Þjóðviljinn - 06.05.1952, Side 8
Meíverfio i Vesfmannaeiiu
Vestmannaeyjum. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Vertiðin sem nú cr að ljúka hefur ycrið sú bezta sem menn
minnast í Vestmannaeyj'nm, mnna menn ekki til að jaímnikill
fisltur hafi komið á, laml á vertíð fyrr.
Þessi góði afli er þó ekki að
þakka að óvenjumiklar fisk-
göngur hafi komið á vertíðinni
heldur því hve góðar gæftir
liafaverið; þannig fóru bátarn-
ir 28 og 29 róðra í marzmán-
uði, eða næstum hvem dag
mánaðarins.
Margir bátar eru nú hættir
við netin og fa.mir að fiska á
línu og veiða öllu betur en hinir
í netin. Undanfarið hefur ver-
ið sæmilegur reitingsafli.
1. maí Bolungavík
Bolutigavík 1. maí. .
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
1. maí var lialdinn hátiðlegur
liér í Bolungavík. Verkalýðs-
og sjómannafélagið gekkst fyr-
ir skemmtun. Ágúst Vigfússon
setti skemmtunina með ræðu.
Þjóðdansar voru sýndir og
ræður fluttu Kristinn Þórðar-
son frá Brekkholti og Ingi
mundur Stefánsson kennari. —
Skemmtunin fór vel fram.
Eldur í vélbát
Á laugardaginn kom upp eld-
ur í vb. Þráinn frá Vestmanna-
eyjum þar sem hann var úti
á miðum og varð eldurinn svo
mikill að skipverjar urðu að
yfirgefa Þráin.
Áður náðist talsamband vio
Mugg er fékk Ófeig til að fara
& vettvang. Varðskipið Þór kom
síðar, slökkti eldinn og dró
foátinn til hafnar og er hann
mikið skemmdur.
Cetraunaúrslitin
Úrslit 3. getraunavikunnar
'urðu þau að aðeins 1 fékk I.
vinning, var með 10 rétta og er
vinningurinn 1833 kr., en þar
sem seðill hans var 12 raða
kerfisseðill fær liann einnig 4
III. vimiinga og 5 III. fl. vinn-
inga, sem samtals gerir 2571
krónu.
12 voru með 9 rétta og er
upphæð II. vinnings 152 kr. og
69 voru með 9 rétta sem gerir
26 kr.
Menntaskólinn íær 4
hektara lóð
Á fundi bæjarráðs 2. maí var
lagt fram hréf frá byggingar-
nefnd Menntaskólans í Reykja-
vík, þar sem gerð er grein
fyrir lóðaþörf undir hi'ð nýja
skólahús og byggingar því til-
heyrandi. Samþykkt var að
gefa skólanum kost á allt að
4- ha lóð sunnan Mildubrautar,
en austan Stakkahlíðar, eftir
mánari útvisun síðar.
HreyilO sækir um
athalnas^æði
Á fundj bæjarráðs 2. mai
var lögð frarn umsókn Sam
vinriufélagsins Hreyfils um at-
hafnasvæði milii Grensásvegar
og Háaleitisvegar. Erindinu var
vísað til umsagnar samvinnu
nefndar um skipulagsmál.
Lciklist blómgast
Vestmannaeyjum.
Frá fréttaritara Þjóöviljans
Sl. föstudagskvöld fvumsýndi
Halastjarnan leikinn Dorothea
eignast son. Leikstjóri er Hauk-
ur Óskarsson frá Reykjavík.
— Leikurinn fékk gó'Öar und-
irtektir.
f kvöld frumsýnir Leikfélag
Vestm.eyja Aumingja Hönnu,
Jeiksljóri er Rúrik Haraldsson.
L maí Norðfirði
Neskaupstað.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Verkalýðsfélögln hér héldu 1.
maí hátíðlegan með kvikmynda-
sýningu fyrir börn kl. 3 og
sumkomu i verkalýffsliúsinu um
kvöldið.
Jóhannes Stefánsson flutti
ræðu, Davíð Áskelsson las upp
kvæði, þ.á.m. frumsamið kvæði,
Óskar Bjömsson lék einleik á
banjó, m.a. lag eftir sjálfan sig,
Lúðvík Jósefsson alþm.. sagði
frá för til Sovétríkjanna, Jón
G. Jónsson söng einsöng með
imdirleik Karls Pálssonar og
Sigdór V. Brekkan las upp.
