfirði. NÚ
ÞEGAB MUN AKVEÐIÐ AÐ
I.ÁTA BÆÐI OUUFÉLAG-
1» OG HVALVEIÐI8TÖÐINA
HVEBPA A BBOTT ÚB
HVALFIBÐI, og er auðvelt að
grera sér í hugrariund hvað vak-
ir fyrir ríkisstjórntnni ogr hin-
um bandarisku húsbændum
hennar í sambandi við þann
fiutning.
Það verður ekki of oft á það
minnt að íslenzka þjóðin ber
ekki ábyrgð á þeim landráða-
samningum sem ráðherrar og
þingrmenn bandarísku fiokk-
anna hafa gert um afsal ís-
ienzks lands og landsréttinda.
Islendingar hafa háð sjálf-
steðisbaráttu öidum saman við
ofurefli, þar til slgur vannst.
Hin nýja sjálfstæðisbarátta
verður styttri, en hve löng sem
hún verður Iýkur henni ekki
nema á einn veg: lslendingar
vinna á ný sjálfstæði sitt úr
hóndum hins erienda kúgun-
arva/.ds og innlendra Ieppa
þess. Það eru fulltrúar feigs
skipulags sem í dag koma
hingað í því skyni að herða
hernaðarf jöturinn um Isiand.
„Venjulegt
ástandff við
Súes
Brezka herstjórnin á Súez-
eiði tilkynnti í gær að nú yrði
aflétt ýmsum þeim hömlum
sem verið hafa undanfarið á
samgöngum um Súessvæðið.
Er meðal annars afnumið
bann við járnbrautarsamgöng-
um milli Súessvæðis og Kairo,
egypzkir verkamenn teknir á
ný til ýmissa starfa hjá brezka
setuliðinu og egypzkum föngum
sleppt úr haldi.
Halda Bretar því fram að
nú sé orðið „venjulegt ástand"
á Súessvæðinu.
Franska stjórnin
fullskipuð
Hin nýja stjórn Antoine Pin-
ay er nú fullskipuð.
Voru nöfn ráðherra tilkynnt
í gær, en í stjórninni eiga að-
eins sæti 22, í stað 40 í stjórn-
inni næstu á undan.
Sigíús kom heim úr
dvöl í Sovétríkjunum
íyrir tæpum mánuði. og
hóí þegar fyrri störf að
nýju af sinni alkunnu
atorku og skyldurækni.
I gær héldu Góðtempl-
arar honum samsæti og
hélt Sigfús þar eina af
sínum snjöllu ræðum.
Var hann þá vel hress
en veiktist skömmu eftir
að hann kom heim, um
sjöleytið.
Var sóttur til harís
læknir er ekkert fékk að
gert og ætlaði að láta
flytja hann á spítala. En
Sigfús lézt áður en það
yrði.
Almenningsálif heimsins for-
dœmir sýklahernaSinn
Forseti heimsfriðarráðsins,
Frederic Joliot-Curie, hefur birt
eftirfarandi yfirlýsingu vegna
sýklahernaðar Bandaríkja-
manna í Kóreu:
„Frá fopseta kínversku frið-
arnefndarinnar, herra Kúó Mó-
jó, hef ég fengið þær skelfi-
legu fréttir, að bandarísku her-
irnir í Kóreu séu farnir að
beita sýklavopnum.
Dagana 26. janúar og 17. fe-
brúar dreifðu bandarískar her-
flugvélar við vígstöðvarnar og
að baki þeirra bólusóttarsýkl-
um, taugaveikisýklum, kóleru-
sýklum og sýklum fleiri ægi-
legra, smitandi drepsótta.
Þessi hræðilega athöfn getur
ekki átt upptök sín í heilbrig’ð-
um huga, en hefur engu að síð-
ur verið framkvæmd. Hún er
framhald af hinum hræðilega
glæp er hundruðum þúsunda
heimamanna v;A» tortímt á
nokkrum sekúndum í Hirósíma
og Nagasaki.
Notkun sýklavopna er ótví-
rætt brot á alþjóðaiögum. og
þó einkum á Genfarsáttmálan-
um frá 17. júní 1925.
Þéim var beitt af jaþönsku
herjunum í Kína. — Herráð
Bandarikjanna og áhrifamenn
í Bandaríkjunum hafa áður
ekki farið dult með að af
bandarískri hálfu hafa þessi
vopn verið undirbúin og fyrir-
huguð notkun þeirra.
Þetta glæpaverk gengur í
berhögg við samþykktina, er
gerð var á heimsfriðarþinginu
í Varsjá og hvatti til að bönn-
uð yrðu öll sýklavopn, eitur-
vopn og önnur vopn er miða
að múgtortímingu, en í þeirri
samþykkt var tjáð ósk og von
allra þjóða.
Með undirskrift sinni við
Stokkhólmsávarpið kröfðust
500 milljónir manna slíks banns
og létu þar með í ljós þá ósk
og von að slik fjöldamorð yrðu
aldrei endurtekin.
Nú sjá þjóðirnar hver hætta
þeim er búin, hinar miskunnar-
lausu grimmdaráðferðir sem
notaðar eru til að reyna að
þvinga< þær til undirgefni.
Almenningur verður að rísa
úpp og fordæma þennan glæp.
Frederick Joliot-Curie —
forseti heimsfriðarrá'ðsins“.