Að* lokum var sýud kvikmynd
ÓbyggSirnar
kalla
FYRIR nokkrum dögum kom út
hjá Isafoldarprentsmiðju skáld-
saga Jack London Óbyggðimar
kalla. Saga þessi heitir á frum-
málinu The Call of tlie Wild,
og er ein kuiinasta saga þessa
mikla rithöfundar.
Aðalpersóna sögunnar er
hundurinn Buk, upphaflega
menntáður hundur í hlýjum dal
suður í Ameríku, en er síðan
stolið og farið með hann norð-
ur til Alaska, þar sem hann
er gerður að ökuhundi. Sætir
hann þar illri meðferð framan
af, og þolir rnikið erfiði. Breyt-
ist haijn allur við þessa að'búð
verður grimmur og viðskota-
illur, og svífst einskis í sam-
keppninni um fæðu og aðbúð
Er alveg sýnilegt að höfundur-
inn hefur þjóðfélagi'Ö í baksýn
sögunnar. Frásögnin og iýsing,
arnar eru oft mjög dramatísk-
ar, og öll er þessi saga bin
"merkasta.
Útgefandi hefur bú'"> ;ögunni
smekklegan húnúig, og er bók-
in þó mjög ódýi eftir því sem
bókaverð gOT,;st nú á timrm
Þýðandi er ð’afnr Friðrikrron.
SeMih. 'í V,'klícs*óva&w
Bjarni Á’geirsson sendiherra
afhenti í Prag 3. þm. forseta
Tékkóslóvakíu tninaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands í Tékkó-
slóvakíu. — Sendiherrann mun
hafa áfram aðsetur í Os’ó.
Nú er bókin
komin út
Margir1 hafa undanfarið beð-
ið með óþreyju cftir bókinni
hans Eggerts Stefánssonar
söngvara: Lífið og ég II. —
og nú er hún komin út í 250
eintökum, árituðum af höfundi.
1 þessu hindi segir hann frá
söngför lieima á íslandi, líf-
inu í Berlín eftir stríði'ð, söng-
för til Bandaríkjanna og ferða-
la gi um þau og þó sérstaklega
heimsókn til Stephans G. Step-
hanssonar í Markerville. Þá má
ekki sleppa ferðalagi hans um
ísland á hestum — sem hann
glfeymir aldrei — og lesand-
inn ferðast nú með honum. Og
þó er bókin fyrst og fremst
um ísland, um hverja síðu
leikur hiti hinnar djúpu ástar
höfundarins á ættjörðinni.
Nýr viti
Neskaupstað.
Frá fréttaritara Þjóðviljans
Vinnuflokkur frá vitamála-
stjóminni er kominn hingað til
að byggja vita á Bakkabökkum
fyrir neðan íþróttavöllinn. Fyr-
ir 15—20 árum var þarna ljós-
merki, en hefur ekkert verið
síðan.
Skákeinvígið
heldur áfram
Fyrstu lotunni í skákeinvígi
þeirra Lárusar Johnsen og
Fri'ðriks Ólafssonar (sem átti
að vera úrslitalotan) lauk sem
kunnugt er með því að þeir
enduðú jafnir og var þá ákveð-
ið að þeir tefldu enn tvær skák
ir til úrslita.
Líklegt er að einvigi þeirra
dragist fram undir máuaða-
mótin, þfví bæði er Friðrik að
fara í próf en auk þess er hol
lenzki skákmað'urinn Prins
væntanlegur frá Akureyri og
Þriðjudagur 6. maí 1952
17. árgangur
99. tölublað
Afli síðasta hálfan mánuð
Afli á verstöðvum á Suðurlandi hefur verið sem hér segir
síðari hluta aprílmánaðar:
AKRANES
Frá Akranesi réru 15 bátar
með línu og einn bátur með net.
Gæftir hafa verið góðar, en
afli fremur rýr. Flest hafa verið
farnir 12 róðrar á tímabilinu.
Alls hafa verið farnir 168 róðr-
ar og er aflinn í þeim 700 lestir.
Hæsti bátur yfir vertíðina, hefur
aflað 425 lestir í 74 róðram.
Mikið hefur borist á land af
fiski úr togurum þennan mánuð.
VESTMANNAEYJAR
Þar hafa gæftir verið góðar
og afli mikill og nokkuð jafn á
hverjum bát, þar til nú síðustu
daga, að hann hefur farið að
tregðast. Aðalaflinn er á báta
sem veiða í þorsknet. Hinsveg-
ar hefur afli togbáta verið
fremur rýr, hafa þeir stundað
bæði með flotvörpu og botn-
vörpu, með svipuðum árangri.
Eklti er vitað með vissu um
afla einstakra báta né heildar-
afla. Aflinn hefur aðallega verið
saltaður og frystur, en úrgangs-
fiskur farið til lierzlu. Þrengsli
eru orðin mikil í aðgerðarhúsum
og fiskvinnslustöðvum. Þá var
og svo til saltlaust um tírna og
olli það nokkrum trafala. í sam-
bandi við vinnslu aflans. Tog-
aramir liafa fiskað vel, en vegna
mikils landburðar af fiski frá
bátunum liefur stundum ekki
vérið hægt að afgreiða þá og
hafa þeir þá orðið -að fara. ann-
að til að losa aflann.
ÓLAFSVÍK
Þar hafa gæftir verið góðar
Nordal kominn heim
Sigurður Norðdal sendiherra
var ineðal farþega með Gull-
faxa á laugardagskvöldið og
en afli afar rýr, eða alveg ör-
deyða frá 15.—25. apríl, en nú
er afli aftur að glæðast og hafa
fengist 2—5 lestir í róðri síð-
ustu daga.
EYRARBAKKI
iFimm bátar stunda veiðar
með Jxirskanet frá Eyrarbakika.
Gæftir hafa verið góðar og afli
mjög sæmilegur. Aflamagn þess
ara 5 báta yfir tímabilið er um
280 lestir í 72 róðrum. Aflinn
er saltaður og frystur noklcuð
að jöfnu.
SANDUR
Frá Sandi róa tveir dekkbát-
ar með línu. Gæftir hafa verið
ágætar og afli mjög sæmilegur,
eða frá 3—5 lestir að jafnaði.
Mestur afli í róðri hefur verið
um 6 lestir. Afli þessara tveggja
báta er 101 lest' í 25 róðrum.
Síðustu daga hefur aUi verið'
fremur að glæðast.
STYKKISHÓLMUR
Þaðan stunda veiðar 2 bátar,
en auk þess einnig 2 bátar sem
eru á útilegu með línu. Gæftir
hafa verið all stirðar og afli
mjög rýr, þó er afli heldur að
glæðast nú síðustu daga, en
nokkuð gætir ágengni togara á
miðunum. Afli þeirra tveggja
landróðrabáta jTir tímabilið
nemur samtals 36 lestum í 7
Framhald á 7. síðu.
mim væntanlega tefla hér viðj mun dveljast liér heiina til 17.
ýmsa skákmenn.
þessa mánaðar.
minnisvarða
Stjórn Skíðafélags Reykja-
víkur hélt nýlega fund og bauð
þangað ýmsum forystumönnum
skíðaíþróttarinnar.
I upphafi fundarins minntist
formaður L. H. Múllers, kaup-
manns og rakti ævistörf lians
og sérstaklega starf hans í
bágu skíðaíþróttarinnar og
Skíðafé’ags Reykjavíkur.
Risu fundarmenn úr sætum
til virðingar hinum látna í-
þróttafrömuði.
Á fimdi Jiessum var ákveðið.
að stjóni Skíðafélagsins skyldi
beita. sér fyrir l>ví, að L. H.
MúIIer ,vi*ði reistur minnisvarði
í námunda við Skíðaskálann í
Hveradölum og yrði hann reist-
ur jafnsnemma fyrirhuguðum
minnisvarða ura Kristján heit-
inn Skagfjörð. Verður hafizt
handa svo fljótt sem anðið er.
Þeir Gisli Halldórsson, arkitekt
og Einar B. Pálsson. verkfræð-
ingur munn verða stjóminni til
aðstoðar við framkvæmd verks-
ins.
Nýstárleg aihending heiðursmerkja:
5 ára öruggur akstur
I gær fór tram nýstárleg heiðursmerkjaafliending. Var 13 bif-
reiðaeigemluin afhent heiðursmerki er Samvinmitryggingar hafa
látíð geiii.
Samvlanutryggingar hafa tekið upp þá nýbreytni að heiðra
aila bifreiðaeigendur sem hafa bifreiðar sínar tryggðar hjá fé-
lagiiui í 5 ár án þess að valda skaðabótaskiyjdu tjóni á þeim tíma.
Bifreiðíiéign islendinga ei
nú r'ifin á 3—tOO millj. kr.
og nemur tjón af völduni á-
rokstra og k!vsa miíljónum
á ári hverju. Hjá Samvinnu-
íryggingum einum, sem
ri’yggja þriðjung allra bif-
reiða í landinu, nema, greiðsl-
ur fyri’r tjón á bifreiðum og
áætluð ógreidd tjón s.l. 5 ár
samtals 5 ’millj. 600 þús. kr.
Árekstrar og slys munu hafa
verið svipuð á s.l. ári og árin
áður og er því full ástæða til að
draga úr þeim. Samvinnutrygg-
ingum bái-ust á árinu samtals
1350 tilkynningar um tjón frá
þeim 3700 bifreiðum sem félag-
ið tryggir.
Fyrstu bifreiðatryggingar
Samvinnutrygginga, á öðrum en
nýjum bílum, tóku gildi 1. maí
1947, eða fyrir fimm árum síð-
an. Létu þá margir bifreiðaéig-
endur tryggja bifreiðar sínar
hjá félagmu, og 1. maí síðast-
liðinn kom í ljós, að 116 þeirra
höfðu aldrei valdið tjóni á Jæssu
tímabin. Af þeim eiga 12 heima
í Reykjavík.
Það er tilgangur Samvinnu
trygginga með öryggismerki
þessu að hvetja ökumenn til
þess að sýna fulla gætni við
akstur og gera þeim það kapps-
mál að valda aldrei tjóni á bif-
reið sinni eða öðrum farartækj-
um.
Samvhmutryggingar liafa
lialdið uppi margvíslegu starfi
til þess að stuðla að au’tinni um
ferðamenningu og diaga úr á-
rekstnun og slysum. Varð fé-
lagið fyrst íslenzkra trygginga
fólaga til þcss að veita mönnum
Frarnliald á 7. síðu.
Fjársöfnunar-
nefnd
Stúdentafélag Reykjavíkur
hefur snúið sér til margra
helztu félagssamtaka landsins
og beðið þau að tilnefna full-
trúa í nefnd, er hafi forgöngu
um fjársöfnun og undirbúning
að byggingu Árnasafns á ís-
landi.
Mikið hefur borizt af fram-
lögum til safnsins, og telur
þjóðminjavörður sér tæplega
lengur fært að taka við fram-
lögum og annast um þau, enda
þótt svo verði að vera fyrst
um sinn. En svo er til ætlazt,
að nefndin annist fjársöfnun-
ina framvegis.
Félagssamtök þau, sem Stúd-
entafélagið hefur haft samband
við, eru: Alþýðusamband ís-
lands, Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja, Farmanna- og
fiskimannasambandið, Félag ís-
lenzkra iðnrekenda, Félag ísl.
stórkaupmanna, Kvenfélagasam
bandið, Landssamband iðnaðar-
manna, Landssamband ísl. út-
vegsmanna, Samb. ísl. sveitar-
félaga, Stéttarsamband bænda,
Ungmennafélag íslands, Verzl-
unarráðið og Vjnnuveitenda-
sambandið, — (F“étt frá Stúd-
entafélagi Reykjavíkur).
Ný mssnesk kvik-
mynd í kvöld
Myndasýning MÍR af sovét-
list er opin daglega. í Þingholts-
stræti 27 frá kl. 5—7 síðdegis
og hefur margt manna sótt sýn-
inguna.
Auk listaverkamyhdanna eru
ennfremur sýndar í sýningar-
glugganum mvndir frá efna-
hagsráðstefnunni í Moskva og
myndir frá lífi Sovétþjóðamia.
I kvöld kl. 9 verður sýnd ný
rússnesk kvikmynd.